Morgunblaðið - 09.03.1962, Síða 2
2
MORGVTSBLAÐIÐ
Föstndagur 9. marz 1962
Lánasjdðir landbúnaðarins
bönkum nema fjárfestingarbönb-
um landbúnaðarins.
Þessi- ummæli eru hreinar fjar
stæður. Ríkissjóður hefur ekki
tekið á sig nein gengistöp, hvorki
banka né annarra, og engum
gengistöpum hefur verið létt af
bönkunurn. Þegar gengislækkun
in var framkvæmd árið 1960 var
Seðlabankinn í verulegum gjald-
eyrisskuldum. Þessar skuldir
höfðu myndazt á síðustu mánuð-
um ársins 1959 og fyrstu tveiimur
mánuðum ársins 1960, og hafði
þeirra vegna reynzt mögulegt að
halda efnahagslífinu í nokkurn
veginn eðhlegu horfi meðan við-
reisnin var í undirbúningi. Enn-
fremur var ríkissjóður ábyrgur
fyrir greiðslu gjaldeyrisskuldar
við Greiðslubandalag Evrópu,
sem myndazt höfðu á allmörg-
um árum. Hins vegar áttu þeir
viðskiptabankar, sem verzla með
gjaldeyri, nokkrar gjaldeyriseign
ir. í efnahagsmálalögunum var
svo kveðið á, að gengistap það,
er yrði vegna skuldar ríkissjóðs
við Greiðslubandalag Evrópu og
gjaldeyrisskulda þeirra banka, er
verzluðu með erlendan gjaldeyri,
skyldi fært á sérstakan reikning
á nafni rikissjóðs í Seðlabank-
anum. Á þennan reikning skyldi
einnig færa þann gengishagnað,
sem gjaldeyrisbankarnir fengju
Framhald á bls. 8.
hafa notið sama
réttar og bankar
Þannig hugsar Klaus Albrechtsen, tetknari BT, ser „listrr.il-
arana“ Kampmann, Reumert og Dirch Passer.
Reumert að mála
Heldur sýningu áscunt Kampmann
forsætisráðherra og fleirum
Kaupmannalhafnarbílaðið BT
skýrir í gær frá nýstárlegri
málverkasýningu, sm haldin
verður 'í Kaupmannahöfn í
surnar. Meðal þeirra, sem þar
sýna venk sín, eru Viggo
Kampmann forsætisráðherra,
Fouil Reumert leikari, Dirch
Passer, sem er einn þeikiktasti
gamanleikari Dana og Eivind
Larsen lögreglustjóri í Kaup
mannalhöfn.
Það eru fleiri, sem taka
þátt í þessari samisýningu. —
Rúmlega 60 landskunnir Dan
ir — listamenn, stjórnmála-
menn og háttsettir embættis-
menn — eiga verk á sýning
unni. Og öll listaverkin verða
seld þeim, sem hæst bjóða.
Lang flestir þeirra þeklrtu
manna, er nú koma fram sem
listmálarar, hafa mjög tak-
markaða þekkingu á miálara-
list. Sumir jafnvel enga. En
þeir hafa samþykkt að taka
þátt í þessari sýningu vegna
þess að bæði aðgangseyrir og
tekjur af sölu málverkanna
renna óskipt til aðstoðar við
vanþróuð lönd.
Það er LIONS-hreytfingin í
Danmiörku, sem á hugmynd-
ina að þessi skemmtilegu sýn
ingu og hefir hún fengið A.
Björnsten frá Kofoed skóla
á Amager til að veita henni
forstöðu.
— Það verða mjög takmörk
uð útgjöld í sambandi við
þessa sýningu, segir Björn-
sten. Stórt málningarfyrirtæki
lætur listamönnunum ókeyp-
is í té léreft, liti og pensla og
félagið „Den Frie“ hefur boð
izt til að lána sýningarsali
sína fyrir lækkaða lelgu.
Stefnt er að því að opna
sýninguna í júni og án efa á
hún eftir að gefa af sér mörg
þúsund krónur til aðstoðar
við vanþróuð lönd.
Kaupmannahafnarbúi nokk-
ur hefur nú þgar boðið 5.000,-
danskar krónur i málverk eft
ir Poul Reumert.
Svertinginn neitar að hafa
stungið Islendinginn
Júlíus Steindórsson talinn úr allri hættu
Einkaskeyti til Mbl. frá K.höfn
ÞAÐ bar við á veitingahúsinu
Casanova í Kaupmannahöfn á
miðvikudagsnóttina, að íslenzk
Ur maður, Júlíus Steindórsson,
52 ára að aldri, var stunginn
hnifi og særður lífshættulega.
Hann var þegar fluttur í Borg-
arsjúkrahúsið, gerðir á honum
uppskurðir og blóði dælt úr
lungunum. Vonast læknar til
þess, að tekizt hafi að bjarga lífi
mannsins.
Það mun hafa verið banda-
riskur negri, Levern Dixon að
nafni, sem veitti Júlíusi þessa
áverka, en við yfirheyrslu hefur
hann neitað öllum sakargiftum.
Hann kveðst ekki hafa haft
neinn hníf í fórum sínum og
komið hefur fram við réttarhöld
in, að enginn hefur séð hann
stinga Júlíus. Hnífurinn hefur
ekki fundizt.
Ncgrinn sem er 22 ára, gegnir
herþjónustu í Vestur-Þýzkalandi,
en var í orlofi í Kaupmanna-
höfn. Hann hefur verið úrskurð-
aður í 14 daga varðhald fyrst um
sinn meðan mál hans er rannsak-
að.
Atburður þessi varð um hálf
tvö leytið á miðvikudagsnótt og
fjöldi gesta í veitingahúsinu.
Júlíus Steindórsson hafði snúið
sér að hermanninum. sem stóð
í yfirfrakka við dansgólfið — og
beðið hann að taika af sér frakk
ann, áður en hann færi að dansa.
Hermaðurinn neitaði og gerði
Júlíus sig þá líklegan til að færa
hann úr frakkanum með lempni,
en áður en varði kom til handa-
iögmáls þeirra í milli. Þeir velt-
ust uni á gólfinu nokkra stund,
en skyndilega spratt Dixon upp
og tók til fptanna en eftir lá
Júlíus í blóði sínu, stunginn hnífi
í brjóst og háls. Einn þjónanna á
Casanova veitti Dixon eftirför
en missti sjónar af honum á Strik
inu. Á meðan var kallað á lög-
reglu og sjúkrabifreið og Júlíusi
ekið á Borgarsjúkrahúsið. — Þar
lá hann á skurðarborði mestalla
nóttina og telja læknarnir, að
hann sé úr lífshættu. Þó hefur
enginn fengið að tala við hann
og lögreglan ekki getað yfirheyrt
hann enn sem koomið er.
• Var nær sloppinn,
til Svíþjóðar
Svo sögunni sé vikið aftur að
árásarmanninuim, þá náðist hann
loks í gærdag eftir mikla leit,
— og mátti engu muna, því að
hann var búinn að kaupa sér
farmiða til Svíþjóðar og átti að
halda af stað fimmtán mínútum
eftir að hann fannst.
Miðvikudagsnóttina alla var
mannsins leitað í öllum þeim gisti
húsum, sem vitað var að her-
menn héldu til í, er þeir komu
til Kaupmannahafnar. Lögreglu-
vörðum var hvarvetna gert við-
vart og snemma á miðvikudags-
morguninn fór Sigfred Möller, yf-
irlögregluþjónn til aðaljámbraut
arstöðvarinuar í Höfn til bess að
8 MAXZ ftu
Kl. 11 í gær var ennþé mikil
hæð yfir Grænlandi. Á Suður
og Suðaiusturlandi var léttskýj
að en loftvog var fallandi á
hafinu fyrir suðaustan land
og úrkomusvæðið yfir Skot-
landi á hreyfingu norður. í
New York og nágrenni var
álíka frost og hér á landi, en
á sömu breiddargráðum aust
an megin Atlantshafsinis, í
Portúgal var 15 stiga hiti.
Júlíus Steindórsson v
aðvara lögregluverði þar og vega
Bréfaeftirlitið. Þá kom hann auga
á mann kiæddan borgarl. fötum
og bar kennsl á Dixon. Er hann
tók í handlegg hans, smeygði
Dixon sér fimlega úr frakikanum
og hljóp af stað, með yfirlög-
regluþjóninn á hælum sér. Möller
hóaði í leigubílstjóra, er sáu
eltingaleikinn og komu þeir þar
að sem þeir Möller og Dixon
slógust af hörku. En leigubifreiða
stjórarnir misskildu málið og
tóku upp hanzkann fyrir Dixon
— héldu, að um kynþáttaofsókn
væri að ræða — og börðu misk-
unnarlaust á yfirlögregluþjónin
um. Meðan notaði Dixon tæki-
færið og komst undan. Skömmu
síðar náðist bann í Enghave, þar
seim hann studdist lafmóður við
húsvegg.
Þegar Dixon var Ieiddur fyrir
rétt og sakaður um tilraun til
mannvígs neitaði hann afdráttar-
laust þeirri sakargift og kvaðst
aldrei hafa haft umræddan hnif
i sínum fórum. Hann kveðst hafa
neitað að fara úr frakkanum
sökum þess, að aðrir en hann
hafi verið frakkaklæddir inni i
veitingahúsinu, — og flúið hafi
hann vegna þess, að einhver hafi
elt sig.
Það hefur komið i ljós við
yfirheyrzlu, að enginn hefur séð
hnífinn í faendi Dixons og eng-
inn með vissu er Júlíus var
stunginn. Eitt vitni segist hafa
séð Dixon „taka eitthvað“ upp
úr vasa sínum. —
Dixon hefur verið úrskurðaður
í 14 daga varðhald meðan málið
er kannað. Leyfi hans er útrunn-
ið 19. marz. Það hefur kömið f
Ijós, að Dixon er þaulvanur hnefa
leikamaður og ætlaði næstu daga
til Svíþjóðar með kunningjum
sínum.
• Lék í 12 ár á Casanova.
Júlíus P. Steindórsson var
kunnur í Kaupmannafaöfn, sem
píanóleikari. Hann er ættaður
frá Vík í Mýrdal en hefur dival-
izt í Danmörku í 25 ár og leikið
víða í veitingahúsum, síðustu tólf
árin í Casanova. Skammt er síð-
an hann hætti að leika þar á
hljóðfæri og tók við starfi fata-
varðar. Júlíus er kvæntir'
danskri konu, en barnlaus.
Formaður Framsóknarflokksins grípur til
fáheyrðra blekkinga á undanhaldi sínu
í umræðum um landbúnaðarmál
Á FUNDI sameinaðs þings sl. miðvikudag, fór Eysteinn
Jónsson formaður Framsóknarflokksins mjög halloka í um-
ræðum um landbúnaðarmál, svo að hann greip til þeirra
vísvitandi blekkinga ,að ríkissjóður hefði borgað gengis-
töp bankanna og sparisjóðanna, en lánasjóðir landbúnað-
arins hefðu verið skildir eftir og taldi hann þetta vott
þess, hvernig landbúnaðarráðherra hefði staðið í stöðu
sinni. Jafnframt hélt hann því fram, að skuldaaukningin
við útlönd í tíð núverandi ríkisstjórnar næmi 12 hundruð
millj. kr., sem einnig eru hreinar rangfærslur.
gengistöp allra banka landsins
vegna erl. lána, sem þeir hefðu
tekið, og að rí'kisstjórnin hefði
talið það sjálfsagðan hlut, að
gengistöpum yrði létt af öllum
SAMKVÆMT frásögn Tknans í
gær sagði Eysteinn Jónsson á
Alþingi í fyrradag, að ríkisstjórn
in hafi látið ríkissjóð taka á sig