Morgunblaðið - 13.03.1962, Page 1
24 siður
49. Argangur
60. tbl. — Þriðjudagur 13. marz 1962
Prentsmiðja Mo-gunblaðsins
Rusk og Gromyko
ræðast við í Genf
Rússar ítreka tillögur um
bann án eftirlits
Genf, 12. marz (AP)
DEAN RUSK utanríkisráðlierra
Bandaríkjanna og Andrei Grom-
yko utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna ræddust við í !>rjár klukku-
stundir í Genf í dag um Berlín-
ar, Þýzkalands og afvopnunar-
málin Ekki komust beir að sam-
komulagi um neitt málanna, en
ákveðið er að l>eir ræðist við að
nýju á morgun. Að loknum við-
ræðum sagði Gromyko við frétta
menn að fundurinn hafi verið
gagnlegur, því hann hafi gefið
ráðherrunum tækifæri til að
rifja upp ýmis sameiginleg á-
hugamál.
Meðan viðræðurnar fóru fram
í Genf var U Thant aðalfram-
kvæmdastjóra SÞ afhent orð-
sending Sovétstjómarinnar þar
sem lagt er tii að bönnuð verði
notkun kjarnorkuvopna í hernaði
og staðsetning þeirra á víðáttu-
miklum landsvæðum. Tillögur
þessar gera ekki ráð fyrir neinu
eftirliti með að bannið verði
haldið.
Viðræður þeirra Gromykos og
Husks fóru fram í bústað rúss-
nesku sendinefndarinnar í Genf.
Home lávarður, utaríkisráðherra
Bretlands, tók ekki þátt í viðræð-
unum í dag, en hefur kvöldverð-
arboð fyrir Gromyko í kvöld.
Það vakti athygli í Genf í dag
að tilkynnt var að Gerhard
Schröder utanríkisráðherra Vest-
ur-Þýzkalands færi á morgun á
fund Gromykos. Vestur-Þjóð-
verjar eiga ekki aðild að afvopn-
unarráðstefnunni, sem hefst í
Genf á miðvikudag. Schröder
kom til Genf úr leyfi í Lausanne
og átti í dag fund með Antonio
Segni utanríkisráðherra Ítalíu.
Einnig mun ákveðið að Schröder
eigi fund með Home lávarði.
Tillögur Sovétstjórnarinnar um
kjarnorkuvopnabann án eftirlits
hafa hlotið lítinn hljómgrunn
hjá fulltrúum Vesturveldanna í
Genf. En búizt er við að Grom-
yko ítreki þær á afvopnunar-
ráðstefnunni á miðvikudag.
Almannavarnir stefna aö
því að bjarga mannslífum
Stjórnarfrumvarp lagt fram á alþingi
ur
bólusótt
Cardiff, 12. marz (NTB)
ELLEFU mánaða stúlkubarn lézt
í bær úr bólusótt í sjúkrahúsi
í Bridgend í Suður-Wales.
Um helgina voru 11 manns,
sem taldir voru hafa tekið bólu-
sótt, lagðir inn í sjúkrahús í
Suður-Walés. Hafa þá alls fund-
izt 23 bólusóttartilfelli þar.
í STJÓRNARFRUMVARPI
sem lagt hefur verið fram á
Alþingi um almannavarnir
er gert ráð fyrir að skipu-
leggja og framkvæma ráð-
stafanir, sem miða að því að
koma í veg fyrir að almenn-
ingur verði fyrir líkamstjóni
eða eigna af völdum hernað-
araðgerða og veita líkn og
aðstoð vegna tjóns, sem orð-
ið hefur.
í frumvarpinu er gert ráð
fyrir að sérstakur forstöðu-
maður hafi umsjón almanna-
varna með höndum, sjái um
f jarskipti milli umdæma,
mælingu á geislavirkni, við-
v ö r u n , fræðslustarfsemi,
kennslu yfirmanna og • leið-
beinenda og skipulagningu , völdum hernaðaraðgerða og veiita
likn og aðstoð vegna' tjóns, seim
orðið hecfur, enda falli þau störf
ekki undir aðra aðilja, sam-
kvæmt lögum.
Framh. á bls. 8
og yfirstjórn á flutningi fólks
af hættusvæðum.
Fyrstu þrjár greinar frum-
varpsins hljóð svo:
Almenn ákvæði.
1. gr.
Hlutverk almannavarna er að
skipuleggja og framkvæma ráð-
stafanir, sem miða að því að
kioma í veg fyrir, eftir því sem
■unnt er að almenningur verði
fyrir líkamstjóni eða eigna af
Ásaka Frakka
Túnis, 12. marz. (NTB).
TÚNISSTJÓRN ásakaði í dag
franska herinn í Alsír um að
hafa skotið úr fallbyssum yfir
á landisvæði í Túnis. Segir stjórn
in að tíu ára drengur hafi beðið
bana í skothríðinni.
Brezk herferö gegn sígarettum
Stjórnin viðurkennir að
þær valdi krabbameini
London, 12. marz. (AP)
BREZKA stjórnin hét því í
dag að almenningi í Bret-
landi yrði gefinn kostur á að
kynnast nýrri læknaskýrslu,
þar sem staðhæft er að sígar-
ettu-reykingar valdi krabba-
meini í lungum. — Skýrsla
sú, sem hér um ræðir, var
birt í síðustu viku. — Þar
leggja læknarnir til að stjórn
in setji á nýjan sígarettu-
skatt, sem yrði mönnum
hvatning til að taka upp
vindla- og pípureykingar, en
þær eru ekki álitnar jafn
hættulegar heilsunni.
Enoch Powell heilbrigðismála-
ráðherra svaraði 1 dag fyrir-
spurnum í neðri málstofu þings
ins um þetta mál. Sagði ráðherr
ann að ríkisstjórnin viður-
kenndi vissulega að skýrsla
þessi sannaði endanlega orsaka-
tengsli milli reykinga og
krabbameins i lungum. Sagði
hann að stjórnin hafi farið þess
á leit við heilbrigðisyfirvöld um
allt land að þau gerðu sitt ítr-
asta til að kynna almenningi
niðurstöður skýrslunnar og
benda á þær hættur sem mönn-
um stafa af reykingum, sérstak-
lega sígarettureykingum.
Þá hefur brezka stjómin í
athugun tillögur um eftirlit með
auglýsingum sígarettuframleið-
enda og um að koma á fót
lækningastofnun til að venja
menn af reylcingum.
Jeremy Thorpe, þingmaðúr
frjálslyndra, lagði til að heil-
brigðismálaráðuneytið beitti sér
fyrir því að hraðað yrði rann-
sóknum á framleiðslu lyfja til
að venja menn af reykingum
og að lyf þessi yrði seld al-
menningi á vægu verði.
^ MYND þessi er tekin hinn 8.
þ.m. í nágrenni Bologna á
ítalíu skömmu eftir að hrað-
lest fór út af teinunum hjá'
Castel Folognese. Eimvagn-
inn valt á hliðina og dró far-
þegavagnana með sér út af|
sporunum. Ellefu manns lét-
ust og 120 særðust. Talsmenn
járnbrautarfélagsinis segja að
hámarkshraði hjá Castel Bol-
ognese stöðinni sé 30 km/klst.
en lestin hafi farið þar um
með 90 kílómetra hraða.
Osló, 12. marz (NTB)
SAMKVÆ:MT nýbirtum skýrsl-
um nam tjón af völdum eldsvoða
í Noregi á árinu 1961 um 90 millj.
norskra króna, eða 10.000.— kr.
á klukikustiind að meðaltali.
Rúmlega 90 féllu
í bardogum í Alsír að sogn Frakka
París og Algeirsborg, 12. marz.
— (AP-NTB) —
TILKYNNT var í aðalstöðv-
um franska hersins í Alsír í
dag að alls hafi 75 Serkir
verið felldir og 150 særðir í
bardögum franska hersins
við her útlagast jórnarinnar
nálægt landamærum Túnis
dagana 6.—11. þ.m. Segjast
Frakkar hafa misst 6 her-
menn auk 18, sem særðust.
Auk þess féllu í bardögun-
um 10 serkneskir borgarar
og 35 særðust.
Bardagarnir hófust um sama
leyti og vopnahlésviðræðurnar
í Evian og segja Frakkar að út-
lagastjórnin hafi teflt fram
fjölmennum her og haldið uppi
skothríð úr sprengjuvörpum og
fallbyssum á stöðvar Frakka.
Þeim hafi þó orðið lítið ágengt.
HRYÐJUVERK
Víða að bárust í dag fregnir
af hryðjuverkum í Alsír. í hafn-
arbænum Arzew börðust fransk-
ir hermenn við Serki og drápu
11 þeirra en særðu 16. Sett
hefur verið á útgöngubann í
bænum eftir kl. 3 síðdegis og
hafa franskir hermenn um-
kringt íbúðarhverfi Serkja. í
M’Sila í Austur-Alsír fundust í
dag lík fjögurra fransksinnaðra
Serkja. Höfðu þeir verið skom-
ir á háls. Þá kom til átaka viða
í Algeirsborg í dag og féllu í
þeim 13 manns, þar af átta af
evrópskum ættum, og 18 særð-
ust. —
OAS-menn hafa boðað til 24
klst. allsherjarverkfalls í Alsír
Frh. á bls. 23.
Lnngir fondir
Evian les Bains, Frakklandi,
12. marz (AP-NTB)
FUNDUM var haldið áfram í all
an dag á vopnahlésráðstefnu
Frakka og Serkja í Evian. Lauk
fundum kl. 19,20 í kvöld, en
serknesku fulltrúarnir héldu þó
ekki strax til bústaða sinna í
Sviss. Var gert ráð fyrir óform-
legum framhaldsviðræðum ' í
kvöld. En formlegar viðræður
hefjast að nýju snemma í fyrra-
málið. Vonazt hafði verið til þess
að samningar yrðu undirritaðir
á þriðjudag. en nú er talið að
það geti dregizt eitthvað fram í
vikuna. Vegna þess hve viðræð-
urnar í dag stóðu lengi, var ekki
unnt að flytja serknesku fulltrú-
ana heim með þyrlum eins og
venjulega. Þess í stað voru send
ír sérstalar bátar frá Sviss til
að sækja nefndarmennina.