Morgunblaðið - 24.03.1962, Side 3
3
Laugardagur 24. marz 1962
MóKCVNnr ÍrlT? *>^i
STAKSTEINAR
„Krafa Morgunblaðsins"
Hér sést á eitt pökkunarborðið I Hraðfrystistöð Vestmanna-
•yja. Húsmæður í Eyjum kunna vel til verka í frystihúsum,
ekki síður en í eldhúsinu heima hjá sér. — í marz og
april tvískipta margar húsfreyjur starfi sínu þannig, að
þær sinna húsverkum á m<orgnana, en vinna að fiskpökkun
og öðrum framleiðslustörfum síðari hluta dags. Þetta kemur
sér mjög vel, því að oft er skortur á fólki til starfa.
Einn Vestmannaeyjabáta heldur út með netin. Sett er á
fulla ferð, svo að reykjarstrókar standa upp úr reykháfin-
um. Með dýptarmæli og fisksjá skal sá guli finnast, og þá
er ekki beðið með að dengja netunum í sjóinn. Netatrossur
aftur á dekki og baujur frammi í stafni.
eins miklar vonir um afstöðu
Framsóknar til þessa máls eins
og Alþýðublaðið. Sannleikurimi
er sá, að Framsóknarmenn hafa
aldrei tekið undir með þeim, sem .
bent hafa á nauðsynina, að hér
verði sett löggjöf gegn einokun
1 og hringamyndunum. Ástæðan, til
þess er sú, að SÍS hefur víða ein-
okunaraðstöðu, sem það fyrir-
tæki vill ekki missa undir nein-
um kringumstæðum, og Fram-
sóknarmenn vilja heldur ekki að
el'tirlit sé haft með hringum,
vegna þess að slíkt eftirlit hlyti
að snerta Samband íslenzkra
samvinnufélaga. Þessari Iöggjöf
verður því vafalaust að koma á
í andstöðu við Framsóknarflokk-
inn og sjálfsagt líka kommúnista,
f*Aa a IW lr ón Kol»41.-4-
Hér er mb. Reynir í Vestmannaeyjum að koma að með
500—600 tunnur af einstaklega fallegri síld. Fyrir tveimur
til þremur árum hefði það verið til stórviðburða, og fyrir
fimm árum jafnvel óhugsandi, að bátar kæmu að nr.eð síld
úr róðri í marzmánuði, þegar netavertíð og þorskveiðar
ættu að vera að komast í algleyming. AUt útlit bendir nú
til þess, að síldveiðar ætli að létta mikið á öðrum veiðiskap.
— Þessi bátur ásamt nokkrum öðrum í Vestmannaeyjum
hefur verið með net í sjó, en annan daginn fara þeir nt.eð
ýsu- og síldarnót. — Slæmt er, að vinnuafl er ekki nóg i
Iandi, til þess að vinna aflann í það verðmæti, sem mest
gefur í aðra hönd. í Eyjum virðist ekki vera hægt að
frysta nema mjög takmarkað magn, þegar þessi tími er
kominn. T. d. fór mestur hluti aflans úr mb. Reyni ásamt
300—400 tunnum, scm veiddust á mb. Gjafari, í bræðslu,
þótt þetta væri mjög stór og falleg síld.
vellinum, en „margt er skrýtið í þorskmaganum“ mætti
alveg eins segja í verstöðvunum. Það er ekki nóg með
það, að þorskurinn gleypi stærðarhnullunga, eins og stund-
um hafa birzt myndir af í blöðunum, heldur fannst þessi
handfærablýsakka með áfestum öngli og gervibeitu niðri í
þorskmaga úti í Eyjum. fyrir skemmstu. Fiskurinn veiddist
af Gullborgu, og kom sakkan, sem vegur 2150 grömm,
í ljós við aðgerð í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja. — Á
sökkunni er nafn, sem er heldur ólæsilegt, en virðist helzt
vera „Trolla 8“. E.t.v. kannast einhverjir Færeyingar eða
Norðmenn við nafnið. -
Fyrir skömmu birtást hér f
blaðinu greia eftir Jón Leifs tóa-
skáld, þar sem hann stingur upp
á því, að Islendingar k/omi sér
upp 5000 manna varnarliði og
verði þannig virkir þátttakendur
í vörnum gegn yfirgangi ofbeld-
ismanna. Morguniblaðið taldi
sjálfsagt að birta grein þessa og
leyfa Jóni Leifs þannig að setja
fram sjónarmið sin, án þess að
blaðið tæki undir orð hans. Varn-
armál eru meðal vandasömustu
málefna sérhverrar lýðræðisþjóð-
ar. Þess vegna er ekkert eðli-
legra en ræða þau opiniberlega
og leyfa hinum ýmsu sjónarmið-
um að koma fram. Varnarmálm
voru nýlega rædd á umræðufundi
í Heimdalli, eins og frá var skýrt
á æskulýðssíðu S.U.S. hér í blað-
inu í fyrradag. Styrmir Gunnars-
son, stud. jur. hélt þvi þar fram,
að mjög þyrfti að efla varnir
íslands, fyrst og fremst með gagn
flaugum. Kommúnistablaðið seg-
ir í gær, að Morgunblaðið hafi
gert skoðanár Styrmis að sínum
með þvi að hindra ekki birt-
ingu þeirra. Spurningin er þá
þessi: Hversvegna hélt Moskvu-
málgagnið þvi ekfki einnig fram,
að Morgunblaðið aðhylltist skoð-
anir Jóns Leifs, þegar grein hans
var birt?
Lög gegn einokun
Morgunblaðið hefur lengi bar-
í | ist fyrir þvi, að hér á lanidi yrði
sett löggjöf til að hindra hringa-
myndanir og hafa eftirlit með
þvi að ekki myndist óeðlilegur
einokunargróði. Alþýðublaðið
hefur tekið undir þessi sjónarmið
og segir m. a. i ritstjórnargrein í
gær:
„Þróun mála er að komast á
það stig hér, að gera verður
samskonar ráðstafanir og í öðr-
um löndum. Hafa ýmsir aðilar
skilið nauðsyn þess og er sér-
staklega gleðiefni að Verzlunar-
ráð íslands skuli hafa mælt með
því, að slík löggjöf verði sett.“
Síðan víkur Alþýðublaðið að
þvi, að flutt hafi verið tillaga á
Alþingi þess efnis að sett verði
sérstök löggjöf um sölusamtök
útflutningsatvinnuveganna. Síð-
an segir:
,jÞað vakti athygli,, að eini
. þingmaðurinin, sem stóð upp ttl
að malda í móinn var gamal-
reyndur samvinnuleiðtogi, Skúli
Guðmundsson. Hann virtist koma
af fjöllum hvað snerti þörf á
löggjöf gegn einokun og óeðli-
legum fyrirtækjasamsteypum. Þó
hafa samvinnumenm um allan
heim haft forystu í þessari bar-
áttu . . . Er þvi sjálfsagt að gera
ráð fyrir að íslenzkir samvinnu-
menn styðji þessa sókn, enda
þótt Skúli misstígi sig örlítið.“
Afstaða Framsóknar
SIGURGEIR Jónasson,
ljósmyndari Morgxm-
blaðsins í Vestmanna-
eyjum, tók myndirnar
hér á síðunni úr at-
hafnalífinu í Eyjum. —
Vertíðin er þar í
fullum gangi og jafnvel
síldveiðar stundaðar. —
Fréttirnar, sem fylgja
myndunum, eru einnig
frá Sigurgeiri.
Núna eru Vestmannaeyjabátar sem óðast að taka netin. AUar bryggjur hafa verið þaktar
netagrjóti, kúlum og alla vega litum netum. Sjómenn hafa staðið í að hanka grjót og
steina netin niður, því að ekki veitir af netunum, þegar þorskurinn fer að skríða i þau
eftir loðnuofátið. — Á þessari mynd eru sjómenn af mb. Atla að steina niður. Þeir
standa uppi, á uppfyllingunni og steina beint niður á dekkið á bátnum. I baksýn sést
mh. Suðurey, sem einnig er að taka net.
Myndir
ur
Eyjum it