Morgunblaðið - 09.03.1962, Page 22
MORGrNBLAÐIÐ
Hörður setti frábært met
í 200 m bringusundi
Vann Sviann örugglega og með
nokkrum yfirburðum
HÖRÐUR B. Finnsson, hinn ungi en bráðsnjalli bringu-
sundsmaður, var aftur hin mesta hetja sundmóts ÍR, er
því lauk í gærkvöldi. Með sérlega vel útfærðum 200 m
spretti vann hann þann sigurinn, sem óvæntastur var í
viðureign ísl. sundfólksins við hina ágætu gesti ÍR. Og
til að sigra þurfti Hörður þó frábært ísl. met. Hann bætti
sinn bezta tíma um rúmar 4 sék. og synti á 2.39.0 sek.
Gamla ísl. metið var 2.42.5 og átti Sigurður Sigurðsson,
Akranesi, það. Þó Roland Lundin hefði náð sínum bezta
tíma, hefði það ekki nægt til sigurs. — Lundin synti
á 2.40.4 sek.
Þessi metsprettur Harðar
var glæsilegastur og óvænt-
astur. En bezta afrek móts-
ins má þó vafalítið telja fjór-
sund Guðmundar Gíslasonar.
Fjórsund einstaklings er erf-
ið raun, syntir eru 50 m á
hverja sundaðferð án hvíld-
ar á milli. Guðmundur var
þar í sérflokki og setti met
sem bæði er betra en norska
og sænska metið. Christer
Bjarne varð annar tæpum 8
sek. á eftir. En í annari við-
ureign við Christer Bjarne
beið Guðmundur lægra hlut.
Bjame vann bæði 200 m
skriðsundið og 50 m flug-
sundssprettinn og nægði nýtt
isl. met hjá Guðmundi ekki
til sigurs.
En þegar til f jölhæfni kom
þá varð hlutur Guðmundar
betri — og stórglæsilegur.
Þær stöllur Hrafnhildur og
Kristina Larsson skiptu sigr-
um. Larsson vann flugsund-
ið, en Hrafnhildur skriðsund-
ið næstum jafn örugglega.
Loks kom ungur piltur,
Davið Valgarðsson, ÍBK, með
nýtt drengjamet í 50 m flug-
sundi. Hann synti á 30.8
— ágætum tíma hjá 15 ára
unglingi. Hann bætti eigið
met um 2 sek.
Tk Barátta Harðar
Það var hvað mest eftir-
vænting eftir 200 m bringu-
sundinu. Og keppnin var geysi-
hörð og spennandi. Fyrstu 50
m voru þeir hnífjafnir Hörður
og Lundin. Það mátti sjá að
Lundin ætlaði ekki að látaHörð
fá gott forskot eins og 100 m
sundinu.
StíH þeirra var ólíkur. Stíll
Lundins, sem er þreknari og
stærri maður, var þunglama-
legri en kröftugur. Hörður synti
létt og sérlega liprum stíl með
góðri láréttri sundstöðu án lóð-
réttra hreyfinga.
Og á þriðju leiðinni tókst
Herði að vinna örlítið forskot
— nokkra sentimetra og þetta
jókst svo smám saman. Við 100
m var Hörður um meter á und-
an og þó Lundin reyndi sýni-
lega allt til að ná sigri nú,
reyndist Hörður sterkari.
★ Frábært afrek
En menn gerðu sér ekki
fyllilega grein fyrir styrkleik
hans fyrr en tíminn var
kunngerður. 2.39.0 er meira
en glæsilegt ísl. met. Þetta
er annar bezti tími á Norður-
löndum ár (2/10 úr sek lak
ara en hjá Svíanum Lind-
ström) og tími sem er boð-
legur hvar sem er í heimin-
um. Hörð vantar aðeins 1.4
sek á Norðurlandamet og það
met er gott. Geta má þess
að Hörður hefur bætt met
Þingeyingsins, sem Iengstvar
frægt, um 3.6 sek., en áður
hafði Sigurður Sigurðsson á
Akranesi bætt það um 1/10.
Þær stöllur, Kristina Larsson
og Hrafnhildur, áttu aldrei í bar-
áttu þetta kvöld. Hrafnhildur
vann skriðsundið örugglega og
Larsson vann fiugsundið með
yfirburðum, enda er það sér-
grein hennar ,en Hrafnhildux
synti vegalengdina í fyrsta
skipti.
Unglingarnir vöktu athygli —
en þeir sömu og áður. Af pilt-
unum bera af Davíð Valgarðs-
son ÍBK og Guðm. Þ. Harðar-
son Æ sem báðir eru fjölhæfir
og óvenjulega skemmtileg efni.
— Hjá stúlkunum var barizt af
hörku. Margrét Óskarsdóttir var
í sérflokki í skriðsundi en nú
vann Svanhildur Sigurðardóttir
Skagafirði í bringusundi.
Úrslit í einstökum greinum
birtast í blaðinu á morgun.
Hörður fær hér fyrirskipanir þjálfarans, Jónasar Halldórss
Unglingalandsliðið mætir
landsliðinu í kvöld
I KVÖLD fer fram að Háloga-1 knattleik. Það eru tvö landslið
landi nýstárlegur leikur í hand- [ sem eigast við og leikurinn er í
Leiðrétting
I GREIN Júlíusar Þórðarsonar,
„Ólíkt höfumst við að“, sem
birtist á 13. síðu Morgunblaðs-
ins í gær, slæddist inn mein-
leg prentvilla fyrir ofan efstu
greinarskil í þriðja dálki. Rétt
orðast málsgreinin svo: „Von-
andi gefst núverandi forustu-
mönnum bæjarins tækifæri til
að halda áfram þessu þarfa og
vinsæla verki.**
Christer Bjarne syndir flugsundið glæsilega. — Ljósm, Sveino
Christer Bjarne og Guðmundur
báru þunga keppninnar
Christer Bjarne og Guð-
mundur Gíslason báru hita og
þunga keppninnar á sundmót-
inu í gærkvöldi. Þeir hófu
keppnina og þeir luku henni
og í millitíðinni tóku þeir
sprett — sem varð metsprett-
ur hjá Guðmundi. Guðmundur
kom frá keppninni með 2 met
og 1 sigur í viðureign við
Bjarne. Bjarne vann tvo sigra
en náði ekki að bæta met sín.
200 m skriðsundið varð ekki
eins mikil barátta og búizt var
við. Guðmundur var þar lak-
ari en haldið var. Hann átti
góða byrjun og hafði náð
nokkuð góðu forskoti en
smám saman vann Bjame á
og Guðmundur gat ekki haldið
í við hann. Sundið varð ekiki
sú keppni sem vænzt var, þó
skemmtileg væri hún.
Flugsundsspretturinn var
geysiharður. Þar mátti varla
á milli sjá enda vegalengdin
stutt. 3/10 úr sek skildu þá
við markið. Tíml Guðmundar
var 29.5 — nýtt met. Bjarne
synti á 29.2 en á bezt (norska
metið) 28.7.
Síðan háðu þeir einvígi í
hinni klassisku grein, fjórsund
inu, þar sem reynir á fjöl-
hæfni og úthald í senn. Fjór-
sund er erfið grein, hefst á
flugsundi, síðan baksund,
bringusund og skriðsund 50
m á hverju sundi. Afrek í
þessari grein eru ekki fyrir
aðra en frábæra sundmenn og
sérstæða að fjöihæfni.
Bjarne hafði forystu á flug-
sundinu, fyrsta sprettinum, en
Guðmundur var ekki lengi að
vinna það upp á baksundinu
og ná góðu forskoti. Hann
reyndist svo líka allmiklu
sterkari á bringusundi en
Norðmaðurinn og ekki minnk-
aði bilið á lokasprettinum,
skriðsundinu.
Þetta var erfið keppni hjá
þeim báðum, og báðir höfðu
nokkuðfyrir si€t erfiði. Bjarne
tvo sigra, Guðmundur einn
en tvö met
tilefni af mikilli keppnisferð
annars liffsins. Liðin sem mæt-
ast eru nývaliff unglingalands-
liff og landsliff fullorffinna. —
Unglingalandsliðiff heldur til
Danmerkur n. k. miffvikudag en
á föstudag hefst í og viff Kaup-
mannahöfn norrænt unglinga-
meistaramót í handknattleik.
ir Vel undirbúnir
Þetta er í fyrsta sinn sem
íslendingar eru meðal þátttak-
enda í slíltri meistarakeppni
unglinga. Það verður því gaman
að sjá hvaða árangri hinir ó-
reyndu „unglingar“ okkar ná
gegn sínum reyndari norrænu
írændum.
Unglingaliðið sem utan fer
hefur æft mjög vel að undan-
fömu, bæði knattæfingar og
þrekæfingar. Er liðið þvf vel
undir ferðina búið. Þessi undir-
búningur ætti að gera það að
verkum að liðið standi vel í
landsliðinu í kvöld, í kveðju-
leiknum.
Liðin, sem leika í kvöld eru
þessi:
Unglingalandsliffiff.
Þórður Ásgeinsson, Þrótti; Þor
steinn Björnsson, Ármanni; Rós-
mundur Jónsson, Viking; Sigurð
ur Einarsson, Fram; Kristján
Stefánsson, FH; Sigurð Hauks-
son, Víking; Bjöm Bjarnason,
Viking; Árni Samúelsson, Ár-
m-anni; Hörður Kristinsson, Ár-
manni; Hans Guðmundsson, Ár-
manni og Steinar Halldiórssoin,
Víking.
A-Iandsliffiff.
Hjalti Einarsson, FH; Egill
Árnason, Val; Pétur Antonsson,
F.H.; Einar Sigurðsson, FH; Ragn
ar Jónsson, FH; Birgir Björnsson
FH; Gunnlaugur Hjáimarsson,
ÍR; Hermann Samiúelsson ÍR;
Reynir Ólafsson, KR; Karl Jó-
hannsson, Kr og Sigurður Óskam
son KR.