Morgunblaðið - 09.03.1962, Síða 15
I
Föstudagur 9. marz 1962
MORGUTSBLAÐIÐ
15
EINS og mönírum er I fersku
minni trúlofaðist Frank Sin-
atra lítt þekktri kvikmynda-
stjörnu fyrir um það bil mán-
uði síðan. Frank Sinatra á að
baki sér tvö hjónaibönd, og
hefur alla tíð notið mikillar
kvennahylli. Það kom mönn-
um því mjög á óvart, þegar
hin nýja unnusta hans, Juliet
Prowse, sagði honum upp eft-
ir aðeins fimm vikna trúlof-
un, og margir (aðallega kven-
fólkið) álítur að 'hún geti ekki
verið með öllum mjalla: að
rjúka svona frá eftirsóttu
mannsefni út í óvissuria.
MMtMi
hann snögglega.
Eg var fús að leggja hluta
af leiklistarframa mínum á
hilluna en ekki að setjast í
helgan stein, eins og hann
heimtaði. Hann vildi konu,
sem hann gæti verið hjá öll-
um stundum. Hann var skrít-
inn náungi. Hann átti það til
að vekja mig um miðjar naet-
ur og segjast vera að fara til
Hawaii eða Alaska .Og ég
varð auðvitað að fylgja hon-
um.
Hætti við að giftast
Frank Sinatra
En ekki ber á öðru en Juliet
Prowse sé með réttu ráði; hún
er nú komin aftur til Holly-
wood og hefur tekið upp þráð
, inn þar sem frá var horfið.
Blaðamaður nokkur hitti
Juliet Prowse að máli við
kvikmyndaupptöku fyrir
stuttu. Hún var í svörtum síð-
buxum og í loðnum eskimóa-
stakk og söng hástöfum „I ’ve
Got My Love to Keep Me
Warm“, meðan pappírssnjó
rigndi yfir hana eins og kon-
fetti. „Það var ég sem ákvað
að sHta trúlofuninni," sagði
ungfrú Prowse. „Eg átti um
tvennt að velja: að verða frú
Sinatra — sem er draumur
margra imgra stúlkná — eða
halda áfram að vera Juliet
Prowse. Eg kaus hið síðar-
nefnda. Eg tók þessa ákvörð-
un í skyndi, hef verið að
hugsa um það allan tímann
sem við Frank vorum trúlof-
uð, þegar allir héldu að ég
væri að undirbúa brúðkaup-
ið. Þetta þýðir þó ekki að ég
sé hætt að elska hann. Bg hef
verið ástfangin af Frank í tvö
og hálft ár, og enginn getur
hætt að elska strák eins og
I
Það er ekki rétt, sem fólk
segir, að hann krefjist þess að
ég skili öllum þeim dýrmætu
gjöfurn, sem hann hefur gef-
ið mér. Eg geymi meira að <
segja demantshringinn minn,
þó ég beri hann ekki lfengur.
Við höfðumekki ákveðið neinn
brúðkaupsdag né skipulagt
hveitibrauðsdagana. við skipu
lögðum aldrei fram í tímann.
En ég ætla aldrei að trúlofa
mig aftur, næst verður það
gifting. Einhvern tíma kemur
að því að ég giftist, eignas^
börn og heimili, en rétti tím-
inn til þess er ekki enn kom-
inn.“
Juliet Prowse sagði enn-
fremur, að hún hefði fengið
kvikmyndatilboð frá Sir
Carol Reed og Fellini í Róm,
og ef hlutverkin væru við
hennar hæfi mundi hún hik-
laust þiggja þau.
Meirapróf
bifreiðastjóra
AKUREYRI, 7. marz: — Nóm-
skeið fyrir bifreiðastjóra til
meiraprófs bifreiðastjóra hófst
24. janúar og lauk 5. marz. 33
bifreiðastjórar luku prófinu. —
Forstöðuimaður námskeiðsins var
Svavar Jóhannsson bifreiðaeftir
litsmaður. Kennarar voru Vil-
hjálmur Jónsson, bifvélavirki,
Jóhann Þorkelsson héraðslæfcnir
og Gísli Ólaifsson yfirlögreglu-
þjónn. Bifreiðastjórar þeir er
prófið tóku voru víða að af land
inu — St. E. Sig.
Evrópusamvinna
um náttúruvernd
DR. FINNUR Guðmundisson og
Eyþór Einarsson náttúrufræðing
ar sóttu sérfræðingafund um
náttúruvernd, sem haldinn var
í StraiSbourg um síðuistu mán-
aðamót á vegum Evrópuráðsins.
Víða í Evrópu er þéttbýli geysi
mikið og íbúða- og athafnasvæði
spilla í æ meiri mæli gróðri og
dýralífi. Annars staðar stafar
hætta af uppblæstri eða öðrum
orsökum. Af þessum ástæðum
samþyikkti ráðgjafaþing Evrópu
ráðsins fyrir tæpu ári ályktun
varðandi þetta mál, og var síðan
efnt til undirbúningsfundar sér
fræðinga seint í febrúar s.l. til
að fjalla um það. Nefndin samdi
drög að starflsáætlun, þar sem
rætt er um vernd ósnortinnar
náttúru landislags, um þjóð-
garða og Evrópugarða, um sátit
mála um náttúruvernd og sam-
ræmingu löggjafar um þessi etfni
svo og um ýmiss konar upplýs-
ingastarfsemi. Starisáætlun sér
fræðinganna verður iögð fyrir
ráðherranefnd E vrópurá ðsins,
sem taka mun ákvöðun um frek
arj aðgerðir.
HORPU
MALNING