Morgunblaðið - 09.03.1962, Blaðsíða 5
Föstudagur 9. marz 1962
M O R C VN BL A Ð 1Ð
5
MENN 06 •
= MAŒFNI=
Meðal kvikmyndaleikara í
Englandi er nú álitið, að ekki
verði langt að bíða þess, að
kvikmyndaleikkonan Nancy
Kwan, sú sem lék Suzie Wong
í samnefndri kvikmynd, sem
sýnd var í Háskólabíói fyrir
skömmu, gangi £ hjónaband.
Hinn útvaldj er þýzkur leik-
ari Maximilian Schell.
Nancy er nú að leika í kvik-
myndinni „The main attracti-
on“ og segja samleikarar
hennar, að hún hlaupi oft í
símann milli atriða, en vilji
lítið láta á því bera, eins og
áetföngnuim stúikum er títt.
Undanfarna nuánuði hefur
hún ferðazt ótal sinnum miili
Lundúna og Múnchen, þar
sem Max, eins Og unnusti
hennar er kallaður, býr. Og
honum hefur orðið tíðförult
til Lundúna. Þaðan fór hann
fyrir skömmiu til Hoillywood
til að taka á móti verðllaunum
fyrir leik sinn í myndinni
„Réttarhöldin í Núrnberg"
en hann frestaði för sinni
þangað fram á síðuistu stundu
til að geta verið í félagsskap
Nancyar.
Hjónaleyisin hafa nú þek'ksit
í rúrnt ár og að undanförnu
hefur Nancy verið að spyrja
vini sína, hvar sé hægt að
gifta sig í kyrnþey.
Nancy Kwan í hlutverki Suzie Wong í samnefndri mynd.
Þegar Max er ekki hjá
Nancy hefur hún alltaf með
sér lítinn hún, sem hann gaf
henni og hún kallar „Ot-
hello“. En samleikarar henn-
ar kalla hann „Max“.
Nancy er fædd. í Hong-
Kong og alin þar upp. Hún
er ekki gjörn á að flíka einka
málum sínium og þegar sam-
leikarar hennar spurja hana
um Max, eða fyrirhugað hjóna
band þeirra, svarar hún kulda
lega: — Max? Hver er Max?
En hún viðurkennir, að
kínverskur spámaður hafi eitt
sinn spáð fyrir henni, að hún
myndi verða kvifcmyndaledk-
kona, fara til London og
Hollywood og giftast, þegar
hún væri. 22 ára, en það er
hún nú.
Fyrstu tvö atriði spádóms-
ins hafa þegar rætzt, og ef
það þriðja á að rætast verður
hún að gifta sig fyrir 19 maá
n.k.
Vinir Nancyar segja, að
hún vilji að Max komi með
henni til Hong-Kong innan
skamms, því að hún telur
mjög mikillvægt að hann
kynnist fjölskyldu hennar.
Faðir Nancyar, W. H. Kw-
an, er þekktur arlkitekt í
Hong-Kong.
...‘“v
— Heldurðu að ég viti ekfci, að^
þú giftist mér bara vegna pening
anna.
— ★ —
— f fyrsta skipti, sem þú veitir
mér ástæðu til að halda að þú
sért mér ótrú, þá skýt ég þig.
■— Og í annað skipti?
ÁHEIT OC GJAFIR
Sjóslysasöfnunin. — Gjafir afhentar
Biskupsstofu: KM 1000; Sigríður Ein
arsdóttir 100; NN 50; Ónefndur 200;
B.A.Ottósson 100; Magnús Sigurðsson
100; Þóranna og I>orsteinn 1000; Halla
200; Ásgerður 100; SZ og Co 500; MJ
100; Jóhannes Arngrír.Tjsson 300; Gt>B
500; F og G 200; Starfsfólk LÍÚ og
FÍB 2650; JÍK 500; Starfsmenn í Stál
umbúðir h.f. 1450; Jens Jóhannesson
300; PG 500; Samb. ísl. útvegsmanna
10.000; Starfsfólk Garnastöðvar og
Beykhúss SÍS 2200. —
Samtals kr. 22.050.00.
Afhent Mbl.: NN 500; Guðlaugur 100;
Hildur 100; Anna Birna 100; JBJ 100;
SJ 100; NN 100; SÁ 100; AB 55; Ó 500;
NN Grindavík 100; SB 100; NN 100;
Björg 300; JS 500 ÁHP 100; SH 50;
GJ 200; EÞ 100; t>K 100; Guðjón Jóns
son 100; NN 500; BB 500; Guðbjörg
Guðmundsdóttir st. 204 Elliheimilinu
100; Margrét. Björnsdóttir st. 214 Elli
heimilinu 100; IB 100; ÍL 200; GG 200;
GE 100; GB 100; GJJ 100; Gt> 300;
ÓÞ 100; VE 500; Halldór og Anna 200;
Samskot a fundi kvennad. Slysavarna
fél. íslands 7.760; NN 500; NN 100;
NN 1000; LS 1000; JH 100; P 100; JO
1000; ÓS 200; ÓÓ 200; frá golfara 150;
frá starfstfólki í Sindra 4150; Ing 100;
Þuríður Júníusdóttir 300; HH 300;
Ó 500; Óskar og Henný, Búðardal 100;
STJ 1000; t>J 50; NIT 500; NN 200; Ágú
600; Halldór 100; Þóranna og Hallgrím
ur 200; GS 300; Gl» 50; Guðríður og
Sigríður 200; HP 100; HVS 100; JE
100; KL 100; Elín 100; Sig Guðjónsson
Verzlunarskólanum 200; SJ 100; NS
200; Ingunn K j artansdóttir 200; FÓ
200; GG 100; MM 500; H 500; GK 25;
t>SH 300; NN 100; S og G 100; ÁG 700;
LG 200; Mæðgur 300; KS 100 tvær
systur 200; frá kvenfél. Laugarnessókn
ar 5000; MK 100; RS 200; GSH 200;
frá starfsfólki í Hansa 1250; Guðrún
og Magnea 500; NN 100; frá starsfólki
Sjóvátryggingarfél. íslands 10.000;
SGJ 400; ÁG 1000; RÁ 200; KS 200;
Gunnar Guðnason 1000; SK 100; gam
all sjómaður 1000.
Sólheimadrengurinn: Áheit frá Rt>
100; Rt» 60.
S.l. laugardag fór fram brúð-
kaup í Torfastaðakirkju í Bisik-
upstungum. Hjónavígsluna fram
kvæmdi, sóknarpresturinn séra
Gkiðmundur Óli Ólafsson. Brúð
hjónin eru Ingunn Sveinsdóttir,
Miiklaholti, Biskupsstungum og
Steingríimur Magnússon, Ból-
staðahlíð 26. Heimili þeirra er að
Bólstaðahilíð 26. Reykjaví'k.
Loftleiðir h.f.: Eiríkur rauði er
væntanlegur frá NY kl. 05.30. Fer til
Luxemborgar kl. 07.00. Kemur til baka
frá Luxetmbjrg kl. 23.00. Fer til NY
Tekið á móti
tilkynningum
í Dagbók
frá kl. 10-12 f.h.
[ Hitavatnsgeymir
150 lítra og lítil mið-stöðvar
ketill, olíukyntur, til sölu.
Sími 32446.«
| íslands Kortlægning
Við höfum til sölu 1 eint.
af hinni fágætu kortabók,
íslands Kortlægning.
Bókabúð Braga.
Hríðslota drjúg dvöl
deyfir linan holdsmátt,
margbrotin meinkvöl
manni boðar fall hátt,
sú hallvota heimsfjöl
hrindir mögum of brátt
að hættlegri helgátt.
Táramædd mín önd
á mjóum lífsins granda
stendur ræhdd, helbönd
henni vafin standa;
þrótti gædd þín hönd,
þengill dýrðarlanda.
mér varni vanda.
(Úr bænarhymna eftir séra j
Bjarna Gissurrarson í Þing- j
múla; 1621—1712).
3—4 herbergja íbúð
óskast til leigu, nú þegar
eða 14. maí. Þrennt fullorð-
ið í heimili. Fyrirframgr.
fyrir skemmri eða lengri
tíma. Uppl. í síma 13500.
ATHUGIÐ
að boríð saman við útbreiðslu
er iangtum ódýrara að auglýsa
1 Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum. —
Skrífstoíustörf
Stúlka, ekki yngri en 20 ára óskast nú
þegar til starfa hjá stóru fyrirtæki í Mið-
bænum. Stúdents-eða verzlunarskólapróf
æskilegt. Tilboð er tilgreini aldur, mennt-
un og fyrri störf, sendist afgr. Mbl. fyrir
5. þ.m. merkt: „Atvinna — 4074“.
kl. 000.30. Snorri Sturluson er vænt-
anlegur frá Hamborg, Kaupmanna-
höfn, Gautaborg og Osló kl. 22.00. Fer I
til NY kl. 23.30.
Eimskipafélag íslands h.f.: Brúarfoss |
fer frá Álborg á morgun til Dublin.
Dettifoss fór frá Hafnarfirði 1 gær-
kvöld til Vestm.eyja. Fjallfoss er í I
Rvíik. Goðafoss er á leið til NY. Gull
foss er á leið til Khafnar frá Hamborg
Lagarfoss er í Rvík. Reykjafoss fer
frá Keflavík í dag til Hafnarfjarðar. I
Selfoss er á leið til RVíkur. Tröllafoss I
fer frá Antverpen í dag til Hull. Tungu
foss fór frá Hafnarfirði 7. marz til
Skagastrandar. Zeehaan er á leið Leith |
og Rvíkur frá Hull. «
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á I
Austfjörðum á norðurleið. Esja fór
frá Rvík í gærkvöldi vestur um land
í hringferð. Herjólfur fer frá Rvík
kl. 21 í kvöld til Vestmannaeyja. Þyr '
ill er í Rvík. Skjaldbreið fer frá Rvík
í dag til Breiðafjarðarhafna. Herðu-
breið er væntanleg til Rvíkur í dag frá |
Austfjörðum.
Hafskip h.f.: Laxá er í sements-
flutningum.
Skipadeild S.Í.S.: Hvasafell er í
Rvík. Arnarfell er í Gufunesi. Jökul-
fell kemur til Grimsby í dag, fer |
þaðan til London og Calais. Dísarfell
er í Rotterdam. Litlafell er í olíu-
flutningum 1 Faxaflóa. Helgafell átti
að fara í gær frá Bremerhaven áleið- j
is til Fáskrúðsf jarðar. Hamrafell fór !
6. þm. frá Batumi áleiðis til Rvíkur.
H.f. Jöklar: Drangjökull er á leið
til íslands frá Mourmansk. Langjök-
ull er á leið til Mourmansk frá Rvík.
Vatnajökull fór frá Vestm.eyjum 6
þm. áleiðis til Grimsby, London, Rott-
erdarn, Cuxhaven og Hamborgar.
Fáskrúðsfirðingafélagið
heldur skemmtikvöid í Sjálfstæðishúsinu föstudag-
inn 9. marz ki. 9.
SKEMMTIATRIÐI
Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Skemmtinefndin
Trésmiðjan
Krossamýrarbletti 14. — Höfum opnað aftur. —
Getum bætt við okkur verkefnum. Sími 34959 kl,
12—1 og trá 6 á kvöldin.
LINOLEUM
B-þykkt
ljós litur, mjög skemmtiiegt á eldhús.
Garðar Gislaon hf.
Hverfisgötu 4—6
Framtíðarstarf
IBM á íslandi óskar að ráða ungan mann í náinni
fra.ntíð til þess að annast viðhald og viðgerðir á IBM
götunarkerfisvélum. Viðkomandi þarf að hafa þekk_
ingu og áhuga á ,,electro-mekaniskum“ vélum. —
Æskileg menntun: Rafmagnsdeild Vélskólans, raf-
virkjun, símvirkjun eða skyldar greinar. Einnig þarf
hann að hafa staðgóða þekkingu í ensku og einu
Norðurlandamáli. Umsækjandi þarf að vera reiðu-
búinn að gangast undir hæfnispróf og einnig að
geta farið utan til frekara náms, Skriflegar umsókn-
ir með sem gleggstum upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist fyrir 15. marz n.k.
Umsóknic skoðast sem trúnaða: mái og upplýsingar
ekki gefnar í síma.
IBM-umboðið
Ottó A. IVfichelsen
Klapparstig 25—27 — Pósthólf 377