Morgunblaðið - 24.03.1962, Page 5
Laugardagur 24. marz 1962
MOncrNRT 4 ÐIÐ
5
FJÖRUGAR samræður bár-
ust fréttamanni blaðsins til
eyrna af sviðinu í samkomu-
sal Hagaskólans, er hann brá
sér þangað fyrir skömmu.
Sviðinu hafði verið breytt
í baðstofu og þar sátu tveir
menn Og sögðu hvor öðrum
mjög ýktar sögur. Annar Hall-
varður Hallsson (Jón Ormar
Hallgrímsson) var að segja
hinum? Bjarna bónda á Leiti
(HaiHgrími Snorrasyni) frá
skipi, sem á voru 1800 menn,
en ekiki þótti Bjarna það mik-
il tíðindi, því að hann vissi um
skip, sem á voru ekki aðeins
1800 menn, nei, á því voru
átján þúsund átta hundruð
áttatíu og átta menn. Varð þá
Hallvarður hvumsa við, er
hann fékk þessar upplýsingar.
Þarna voru nemendur Haga
skólans að æfa eitt atriði úr
leikritinu Manni og könu eftir
sögu Jóns Thoroddsens.en þau
ætla að frumsýna leikritið 1
kvöld.
Æfingin hélt áfram nú voru
þeir Grímur meðhjólpari (Vil-
helm Kristinsson) og Egill
sonur hans (Pétur Gunnars
son) kömnir inn og seztir að
snæðingi með Hallvarði og
Bjarna bónda. Var miikill
handagangur í öskjunni og
sagði lei'kstjórinn Klemenz
Jónsson, að ekki dygði minna
en eitt hangikjötslæri í hverja
máltíð.
Egill ber upp bónorðið við Sigrúnu.
yngista fólkið, sem leíkið hefði
Mann og konu og kvað hann
þeim takast það vel. Leikend-
urnir eru allir á aldrinum 14
til 16 ára. Þeir hafa æft leik-
ritið í 6 vikur og öftast 3—4
tími á hverjum degi. Tvær
sýningar hafa þegar verið á-
kveðnar, á laugardag og
sunnudag og ef til vill verða
þær fleiri.
Leiktjöldin eru gerð af
handavinnu og teiknikennur-
um skólans, Jóni Jóhannes
syni, Bimi Kristjánssyni og
Þuríði Kristjánsdóttur, en bún
ingarnir eru fengnir að láni
hjá Þjóðleiikhúsinu.
Nú var tjaldið dregið frá á
ný og næsti þáttur hófst.
Hann gerðist undir berum
himni og í upphafi hans rædd-
ust þær við Þórdlís kona Sig-
urðar í Hlíð (Helga Kjaran)
og Sigrún fósturdóttir hennar
(Ásthildur Rafnar).
Aðrar persónur og leikend-
ur, en hér hafa verið nefndir
eru: Hjáimar tuddi (Þórhall-
ur Sigurðsson), Þura gamla
(Vilborg Árnadóttir), hjú í
Hlíð (Ingia Helgadóttir, Helga
Kristjánsdóttir, Jón Magnús-
son og Karl Kristinsson) Sig-
urður í Hlíð (Guðbjartur Ól-
afsson) séra Sigvaldi (Jón
Örn Magnússon), Steinunn
kona hans (Ingibjörg Einars-
dóttir) Staðar-Gunna (Sigrún
Gunnarsdóttir) Þórarinn stúd
ent (Hjörtur Hansson) og
vinnumaður (Finnur Sverrir
Helgason).
Þegar við kvöddum þessa
ungu leikendur, var Hallvarð-
ur að hressa Egil son með-
hjálparans á brennivíni, eftir
að hann hafði beðið Sigrúnar
og fengið heldur kuldalegar
móttökur.
Bjöm bóndl veitlr meðhjálparanum ráðningu. Egill son-
ur hans liggnr á gólfinu.
Yfir matnum var farið að
þjarka um líkamisvöxt Grett-
is Ásmundssonar og þótti
Grími meðhjálpara, Bjami
taka heldur stórt upp í sig í
þeim efnum. Lenti þeim sam-
an og endaði þátturinn með
því að Bjarni lagði meðhjálp-
arann á hné sér og veititi hon-
um velútilátna flengingu.
að akipta um svið, leikararnir
tóku sér kaffihlé. Ræddum við
við leikstjórann á imeðan.
„Maður og kona“
í Hagaskóla
Hann sagði okkur, að þ-essir
Eimskipafélag íslands h.f.: Brúarfoss
er á leið til NY. Dettifoss er í NY.
Fjallfoss fór í morgun til Keflavíkur.
Goðafoss er á leið til Rvíkur. Gull-
foss er á leið til Hamborgar og Khafn
ar. Lagarfoss er á leið til Rostock.
Reykjafoss er á leið til Hamborgar.
Selfoss er á leið til Hamborgar. Trölla
foss er í Rvík. Tungufoss er í Gdynia
Zeehaan er í Grimsby.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla fer frá
Rvík á hádegi á morgun austur um
land í hringferð. Esja er í Rvík. Her
jólfur fer frá Vestm.eyjum kl. 21 í
kvöld til Rvíkur. Þyrill er 1 Rvík.
Skjaldbreið er á Vestfjörðum. Herðu
breið er á Austfjörðum á noðurleið.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er í Genoa. Askja er í Rvík.
+ Gengið +
19. marz 1962
Kaup Sala
1 Sterlingspund ___ 120,91 121,21
1 Bandaríkj adollar 42,95 43.06
1 Kandadollar ..... 40,97 41,08
100 Danskar kr........ 624,60 626,20
100 Pesetar ........... 71,60 71,80
100 Norska- krónur . '’^OO 604,54
100 Sænskar krónur 834,15 836,30
110 Finnsk mörk ........... 13,37 13,40
100 Franskir fr........... 876,40 878,64
100 Belgiskir fr........... 86,28 86,50
100 Svissneskir fr. ...... 988,83 991,38
100 Gyllini ............. 1190,16 1193,22
100 Tékkn. krónur ... 596,40 598,00
100 V-þýzk -nörk 1.073,20 1.075,96
1000 Lírur ............. 69,20 69,38
100 Austurr. sch...... 166.18 166.60
Veitingahúsrekstur
Óska eftir ao taka á leigu eða veita forstöðu veit-
ingahúsi eða sumarhóteli. — Margt annað kemur
til greina. Hef haft veitingarekstur í mörg ár og
hefi góðu starfsfólki á að skipa. — Tilboð sendist
afgr. Mbl. fyrir 15. þ.m. merkt: „Veitingahús—4237“
Rannsóknarstofustúlka
óskast til starfa á Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri, sem fyrst. — Allar upplýsingar gefur
BALDUR JÓNSSON, læknir
Akureyri — Sími 1788 frá kl. 10—12 f.h.
Húsgögn til sölu
Til sölu er danskt sófasett úr eik. — Mikið útskorið.
(sófi, 3 stólai- og borð). — Upplýsingar í síma 22977.
HELEMA RUBIIMSTEIIM
ILMVÖTNIN
S.T EINKV ÖTNIN
eru komin:
¥
APPLE BLOSSOM
N O A N O A
HEAVEN SENT
f r á
HELENA RUBINSTEIN LTD.
L o n d o n .