Morgunblaðið - 13.03.1962, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 13.03.1962, Qupperneq 11
Þriðjudagur 13. marz 1962 MORGiny BLAÐ1Ð 11 Jóhanna Friðriksdóttir yfirljósmóðir — Kveðja ÁRIÐ 1930 var viðburðaríkt á ínarga lund, en gamalli ljósmóð ur, sem þá starfaði í Reykjavílk, er hvað minnisstæðast, er Ljós mæðraskólinn flutti í hinn ný- byggða Landsspítala og fékk þar heimavist til umráða og bætt ekilyrði við kennslu í fæðingar dieilldinni, þar sem heflja áttd störf innan skamms. Þetta var stórt stökk frá þvi, sem áður var er ljósmæðranemamir urðu að hpla sér niður hingað og þang að og stunda nám við hin frum 6tæðustu skilyrði. Hitt var og ekki síður stórvið burður, að við starfrækslu hand læknis- og fæðingardeilda Lands spítalans opnaðist greiður að- gangur þeim konum, sem ekki gátu fætt börn sín án meirihátt ar skurðaðgerða, eða annarrar læknish j áilpar. Ófullburða börn áttu og víisa þá umönnun, sem ekki var unnt að veita í heimahúsum og bjart ar stofur og hvít uppbúin rúm biðu þeirra, sem áður höfðu fætt í dimmuim kjallaraibúðum eða ofnlausum skúrbyggingum og áttu enn ekki annarra íbúða völ. JTæðingardeildin fékik til um- ráða 6 stofur með 12 rúmum, þar af 2 fæðingastofur, allt var skor ið við nögl, enda ekkí að svo stöddu búizt við mikilli aðsókn. Kennari Ljósmæðraskólans, prófessor Guðmundur Thorodd- sen átti að hafa þessa litlu deild „aðeins sem annexíu frá hand- læknisdeild Landsspítalans'' eius og hann sjálfur komst að orði, en yfirljósmóðir var að hans ráði kjörin frk. Jóhanna Frið- riksdóttir. Auk ljósmóður.tarfs- ins átti hún að kenna ljósmœðra nemendum verkleg fræði og hafa hönd í bagga með þeim í heimavistinni. Var henni það kært viðfangsefni að gefa þeim holl ráð og mikið áhugamál, að þær yrðu samvizkusamar og dug legar ljósmæður. Fyrsta verikefni frk. Jóhönnu í fæðingardeildinni var að afla al ls þess sem með þurfti í dagleg um störfum, frumbýlingsháttur- inn var miikill og ótrúlega mörgu þurfti að kippa í lag. Kom henni þá vel, að hún var úrræðagóð að eðlisfari og skýr í hugsun, svo af bar. 3. janúar 1931 fædidist fyrsta barnið í deildinni. Aðsókn var dræm fyrst í stað, en innan ars varð vandinn mesti, hvernig hægt væri að hýsa alla þá sem inn vildu komast, og þá sérstak- lega þær konur, sem erfiðastar höfðú ástæðurnar keima fyrir. Oft varð að grípa til hálfgerðra neyðarúrræða af þessum sökum, t.d. þegar yfirljósmóðirin sá sér ekki annað fært en ganga úr rúmi fyrir nauðstadidan sjúkling, og hreiðra um sjálfa sig á gólí- inu, en það kom mjög oft fyrir. Þannig liðu tæpir tveir áratugir í þrotlausu erfiði og taugastríði vegna þrengslanna. Það var þvi ekki undarlegt, þó frk. Jóhanna liti vonaraugum til nýju Fæðing- ardeildarinnar, sem reis af grunnj á næstu grösum. Hvílíkur léttir að eiga í vænidum að þurfa aldrei að úthýsa neinum. Hún stjómaði störfum, er flutt var úr gömlu fæðingardeildinni í hina nýju, seint í desember, árið 1948. Stuttu síðar veiktist hún alvarlega og lá lengi vetrar, en hjarnaði við með voriniu og gengdi störfum af veikum, mætti næsta sumar. Það var sjálfsagt lán fyrir frk. Jóhönniu að uan þessar mundir var hámarfcsaldur yfirljósmóður við fæðingardeild ina áikveðin 60 ár, svo léleg var heilsa hennar Orðin, en vinum hennar fannst það nálgast grimm örlög, að hún skyldi ekki fá að njóta bættra starfsskilyrða í nýjum húsakynnum. Hún lét af störfum 1. október 1949. Árið 1950 Og síðan var hún prótfdómari við Ljósmæðraskólann. Svo sem að lífcum lætur bar frk. Jóhanna hag ljósmæðrastétt arinnar mjög fyrir brjósti, sjálf hafði nun lært og unnið við hin- lélegiustu skilyrði. Hún var fé- lagi í Ljósmœðraféilagi íslands frá stofnun þess og í stjórmnni frá árinu 1929, en haustið 1949 tók hún 'að sér formannsstörf- in og ritstjórn Ljósmæðrablaðs- ins og gengdi þvi til ársins 1959, að hún baðst undan endurkosn- ingu. Ritistjóri blaðsins hafði hún þó á hendi enn eitt ár. íslenzkar ljósm. sakna því vin- ar í stað við fráfáll hennar og þakka allt hennar margþætta starf í þeirra þágiu. Frk. Jó- hanna Friðriksdóttir var fædd að Galmarsstöðum í Eyjafirði 28. ágúst 1889. Ung að árum tók hún þá ákvörðun að varða ijós- móðir og þrátt fyrir úrtölur móð ur sinnar, sem var reynd og dug leg ljósmóðir, brýzt hún félaus að kalla tiil náms í Reykjavik. Útskritfaðist úr Ljósmæðraskólan um 30. marz 1914 og héit þá sam stundis norður í Eyjafjörð þar sem hún vann, lögskipuð ljós- móðir, næstu 7 árin. Haustið 1921 fór hún til framhaldisnáms í fæðingardeiild Ríkisepítalans í Khöfn. Að atfloknu prófi þar í sept. 1922 varð hún ljósmóðir í Bolunigarvík í N-ísafjarðar- sýslu. Þaðan fluttist hún til Reykjavíkur árið 1925 ög starfaði þar sem „praktiserandii“ ljósmóð ir, þar til í marz 1930. Þá fór hún til Þýzkalands og vann þar á tveimur fæðingarspítölum í Berlín. Á leiðinni heim til fs- lands næsta haust brá hún sér tiil Svíþjóðar og vann um tíma í fæðingardeild í Gautaborg. — Allsstaðar fékk hún hinn bezta vitnisburð, bæði við nám og ijós móðurstörf, leyfi ég mér að til færa hér umrnæli tveggja lækna. Héraðslæknir, sem vann með henni úti á landi, sagði: „Það sem mér finnst einkenna frk. Jóhönnu öllu öðru fremur er skyldurækni hennar í smáu og stóru“, óg Guðmundur prófessor Thörodidsen lét m.a. svo ummælt að loknu samstarfi þeirra í fæð ingardeildinni: „Og yfirljósmóð irin hlítfði sér etki. Hún var vak in og sofin í starfi sínu fyrir deildina og j afnvel svo að mörg um þótti nóg um og fannst, að hún gæti hlíft sér meiira en hún gerði“. Frk. Jóhanna unni ödlu fögru í umhverfi og listum, eink um voru góðar bækur henni hug leiiknar. Hún var ör í skapi og viðlkvæm í lund, en vildi aldrei við það kannast, hvorki fyrir sjálfri sér né öðrum, vegna þessa var hún oft hrjúfari á yfirborð in/u en efni stóðu til. — Og nú er hún farinn til þess að „starfa meira, Guðs um geim“, hér vann hún sin störf öðrum til hjálpar svo að segja til hinztu stundar. Guð blessi hana. Sigríður Sigfúsdóttir OFTIEIDIR Stúlka fil New York Loftleiðir vilja ráða strax vel menntaða stúlku á aldrinum 20—25 ára til afgreiðslustarfa í Idlewild flugvelli í New York. Staðgóð kunnátta í ensku og einhverju Norðurlandamálanna, helzt, norsku, á- “ skilin. — Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu félags- ins, Lækjargötu 2 og skulu umsóknir hafa borizt ráðningardeild félagsins fyrir 15. þ.m. Ungur maður óskast til afgreiðslustarfa í matvörubúð nú þegar. Þarf að hafa bílpróf. HJÖRTUR HJARTARSON, Bræðraborgarstíg 1. Kaupmenn — Kaupféldg Rennilásar, opnir og lokaðir, ítalskir og japanskir. Heildv. Jóh. Karlsson & Co. Sími: í Hveragerði 22090. Sölumaður: 82. íbúð 3—4 herfc. íbúð, sem næst Miðbænúm óskast til leigu nú þegar eða 1. apríl. Tilboðum svarað í síma 19035. ÞRÖSTUR LAXDAL, cand. med. Utihurðir fyrMiggjandi úr ORGAN-PINE og Afrjku-Teaki, einnig Panelhurðir. T résm íðaverkstædið Skjólbraut 1, Kópavogi — Sími 17253. HÚSEIGENDUR - GARÐ EIGENDUR Nú er ekkerf vandamál að girða lóöina! Loksins kom þaÖ ÓDEBRUGS PLASTHÚÐAÐ STÁL-GIRÐINGAEFNI — Fallegt — Auðvelí, í uppsetningu — Ekkert viðhald — Setur skemmtilegan svip á umhverfið. Ó D Ý R T O G VARANLEGT Járn hf. G. S. Júlíusson Súðarvogi 26. Sími 35555 Aðalstræti 6, 7. hæð. Sími 13864

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.