Morgunblaðið - 24.03.1962, Side 9

Morgunblaðið - 24.03.1962, Side 9
laugardagur 24. marz 1962 MORCVNBL4ÐIÐ 9 Gunnlaugur Björnsson bóndi og kennari, Brimnesi, Skagaíirði '* F. 26/6 1891. — D. 14/3 1962 GUNNLAU'GUR var fæ-ddur á Narfastöðum í Viðvíkursveit. Foreldrar hans voru Björn bóndi ©g trésmiður á Narfastöðum o.v., f. 1864, d. 1951, Gunnlaugsson, (bónda og gullsmiðs á Narfastöð- um, Björnssonar prests í Hvammi í Laxárdal o.v., Arnórssonar. Er Iþetta beinn karlleggur frá Árna (biskupi Þórarinssyni á Hólum d. 1787. Kona Björns smiðs og móð- ir Gunnlaugs í Brimnesi var Hall- dóra, f. 1861, d. 1951, Magnús- dóttir, bónda í Enni í Viðvíkur- sveit, Gunnlaugssonar, bónda í Fremri-Svartárdal. d. 1832, Magn ússonar, bónda á Hóli í Tungu- sveit, d. 1810, Gunnlaugssonar ihreppstjóra á Hofi í Dölum. Er jþetta gömul skagfirsk bændaætt. f kvenlegg var Gunnlaugur Ikominn af Djúpadalsætt og af einni af dætrum Björns prests í Bólstaðahlíð, Jónssonar, svo nokkuð sé nefnt, og skal það ekki rakið hér frekar. — Gunnlaugur ólst upp með for- eldrum sínum. Fór svo í Kenn- araskólann og útskrifaðist það- an 1916. Varð kennari í Viðvík- urthreppi 1916—1917. Heimilis- (kennari á Hólum í Hjaltadal 1917—1919. Kennari við Bænda- skólann á Hólum 1919—1922. Fór þá utan og dvaldist við nám á Lýðskólanum Askov og Voss 1922—1923. Varð þar næst starfsmaður hjá TJngmennafélagi íslands 1924— 1928 og jafnframt ritstjóri Skin- faxa þessi ár. Kennari við Bænda S'kólann á Hólum að mestu sam- fellt frá 1928—1952. Bóndi í Brimnesi í Viðvikurhreppi frá 1929 til æfiloka, en Brimnes var settarjörð konu hans. Gunnlaug- ur átti sæti i hreppsnefnd Við- víkurhrepps all mörg ár og var oddviti nefndarinnar frá 1932— 1942. Hann var greindur maður, samvizkusamur og vel metinn kennari og góður bóndi, er naut á því sviði dugnaðar konu sinnar vegna langvinnrar fjarveru frá Iheimili sínu sökum kennslustarfa Ihans. Hann var dugnaðar maður við það sem hann gekk að, meðan kraftarnir leyfðu. Gunnlaugur fékkst auk þessa talsvert við ritstörf. Rit eftir 'hann eru Hóiar í Hjaltadal 1937 og Hólastaður, er kom út 1957. Hann var ennfremur ritstjóri nokkurra árganga af búnaðar- ritinu Búfræðingnum. Loks kem ég að þeim þætti í starfi Gunnlaugs, sem mér er alveg sérstaklega skylt að minnast. Hann var áhugasamur félagsmað- ur Sögufélags Skagfirðinga, unni þjóðlegum fræðum og sat lengi í stjórn félagsins, allt til æviloka. Hann var einn af samstarfsmönn- um mínum við samningu og út- gáfu Jarða- og búendatals í Skagafjarðarsýslu frá 1781—1958 og vann ásamt fleirum að fyrir- huguðum Æfiskrám Skagfirð- inga, er hann féll frá. Er bar nú skarð fyrir skildi. Fyrir allt þetta og fyrir sam- starf okk'ar votta ég honum mín- ar beztu þakkir. Gunnlaugur kvæntist árið 1925 eftirlifandi konu sinni, Sigur- laugu Sigurðardóttur, Jónsson- ar bónda á Hvalsnesi og konu hans Guðrúnar Símonardóttur frá Brimnesi, dugnaðar- og mynd arkonu. Einkabarn þeirra er Björn bóndi í Brimnesi. Jarðarför Gunnlaugs fer fram í Viðvík í dag, þann 24. marz. Jón Sigurðsson. Samkomui Þingstúka Reykjavíkur Munið aðalfundinn, sem hefst kl. 2 e. h. í dag. Kristniboðssambandið. Kveðjusamkoma fyrir Jóhann Guðmundsson flugumferðarstjóra sem er á förum til Arabíú, verður í kristniboðshúsinu Betaníu, Lauf ásvegi 13, sunnudaginn 25. þ. m. kl. 5 e. h. Allir eru velkomnir. Fíladelfía Tage Sötoerg talar kl. 8.30. — Samkoma alla sunnudaga á færeyska sjó- mannaheimilinu kl. 5. Allir vel- komnir. Kristilegar samkomur Sunnudag í Betaníu, Laufásv. 13 kL 8.30 (ekki kl. 5) í Keflavík mánudag, og Vogunum þriðju- dag. „Nemið staðar og heyrið orð Drottins Velkomin. Helmut L. og Rasmus Biering P. tala. PÁSKAFERÐ Mynd þessi er frá borginni eilífu RÓMAB ORG, sem er meðal þeirra staða, sem heimtóttir verða í páskaferð Ferðaskrifstofunnar LÖND & LEIÐIR. Dvalið verður 6 daga á eyjunni CAPRI, vinsælasta ferðamannastað ÍTALÍU. Auk þess verður kom- ið til: Allar- upplýsingar veita umboðsmenn okkar utan Reykjavíkur: Akranes: Bragi Þórðarson, Kirkjub. 19. Borgarnes: Þorleifur Grönfeld kaupm. ísafjörður: Alfreð Alfreðsson. Akureyri: Kristján Aðalsteinsson, SÍBS umboðið. Húsavík: Gunnar S. Karlsson Neskaupstað: Karl Hjelm, Melbraut 12 Vestm.eyiar: Gísli Bryngeirsson úrsm. Hvolsvöllur: Gunnar Alexandersson. N A P O L I P O M P E I SORRENTO VESUVÍUS og verið sjálfan páskadag í R Ó M Fararstjóri: Einar Pálsson FERÐASKRIFSTOFAN LL LÖND & LEIÐIR Tjarnargötu 4 Opið milli kl. sunnudag. Sími 36540 —5 laugardag og Samkomuhúsið Zion, Óðinsg. 6A. Á morgun: Almenn samkoma kl. 20.30. — Allir velkomnir. Keflavík — Tjarnarlundur Gunnar Sigurjónsson og Ólaf- ur Ólafsson tala á samkomunni í Tjarnarlundi í kvöld kl. 8.30. — Allir velkomnir. H I L 0 Sjónvarpstæki margar gerðir. Verð frá kr. 15.100. Sjáum einnig um uppsetningu loftneta Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Raftækjadeild O. JOHNSON & KAABER H.F. Hafnarstræti 1. Trésmiðir og verkamenn óskast Byggingaiél. Brn hf. Sími 16298 og 16784 Vantar vana aðgerðarmenn og flakara Sænsk-íslenzka frystihúsið h.f. Langavatn Að gcfnu tilcfni skal tckið fram að veiðiklúbburinn Strengur hefur Langavatn á leigu fyrir landi Borg_ arhrepps og Stafholtstungnahrepps og er öllum óheimii veiði þar án leyfis. Veiðiklúbburinn STRENGUR Rösk og ábyggileg aðstoðarstúlka óskast nú þegar á tannlækningastofu við Miðbæinn. Tilboð, sem tilgreini aldur, menntun og fyrri störf, merkt: „Klinikdama 4165“, leggist inn á afgr. Mbl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.