Morgunblaðið - 18.08.1962, Síða 3
f l^augardagur 18. ágðst 1962
MORGU NBLAÐIÐ
3
J ACQUELINE Kennedy
dvelst nú í sumarleyfi við
Miðjarðarhafsströndina í litl-
um bæ, sem heitir Ravello.
Með henni er Carolina, dótt-
ir hennar. Jackie býr í sum-
arhöll, sem systir hennar,
Lee Radziwill, prinsessa,
leigir þetta sumar.
Eins og vænta mátti varð
uppi fótur og fit á strönd-
inni, þegar fréttist um komu
forsetafrúar Bandaríkjanna.
Fyrsta morguninn fór Jackie
með Carolínu út á flóann í
litlum ítölskum hraðbát og
lék sér þar á sjóskíðum á
kröppum öldunum góða
stund. Carolína fékk einnig
að taka þátt í leiknum — en
eftir svo sem hundrað metra
stungust þær mæðgur á nefið
og fengu hressandi bað.
Uppi á ströndinni biðu
kringum 50 ljósmyndarar með
vélarnar á lofti, og gerðu hin-
um 60 bandarísku og ítölsku
lífvörðum forsetafrúarinnar
gramt í geði. En Jackie lét
einn þeirra synda til þeirra
með svohljóðandi skilaboð:
„Gef ykkur tíu mínútur til
að taka myndir“. Þeir tóku
til óspilltra málanna og ljós-
mynduðu hana frá öllum hlið
um, svo og Carolínu, sem var
í bleikum stuttbuxum. Jackie
var aftur á móti í grænum
sundbol, með laufamyndum.
En Carolína litla notar
sínar aðferðir við blaðaljós-
myndara. Hún dró fram úr
Jackie baðar ‘ig í Miðjaröa rhafinu.
IVIeð tignarfólki
á sjó og landi
pússl sfnu barna-ljósmynda-
vél. „Húrra“, hrópuðu áhorf-
endur. Carólína smellti af og
út úr myndavélinni spratt
trúðshaus, sem rak út úr sér
tunguna. Fremst á tungunni
var rautt kirsuber.
En það eru fleiri en Jackie
Kennedy sem kunna vel við
sig í sjávarloftinu. Philipp,
prins, stjórnaði 34 tonna
skútu ekki alls fyrir löngu í
Bátnum hvolfdi og Philipp
sjóinn.
kappsiglingu undan Solent,
og varð annar í röðinni. Með-
limur konungsfjölskyldunnar
brezku hefur ekki tekið þátt
í þeirri íþrótt, síðan Georg
konungur V sigldi Britannia
árið 1935.
En Philipp varð fyrir ó-
heppni á sjónum nokkru síð-
ar. Hann var staddur um borð
í litlum bát, ásamt skútukarl-
inum og rithöfundinum Uffa
Fox, þegar bátnum hvolfdi.
Mönnunum var bjargað og
báturinn dreginn til hafnar.
Þegar hala átti bátinn upp
á bryggjuna, losnaði bóman
á krananum og féll hún
nokkra faðma frá þeim tví-
menningunum. „Bóman féll
það hægt að ég gat skotizt til
hliðar", er haft eftir Philipp.
Svo bætti hann við kaldhæðn
islega: „Hefði hún skollið
beint niður, hefðu lík fund-
izt á reki í höfninni".
Hlutlausír i Genf vilja:
Takmarkað bann við
kjarnorkutilraunum
að ekki væri um kjamorku-
sprengingu að ræða.
í Genf er talið, að Bretar muni
e.t.v. vera fúsari en Bandaríkja-
menn til að ganga að takmörk-
uðu banni; munu þeir m.a. vera
reiðubúnir til að ræða ítalska
tillögu, sem fram er komin, þar
að lútandi.
Eftirlit óhjákvæmilegt.
Hver svo sem niðurstaðan verð
ur þyfcir fullvíst, að Vesturveld-
in muni ekki telja sig geta fall-
ist á algjört bann við kjarnorku-
sprenigingum, nema Sovétveldið
sætti sig við eftirlit í einhverju
formi.
Athugasemd
vegna elds á bíl
ÚT af frétt í dagblaðinu „Tím-
inn“ 1'5. ágúst um íkviknun í
Kjarna-áiburði óskar Áburðar-
verksmiðjan h.f. að -taka fram
eftirfarandi:
Umræiddir áburðarpokar voru
teknir hjá verksmiðjunni í Gufu
nesi um kl. 9,30 laugardaginn 11.
ágúst. Síðan mun bifreiðin hafa
farið aftur í bæinn og tekið aðr-
ar vörur, þ.e. tóma strigapoka, og
ekki lagt af stað austur að Hvols
velli, fyrr en eftir hádegi. Elds-
ins í farminum varð síðan vart
um kl. 14.00. Á palli bifreiðar-
innar var því ekki eingöngu
Kjarni, heldur og vara, sem auð
veldlega getur brunnið. Um
Kjarna-áburðinn sjálfan er það
að segja, að hann brennur ekki,
og um sjálfsíkveikju í honum get
ur ekki verið að ræða. Umbúðir
hans, þ.e. pappírspokarnir geta
þó að sjálfsögðu brunnið.
Hins vegar verður að hafa að-
gæzlu um meðferð elds í návist
Kjama, svo og að gæta þess, að
innan um eða í kringum Kjarna-
poka sé ekki staflað efnum, sem
auðveldlega geta brunnið eða fal
ið í sér eld, vegna þess að hann
er eldnærandi (oxidizing agent),
svo sem stimplað er á hvem
poka. Heldur hann því við eða
magnar eld, sem umhverfis hann
er, nái hann að hitna í um 200<>C.
STAKSIEIIVAR
Moskvumenn ánægðir
Pulltrúar Moskvuvaldsins vi®
Þjóðviljann ráða sér varla fyrir
gleöi um þessar mundir. Ástæð
an er auðvitað ekki sú, að þeir
hafi unnið nein stórafrek i þágu
íslenzku þjóðarinnar heldur eru
það síðustu geimferðir Rússa,
sem þessari ánægju valda. Blað-
ið segir sigri hrósandi, að for-
stöðumaður athugunarstöðvarinn
ar í Jodrell Bank hafi „meira að
segja tekið svo djúpt í árinni að
telja, að með þessu (þ.e. geim-
ferðunum) hafi Sovétríkin sann
að að þau gætu nú drottnað yfir
geimnum."
Enda þótt helmingur þeirra
manna sem búa við kommúnisnra
í heiminum svelti og hinn helm
ingurinn hafi svo léleg lífskjör
að engum manni þyrfti að bjóða
upp á þau í vestrænum löndum,
þá telur Þjóðviljinn það fagnað
arefni, ef þessu þjóðskipulagi
tækist að drottna yfir geimnum.
Nú eru heimsyfirráð ekki nóg!
Óskað til hamingju
f forystugrein segir Þjóðvilj-.
inn ennfrem.ur í gær:
„Afrek Sovétríkjanna á sviði
geimrannsóknanna eru nýr og
glæsilegur sigur mannsandans í
þekkingarleit hans. Það er ástæða
til þess að óska þeim og mann-
kyninu öllu til hamingju með
þennan sigur."
Þjóðviljinn hefur áður óskað
til hamingju. Hann óskaði Rauða
hernum til hamingju, þegar hann
barði niður byltingu austur-
þýzkra verkamanna 17. júní
1953 og hann óskaði Rauða hern
um enn til hamingju þegar hann
stofnaði til blóðbaðsins í Ung-
verjalandi 1956 og framdi eitt
mesta níðingsverk á nágranna-
þjóð, sem um. getur í veraldar-
sögunni.
Genf, 17. ágúst — NTB —
HLUTLAUSAR þjóðir, sem
fulltrúa eiga á 17 ríkja af-
vopnunarráðstefnunni hér í
Genf, leggja nú aukna á-
herzlu á, að reynt verði að
koma á takmörkuðu banni
við kjarnorkutilraunum,
þanpig að bannaðar verði all-
ar tiiraunir aðrar en neðan-
jarðar.
Á fundi ráðsfcefnunnar á föstu-
dag lagði brasiliski fulltrúinnn,
Araujo Castro, það til, að áherzl-
an yrði nú lögð á bann við til-
raunum í og fyrir utan gufuhvolf
ið. Þeim mun meiri ástæða væri
til að einbeita sér að þessum
þætti málsins, sem sýnt væri„
að austur og vestur gætu ekki
komið sér saman um bann við
tilraunum neðanjarðar, vegna á-
greinings um eftirlit með slíku
banni.
Vilja algjört bann.
Bandaríski fulltrúinn, Arfchur
Dean, lýsti því yfir á blaðamanna
fundi, að Bandaríkin leggðu höf
uðáherzlu á að komið yrði á al-
gjöru banni. Og ýmiskonar
minni jarðliræringar, sean fram
kæmu á mælum, væru þess eðlis,
að ekki væri unnt án athuigunar
á staðnum, að fullvissa sig um,
Vilhjálmur Hjálm-
arsson slasast
Sl. Þriðjudagskvöld varð það
slys að Brekku í Mjóafirði að
dráttavél valt og ökumaðurinn,
Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrrv.
alþingismaður slasaðist og var
fluttur á sjúkrahúsið á Norð-
firði. Vilhjálmur var að aka
heim heyi er dráttarvélin valt
og varð hann undir henni. Síðu
brotnaði hann og marðist mikið.
Vilhjálmur var fluttur með báti
til Neskaupstaðar og liggur hann
Tillaga
Norður-
landa
var felld
í DAG hefst Evrópumeistara-
mótið í sundi í Leipzig og meðal
keppenda í dag eru Guðmundur
Gíslason í 400 m órsundi ein-
staklinga. j
í gær var haldið þing aliþjóða
sundsambandsins. Norðurlöndin
öll lögðu þar fram tillögu um að
Evrópumeistaramótið yrði hald-
ið annað hvert ár, og þá odda-
töluár . o að þau bæru ekki upp
á Olympíuár. Tillagan var felld
og eftir sem áður verða Evrópu-
mótin haldin 4. hvert ár. Aðal-
ástæðan fyrir því að tillagan var
felld er fjárhagsörðugleikar.
Á sama fundi var ákveðið að
næsta Evrópumeistaramót skyldi
haldið í Utrecht i Hollandi.
Kjöt og smjör
Við þurfum ekki að fara Iangt
til að sjá, hvemig lífskjörum
almennings í Sovétríkjunum er
háttað. Landbúnaðurinn þar er
í rúst, eins og kunnugt er af
fréttum, og með einu penna-
striki hækkaði Sovétstjórnin
verð á smjöri og kjöti um 30%.
Um þetta skrifar fréttaritari
Þjóðviljans í Moskvu m.a. í blaff
ið í gær:
„Landbúnaðurinn hefur aftur
verið á dagskrá hjá stjórninni.
Verð á kjöti og smjöri var hækk
að um 30% eins og menn muna.
Slík ráiðstöfun er borgarbúum
auðvitað ekkert fagnaðarefni.
Miðstj. flokksins og ríkisstjórn
in skrifuðu bréf til almennings
unr. þetta mál, þar er rætt um
þær ráðstafanir sem að undan-
förnu hafa verið gerðar til að
styðja búið, þær hafa efeki reynzt
nógu róttækar. Árið 1961 var
meðalframleiðslukostnaður á
sentner (100 kg) af nauta-
kjöti 88 rúblur, en verð til bú-
anna var aðeins 59,1 rúbla.
M. ö. o. flest ríkis- og samyrkju
bú töpuðu á kjötframleiðslu og
því meir sem þau framleiddu
meira.“
Jafnvel Krúsjeff getur ekki
i annað en viðurkennt ofskipulag
kommúnismans. Samkvæmt frá
sögn fréttaritara Þjóðviljans
sagði hann m.a. fyrir skemm.stu:
„Við förum illa með vinnuafl.
kannski er aftan í 20 mjaltakon
ur hnýtt þrem starfsmönnum til
þess eins að skjalfesta mjólkina,
einatt gera þrlr menn það sem
einn gæti gert."
Þessi litlu dæmi ættu að nægja
um það „fyrirmyndarþjóðfélag“
sem Þjóðviljinn óskar eftir að
drottni í heimi og geiml.