Morgunblaðið - 18.08.1962, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.08.1962, Blaðsíða 10
10 MORCVNBLAÐIÐ Laugavdagur 18. ágúst 1962 JNtaMputtMtafrifr Crtgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. FORYSTA SJÁLF- STÆÐISFL OKKSINS í LANDB ÚNADAR- MÁLUM T Tpplýsingar þær, sem Morg- unblaðið hefur fengið hjá Pálma Einarssyni og birtar voru í blaðinu í gær, eru hin- ar merkilegustu. Af þeim sést að bændum á íslandi hefur fjölgað í tíð núverandi stjórnar. Sýna eftirfarandi tölur, sem ekki verða ve- fengdar, það áþreifanlega: Árið 1958—1959 töldu 5078 heimili fram bústofn, 1959— 1960 voru býlin 5159 og 5261 1960—1961. Ástæðan til þess, að Morg- unblaðið leitaði þessara upp- lýsinga var sú, að einn af þingmönnum Framsóknar- flokksins fullyrti í grein, sem hann skrifaði í Tímann, að bændum hefði fækkað í tíð núverandi ríkisstjórnar. Þær fullyrðingar eiga, eins og sjá naá, ekki við nein rök að styðjast og eru úr lausu lofti gripnar. Hér er einungis um að ræða venjulegar blekking- ar, sem Framsóknarmenn hyggjast nota sér og flokki sínum til framdráttar í stjórn málabaráttunni. Auðvitað eru ávallt sveifl- ur í landbúnaði, en þær hafa, eins og Pálmi Einarsson sagði í samtalinu við Morgunblað- ið, verið tiltölulega litlar síð- ustu árin. Venjan er sú, að 30—50 nýbýli bætast í bú- reksturinn á ári og gerir það meira en vega upp á móti þeim, sem fara í eyði. Er svo enn. Einnig. eru einhverjar tilfærslur í byggð, sum hér- uð byggjast meira en áður, önnur minna. Það er einnig eðlilegur hlutur. RÚSTIR EINAR CJjálfstæðisflokkurinn hefur ^ farið með landbúnaðar- mál síðan 1959. Þegar hann tók þá við stjórn landsins, á- samt Alþýðuflokknum, má segja að hér hafi verið ljótt um að litast. I því sambandi er eðlilegt að rifja upp þá staðreynd, að vinstri stjórn- in svokallaða lagði á 55% yfirfærslugjald vorið 1958 og lækkaði krónuna margfalt meira í árslok 1958, miðað við þá dýrtíðaröldu sem skollin var yfir þjóðina. Þessar ráð- stafanir vinstri stjórnarinnar komu mjög hart niður á bændum, eins og mönnum er í fersku minni. Viðreisnar- stjórnin hafði í mörg horn að líta, þegar hún tók við. Hún þurfti bókstaflega að reisa landið úr rúst eftir óðaverð- bólguna, sem Hermann Jón- asson viðurkenndi að flæddi yfir þjóðina í lok vinstri stjómar tímabilsins. Undir öruggri forystu Ingólfs Jóns- sonar í landbúnaðarmálum hefur mörgu verið áorkað í þágu bænda, enda vita allir, sem fylgzt hafa með stjórn- málúm á undanförnum árum, að ’Sjálfstæðísflokkurinn er og hefur ávallt verið bezta brjóstvörn íslenzkrar bænda- stéttar. Ingólfur Jónsson hef- ur af festu og öryggi komið mörgum nauðsynjamálum bænda í höfn og áfram verð- ur unnið að því að bæta hag þeirra, eins og frekast er kostur. Þeir geta nú vænzt þess, að skekkjur og van- rækslur fyrri ára verði lag- færðar, nú þegar Sjálfstæð- ismenn fara með hagsmuna- mál þeirra. Landbúnaðurinn, eins og allar aðrar greinar þjóðlífsins munu eflast und- ir þeirri öruggu stjórn, sem nú fer með völd í landinu. Framleiðslan eykst, en dregst ekki saman, eins og Fram- sóknarmenn klifa stöðugt á, og dugmiklir menn bætast sífellt í hóp framsækinnar ís- lenzkrar bændaséttar. AÐBÚNAÐUR LÖGREGLUNNAR FjVns og skýrt var frá í Morg unblaðinu í gær, verður nú innan tíðar hafizt handa um byggingu nýrrar lög- reglustöðvar í Reykjavík. — Samkvæmt áætlun á lög- reglustöðin að vera fokheld eftir 2Vz ár og lokið að fullu að fimm árum liðnum. Hér er um að ræða mikið hags- munamál alls almennings. Óviðunandi er, að lögreglan í Reykjavík, sem gegnir jafn þýðingarmiklum störfum og raun ber vitni, hafi ekki þann samastað sem starfi hennar er samboðinn. Ef dæma má af fréttum dagblaðanna, virðist engin vanþörf vera á því að bæta aðstöðu lögreglunnar. Bílum fjölgar dag hvern í bænum Maðui-inn I bifreiðinn hér á myndinni er franskur kapp- akstursmaður, Jose Ganga að nafni. Hann hefur oft sýnt mikla fífldirfsku í akstri og að aka á tveim hjólum fyrir horn með þessum hætti, sem sézt á myndinni, er honum leikur einn. Þegar mynd þessi var tekin, var hann þó ekki sjálfur við stýrið, en honum var klappað lof í lófa þar, sem hann stóð hálfur upp úr bifreiðinni. Myndin var tekin á götu í Briissei, þegar Ganga var að sýna til ágóða fyrir góðgerðarfélag, er Fabiola drottning stendur fyrir. P. Nenni slasast illa Róim, 16. ágúst — NTB —■ Leiðtogi vinstrisinnaðra sós íalista á Ítalíu, Pietro Nenni, fannst í dag meðvitundarlaus í gilskorningi í ítölsku Ölpun- um. Er talið, að hann hafi fengið aðsvif, og fallið niður í lækjarfarveg. Þar hefur ha.in slegið höfðinu utan í eggjagrjót, og hlotið talsverð meiðsli. Líðan hans var ekki 1 góð í gærkvöld, en þó er hann > ekki talinn í lífshættu. I Læknar, er annast hinn / aldna stjórnmálaforingja, sem 1 nú er" 71 árs, skýrðu svo fná | að hann hefði hlotið áverka í á höfði, auk þess sem nokikur * rifbein hefðu brotnað í hon- 1 um. Þess utan hlaut hann ■ nokkrar skrámur víðs vegar l um líkamann. Mikið hefur borið á Nenni 1 í stjórnmálalífi Ítalíu frá 6 stríðsloikum. Flokkur hans U hefur oft haft samvinnu við J kommúnista við afgreiðslu 1 margra mála. Undianfarin sex 1 ár hefur Nenni þó leitt flokk | sinn meir og meir inn á braut l sjálfstæðis, og er þess m.a. J minnzt, er hann fordæmdi í- 1 hlutun Rússa, er til uppreisn- t arinnar kom í Ungverjalandi £ 1956. í USA viðut kenn- ir stjórn Perú WASHINGTON — Talið er víst, að bandaríska stjórnin muni viðurkenna stjórn Perú í lok vikunnar. Bandaríkja- menn slitu sem kunnugt er öllu stjórnmálasambandi við landið, eftir uppreisn herfor- ingjanna fyrir skömmu. Þeir hafa nú heitið frjálsum kosn- ingum á næsta ári. og er nauðsynlegt að öku- menn hafi svo strangt aðhald í umferðinni, að þeir séu sér þess ætíð meðvitandi, hvílíkt hættutæki þeir hafa í hönd- um, þar sem bifreiðin er. Sér .staklega er nauðsynlegt að brýna þetta fyrir unglingum. Lögreglan á þakkir skilið fyr ir að hafa tekið úr umferð þá ökufanta, sem aka um bæinn á ofsahraða og stofna þann- ig lífi allra vegfarenda í hættu. Þau orð lögreglustjóra, að það hafi „orðið veruleg aukn- ing á því að lögreglan þurfi að geyma menn um stundar- sakir vegna ölvunar, og bar sérstaklega mikið á því í vor,“ eru uggvekjandi. — Drykkjuskapur, ekki sízt á almannafæri, er böl sem set- ur blett á hvert þjóðfélag. En drukknir ökumenn eru þó öll- um öðrum verrL Þeir eru vargar í véum. Mynd þessi var tekin í Baltimore I Maryland fyrir nokkr- um dögum og má glöggt sjá, að mennirnir tveir, sem voru í bifreiðinni sluppu vel, að þeir skyldu ekki einu sinni skrámast. Þeir voru að fara yfir brú á fljóti nokkru ,er hún hún var opnuð til að hleypa báti þar um. Bifreiðin var komin of langt inn á brúna, þeystist upp hallann nokk- urn spöl, en rann niður aftur og festist, eins og sézt á myndinni. Mennirnir náðust upp með því að láta reipi síga niður til þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.