Morgunblaðið - 13.03.1962, Page 8

Morgunblaðið - 13.03.1962, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 13. marz 1962 — Almannavarnir Framhald af bls. 1. I Almannavarnir skulu veita að- Stoð samlkvœmt fyrirmælum diómsmálarácSherra, ef tjón vofir yfir eða hefur orðið af náttúru- hamfórum eða annarrf vá. 2. gr. I Krefjast má aðstoðar opin- berra aðilja, einstaklinga og stofnana til undirbúnings þeim ráðstöfunum, er 1. gr. fjallar um. Öllum er skylt að veita trún- aðarmönnum almannavama þær upplýsingar, sem þeir þarfnast til þes/s að framikvæma þau störf, sem lögin fela þeim. 3. gr. Á hættutímum er rikisstjórn- inni heimilt að gefa út sérstök fyriimæli um almenna umiferð, reglur og öryggi á opinberum stöðum og svæðum, sem almenn- ingur hetfur aðgang að. Sama miáli gegnir á öðrum tímum, þeg- ar æfingar í þágu almannaivarna standa yfir. Ef hætta vofir yfir, getur lög- regluistjóri bannað að nakkru eða öllu leyti notkun sambomu- húsa og annarra samikömustaða, sem almenningur hefur aðgang að. Sérstakur forstöðumaður. Annar kaflf frumvarpsins er um skipuilag almannavarna þar er svo kveðið á, að diómsmálaráð- herra skipi forstöðum,ann varn- anna, sem sér um heildariskipu- lagningu þeirra. Þar segir og að landlæknir skuli f. ra með þann hluta varnanna er varða sjúlkra- hús og lækna. Almannavarnarráð skal vera til ráðuneytis um framkvæmd laganna og skipa það auk för- stöðumanns, landlæknir, lög- reglustjórinn í Reykjavílk, póst- og símamálastjóri og vegamála- stjóri. Lögreglustjórar fara með stjórn almannavarna hver í sínu umdæmi. >á er og getið nánar skipunar almannavarnarnefnda í hverjum kaupstað og sveitaifé- lagi og starfssviðs þeirra. í þriðja kafla er fjallað um það, að það sé borgaraleg sikylda þeirra, sem eru á aldrinum 18 til 65 ára, að gegna, án endur- gjalds, starf í þágu almanna- varna, þó má kveðja þá, sem eru 16—18 ára og yfir 66 ára, til starfs, ef þeir óska þess sjólf- ir. Þá skulu þeir, sem starfa eiga í hjálpanliðum, taka þátt í máan- skeiðum og æfingum, sem þeir verða kvaddir til. Og ef hætta vofir ytfir, má starfsmaður ekki fara úr iögsagnarumidiæminu án samþykkis lögreglustjóra eða þess, er hann tilnefnir. Fjórði kafli fjallar um einka- varnir og skyldu fyrirtækja að gera öryggisráðstafanir á vinnu- Stöðum svo og skyldu Ibúa að annast einkavamir með gagn- krvæmri hjálp í íb ðarhverfum. I. O. G. X. St. Verðandi nr. 9. Fundur í kvöld kl. 8.30. Venjuleg fundarstörf. Kosnir fulltrúar á aðalfund Þingstúku Rvíkur. Bögglakvöld Systrasjóðsins — verður 27. marz. Æt. Fimmti kafli laganna fjallar um flutning fóiks af hættusvæð- um, skyldur þess í því sambandi og heimildir til leigunámis flatn- ingatækja í því skyni. Loks — ýmis ákvœði er varða skyldur sveitarfélaga um kostn- að við almannavarnir, heimildir til að krefjast bygginga öryggis- byrgja svo og að dómismálaráð- herra skuli setja reglugerð sam- kvæmt lögum þessum. Spennan í heimsmálunum. í athugasemdum við frum- varpið segir frá fyrrf ákvæðum í íslenzkum lögum um loftvarnir og afgreiðslu þings á þeim svo og störfum loftvarnarnefndar og störfum hennar. í athugasemd- inni segir m.a. svo orðrétt: „Spennan" í heknismálum hef- ur hins vegar tæplega verið öillu meiri en um þessar mundir og er svo enn. Skal ekki á þessum vett vangi sú saga rakin. En ófriðar- blikan vofði ekki aðeins yfir Af- ríku, heldur höfðu Sameinuðu þjóðirnar sogazt inn í geigvæn- legar hernaðaraðgerðir í Kongó í þeim tilgangi að slölkkva þá ó- friðarelda, sem sífellt loguðu þar. Byitingin í Oubu og síðari gagnbyltingartilraun gait hvort tveggja hæglega orðið kveikja meiri aðgerða á vesturhveli og nú nýverið hefur sorfið til að- gerða af hálfu annarra Ameríku ríikja með því að reka Cubu úr samtökum þeirra. í Asíu voru og eru sífelldar hernaðaraðgerð- ir milili Rauða-Kína og F'ormósu — og alvarleg átök og óvissa hér og hvar — í Laos, Vietnam, Indlandi og víðar. Enn er svo ótaliin Berlinardeilan, sem nú um langt skeið hefur staðið eins og fleinn í holdi friðsamilegrar sambúðar stórveldanna, Sovét- ríkjanna og Bandaríkjanna, og ægir nú meir en nokkuð annað friði í Evrópu milli Sovétrikj- anna og austurblakkarinnar amn- ars vegar og N ATO - ríik j a nn a hins vegar. Hafa boðar þeirrar ólgu borizt til Skandinavistou rikjanna svo sem kumnugt er og lagst með þeim þunga á Finna, að almenningi hér og á Norður- löndum hefur þótt miklu meira en nóg um, enda eru þessar þjóð- ir svo nærsteeðar hver annarri, að þeim skilst betur hver ailvar- an er, þegar sverfur að ein- hverri þeirra. Það vakti svo að sjálsögðu heimsathygli og feykilegan ugg og óróa hér á landi, þegar Sovét- ríkin hófu hinar mikfu atóm- sprengingar á síðastliðnu haiusti og sprengdu alls 30 vetnissprengj ur á liðlega mánaðar tíma við Novaja Semlja og þar á meðal helsprengjuna miklu, 50—70 milljón tonna sprengju, en hel- ryk hennar svífur nú umlhiverfis jörðu, og vísindamenn ráðgerðu að hatfa þyrfti uppi um heim allan athuganir Og e.t.v. varúðar- ráðstafanir til verndar heilsu manna aif þessum vágesti fram á næsta vor. Lét Alþingi, eins og kunnugt er, mál þetta til sin taka með samþyfekt þingsálykt- unartillögu á síðastliðnu hausti. Um þetta leyti síðla hausts 1961, hófu<st umræður um það innan ríkisstjórnarinnar, að ó- verjandi væri að gera ekki gang- skör að því að hefja hér rann- sóknir og undirbúning almanna- varna, miðað við aðstæður hér Nýtt frá HoUandi Perlonsokkar 20 Denier net Verð kr. 35.00 parið Perionsokkar 30 — sléttir — — 35.00 — Krepbuxur sálmalausar — — 45.00 stk. Krepbuxur með skálmum — — 77.25 — Krepbuxur hnésíðar — —115.25 — Krepbuxur með sokkaböndum — — 103.00 — ÍOciíéU0 og reynslu annarra í þessum efn- um. Hóf dómsmiálaráðherra við- ræður við loftvarnanefndina í Reykjavík, ásamt borgarstjóran- um í Reykjavík.’Þótti sýnt, að breyta þyrfti skipan þesisara mála frá því sem áður hafði verið, en þó eigi fyrr en að undangenginni gaumgæfilegri athugun og eftir að gefizt hefði tóm til að kynna sér viðhorf og reynzlu annarra þjóða og fá álitsgerðir og leið- beiningár þeirra, sem unnið hefðu að slikum. málum, eða styddust við nauðsynlega sér- þefekingu. Kynnir sér vamir á Norður- löndum. Var að ráði, að formaður Laft- varnanefndar Reykjaviikur, Sig- urjón Sigurðsson lögreglustjóri, og dr. Jón SigurSsson, borgar- læknir, tókust á hendur ferð til Norðurlanda, til þess að kynna sér aðgerðir og reynzlu þessara þjóða, Noregs, Sviþjóðar Og Dan- merkur, en allar eru þassar þjóð- ir taldar standa framarlega í þessum málum og hafa ailar nær óslitið lagt a/f mörkum stórfé til undirbúnings almannavarna frá styrjaldarlobum, en einkum þó síðari árin með hliðsjón af þróun hernaðartækni og nýrra vopna. Jafnframt voru gerðar ráðstatf- anir til þess að fá hingað sér- fræðinga á þessu sviði. í þeim erindum bomu hingað R. Hoilter- mann, hershöfðingi, sem er yfir- maður almannavarna („civil- forsvaret“) í Noregi og C. Tofte- marb, yfirlæbnir hjá heiibrigðis stjórninni dönsbu, en hann veitir fprstöðu þeim þætti almanna- varna í Danmörku, er falla und- ir hann. Höfðu þeir hér samivinnu við Lotftvarnanefnd Reykjavíkur og létu dómsmálaráðherra í té álits- gjörðir eftir að hafa kynnt sér aðstæðiur hér, svo sem verða miá'tti. Þessar álitsgerðir fylgja greinargerð þessari sem fskj. nr. III. og IV. Heilbrigðismálaráðuneytið, und- ir forystu landlæknis, dr. Sig- urðar Sigurðssonar, hatfði for- göngu um að rannsakað væri oig mælt geislavirikt úrfall, en eðlis- fræðistofnunin hér hetfur annazt það verk. Haft hefur verið sam- ráð við hérlenda og erlenda sér- fræðinga varðandi þennan þátt almanna varna og safnað upp- lýsingum erlendis frá. Eftir áramótin fól dómsmála- ráðherra Jóhanni Hafstein, banka stjóra, sem gegnt hafði embæitti diómlsmálaráðherra við undirbún- ingsaðgerðir á síðastliðnu hausti, að hafa forgöngu um að undir- búa frv. að nýrri löggjöf um al- mannavarnir. í samráði við hann unnu svo aðallega að sammingu þessa frv. Sigurjón Sigurðsson, lögraglustjóri, dr. Jón Sigurðs- son, borgarlæknir, og Hjálmar Blöndal, hagsýslustjóri, sem ver- ið hafði framikvæmdastjóri Loft- varnanefndar Reykjavíkur, en jafnframt hefur verið hatft sam- ráð við nefndina og borgarstjór- ann í Reykjavík. íslengingum er vissulega mjög framandi allt það, sem að hern- aði lýtur eða afleiðingum hern- aðar. Því hafa menn spurt: Hvað eru almannavarmir? En þær eru einfaldlega sérhverjar ráðstaf- anir, sem að því lúta að forða frá manntjóni og eigna, sem atf hern- aði eða árás kynni að leiða, að bæta tjón af sömu sökum, líkna og hjúkra þeim, sem eiga um sárt að binda, — almannavarnir stefna að því að bjarga manns- lífum. Skýringar og fylgiskjöl. Þá eru með frumvarpinu skýr- ingar við einstaka kafla þessi og greniar svo og fylgiskjöl. Fylgi- skjal 1. eru skýrsla loftvamar- nefndar Reykjavíkur frá 19. des. 1956 og 2. fylgiskjal er brétf lotft- varnarnefndar Reykjavíkur frá 4. okt. 1961. Fylgiskjöl 3 Og 4 eru álitsgerðir Holtermanns hers- höfðingja og C. Toftermark yfir- læknis, sem hingað voru fengn- ir sem sérfræðingar á sviði al- mannavarna. Frumvarpið mleð athugasemd- um, skýringum og fylgiskjölum er mjög ýtarlegt, alls 39 síður. l, 5 millj. Á FUNDi neðri deildar Alþingis í gær var tekið fyrir frumvarp ríbisstjórnarinnar um aflatrygg- ingasjóð sjávarútvegsins, en það felur í sér, að togrurunum verði veitt aðild að hlutatryggingasjóði bátaútvegsins. Samþykkt var að vísa frumvarpinu til 2. umræðu og sjávarútvegsnefndar. Emil Jónsson sjávarútvegsmála ráðherra kvað tögaraútgerðina um Skeið hafa verið burðarásinn í íslenzku efnahagslífi og fyrir tilvist hennar hefði verið unnt að gera ýmsar framkvæmdir, sem tæplega hefðu annars orðið, a. m. k. þá ebki fyrr en milklu síð- ar. Fyrstu árin hefði hún geng- ið mjög vel, síðan verr, upp úr 1930. Og þótt hagur hennar hafi batnað aftur í síðari heimsstyrj- öldinni, versnaði hann aftur á 6. áratugnum. Að undanförnu hefur aflabresturinn átt mestan þátt í erfiðleikiinum og er þar einnig um að kenna breytingum á land- helginni, s?m Ollu því, að tög- ararnir hröktust af miðum sínum. Einnig var þeim um skeið fyrir- munað að landa í Englandi óg loks fengu þeir verra verð fyrir aflann á árunum frá 1951 eða 52 til 1957 eða 59 en bátaflotinn, þótt ekki væri um mismun á gæðum aflans að ræða, heldur var talið, að þeir þyrftu ebki jafn miklar uppbætur. Sam- bvæmt athugunum, sem fram hafa farið, er talið, að rekstrar- hallinn á venjulegum tögara hafi numið 2,5 millj. kr. árið 1960 og er þar að vísu reiknað með nokk- urri fyrningu Sbips oig véla. En hvort sem sú tala er nákvæmlega rétt eða ek'ki, er víst, að reksturs- afkoman 1960 og 1961 var með afbrigðum léleg. Aflatjóniff bætt upp Sú spurning hlýtur að vakna, hvernig snúast beri við þessum erfiðleikum og þá fyrst Og fremst, hvort eigi hætta að gera út tog- ara, er tapið er orðið svo geig- vænlegt og möguleikarnir svo litl ir, til að endarnir nái saman, a. m. k. miðað við það sem áð- ur var. Kvaðst ráðherrann hyggja að mjög fáir a. m. k. gætu hugs- að sér, aS tógaraútgerðin yrði alveg lögð niður að svo komnu máli önnur leið hefði einnig verið nefnd sem fræðilegur mögu leiki, sú, að hleypa tógurunum inn fyrir landhelgina. Reynt hefði verið að gera þetta tortryggilegt, en sannleikurinn væri sá, að ríkisstjórnin hefði engar tillögur í þá átt á prjónunum. Þá er sú leið hugsanleg, að draga megi úr gjöldunum, en það hefur verið reynt, eftir því sem talið er mögu legt. Loks er þá ekki nema sú eina leið eftir að bæta útgerðar- mönnunum það aflatjón, sem þeir hafa orðið fyrir, á einhvern hátt, Og þetta frumvarp gengur í þá átt. Kvað hann íslendinga ekki eina um það, heldur hefði sá háttur verið tekinn upp hjá Englendingum Og kröfur um það gerðar hjá Þjóðverjum, er ætla megi, að takið verði tillit til. Mikið fé Kvað hann frumvarp þetta að nokkru byggt á hlutatryggingar- lögunum, en gert er ráð fyrir að togararnir fái aðild að hlutatrygg ingarsjóði og er nafni hans breytt til samræmis við það í „afla- tryggingarsjóð sjávarútvegsins". Jafnframt er tveim nýjum deild- um bætt við: togaradeild og jöfn unardeild, sem hlaupa á þar und- ir bagga, sem þörfin er brýn- ust hverju sinni. Þá er gert ráð fyrir því, að útflutningsgjöld á sjávarafurðir hæfeki í 1,25%, en framlag ríkissjóðs verði helm- ingur þar á móti. Miðað við afla- magn sl. ár verða þá tekjur afla- tryggingarsjóðs af sjávarafurð- um 35 millj. kr. og framlag ríkis- sjóðs 17,5 millj. nema á yfir- standandi ári, en á fjárlögunum er gert ráð fyrir 8 millj. kr. fjár- togara framlagi rfkissjóðs. Tögaradeild- in og jöfnunardeildin munu bera hallann af árinu 1961, en ríkis- sjóður mun bæta upp árið 1960 með 30 millj. kr., sem afgreiddar verða til togaraeigenda sem. bankavaxtabréf, sem rífeissjóður borgar upp á fimm árum. Er þá reiknað með, að í hlut hvers tog- ara komi að meðaltali 750 þús. kr„ hvort árið eða alls 1,5 millj. kr. Kvaðst ráðherrann viðurkenna. að þetta væri mikið fé, en þó ekki meira en svo, að hann taldi það orka tvímælis, hve mörg skip yrði hægt að halda áfram að gera út, ef ekki rætist úr með afla- brögðin, nema þá með áfram- haldandi fjárframlögum. Eiga inná hjá ríkissjóði Eysteinn Jónsson (F) kvað tog- ara eiga mjög í vök að verjast. Taldi haiín, að þeir ættu inni hjá þjóðarbúinu, þar sem þeir hefðu um síkeið fengið lægra verð fyrir aflann en aðrir, og væri því skylt eð hlaupa undir bagga með togaraútgerðinni. Frumvarp lægi hér fyrir um það og taldi hann það vel farið. Hins vegar mætti ekki leysa þetta mál á kostnað bátaútvegsins, stuðning- urinn ætti að koma frá þjóðfélag inu í heíld, en ekki kæmi til mála, að íslendingar hættu við togaraátgerð. Kvað hann þá breyt mgu á lögum hlutatryggingasjóðs að helmingur teknanna skuli eiga að renna í jöfnunarsjóð, sem hlaupi þar undir bagga, sem þörf- in er brýnust; benda augljós- lega til þess, a3 bátaútvegurinn verði 1 veruleg- um mæli látinn standa undir töp um togaraútgerð arinnar. Þvi ákvæði þyrfti að breyta og að- skilja deildir aflatryggingarsjóða ins, enda væri það í samræmi vi3 vilja fulltrúa á síðasta fundi LÍÚ. Bátaútvegurinn ætti nóg með sig Og eðlilegt væri, að hver deild hefði aðskilinn fjárhag. Lóks kvað hann þörf á því, að endurskoða hlutatryggingarlögin í heild. Afliri.n mjög mlnnkandi Lúðvík Jósefsson (K) kvað að- alefni frumvarpsins augljóslega það að veita togaraútgerðinni fjárhagslegan stuðning, en þótt það væri flutt af þeim sökum. væri þar blandað inn í alóskyldu máli, hlutatryggingarsjóði báta- útvegsins. Eðlilegt væri, þegar slíkt stórmál væri lagt fyrir Al- þingi, að látnar væru jafnframt í té niðurstöður þeirrar nefndar, sem athugað hefði erfiðleika tog- araútgerðarinnar. Bkki léki á tveim tungum, að togaraútgerðin ætti í miklum erfiðleikum og væri ein af meginorsökunum sú, að aflinn hefur farið mjög minnlc andi, sérstaklega á heimamiðum, Ekki væri held- ur vafi á, að nú séum við í fyrsta skipti eftirbátar annarra þjóða varðandi togara- útgerð og getum ekki gert tögara ofckar út á Græn lands- eða Ný- fundnalandsmið nema með því að gera breyting- ar á skipunum, þannig að unnt sé að frysta a. m. k. sumt af fiskinum strax, svo að togararn- ir geti verið úti f mánuð í stað 10—12 daga, eíns Og nú er. Kvaðst hann telja, að snúast ætti við vandanum á þann hátt, a3 koma togui"unum á betri reskslr- argrundvöll og aðstoða við það, en jafnframt kvaðst hann sam- mála því að þeim yrði veittur beinn fjárhagslegur stuðningur. Þá lagði hann áherzlu á að me3 þessu frumvarpi steeði einn þátt- ur sjávarútvegsins undir öðrum og varaði hann mjög við því. Loks taldi hann útflutningsgjöld á fiski of há, svo að þess væri ekki dæmi til hjá öðrum þjóð- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.