Morgunblaðið - 18.08.1962, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.08.1962, Blaðsíða 5
'■ Laug«i'dagur 18. ágúst 1962 MORCVNBL AÐ1Ð 5 Siðferðísvols (tileinkaður Saaðbræklingnm) Vanta m”n ekki velgengni í vestra norðurlandskjördæmi, í aðstöðu góðri þrífast þar þjóðkunnir merakonungar, eigandi fjöld af státnu stóði stökkvandi um fjöll og afrétti. Þó máske sé að því misjafn gróði. og meranna stopult siðferði. Sögurnar herma sí og æ, (svo sem tíðkast á mörgum bæ), ógeltir folar eru þar áleitnir mjög við hryssurnar, eftir sínu eðli reyna ástaleiki og hryssufar. Enda er því ekki að leyna: æðimörg steddá fyljast þar. Ástafar stóðsins ama jók, einkum þó niðri á Sauðárkrók. Heyra um þvílikt framfeorði fyllti þá suma afbrýði. Sögðu það ætti ekki að trassa uppeldið hjá hrossunum. — Sínar merar sjálfir passa sögðust þeir vera færir um. Sögðu án efa útlægir allir væru og rétttækir griðalaust, þessir graðhestar, er glingruðu frjálst við merarnar. Fylktu síðan fríðu liði um fjöll og dali í hrossaleit. Graðhestar skyldu firrtir friði fluttir í skyndi í næstu sveit. Heyrðust um byggðir hófasköil hestasmalanna óp og köll, klárir jöguðu í jölduleit jafnvel niður 1 Refasveit. Heppnaðist’ loksins hetjum slyngum hestum nokkrum í skyndi ná. — En heldur þótti Húnvetn- ingum hitna í geði og þyngjast brá. Rekkum sýndust ráðin klók að reka hestana á Sauðárkrók, síðan í flýti selja þar, — sennilega til afsláttar. — Hryssurnar fylltust miklum móði að missa ásta og skemmtunar, hefndarlöngun þeim brann í blóði burtu þá foli tekin var. Ef að fólk liti í eigin barm ætti að skilja þennan harm, yndi að missa og ástafar illa margur að vonum bar. Fólkið ætti að minnast móta, er mögnuðu löngum yndishag frjálsra manna og fríðra snóta er fönguðu gleði nótt sem dag. CX f Söfnin ' Árbæjarsafn opið alla daga kl. 2—6 e.h. nema mánudaga. Á sunnudögum tii kl. 7 e. h. * Tæknibókasafn IMSÍ. Opið alla virka daga frá 13—19 nema laugar- daga. Asgrimssafn, Bergstaðastræti 74 er opið þriðjud., fimmtud. og sunnudaga frá kl. 1.30—4 e.hu Þjóðminjasafnið er opið daglega frá kl. 1,30 til 4 e.h. Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla túni 2, opið dag'ega frá kL 2—4 oiu nema mánudaga. Listasafn íslands er opið aaglega frá kl. 1.30 til 4 e.h. Listasafn Einars Jónssonar er frá 1. júní opið daglega frá kl. 1:30—3:30 e.h. Ameríska bókasafnið er lokað vegna flutninga. Þeir sem enn eiga eftir að skila bókum eða öðru lánsefni, vinsamlegast komi því á skrifstofu Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna, Bændahöllinni við Hagatorg II. hæð. Bókasafn Kópavogs: — Utlán þríðju daga og fimmtudaga í báðum skólun- um. + Gengið + 15. ágúst 1962. Kaup Sala 1 Enskt pund ....... 120,49 120,79 1 Bamluríkj adoilar 42,95 43,06 1 Kanadadollar 39,76 39,87 100 Danskar krónur .... 621,56 623 100 Sænskar krónur .... 834,21 836, 100 Norskar krónur .... 835,20 837, l',0 Finnsk mörk ..... 13,37 13, 100 Franskir fr. .... 876,40 878, 100 Belgiskir fr. _____ 86,28 86, 100 Svissnesk frankar 993,12 995, 100 V-þýzk mark 1.075,34 1.078, 100 Tékkn. í i.ur ____ 596,40 598, 100 Norskar kr........ 601,73 603, 100 Gyllini ........ 1.192,43 1.195, 1000 Lírur ........... 69,20 100 Austurr. sch..... 166,46 166, 100 Pesetar ........„.. 71.60 71, í dag kjl. 2 e.h. opnar Þor- steinn Hanness. mtálverkasýn inigu í Ásm'undarsal við Freyju götu. Sýnir Þorsteinm þar 35 myndir, þar af 9 olíuinálverk og 26 vatnslitamyndir. Eru myndirnar flestar landslags- myndir, málaðar af ýmsum stöðum af landinu. Eru marg- ar myndanna frá Snæfellsnesi en I>orsteinn var fæddiur og upp alinn í Grunnasundsnesi við Styfckishólmi. Ungur að aldri flu'tti Þorsteinn til Reykj avíkur og lærði teikningu hjá Brynjólfi Þórðarsyni og Asgrími Jónssyni, en síðar lærði hann hjá Ríklharði Jóns syni og Bimi Björnssyni. Einn ig divaldist hann vetrarlangt við teikni- og skreytináim við Tekniske Selskabs Skole í Dan mörku. Árið 1928 byrjaði Þorsteinn að læra húsamálun og vanm við þá iðn til ársins 1934, er hann stofnaði Raflamipagerð- ina ásamt öðruim manni. Hef- Þorsteinn Hannesson hjá einu málverka sinna, sem hann kall- ar „Þjóðlega hugimynd“. ur hann starfað við það fyr- irtæki síðan, frístundir sínar hefur hann alltaf notað til þess að mála. Þetta er fyrsta mólverkasýn ing Þorsteins hér í Reykjavík en áður hefur hann haldið sýningar í Styklkishólmi, Ólafs vík og Sandi og einig átti hann myndir á samsýningu Myndlistarfélags áhugamanna fyrir nokkrum árum. Sýning Þorsteins Hannes- sonar verður opin daglega frá fel. 2-10 e.h. til 27,- þessa mánaðar. ««%#■< 3ja herbergja íbúð óskast sem fyrst. — Simi 3 31 80. Nýtízku svefnsófi til 9Ölu að As- vallagötu 22, 1. hæð. — Sanngjarnt verð. Hafnarfjörður Barnlaus hjón óska eftir 2ja herb. íbúð í Hafnarfirði Uppl. í aíma 23100. Til sölu skáksett, grammofónplötur, myndamót og sýningarvél að öldugötu 16, kjallara, eftir kl. 12 á hádegi. Keflavík - Suðurnes Skurðgrafa með ámoksturs tæki til leigu um styttri eða lengri tíma. UppL í sima 1642, Keflavík. V erzlunarhúsnæði Verzlunarhúsnæði óskast, sem fyrst. Tiliboð, sendist Mibl. fyrir mánudagskvöld merkt „Sér verzlun 7686“. - Volkswagen ’55 til sölu. Uppl. í sáma 227il0. ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðiniu, en öðrum blöðum. Breittur viðtulstími Frá 13/8 er viðtalstími minn frá kl. 16—17,30. Laugardaga engin móttaka yfir sumarmánuðina (1/5 — 30/9). Aðra laugardaga kl. 11,30 — 12.00. Símatími M. 12—13 í síma 12993, nema laugan- dögum vetrarmánuöi (1/10 — 30/4) kl. 12 — 12,30 síma 14513. Pantaðir tímar eftir samkomulagi. Vitjanabeiðnir í sima 12993 kl. 0.8 — 14.00. ANDRÉS ÁSMUNDSSON, læknir Aðalstræti 18 (Uppsölum). (Geymið auglýsinguna). VÉLSTJÓRAFÉLAG ÍSLANDS Félagsfundur verður haldinn að Bárugötu 11 mánudaginn 20. apríl klukkan 20. Áríðandi mál á dagskrá. , STJÓRNIN. Mafsveina- og Veitingaþjónaskólinn tekur til starfa í byrjun sept. Innriíun fer fram í skrif- stofu skólans 13. og 20. þ.m. kl. 3—5 s.d. í októberbyrjun hefst 8 vikna kvöldnámskeið fyrir fiskiskipamatsveina. Nánari uppl. hjá skolastjóra í sima 19675 og 17489. SKÓLASTJÓRI. Enskunám í Englandi Skólastofnunin Scanbrit útvegar skóla og úrvals- heimili í Suður-Englandi fyrir fólk á öllum aldri hvaða árstíma sem er. Hagstætt verð. Upplýsingar gefur Sölvi Eysteinsson, síma 14029. Fjölrítunarvörur fyrirliggjandi: Pappír, Stenslar, Fjölritunarblek svart og blátt, Fjölritaiar íafknúir og handsnúnir, fleiri gerðir og ýmsar aðrar tilheyrandi fjöiritunarvörur. GESETNER-UMBOÐIÐ Klapparstíg 26, Símar: 15544 og 35028.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.