Morgunblaðið - 16.05.1962, Side 14

Morgunblaðið - 16.05.1962, Side 14
14 MORGU1SBLAÐIB Miðvíkudagur 16. mai 196i Rappnet 60 x 250 cm. H. Benediktsson h.f. SuÖurlandsbraut 4 Sími 38300. Alúðarþakkir st-ndi ég hér með olium frændum mínum og vinum, er ser.du mér árnaðaróskir á sjötugsafmæli mínu hinn 24. apríl síðastiiðinn. Júlíus Björnsson, Ægissiðu 101 ,Reykjavík Hjartans þakklæti sendi ég öllum þeim, sem glöddu mig á áttatíu ára afmæliSdagmn 11. mai með skeytum, gjöf- um og heimsóknum. Ennfremur þaKka ég allt frá liðnum árum. — Guð biessi ykKur öll. Aðalgeir Flóventsson frá Krosshúsum Mínar innilegustu þakkir til allra bæði skyldra og vanda- lausra, sem heiðruðu mig og glöddu á sjötugsafmæli minu, 8. maí sl. með heimsóknum, gjöfum skeytum, blóanum og hlýjum óskum og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur ÖIL Guðni Hjálmarsson Skipasundi 80, Reykjavík Lokað frá hádegi í dag vegna járðarfarar. Barnafatagerðin sf. Solido, umboðs- & heildverzlun Hverfisgötu 32 Mercedez-Benz 190 D og 220 S (Ljósm. Ól. K. M.). Bíla- sýning Sportbifreiðin Mercedez-Benz 190 SL, (Ljósm. Ól. K. M.). Á LAUGARDAG og sunnu- dag hafði Ræsir h.f. sýningu á nokkrum bifreiðum í HB- húsinu við Suðurlandsbraut. Vakti sýningin mikla athygli og skiptu gestir þar þúsund- um. Þarna mátti sjá þrjár gerð- ir Mercedez-Benz bifreiða — (190 SL, 190 D og 220 S), eina DKW bifreið frá Auto Union og bandariska Dodge bifreið af nýjustu gerð. — Mercedez-Benz bifreiðimar eru vel þekktar hér, en ein þeirra, sem á sýningunni var, er sjaldséð á götum borgar- innar. Það er „sport“ bifreið- in 190 SL. Var oft margt um manninn umhverfis sportbif- reiðina, enda er hún mjög glæsileg útlits. Ekki er þó á alira færi að eignast þennan kjörgrip, því hann mun kosta hér um 360 þús. kr. DKW bifreiðinni hefur áður verið lýst hér í blaðinu, en þetta er fjögurra manna fólks bifreið með tvígengisvél og hefur í heimalandi sínu V- Þýzkalandi hlotið viðurnefn- ið „Das kleine Wunder“ eða „Litla undrið“. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlót og jarðarför INGÓLFS SVEINSSONAR bifreiðastjóra Oddfríður Sæmundsdóttir, Guðmundur Ingólfsson Sæmundui Ingólfsson, Guðlaug Óskarsdóttir, Gunnar Ingólfsson, Jóna H. Hallbjörnsdóttir, og systkini hins látna. Innilegar þakkir fyrir auðsýnca samúð við andlát og útför BJARNA GUÐMUNDSSONAR, fyrrverandi kaupfélagsstjóra á Hornafirði Aðstandendur Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför GUÐNA MAGNÚSSONAR bónda í Haga Vandamenn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát Og jarðarför eiginmanns míns Og föður okkar GUDMUND AXEL HANSEN Þórsgötu 3 Sérstakar þakkir til iækna og hjúkrunarfólks handlækn- ingadeildar Landspítalans. Jóhanna Hansen og börn Inniiegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og útför móður okkar INGIBJARGAR JÓNSDÓTTUR Buðlungu, Grindavík Börn hinnar látnu ★ KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR ★ KVIKMYNDIR ★ ö »—I W ★ KVIKMYNDIR * SKRIFAR UM: ★ KVTKMYNDIR ★ Kóvpavogsbíó: The Sound and the Fury Mynd þessi, sem er amerísk og tekin í litum, er gerð eftir samnefndri skáldsögu Williams Faulkners, en sagan var met- sölubók í Bandaríkjunum á sín- um tíma. Fjallar myndin um fjöl skyldu á miklu ættaróðali í suð urrikjunum. Hinn gamli eigandi búgarðsins, Compson, er fallinn frá, en eftir situr ekkja hans og börn þeirra þrjú, Howard, sem er drykkjusjúklingur, Ben, fá- viti, og dóttirin Caddy, léttúðug kona, sem átt hefur barn í lausaíeik en hlaupizt á brott og skilið barnið, sem er telpa, Quentin að nafni, eftir hjá gömlu konunni, móður sinni. Auk þeirra, sem nefndir eru hér að framan, er á heimilinu fóstursonur Compson-hjónanna, Jason, dugandi ungur maður og fyrirvinna fjölskyldunnar. — Hann reynir af fremsta megni að reisa við fjárhag fjölskyld- unnar og óðalið úr þeirri niður- lægingu, sem það er komið í. Og hann gerir allt sem hann getur til að halda Quentin frá solhnum, en hún er óstýrilát og óánægð í þessu umhverfi og læðist út um nætur að leit að ævintýrum. Móðir hennar hverf ur aftur heim og ber þess merki að hún hefur ekki fetað braut dyggðarinnar á árunum sem hún var í burtu. Barátta Jasons er erfið, en með hörku og þrautseigju tekst honum að sigrast á erfiðleikunum, jafnvel að beina Quintin inn á rétta braut eftir víxlspor hennar og bitra reynslu af ástarævintýri með lélegum, ungum manni. Mynd þessi er mjög efnis- mikil, átökin í henni sterk og leikurinn afbragð, enda fara mikilhæfir leikarar með aðal- hlutverkin, þau Yul Brynner (Jason), Quentin (Joanne Woodward), Margaret Leighton (Caddy) o. fl. Gamla bíó: Ekkert grín „Áfram“-myndirnar kannast allir hér við, og flestir horft á þær sér til ánægju. Höfundur þeirra mynda hefur einnig gert mynd þá, sem hér er um að ræða, enda er myndin létt og skemmtileg, en þó alvara á bak við gáskann. — Efni myndar- innar er í stuttu máli það, að David Robinson og Catherine, kona hans, og Richard, sonur þeirra, koma á sveitasetrið Chsirtham, sem þau hafa fengið að erfðum. Þau sjá þegar að þau hafa ekki efni á að búa þarna ein og því taka þau það til bragðs að stofna þarna dval- arheimili fyrir börn auðugra foreldra, sem ekki gefa sér tíma til að sinna börnum sín- um. Heimilið fyllist fljótlega af börnum og koma þau í fylgd með foreldrum sínum, er kynna sig og halda síðan á brott. Er þetta fólk af öllum stéttum og þjóðernum, en allt auðugt og með sínum stétcareinkennum. Börnin bera greinilega með sér í háttum sínum hvernig að þeim hefur verið búið í for- eldarhúsum og reynast örðug viðureignar í fyrstu. En hjónin, sérstaklega frú Catherine, lær- ir fljótt tökin á þeim, skilur að börnin þarfnast fyrst og fremst umhyggju og hlýju og því vinn- ur hún brátt trúnað þeirra. Og að loknum dvalartímanum koma foreldrarnir að sækja börn sín, en .þá vandast málið. Börnin neita að hverfa heim nema með því skilyrði að for- eldrarnir taki tillit til þeirra og sýni þeim þá elsku og um- hyggju, sem öll börn 'þrá og eiga tilkall til. Þetta er góð mynd, skemmti- leg og boðskapur hennar vissu- lega þess virði að honum sé gaumur gefinn. Robinson-hjónin leika þau Leslie Phillips og Geraldine McEvans. Garðyrkjumanninn gamla leikur Noel Purell og eldabuskuna leikur Joan Hick- son, allt góðkunnir leikarar í enskum gamanmyndum. London, 14. maí — AP. ★ Geimvísindamenn, sem nú sitja ráðstefnu í Brighton, teij-a, að einhver eða öll aí fjórum gervitunglum, sem Rússar hafa sent á loft að undanförnu, kunni að vera njósnastöðvar. París, 14. maí. • Boðað hef- ur verið alls'herjarverkfall, i 24 tíma, meðal járnbrautar- starfsmarma í Frakklandi. Hefst það í fyrramálið, þriðju dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.