Morgunblaðið - 14.08.1962, Blaðsíða 10
10
MORCITSBL AÐIB
Þriðjudagur 14. ágúst 1962
Tvö Sovézk
geimför á íofti
T V Ö rússnesk, mönnuS
geimför eru nú á ferð um-
hverfis jörðu, og um tíma,
a.m.k., hafa þau verið svo
nálægt hvort öðru, að
milli þeirra hefur sézt. —
Hraði geimfaranna er 25
þús. km á klukkustund. —
Mesta fjarlægð frá jörðu
er 234 km en minnsta 180
km. Bæði fylgja sömu
braut. —
(★}
Fyrra geimfarinu, „Vost
ok III“, var skotið á loft á
laugardagsmorgun, en því
síðara, „Vostok IV“, á
sunnudag. í gærkvöldi,
um 60 stundum eftir að
því fyrra hafði verið skot-
ið á loft, hafði það farið
um 40 hringi umhverfis
jörðu, en hitt um 25 hringi.
(★}
Geimfararnir hafa haft
samband sín á milli og við
jörðu. Báðir hafa komið
fram í sovézku sjónvarpi,
en sjónvarpsmyndum ut-
an úr geimnum hefur ver-
ið varpað til jarðar. Þá
hafa þeir komið fram í
sjónvarpi á Vesturlönd-
um. —
(★’:
Mennirnir eru: Adrian
Nikolayev, 32 ára, ógift-
ur og fyrrverandi skógar-
höggsmaður, núverandi
majór í rússneska flug-
hernum — og Pavel Popo-
vitsj, 31 árs, giftur og fað-
ir 6 ára stúlku, núverandi
ofursti í flughernum.
{★}
í tilkynningum þeirra
beggja hefur komið fram,
að líðan þeirra er góð, og
öll tæki eru í bezta lagi.
Nikolayev er þriðji geim-
fari, sovézkur, en Popo-
vitsj fjórði.
•:"★}
Kennedy, Bandaríkjafor
seti, hefur óskað sovézku
þjóðinni til hamingju með
afrekið og borið fram þá
ósk, að báðum geimförun-
um megi takast að ná aft-
ur til jarðar, heilir á húfi.
(★}
Nikita Krúsjeff, forsætis
ráðherra Sovétríkjanna,
sagði í yfirlýsingu sinni:
„Öll rússneska þjóðin lýs-
ir ánægju sinni yfir því,
að „Vostok 111“ og „Vost-
ok IV“ skuli bæði vera á
lofti samtímis, nálægt
hvort öðru, og að geimfar-
Þessi mynd birtist á sjónvarpsskermum
sjálfu geimfarinu, „Vostok 111“ og sýnir
honum var skotið á loft.
í Vestur-Evrópu. — Henni var sjónvarpað
Nikolayev nokkrum klukkustundum eftir
arnir skuli hafa haft sam-
band sín á milli“.
(iir}
Vísindamenn eru al-
mennt þeirrar skoðunar,
að geimskotin tvö muni
veita mjög gagnlegar upp-
lýsingar um það, á hvern
hátt megi láta geimför
mætast í lofti, en að skoð-
un bandarískra vísinda-
manna, er það eitt erfið-
asta vandamálið, sem sigr-
ast þarf á, áður en að því
kemur, að mönnuðu geim-
fari verður skotið til
tunglsins.
U M 6 klukkustundum eftir
að geimfari Nikolayevs, maj-
órs, var skotið á loft, barst
fyrsta fréttatilkynningin frá
rússnesku fréttastofunni
IMikolayev
ummæli moður hans
Adrian Grigorivitsj Nik-
olayev er fyrrverandi verk
stjóri í skógaríhöggsmanna
búðum. Á unga aldri
dreymdi hann um að verða
læknir, eftir því, sem sagði
í fréttatilkynningu Moskvu
útvarpsins.
Hann er fæddur 5. sept-
ember 1929 og bjó með
foreldrum sínum og 6 syst
kinum í smáborginni Sjer-
seli í Sjuvasjlýðveldinu við
Volgu.
Poreldrar hans voru sam
yrkjubændur. Þegar í
æsku tók hann þátt í vinn
unni á ökrunum. í>á var
það ætlun hans að verða
læknir, og að loknu námi
í menntaskóla innritaðist
hann í læknaskóla.
og
Síðar skipti hann þó um
skoðun og gerðist skógrækt
arlærlingur og loks skóg-
arhöggsmaður. Hann var
einn duglegasti maður í
sínum flokki og hreysti
hans vakti athygli. Á þeim
árum las hann allar bækur
sem hann komst yfir. Þar
kom þó, að Nikoiayev var
kallaður í herinn. Fyrst í
stað var hann látinn gegna
herþjónustu í Suður-Rúss
landi, og þar nam hann
ioftskeytafræði, auk þess,
sem hann hlaut þjálfun í
meðferð vélbyssna.
Er hér var komið sögu,
sótti Nikolayev um upp-
töku í flugskóla hersins.
Þar lauk hann flugnámi og
gerðist þotuflugmaður. Um
svipað leyti sótti hann um
upptöku í kommúnista-
flokkinn.
Nikolayev er ógiftur. Á
síðasta ári hlaut hann sér
staka viðurkenningu fyrir
„vel rekin erindi í þágu
Sovétstjómarinnar“.
Kennari Nikolayevs í
flugskólanum var Leonid
Sokolov, ein þekktasta flug
hetja Rússa. í bók sinni.
„Fyrsti maðurinn, sem var
dægur í geimnum“, minn-
ist Titov á Nikolayev og
lýsir þá óhappi, sem fyrir
hann kom í orrustuþotu.
Titov segir þar frá því
að Nikolayev hafi átt um
tvo kosti að velja, er bilun
varð í flugvél hans, að
stökkva út eða nauðlenda.
Hann valdi síðari kost-
inn. „Það var dæmi um
sjálfstjórn þá og ró, sem
einkennir allt far hans og
allir vinir nars dá hann
í.vrir.“
Síðar var Nikolayev sett
ur í skóla fyrir væntanlega
geimfara. Þar kynntist
hann bæði Titov og Gagar
in. Nikolayev var staðgeng
ill Titov fyrir geimferð
hans.
STOLT MITT
Móðir geimfarans, Anna
Nikolayev, sendi syni sín-
um og öðrum kveðju sína:
„Stolt mitt yfir syni mín
um er takmarkalaust,1*
sagði hún. „Eg sendi öllum
mæðrum í heiminum
kveðju mína, í þeirri sann
færingu, að börn okkar eigi
aldrei eftir að úthelia
blóði sínu í nýrri styrjöld“.
„Tass", þess efnis, að „Vost-
ok 111“ hefði farið meira en
hna umferð umhverfis jörðu.
Kveðja Nikolayevs
Þá var m. a. skýrt frá því,
að eftir þriðju hringferðina
hefði Nikolayev majór til-
kynnt miðstjórn kommúnista-
flokksins, rússnesku stjórn-
inni og Nikita Krúsjeff, for-
sætisráðherra, að allt gengi
að óskum. Þá sendi geimfar-
inn kveðjur til „tryggra vina
lands síns — þeirra, er búa í
kommúnis tarí kj unum“.
Tass-fréttastofan skýrði enn
fremur frá því í sömu til-
kynningu, að geimfarinn
hefði snætt, hvílzt og bæði
hiti og rakastig væri með
eðlilegum hætti sem og allt
umhverfi hans.
Er Nikolayev var skotið á
loft á laugardag, var liðið eitt
ár og 5 dagar frá því Titov
fór í hina sögulegu geimför
sína, er varaði í 25 stundir,
en hann fór alls 17 hringi
umhverfis jörðu. Gagarin, er
skotið var á loft 12. apríl
1961, fór aðeins einn hring
umhverfis jörðu.
Áhrif á þyngdarleysi
rannsakað
Tass greindi frá því, að til-
gangur geimferðarinnar væri
fyrst og fremst sá, að rann-
saka þau áhrif, er þyngdar-
leysi hefði á menn, afla sér-
stakra upplýsinga, er ekki
fengjust með rannsóknum á
jörðu niðri og að full-
komna stjórnartæki sem og
tækni, er notuð væri til að
hafa samband við geimfara.
Fregnir um langa
dvöl í geimnum
Þá birti Tass viðtal við
Titov geimfara, sem lýsti þvx
yfir, að Nikolayev væri mað-
ur með nær „endalaust út-
hald“ og enginn vafi léki á
því, að hann myndi verða
lengst á lofti sovézkra geim-
fara.
Þá þegar var farið að spyrj
ast, að Nikolayev væri ætlað
að vera lengur á lofti en fyr-
irrennarar hans voru.
Sjónvarpað frá 4. hringferð
í Moskvu —
Er Nikolayev var í fjórðu
hringferð sinni, var tekið að
sjónvarpa myndum af honum
í Moskvu. Voru þær myndir
allskýrar og virtist sem geim
farinn væri með lokuð augu
mest allan tímann (sjá mynd
að ofan), en hann virtist þó
hreyfa hendurnar á stjórn-
tækjunum annað kastið.
- og á Vesturlöndum
Á laugardagskvöldið
var
sjónvarpað úr geimfarinu á
Vesturlöndum, og virtist þá
einnig, sem geimfarinn væri
með lokuð augu. Þá virtxist
hreyfingar hans mjög hægar,
en ekki er ljóst, hvort það
stafaði af því, að kvikmynd-
in sýndi hreyfingar hans
hægari en þær raunverulega
voru eða ekki. Ýmislegt laus-
legt virtist þá á sveimi um-
hverfis Nikolayev í geimfar-
inu og var helzt að sjá, að
það væru pappírsagnir.
Carpenter hælir afrekinu
Á sunnudag ræddi Scott
Carpenter, geimfarinn banda
ríski, við fréttamenn vestra,
um þetta geimflug Rússa.
„Ég öfunda hann af þessari
dásamlegu reynslu — því
sem hann sér“, sagði hann.
Carpenter lýsti aðdáun
sinni á afreki Rússa, en bætti
við: „Ég skil vel, hvers vegna
Rússar taka það fram, sér-
staklega, að þeir ætli að rann
saka áhrif þyngdarleysis á lík
amann.“
Carpenter upplýslr um
hækkandi blóðþrýsting
„Mér þætti gaman að verða
þess vsíari, að hvaða niður-
stöðu þeir komast um þá
breytingu á blóðþrýstingi,
sem við Glenn urðum báðir
varir við. „Efri“ blóðþrýsting
urinn (þ. e. sá þrýstingur,
sem mælist í slagæðunum
við samdrátt hjartans) virð-
ist aukast, en sá „neðri“ (þ.e.
þrýstingur í bláæðunum)
virðist haldast nær óbreytt-
ur.“
Skýrði Carpenter svo frá,
að í upphafi hefði blóðþrýst-
ingur sinn verið 130 (efri)
en 72 (neðri). Síðar hefði bil-
ið vaxið jafnt og þétt í 180
• yfir 80, og hann kvaðst vita,
að munurinn gæti orðið 220
yfir 80. „Slíkt myndi að lok-
um stofna lífi geimfarans í
hættu“, sagði Carpenter.
Nýtt geimskot —
ný tækni
Á sunnudag barst svo fregn
in um að „Vostok IV“ hefði
verið skotið á loft.
Þá birti Tass yfirlýsingu
þekkts rússnesks stærðfræð-
ings, Lazar Lyusternaks, er
var á þá leið, „að sú stað-
reynd, að tveimur geimför-
um hefði verið skotið á loft
á sama sólarhringnum, sýndi,
að ný reikningstækni hefði
verið tekin í notkun."
Talið er, með „nýrri reikn-
ingstækni", eigi vísindamað-
urinn við, að ný, endurbætt
tegund stjórntækja hafi ver-
ið tekin í notkun, en það er
viðurkennt, að Rússar hafa
skarað fram úr á þessu sviði.
Framh. af bls. 23.
I
I