Morgunblaðið - 14.08.1962, Page 24
Fiéttasimar Mbl
— eftir I o k u n —
Erlentlar fréttir: 2-24-85
Innlendar tréttir: 2-24-84
IÞROTTIR
sjá bls. 15 og 16.
183. tbl. — Þriðjudagnr 14. ágúst 1962
«ww»?yw//w »■ t-wmww y- vqw ■ " :<
EINS og skýrt var frá í Mbl..
á sunnudag, hefur orðið vartj
við ferðir stórs, pólsks síld-1
veiðimóðurskips við strendur
Islands. Hefur það haldið sig
upp við 12 mílna mörkin, og
mun jafnvel hafa verið sótt
um leyfi um að það fái að
athafna sig í íslenzkri fisk-
veiðilögsögu. Skipið mun um
10 þús. tonn að stærð og því
fylgja úthafsskip. — Þessi
mynd var tekin 4. ágúst sl.,
þegar skipið lá fyrir akker-
um á 12 mílna mörkunum
undan Stöðvarfirði. Xvö út-
hafsskip láu utan á KASZU-
BY, en svo nefnist móður-
skipið, og var verið að flytja
úr þeim fullar síldartunnur
en setja tómar tunnur og
fleira um borð í þau. —
Skammt frá biðu önnur tvö
úthafsskip afgreiðslu.
(Ljósm. Helgi Hallvarðsson).
Innan fiskveiði-
takmarka
undan Vík
VESTMANNAEYJUM, 13. ág. —
Kl. fimm í gærmorgun kom varð
skipið Albert að v.b. Eyjabergi
undan Vík í Mýrdal. Talið var, að
báturinn væri liðlega eina mílu
innan fiskveiðitakmarka, og
fylgdust skipin að til Vest-
mannaeyja. Réttarhöld fóru fram
í dag og dómur kveðinn upp af
dómaranum, Torfa Jóhannssyni,
bæjarfógeta. Skipstjórinn viður-
kenndi brot sitt og var dæmdur
í 20 þús. kr. sekt. Afli og veiðar-
færi var gert upptækt. Dóminum
var áfrýjað — Björn.
-
Fjórir lands!:!s-
menn meiddir
— Þórður Jíónsson skorinn á
hné á sfúkrahusi
SJALDAN eða aldrei hefur isl.
kapplið verið svo illa á sig kom-
ið við heimkomu frá kappleik
eins og það íslenzka er það kom
frá írlandi í gaerkvöldi með Flug
félaginu. Þórður Jónsson og
Bjarni Felixson gátu vart gengið
Trésmiðir boða verkfal!
Fundur með deiluaðilium ■ gærkvöldi
A LAUGARDAGSKVÖLD boð-
aði Trésmiðafélag Reykjavíkur
verkfall frá og með 20. þ. m., en
eins og kunnugt er, var félagið
dæmt í fjársekt í Félagsdómi
sama dag fyrir brot á vinnulög-
gjöfinni. Var kauptaxtaauglýs-
ing félagsins talin hafa jafngilt
ákvörðun um verkfall, en í aug-
lýsingunni var félagsmönnum
bannað að vinna hjá þeim, er
Fjórir sækja
um handrita-
stofnunina
HINN 7. þ. m. lauk umsóknar-
fresti um embætti forstöðu-
manns Handritastofnunar ís-
lands.
Umsækjendur um embættið
eru:
Dr. Einar ólafur Sveinsson,
prófessor, Dr. Jakob Benedikts-
son, Jónas Kristjánsson, skjala-
vörður og Ólafur Halldórsson,
lektor.
Prentarar segja
upp samniogum
HIÐ ÍSLENZKA prentarafélag
hefur sagt upp samningum frá og
með 1. scptember. Sáttafundir
hafa ekki enn hafizt.
lægri t..xta gyldu en í auglýs-
ingunni sagði.
í gær bar svo við, að tré-
smiðir mættu sums staðar illa
til vinnu, þótt löglegt verkfall
hafi ekki verið boðað fyrr en
að viku liðinni.
Mbl. átti í gær tal við Gissur
Sigurðsson, form. Meistarafélags
húsasmiða. Sagði hann, að mis-
jafnlega hafi verið mætt á vinnu
stöðum í gær. Sums staðar hefðu
allir verið mættir, ekki síður á
fjölmennum vinnustöðum, en
annars staðar mætti minnihluti
og jafnvel enginn. Á einum
stað hefði einn mætt og spurt,
eftir hvaða taxta sér yrði greitt
kaup. Þegar honum var sagt,
að það yrði skv. gildandi taxta,
fór hann í burtu. Sagði Gissur,
að að sjálfsögðu yrði litið al-
varlegum augum á það af vinnu
veitendum, ef menn mættu ekki
til vinnu, þar til löglegt verk-
fall hæfist. Gætu af slíku skap-
azt háar skaðabótakröfur á hend
ur þeim.
Þá talaði Mbl. við Jón Snorra
Þorleifsson, form. Trésmiðafé-
lags Reykjavíkur. Sagði hann,
að mikil vanhöld hefðu orðið á
vinnustöðum trésmiða í gær, og
kvaðst jafnvel ætla, að hrein
undantekning væri, ef menn
hefðu mætt til vinnu. Margar
ástæður myndu liggja til þess-
ara fjarvista. „Við bönnum eng-
um að vinna“, sagði formaður,
„heldur verður hver og einn að
ráða því fyrir sig“.
í gærkvöldi hélt sáttasemjari
ríkisins fund með fulltrúum
vinnuveitenda og trésmiða. Var
honum ekki lokið, er blaðið fór
í prentun.
Góð síldveiði fyr-
ir austan í gær
GÓÐ síldveiði var í gærkvöldi, Hringsjá 468, Leifur Eiríksson
um 40 mílur ASA af Kambanesi. 510, Sunnutindur 72i, Ólafur
HÉRAÐ8IUOT
Sjálfstæðismanna
í Árnessýslu 18. ágúst
HIÐ ÁRLEGA héraðsmót Sjálfstæðismanna í Árnes-
sýslu verður haldið að Flúðum næstkomandi laugardag,
18. ágúst kl. 9 e. h.
r~ Ólafur Thors, forsætisráð- herra, og Sigurður Ó. Ólafs-
son, alþingismaður, flytja * . x*
ræður. tju1 ' ?
Þá verður sýndur gaman- 4<T
W:-Jik 'Sr leikurinn „Mótlætið göfgar“
eftir Leonard White. — Með
hlut-’erk fara leikarnir Val-
ur Gíslason og Helga Valtýs- mr JHRRR
Ólafur
dóttir.
Sigurður
Ennfremur verður til skemmtunar einsöngur og tvísöng-
ur. — Flytjendur eru Kristinn Hallsson, óperusöngvari,
Þórunn Ólafsdóttir, söngkona, og Skúli Halldórsson, píanó-
leikarL — Dansleikur verður um kvöldið.
Fengu margir þar veiði í gær-
kvöldi. Þetta var góð og söitun-
arhæf síld, ep ekkert var af
smásíld. Fyrr um daginn fengu
skip veiði 10 mílur ANA af
Gietting, en sú veiði hætti um
kvöldið, enda var hér um fremur
lélega síld að ræða. Vel leit út
í gærkvöldi fyrir austan, og gott
veður var á miðunum.
Á svæðinu SA af Kolbeinsey
(út af Sléttugrunnshorni) fékkst
engin veiði í gær, en skipin voru
að byrja að kasta þar í gær-
kvöldi.
Lítil síldveiði var á sunnudag
og aðfaranótt mánudagis. Var vit
að um afla H skipa með alls
5.100 mál og tunnur, þar af var
vitað um afía 6 skipa með 4.000
tunnur af svæðinu 25-28 mílur
ASA af Kolbeinsey. Annar afli
var SA af Skrúð og út af Dala-
tanga.
Bræla var á miðunum framan
af og töluverður sjór. Veður-
útlitið er nú betra og veiðihorf
ur góðar bæði á svæðinu ASA
af Kolbeinsey og fyrir austan
land. Hafa leitarskipin orðið vör
við mifcla síld.
Raufarhöfn, 13. ágúst.
Hér lönduðu í gær í bræðslu
Framh. á bls 23
vegna meiðsla í hné, Hörffur
Felixson var svo á sig kominn í
öxl að hann mátti hvergi nema
við með hana og Garðar er meff
mikið sár á legg. Fleiri eru meff
minni háttar meiðsli. Slik var
harkan í leiknum.
Meiðsli Þórðar munu alvar-
legust. Hann var á sjúkrahúsi 1
nótt sem leið, en læknarnir töldu
!þó meiðsli hans ekki alvarleg.
En í morgun tóku læknamir þá
ákvörðun að skera í hné hans og
var sett einhver plastflís í lið-
inn. Kunni Þórður ekki góð skil
ó meiðslunum eða læfcnisaðgerð-
unum, en hér mun þeim haldið
áfram. Þórður gekk þó frá flug-
vél Og til bifreiðar. r
Bjarni Felixson var haltur all-
an seinni hálfleik leiksins en
'harkaði þó af sér. I fyrrinótt og
einkum í gærmorgun versnaði
honum mjög og er á leið daginn
gat hann vart gengið. í flugvél-
inni leið yfir hann og varð að
gefa honum súrefni..
Þrátt fyrir allt þetta var hinn
bezti tónn í liðsmönnum. Þeir
voru allir ánægðir með árangur-
inn. „Helgi Dan var stjarnan en
Hörður kannski bezti maður liðs-
ins“ sagði einn „en annars var
liðið allt óvenjulega samstillt“.
En um það allt og fleira má lesa
á íþróttasíðu bls. 15 og 16.
Viðir II.
aflahæstur
I LOK síffustu viku voru þess-
ir þrir bátar afiahæstir á síld-
veiffunum (tölurnar í máium|
og tunnum): Víffir H. 19.854,
Höfrungur H. 18.550 og Guff-
mundur Þóröarson 18.188.
Konunni líður
betur
KONAN, sem slasaðist á þjóð-
hátíðinni í Vestmannaeyjum um
fyrri helgi, er flugeldur lenti á
henni, liggur enn á Landakots-
spítala. Henni líður nú betur og
er að komast til meðvibundar.
HERAÐSIHOT
Sjálfstæðismanna
á Patreksfirði 18. ágúst
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Vestur-Barða
strandarsýslu verður haldið á Patreksfirði næstkomand
laugardag 18. ágúst kl. 8,30 e. h.
Ingolfur Jónsson, landbún- aðarráðherra, og Sigurður Bjarnason, ritstjóri, flytja
í p- ræður.
L Þá verður sýndur gaman-
m í leikurinn „Heimilisfriður“
m eftir Georges Courteline, í
þýðingu Árna Guðnasonar, magisters. Með hlutverk fara |
Sigurffifr
leikararnir Rúrik Haraldsson Ingólfur
og Guðrún Ásmundsdóttir.
Ennfremur verður til skemmtunar einsöngur og tvi-
söngur. Flytjendur eru óperusöngvararnir Guðmundur
Jónsson og frú Sigurveig Hjaltested, og undirleik annast
Fritz Weisshappel, píanóleikari.
Dansleikur verður um kvöldið.