Morgunblaðið - 13.03.1962, Qupperneq 24
Fcettasimar Mbl
— eftir lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Inniendar fréttir: 2-24-84
Samkeppnin
Sjá bls. 13.
60. tbl. — Þriðjudagur 13. marz 1962
Inflúenzan hefur
náð hámarki
Inflúenzufaraldurinn mun
bafa verið í hámarki um
helgina og í gær, að því er
Mbl. var tjáð á skrifstofu
borgarlæknis í gær. Eru all-
ar horfur á því, að faraldur
þessi gangi fljótt yfir, og að
draga taki úr honum nú í
vikunni. Virðist ekki vera
um aukningu að ræða á sjúk
dómstilvikum frá því á
föstudag og laugardag.
Skólar þeir, sem lokaðir voru
fyrir helgi, opna ekki í dag og
óákveðið, hvenær það verður
gert.
Ólafur Magnússon, skóla-
stjóri á Kiébergi á Kjalarnesi,
sagðist hafa kennt til hádegis í
gær, en ekki fengið nema
þriðjung nomenda, svo að hann
hætti. — Það þýðir ekki að
þrjózkast við flenzufjárann,
sagði hann. Skólinn verður
opnaður aftur á fimmtudag.
1 Keflavík er bamaskólinn
lokaður, en reynt verður að
hefja kennslu þar að nýju á
fimmtudag. Kennslu var hætt í
árdegisbekkjum (yngri deild-
um) gagnfræðaskólans þar í
gær, og verður reynt að taka
hana upp á föstudag. í síðdegis-
bekkjum er ætlunin að hefja
kennslu á ný á miðvikudag.
Inflúenzufaraldurinn á Akur-
eyri hefur færzt í vöxt síðustu
daga, og er nú svo komið, að
menntaskólanum hefur verið
lokað. Verður reynt að opna
hann á föstudag. I gærmorgun,
er neméndur mættu í tíma,
vantaði um 40% þeirra. Áber-
andi er, hve inflúenzan leggst
miklu meira á yngri nemendur,
t.d. vantaði sárafáa í VI. bekk.
í gagnfræðaskóíanum og bama-
skólunum var kennt í dag. Þar
voru vanhöld um 25%. Felld
var niður íþrótta- og sund-
kennsla. — Fari tala sjúklinga
fjölgandi í þessum skólum,
mun þeim einnig verða lokað.
Skylt að vara við hættunni
og undirbúa varnir
Gunnar Thoroddsen
sagði Jóhann Hafstein um almannavam
irnax á fundi fulltiúaráðs Sjálfstæðismannc
JÓHANN Hafstein banka-
stjóri ræddi um almanna-
varnir á fundi í fulltrúaráði
Sjálfstæðisfélaganna í gær-
kvöldi og gerði grein fyrir
frumvarpi því, sem lagt hef-
ur verið fram á Alþingi og
getið er um á öðrum stað í
blaðinu. Hann sagði, að allar
nágrannaþjóðir okkar verðu
miklu fé til almannavarna
og óverjandi væri að gera
engar ráðstafanir til varnar
þeim hættum, sem allir von-
uðu þó, að aldrei dyndu yfir.
•Aðgerðarleysi ekki verjandi.
Stundum verða menn að gera
annað en gott þykir, sagði Jó-
hann Hafstein, og á styrjaldar-
árunum voru hér loftvarnir, en
síðan féllu þær niður. Aftur á
móti hafa nágrannaþjóðir oikikar
á undanförnum árum varið
miklu fé til almannavarna.
Varöarfundur í kvöld
um skattamál
í KVÖLÐ efnir Vörður til al-
menns umræðufundar um nýju
skatta- og útsvarsfrumvörpin,
sem ríkisstjórnin flytur á yfir-
standandi þingi. Frummælandi
á fundinum verður Gunnar
Thoroddsen, fjármálaráðherra,
en að ræðu hans lokinni verða
frjálsar umræður.
Fundur þessi verður haldinn
í Sjálfstæðishúsinu og hefst kl.
20.30. —
UNDANFARNA daga hefur gengið erfiðlega með
útburð blaðsins v'egna imkilla veikinda meðal barna,
sem bera út. —
Kaupendur mega því búast við að fá blaðið í
seinna lagi, en reynt veiour að bæia úr því eftir
fremsta megni. —
Þegar ástand heimsomálanna
versnaði vegna Kóreustyrjaldar-
innar árið 1951, töldum við ís-
lendingar óverjandi að gera ekk-
ert til varnar, og tók lofbvarnar-
nefnd þá til starfa að nýju og
hafði fyrstu árin til ráðstöfunar
1% millj. kr. á ári, að hálfu frá
ríkimu, en Reykjavíkurborg
greiddi hinn helminginn. Vinstri
stjórnin felldj niður fjárveiting-
ar ríkisins, en Reykjavík hélt á-
fram að greiða kostnað loft-
varnanefndar, sem síðustu árin
miðaði þó aðeins við viðhaid
birgða og hjúkrunargagna.
Þegar Rússar sprengdu hel-
sprengjur sínar í haust, þótti
ekiki lengur unnt að láta þessi
mál liggja í láginni, og hóf ríkis-
stjórnin þá í samráði við borgar
stjórann í Reykjavík undirbún-
ing að almannavörnum hér á
svipjaðan hátt og gert er t.d. á
Norðurlöndum.' Lögreglustjórinn
í Reykjavík og borgarlæknir
fóru stu'.ta ferð til Norðurlanda
til að kynna sér þessi máil, og
siðan komu hingað sérfræðingar
Framhald á bls. 23.
Jóhann Hafstein
í þessu heiðskíra veðri, sem
verið hefur undanfarið á Suð-
urlandi, hefur oft verið fagurt
að horfa niður yfir landið úr
flugvél. Þessa mynd tók Björn
Pálsson fyrir nokkrum dög-
um úr flugvél sinni, er hann
flaug yfir Vatnajökui. Sést
hvar Morsárjökull skríður
æði úfinn niður í áttina til
Bæjarstaðaskógar.
Sinubrunar og
skúrbruni
TALSVERT hefur verið hringt
til slökkviliðsins að undanförnu
vegna sinubr^nna. — Kl. 17 á
sunnudag fór slökkviliðið inn
að Sundlaugum, en þar höfðu
krakkar kveikt í sinu á svæð-
inu milli Lauganna og Lauga-
lækjarskóla. — Einn drengur
brenndist eitthvað á fæti, þegar
hann missti logandi eldspýtu
niður á sokkinn sinn.
Klukkan tæplega hálfþrjú á
mánudag kom upp eldur í skúr
við Fálkagötu 22 á Grímsstaða-
holti. Brann Skúrinn að tölu-
verðu leyti, áður en eldurinn
var slökktur.
Þriggja vikna stillur
Skotfæri fyrir bíla á hjarninu á hálendinu
#W
Kförnefnd
kosin
Á FUNDI fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna var kosið í
kjörnefnd til að annast upp-
stillingu við borgarstjórnar-
kosningamar í maí. Eftir regl
um fulltrúaráiðsins er stjóm
þess og formenn Sjálfstæðis-]
ifélganna sjálfkjörin í nefnd-
ina en fulltrúaráðsfundur kýs
menn til viðbótar. Fullskipuð
er kjörnefndin þannig:
Birgir Kjaran Baldvin
Tryggvason, Gróa Péturs-
■ dóttir, Davíð Ólafsson, Helga
Marteinsdóttir, Bjami Bein-
teinsson, Jón Kristjásson,
.Sirgir Gunnarsson, María
Maack, Höskuldur Ólafsson,
Magnús Jóhannissson, Baldur
Jónsson, Styrmir Gunnars-i
son, Soffía Ólafsdóttir og
Stefán Hannesson.
UNDANFARNAR þrjár vikur
hafa verið stillur hér á Suður-
landi og er það óvenjulegt svo
langan tíma á þessum tíma árs.
Stillta veðrið kom upp úr 20.
febrúar, eftir langan umhleyp-
ingakafla, en þá var hæð yfir
landinu og mikið háþrýstisvæði,
sem kunnugt er af fréttum. Um
mánaðamótin breyttist yfir í NA-
átt og hefur síðan verið bjart
veður sunnanlands, með dálitlum
vindi stundum, en á Norðurlandi
hefur verið éljagangur. Er Mbl.
spurðist fyrir um það á Veður-
stofunni í gær, hvort sæjust nokk
ur merki um að þessum stillu-
kafla færi að ljúka, sagði Péli
Bergþórsson að svo væri ekki.
Hann yrði sennilega eitthvað
fyrst um sinn. Þó væri kominn
svolítið suðaustlægari átt á haf-
inu hér fyrir sunnan, sem gæti
táknað breytingu, en hún gæti
gengið hægt fyrir sig.
GUÐMUNDUR FÓR INN Á
HÁLENDIÐ
Guðmundur Jónasson fjalla-
bílstjóri stóðst ekki þetta fallega
veður og fór um helgina með
ferðafólk í tveimur Dodge Weap-
on bílum á fjöll. Komust þeir
alla leið inn í Tungnaárbotna
vestan í Vatnajökli og óku meira
að segja um 2 km leið upp í
jökulinn á bilnum. Sagði Guð-
mundur í gær, að ekið hefði ver-
ið á hjarni alla leiðina og yfir
Tungnaá á ís og ferðin gengið
svo vel, að þessi 250 km leið inn
á öræfin hefði verið ekin á 8
tímum. Hefur Guðmundur farið
einu sinni áður þarna inn eftic
Framhald á bls. 23,
Bólusóttar-
varnir enn
viðhafðar
VARNIR við bólusótt eru
enn viðhafðar hér, því að
annað veifið berast fréttir
af nýjum sjúkdómstilvik-
um erlendis. Er því fylgzt
með fólki, sem kemur hing
að frá svæðum, þar sem
sýkingar hefur orðið vart,
eða grunur leikur á um
sýkingu. Eins er fólki, sem
ætlar að ferðast til út-
landa, ráðlagt að láta bólu-
setja sig áður.