Morgunblaðið - 01.03.1962, Blaðsíða 12
12
MORGVTSBLÁÐ1Ð
Fimmtudagur 1. marz 1962
Ctgefandi: H.f. Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (át>m.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kris.tinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Augiýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
ALYKTUN FRAM-
SÓKNARFL OKKSINS
CHjómmálaályktun sú, sem^
^ mí^ctinrn Frtim c Alrtn c* r*_ n
miðstjórn Framsóknar-
arflokksins samþykkti á
fundi sínum um síðustu
helgi, er einhver mesta moð-
suða, sem lengi hefur gefið
að líta. Þar er íslenzku máli
freklega misþyrmt, en látum
það liggja milli hluta.
Athyglisverðast við yfirlýs
inguna er, að þar er hvergi
að finna styggðaryrði í garð
kommúnista, en hins vegar
látlausar — en þó sérlega
barnalegar — árásir á stjórn-
arflokkana. Niðurstaða álykt
unarinnar er sú, að brýn-
asta nauðsyn beri til að
svipta Sjálfstæðisflokkinn og
Alþýðuflokkinn meirihluta-
valdi á Alþingi.
Þá er sagt að stjórnar-
stefnan hafi „reynzt auðmjúk
gagnvart erlendu valdi“, og
er það ein meginröksemdin
fyrir nauðsyn þess að Fram-
sóknarflokkurinn „verði
stærsti þingflokkurinn.“ —
Þannig er það berum orðum
sagt, að tveir lýðræðisflokk-
anna séu þjónar erlends valds
og þess vegna þurfi að
svipta þá meirihlutavaldi og
fá kommúnistum og Fram-
sóknarmönnum saman meiri
hluta. Þess vegna er forðazt
að benda á þá augljósu stað-
reynd, að hérlendis er aðeins
einn flokkur, sem skilyrðis-
laust þjónar erlendu valdi,
erindrekar heimskommúnism
ans.
Að öðru leyti er ályktunin
endurtekning þess fáránlega
áróðurs, sem einkennt hefur
skrif Tímans undanfarna
mánuði, upphrópanir um sam
drátt, kreppu og móðuharð-
indi af mannavöldum.
Sama daginn og ályktunin
var birt í Tímanum var frá
því skýrt, að ungur rithöf-
undur, Indriði G. Þorsteins-
son, hefði verið ráðinn rit-
stjóri við blaðið. Leyfir Morg
unblaðið sér að óska honum
þess, að ritstjómarferill hans
þurfi ekki að einkennast af
jafn bjálfalegri túlkun og
svip sinn setti á fyrsta blað-
ið, sem hann ritstýrði.
EIN ÓÞÖRF
MILLJÓN
Ýslenzkir skattborgarar reka
sem kunnugt er útgáfu-
starfsemi, sem nefnist Bóka-
útgáfa Menningarsjóðs. Þessi
útgáfustofnun hefur gefið út
nokkuð góðra bóka, ýmislegt
sæmilegt og töluvert af rusli,
eins og gengur og gerist um
útgáfufyrirtæki. Fátt hefur
hún þó gefið út, sem mikill
fengur er í og ekki mundi
hafa komið út hjá öðrum út-
gáf uf yrirtæk j um.
Munurinn á bókaútgáfu
Menningarsjóðs og öðrum
bókaútgáfum er sá, að Menn-
ingarsjóður fær fé úr vasa
skattborgara til að stapda
undir útgáfustarfseminni. —
Líklega fer um ein milljón
af fé menningarsjóðs til þess
að standa beinlínis undir
halla af útgáfunni. Ekki
verður séð, að minnsta á-
stæða sé til að hirða þessa
fjármuni af borgurunum til
að gefa út bækur, sem aðrir
mundu fúsir að gefa út án
styrkja.
Vera má, að í undantekn-
ingartilfellum sé eðlilegt að
styrkja af almannafé útgáfu
bóka, sem nauðsynlegt er að
komi út, en þó geta naum-
ast borið sig. Eðlilegri aðferð
væri þá, að útgáfufyrirtæki
æsktu sérstaks styrks í slík-
um tilgangi, heldur en að
ríkið sjálft væri að baksa við
bókaútgáfu. Mætti hugsa sér,
að Menningarsjóður hefði ein
hverja minni upphæð til út-
hlutunar í þessum tilgangi,
en legði hins vegar niður
eigin útgáfu.
VOLUÐ STJÓRN-
ARANDSTAÐA
Ctjórnarandstaðan er að von
^ um mjög aum eftir ó-
sigrana í kosningum til
stjórna verkalýðsfélaganna.
Karlmennska Tímans er ekki
meiri en svo, að blaðið reyn-
ir nú að hlaupa frá stuðningi
sínum við kommúnistalistann
í Iðju. Fyrir kosningarnar
kallaði Tíminn þann lista
„lista vinstri manna“, en
eftir kosningarnar eignar
hann Birni Bjarnasyni list-
ann.
Meginástæðan til þess að
Framsóknarflokkurinn tók
upp hina nánu samvinnu við
kommúnista í verkalýðsfélög
unum var sú, að foringjar
Framsóknarflokksins héldu,
að þeir gætu fellt ríkisstjórn-
ina með verkföllum og töldu
sér sæma að kollvarpa efna-
hag landsins til þess eins að
komast sjálfir í valdastöður.
Nú hefur sannazt, að laun-
þegar afneita verkfallastefn-
unni og vilja fara kjara-
bótaleiðina. Spurningin er
þá aðeins um það, hvort
Framsóknarflokkurinn ber
IITAN UR HEIMI
CNRA
I Alslr
ÞINGI alsírskra byltingarmanna
er nú lokið í Tripoli og sam-
þykkti það vopnahlésskilmálana,
sem franska stjómin hafði áður
fallizt á. Serkir setja þó nokkur
skilyrði fyrir samþykktinni eins
og það að Alsír fái fullt sjálf-
stæði eftir fjóra mánuði en ekki
sex eins og ráðgert er. Nú mun
verða haldinn fundur útlaga-
stjómarinnar í Alsír og lokavið-
ræður við Frakka undirbúnar,
en vonir standa til að loks kom-
ist á friður milli Frakka og
Serkja eftir sjö ára styrjöld.
FYRSTA ÞINGIÐ
1 þessari styrjöld hefur þing
byltingarmanna eða fuiltrúaþing
Serkja komið nokkuð við sögu.
Þing þetta nefnist Comité Nation
al de la Revolution Algerienne
eða CNRA. Það kom fyrst sam-
an í Souman dalnum í Kabylíu
í ágúst 1956. Þá boðuðu sam-
tök uppreisnarmanna í Alsír,
vopnahléið
Ben Khedda
FLN, til fundar til að vinna að
sameiginlegri stefnuskrá upp-
reisnarmanna, en áður hafði
byltingin gegn Frökkum ein-
kennzt af óskipulögðum árás-
um undir forustu leiðtoganna
Ben Bel'ia og Belkacem Krim.
Á þessum fundi var þingið
stofnað og yfirstjórn aðgerða
uppreisnarmanna, sem nefndist
Framkvæmda- og skipulags-
nefndin (CCE). Her uppreisnar-
manna var sameinaður undir
stjórn CCE, og höfðu nú upp-
reisnarmenn ríkisstjórn, þing og
her.
gæfu til að hætta samstarf-
inu við kommúnista og taka
upp heilbrigða stefnu í verka
lýðsmálum.
Ályktun miðstjórnar Fram
sóknarflokksins bendir að
vísu ekki til slíkra sinna-
skipta, því að þar er svika-
samningunum sl. sumar hrós
að. Þess er þó að gæta, að
ályktunin mun samin, áður
en úrslit voru kunn í Iðju
og Trésmiðafélaginu, og má
vera að Framsóknarforystan
hafi þess vegna enn haft trú
því, að samstarfið við
kommúnista í verkalýðs-
hreyfingunni mundi endast
henni til sigurs yfir Við-
reisnarst j órninni.
Ben Bella
JAFNRÉTTI
Samtök uppreisnarmanna eru
byggð á jafnréttisgrundvelli og
lýðræði. Enginn einstaklingur
átti að geta náð úrslitavöldum.
Allar ákvarðanir voru teknar
samkvæmt vilja meirihlutans,
bæði hjá stjórninni CCE) óg
þinginu (CNRA). Þessum meg-
inreglum hafa uppreisnarmenn
ætíð fylgt og þess vegna var
þingið kvatt saman eftir að út-
lagastjórnin hafði í rauninni
samþykkt vopnahiésskilmála
Frakka.
Á fyrsta þinginu í Souman
dalnum var samþykkt stefnu-
skrá, þar sem tekið er fram að
ekki sé verið að berjast fyrir
því að mynda nýtt alsírskt ríki,
heldur að endurreisa það ríki,
sem Frakkar lögðu undir sig
með valdi fyrir 130 árum. Til-
gangurinn var að koma á lýð-
ræðislegu þjóðfélagi, sem tryggði
íbúunum stjórn landsins.
ANNAÐ ÞINGBB
Annar fundur CNRA var hald
inn í Cairó í ágúst 1957 eftir að
CCE varð að flýja frá Algeirs-
borg til Túnis, og herinn hafði
gefið upp vonina um að vinna
sigur á franska hernum í Alsír.
Þrátt fyrir þessa ósigra hafði
CCE unnið pólitískan sigur. —
Serkir voru nú sameinaðir und-
ir hennar stjórn, hægfara stjóm
málamenn eins og Ferhat Abbas
voru gengnir í lið með henni
og uppreisnin vakti athygli er-
lendis.
Á Cairófundinum var starfs-
svið CCE aukið og stjóminni
falið að mynda bráðabirgða rík-
isstjórn eða útlagastjórn ogleita
Ferhat Abbas
eftir viðurkeííhingu á henni er-
lendis.
ÚTLAGASTJÓRN ABBAS
Þriðji fundur CNRA hófst í
Tripoli í september 1959 og stóð
í fjóra mánuði. Þar var unnið
að stjórnarskrá fyrir Alsír og
þar var samþykkt að setja þau
skilyrði fyrir aðild að FLN
(samtökum byltingarmanna) að
meðlimirnir mættu ekki vera fé-
lagar í neinum stjórnmálaflokki
öðrum. Nú er svo komið að
eini flokkurinn, sem til er utan
FLN er kommúnistaflokkurinn,
sem aldrei hefur getað fallizt á
þessi skilyrði.
Á þessu þingi var fyrsta út-
lagastjórn Serkja mynduð undir
forsæti Ferhat Abbas. Og það
var þessi tjóm, sem í október
neitaði friðartilboði de Gaulle á
þeim grundvelli að það fæli í
sér eftirgjöí.
BEN KHEDDA TEKUR VIÐ
Fjórða þing CNRA kom sam-
an í Tripoii í ágúst 1961 eftir
að viðræðurnar við Frakka í
Evian höfðu farið út um þúfur.
Þá var mynduð ný ríkisstjórn
og tók Youssef Ben Khedda við
embætti forsætisráðherra. Með
Ben Khedda kom til valda öflug
ríkisstjórn með víðtækari völd
frá CNRA. Og það er þessi
stjórn, sem nú er að koma á
vopnahléi í Alsír.
Belkacem Krim
Það hafði mikið að segja varð-
andi samþykkt vopnahlésskil-
málanna að byltingarleiðtoginn
Bel Bella, sem situr í fangelsi
í Frakklandi, samþykkti samn-
inginn hinn 1. febrúar sl., eftir
að Belkacem Krim og Ben Tob-
bal óku með mestu leynd yfir
Frakkland til hallarinnar fyrir
sunnan París þar sem Ben Bella
situr í haldi. Ræddu þeir við
Ben Bella og skýrðu gang samn
inganna. Samþykkti þá Ben
Bella samninginn eins og hann
liggur nú fyrir.
— ~k —
Ferð þeirra Krim og Tobbal
til Parísar sýnir að gagnkvæmt
traust ríkir milli frönsku stjórn-
arinnar og útlagastjórnarinnar í
Alsír. Báðir þessir menn hafa
verið dæmdir til dauða af frönsk
um dómstólum fyrir byltingar-
starfsemi, en engu að síður tóku
þeir á sig þessa ferð um „óvina
landið“ undir eftirliti frönsku
lögreglunnar. Vonandi á þetta
gagnkvæma traust eftir að leiða
til friðar í Alsír.
INNANHÚSSMÓT ÍR.
í frjálsíþróttuan fer fraim að
Hálogalandi dagana 10. og 11.
marz n.k. Keppnisgreinar verða,
fyrri dagur: Stangapstöikk, þrí-
stökk án atrennu, hástöikk ung-
linga án atrennu. Síðari dagur:
Kúluvarp, langstökk. Þátttökutil-
kynningar þurfa að hafa borizit
ÍR í pósthóli 13, Reykjavik 1 síð-
asta lagi 5. marz.