Morgunblaðið - 21.06.1962, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.06.1962, Blaðsíða 20
20 MORGVFBLAÐIÐ Fimmtudagur 21. júni 1962 Alexander Fullerton II Guli Fordinn Penny til mín. Hún sagðist þurfa að biðja mig um greiða, gera dálítið fyrir sig, sem mér (þætti leiðinlegt, en mundi hins vegar losa hana úr „slæmri klípu“. Mér er meinill-a við svona formála, svo að ég greip fram í fyrir henni og bað hana komast að efninu. Hún sagði, að fyrirtæk ið, sem Ted vann hjá, væri að senda hann til Jóhannesarborgar í viðskiptaerindum. Hann þyrfti að vera þar tvo eða þrjá daga og auk þess yfir helgina til þess að koma sér í mjúkinn hjá einhverj- um viðskiptavinum fyrirtækis- ins. Ef hann gæti fengið auglýs- ingaviðskipti þessa fyrirtækis, munaði það afskaplega miklu fyrir húsbúendur Teds, og um leið fyrir Ted sjálfan, og Penny var mjög fegin, að hann skyldi valinn til þessarar ferðar. Hún hélt áfram og sagði, að hún hefði alltaf vitað, að hann mundi koma sér vel áfram og þetta væri svo dásamlegt .... Eg greip aftur fram í fyrir henni. Sagðist vera önnum kaf- inn við erfiðan kafla í sögunni minni og hvort hún viiddi ekki koma sér að efninu, og segja mér, hvað ég ætti að gera fyrir hana. Það kom í Ijós. að hún hafði boðið til tennisleiks á laugardag- inn og nú stóð á stöku af því að Ted var að heiman. Hún þyrfti auk þess að hafa einhvern karl- mann til að standa fyrir beina, og ég gæti’nú ekki komið í Teds stað? Eg lofaði að gera það. Eg vildi halda áfram vinnu minni og fannst þetta helzta ráðið til að binda endi á samtalið. En Penny var ekki búin að tala út heldur gekk hún beint að næ-sta atriði greiðans, sem ég átti að gera henni og það var, hvort ég gæti ekki líka leikið tennis, því að annars mundi vanta einn mann. Eg lét til leiðast, en minnti hana samt á, að ég væri álíka fimu-r með tennisspaða eins og að éta spaghetti, og lagði áherzlu á, að ég lofaði engu nema fyrir þetta eina skipti og væri alls ekki tilkippilegur, þó að hana vantað mann einhverntíma seinna. Penny tók þennan fyrirvara til greina og lét í Ijós þakklæti sitt. Svo kvöddumst við og ég sneri mér aftur að verki mínu. Þegar ég hafði orðið við bón Penny Carpenter, þá var það eingöngu til þess gert að losna við ónæðið og tafir frá verki mínu. En þegar ég hafði lokið við söguna klukkan um tvö um nóttina, fór ég fyrst að gera mér Ijóst, hvað ég hafði tekizt á hendur. Laugardagurinn kom og þetta varð leiðinlegur dagur, eins og ég hafði reyndar búizt við. Eg býst við, að flestir hafi sínar einkahugmyndir um himnaríki og helvíti, og í mínu helvíti er ekki fyrst og fremst eldur og brennisteinn. Heldur ekki neinar þessara skemmtilegu persóna, sem manni er sagt, að þar séu til húsa. í mínu helvíti — og ég fékk forsmekkinn af því þennan laugardags eftirmiddag — eru allir íklæddir hvítum fötum og verða að hlaupa og stökkva eftir litlum hnöttum, undir aðfinnslu- augnaráði nokkurra uppþornaðra kerlinga, og svo í hléunum verð- ur maður að vera skemmtilegur við þessar sömu kvenpersónur, sem nú eru orðnar rauðar eins og karfi í framan og dálítið sveitt ar. Rétta þeim teb-olla og köku- diska, og helzt brosa um leið! Það fór ekkí hjá því, að Ted ætti alla samúð mína þennan dag — veslings maðurinn að verða að þola þetta að staðaldri. að sögunni, sem ég var byrjaður að segja. Aðalefni hennar er það, að Penny Carpenter lék of lengi tennis þennan dag, varð allt of heit og uppgefin, og settist niður í skugganum án þess að bæta á sig fötum til hlýinda. Hún var föl og skjálfandi um það leyti sem leiknum lauk, og þegar við vor- um að drekka kveðjuskálina inni í húsinu á eftir, voru augun með hitasóttargljáa, og hún kvartaði um hita og opnaði glugga, þegar flestum hinum var of kalt. Kon- urnar fóru eitthvað að stumra yfir henni og hún lofaði að drekka glas af heitu toddýi og fara beint í rúmið, og einhverjar þeirra sögðust ætla að koma dag- inn eftir og vita hvernig henni liði. Penny sagði þeim að vera ekki með allt þetta umstang, það væri allt í lagi með hana, bara væri hún dálítið þreytt, og væri líklega að fá kvef. Eg hjálpaði henni að taka til og ók svo konu Steve Roberts heim til hennar. Á leiðinni sagði hún mér, að hún „væri hálf- hrædd við þetta útlit“ hennar Penny, og vildi óska, að Ted væri heima til að hugsa um hana, og ég sagcji, að hann yrði nú kominn heim á mánudag, svo að þetta væri ekki nema rúmur sóla-rhringur. Við þessi orð gaut hún til mín augunum og spurði, hvort ég héldi virkilega, að hann hefði farið til Jóhannesar- borgar fyrir húsbændur sína. Eg sagðist ekki ha-fa ástæðu til að hal-da neitt annað. Hún snuggaði og meira hafði hún ekki tíma til að ge-ra, því að við vorum að lenda heima hjá henni og Steve var að koma út um dymar til að taka á móti okkur. Hann spurði mig, hvort ég vildi ekki koma inn og fá mér einn lítinn, en það gat ég ekki. Eg var að hlakka til að fara í bað og svo að fara út með Helen að borða um kvöldið. Á sunnudagsmorgun kom Steve Roberts heim til mín. Hann kom gangan-di heiman frá Ted, en þar hafði hann skilið. bílinn eftir. Penny var alvarlega veik. Það var kominn læknir til henn- ar og kona Steves var þar til að hjúkra henni. Penny var með bulla-ndi hita og læknirinn sagði, að hann væri þegar búinn að koma henni í sjúkrahús, ef hann væri ekki bara að bíða ef^r að hitinn lækkaði ofur- lítið fyrst. Harun var að gefa henni inntökur og sprautur og hann hafði sagt, að mað- urinn hennar ætti að flýta sér sem allra mest heim. Penny var með óráði og gat engum spum- ingum svarað af neinu viti, svo að Steve var nú kominn til mín til þess að grennslast eftir, hvern ig við gætum náð sambandi við Ted. Ég leit í símaskrána og forstjór inn fyrir auglýsingastofunni hafði nafnið sitt undir síma fyrir tækisins. Ég hringdi og loksins náði ég í hann og sagði honum, að lífið lægi á að ná í Ted Carpenter tafarlaust. Maðurinn -brást eitthvað skrítilega við og spurði hvers vegna við hringd- um ekki heim til hans í Con- stantia. Númerið Væri í skránni, eða væri það ekki? En þér senduð hann tfl Jó- hannesarborgar, er ekki svo? Sent hann hvert? Það var ekki mikill vafi leng- ur um sannleikann í málinu. Ég baðst afsökunar á þessum misskilningi mínum, sagðist augsýnilega hafa fengið skakkar upplýsingar og bað hann fyrir- gefna ónæðið. Þegar ég hafði lagt frá mér símann, sagði Steve alvarlega: Jæja þá springur nú -blaðran. Ég hristi höfuðið. Sagðirðu mér ekki, að Jane Fairley leigði með annarri stúlku? Hann jánk aði því og ég spurði: Hefurðu ekki símanúmerið hennar? Það hafði hann — heima hjá sér. Við stukkum upp í bílinn minn og ókum heim til hans og hann fann númerið í minnisbók á borðinu konunnar sinnar. Hann benti á símann og ég hringdi í númerið. Stúlkurödd svaraði og ég spurði um ungfrú Fairley. Hún hikaði eitthvað, en sagði svo: Ég er hrædd um, að hún sé ekki heima. Hún hefur kannske farið burt yfir helgina? Já .... en .... Þetta er afskaplega áríðandi. Getið þér sagt mér, hvar hægt er að ná í hana? Aftur hikaði hún. Eg sá, að ég varð að leggja í hættu — ef ég segði ekkert meira, gæti stúlkan haldið, að ég væri einkaspæjari, eða afbrýðissamur vinur, og neita mér um alla hjálp. Eg er vinur Teds Carpenter og heiti Swanson. Já, Jane hefur einmitt minnzt á yður. Jæja, þetta var strax betra. Kona Teds er veik.Það er alvar legt og læknirinn vildi fyrir hvern mun ná í hann heim frá Jóhannesarborg. Ég hringdi í manninn er hann vinnur hj á.. og það kom í ljós, að Ted er alls ekki í Jóhannesarborg. Að minnsta kosti ekki í verzlun- arerindum. Þessvegna datt mér í hug, að Jane kynni að vita, hvar hann er. Hún var fljót að skilja hálf- kveðna vsu. Já, ég býst við, 'að Jane viti um hann. Þér ættuð að reyna að hringja í Hádegis- hótelið við Somerset West. Ég vona bara að ég sé ekki að gera neina vitleysu. Því skuluð þér ekki hafa áhyggjur af. Eg þakkaði henni aftur og lagði símann. En þetta yrði tafsamt, því að þessi stað- ur var þrjátíu mílur frá Hö-fða- borg, og það var nóg til þess, að þetta var langlínusamtal en allt af mikið að gera á línunni. En eftir fimm mínútur náði ég í stöðina og gaf henni númerið. Eg skal hringja í yð-ur, sagði hún. Hvað tekur það langan tíma? spurði ég, en það vissi hún ekki. . Við Steve fengum okkur einn gráan meðan við biðum. Eftir hér um bil tuttugu mínútur hringdi síminn og ég flýtti mér að grípa hann. Samband við Somerset West. Nú kom hótelið í sambandið og ég spurði um frú Fairley. Eg vissi, að ekki þýddi að spyrja um Ted Carpenter, því, að þótt hann væri klaufi hefði hann varla farið að gefa upp rétt nafn. Trú- legast þótti mér, að það væri hr. og frú Fairley. Það var Ted, sem kom í sím- ann. Frú Fairley er ekki viðlátin eins og er. Getur hún hringt? Nei Ted. Það varst þú, sem ég vildi tala við. Bill hér. Það varð andartaks þögn og ég heyrði hann draga snöggt að sér andann En svo glumdi rödd hans í sim- anum. Hvern andskotan sjálfan viltu......? Bíddu andartak og hlustaðu á mig, Ted. Eg fékk' númerið frá stúlkunni, sem Jane býr með. Enginn annar veit, að þú sért annarsstaðar en í Jóhannesar- borg. En Penny er alvarlega veik, og læknirinn sagði okkur að ná í þig heim. Skilurðu það? Penny veik? Já. Hún ofkældist við tennis- leik og henni hefur versnað mik ið. Það er alvarlegt, Ted. Komdu heim eins fljótt og þú getur og segðu, að þú hafir fyrir tilviljun fengið flugfar. Nei, andskotinn ..... mér er alveg sama hvað þú segir, en komdu bara heim. Eg hringdi af. Við Steve feng- um okkur annað glas, meðan við vorum að taka saman það, sem við ætluðum að segja lækninum, eða öðrum: að ég hefði vitað, hvar Te-d var í Jóhannesarborg, og að ég hefði verið svo heppinn að ná sambandi við hann snemma um morguninn, og að hann hefð farið tafarlaust til flugvallarins. RAGNAR JONSSQN hæstaréttaríögmaður Lögl. æði -örf og eignaumsýsla Vonarstræti 4. VR-húsið SHUtvarpiö Fimmtudagur 2l. júní 8:00 Morgunútvarp (Bæn — Tónleile ar —i 8:30 Fréttir — 8:35 Tón* leikar — 10:10 Veðurfregnir). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar 12:25 Fréttir og tilkynningar). 13:00 „Á frívaktinni"; sjómannaþátt* ur. (Sigríður Hagalín). 15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar -- 16:30 Veðurfr. — Tónl. — 17:00 Fréttir — Tónl.). 18:30 Óperulög. — 18:45 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfregnir. 19:30 Fréttir. 20:00 Synoduserindi: Iona-hreyfingin (Dr. Þórir Kr. Þórðarson próf.). 20:25 Tónleikar Danskar hljómsveitir leika í glaðværum tón. 20:40 Akureyrarpistill (Helgi Sæmundfl son ritstjóri). 21:00 Óperettulög: Sandor Konya og Rita Streich syngja. 21:20 Úr ýmsum áttum (Ævar R. Kvar an leikari). 21:40 Tónleikar: Fiðlusónata nr. 2 I A-dúr op. 100 eftir Brahms — (Joseph Szigeti og Mieczyslaw Horszowski leika). 22:00 Fréttir og veðurfregnlr. 22:10 Kvöldsagan: „Þriðja ríkið rfs og fellur", eftir William Shirer; V. Hersteinn Pálsson ritstj.). 22:30 Harmonikuþáttur: Sending frá Hohner-skólanum í Trossingen (Henry J. Eyland og Högni Jón* son). 23:00 Dagskrárlok. Föstudagur 22. júní 8:00 Morgunútvarp (Bæn — Tónleik ar — 8:30 Fréttir — 8:35 Tón« leikar — 10:10 Veðurfregnir). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar —* 12:25 Fréttir og tilkynningar), 13:15 Lesin dagskrá næstu viku. 13:25 „Við vinnuna": Tónleikar. 15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilSe. — Tónleikar — 16:30 Veðurfr. —» Tónleikar — 17:00 Fréttir — Endurtekið tónlistarefni). 18:30 Ýmis þjóðlög — 18:45 Tilkynn* ingar —- 19:20 Veðurfregnir. 19:30 Fréttir. 20:00 Efst á baugj (Tómas Karlsson og Björgvin Guðmundsson). 20:30 Frægir hljóðfæraleikarar; TI: — Jacha Heifetz leikur á fiðlu. 21:00 Upplestur: Gestur Guðfinnsson les frumort kvæði. 21:10 Tónleikar: Sellókonsert nr. 1 I a-moll op. 33 etftir Saint-Saáns (Janos Starker og hljómsveitin Philharmonia leika: Carlo Maria Giulini stjórnar). 21:30 „Konan með hundinn**, tfyrrt hluti smásögu eftir Anton Tjelc hov, í þýðingu Kristjáns Alberts sonar (Gestur Pálsson leikari). 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Kvöldsagan: „Þriðja ríkið rís og fellur“ eftir William Shirer; VI. (Hersteinn Pálsson ritstj.). 22:30 Á síðkvöldi: Létt klassísk tón« list: a) Atriði úr óperunni „I Pagli* acci“ eftir Leoncavallo (Lu<j ine Amara, Franco Corilli, Tito Gobbi, Mario Spina, Mario Zanasi, kór og hljóm* sveit Scala-óperunnar flytja. Stjórnandi: Lovro von Mata- cic). b) Rúmensik rapsódia nr. 1 etff ir Georges Enesco (Holly* wood Bowl hljómsveitin leik- ur; Miklos Rozsa stjórnar), ^ 23:20 Dagskrárlok. Og þá kem ég einmitt aftur X- * GEISLI GEIMFARI X- X- X- •— I upphafi, Geisli, voru stjörn- umar Aspen og Karz óbyggð land- »væði, sem svifu um himingeiminn. THEN ABOUT 300 YEARS AGO, THEY WERE DISCOVERED BYA SCOUTSHIP FROM ANOTHER 6ALAXY WHICH WAS HAVING OVERPOPULATION DIFFICULTIES * THAT 6ALAXY DECIDED TO "COLONIZE" THE TWO PLANETOIDS WITH THEIR EXCESS POPULATION/ ASPEN AND KARZ ARE REALLY KINSMEN PLANETOIDS/ — .... Svo fyrir um 300 árum fann stjörnurnar. Ákveðið var að senda eftirlitsskip frá annari stjörnu, þar þangað innflytjendur, og eru því sem vandræði ríktu vegna þéttbýlis, íbúar Aspen og Karz í rauninni frændur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.