Morgunblaðið - 18.08.1962, Page 6
6
MORCVNBLAÐIÐ
Laugardagur 18. ágúst 196~ 1
Fimmtán millj. jafn.
Keflavík
KEFLAVÍK, 12. ágúst 1962
Nýlega er lokið niðurjötfnun
útsvara í Keflavík. Alls var jafn-
að niður 15.150.000.00 krónum á
1410 gjaldendur, þar af 1344 ein
stáklingar og 66 félög og fyrir-
tæki.
Útsvör fyrirtækja og aðstöðu-
gjöld voru 3.734.200.00 krónur.
Við niðurjöfnun var notaður út-
svarsstigi samikvaemt lögum um
tekjuöflun sveitafélaga, en síðan
voru öll útsvör lækkuð um 35%,
og einnig notaðar heimildir sömu
laga til annarra lsekkana.
j Hæst útsvör einstaklinga bera:
Jóharm Ellerup, . apótekari
105.600.00. Halldór Brynjólfsson,
skipstjóri 74.600.00. .Magnús Berg
Fundur Sjálf-
stæðismanna
á Flateyri
I>ANN 2. ágúst sl. var haldinn
fundur í Sjálfstæðisfélagi ön-
undarfjarðar. Fundurinn var á
Flateyri.
Rafn A. Pétursson, formaður
félagsins, setti fundinn og stjórn-
aði honum. Fundarritari var Jón
Stefánsson.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins flutti erindi um skipu-
lag Sjálfstæðisflokksins og ræddi
sérstaklega um skipulag og störf
flokksins í Vestfjarðakjördæmi.
Á fundinum voru kjörnir full-
trúar í Fulltrúaráð Sjálfstæðis-
félaganna í Vestur-ísafjarðar-
sýslu og í Kjördæmisráð Sjálf-
stæðisflokksins í Vestfjarðakjör-
dæmi.
Stjórn félagsins skipa: Rafn A.
Pétursson, formaður, Jón Stef-
ánsson, Kristjón Guðmundsson,
María Jóhannsdóttir og Garðar
Þorsteinsson.
Sýnir kvik-
myndir um
landið
KJARTAN Ó. Bjarnason er að
leggja af stað í sýningarferð út
á land. Fer hann með 10 af kvik
myndum sínum, þar á meðal
myndina „fslenzk börn að leik
og starfi til sjávar og sveita",
sem hefur vakið athygli þar sem
hún hefur verið sýnd.
Kjartan fer fyrst um Vest-
firði, sýnir fyrst á Patreksfirði á
fimmtudag. Aðrar myndir, sem
hann sýnir, eru: Skíðalandsmót-
ið á Akureyri 1962, Holmenkoll-
en og Zakopane, Knattspyrna
(landsleikur milli íslands og
Noregs og úrslit í næstsíðustu
heimsmeistarakeppni milli Braz-
ilíu og Svíþjóðar),’ Handknatt-
leikur (Fimleikafélag Hafnar-
fjarðar og þýzka liðið Essingen),
Skátamótið á Þingvöllum, Þjóð-
hátið í Eyjum, 17. júní í Reykja-
vik, Kappreiðar, Listhlaup á
skautum.
mann, skipstjóri, 74.500.00. Ósk
ar Ingibersson, skipstjóri
63.600.00. Gunnlaugur Karlsson,
skipstjóri 59.600.00.
Hæðst útsvör fyrirtækja bera:
Kaupfélag Suðurnesja 281.100.00.
Keflavík h.f. 259.000.00. Hrað-
frystihús Keflavfkur h.f.
252.100.00. Jökull h.f. 216.600.00,
Fiskiðjan s.f. 205.000.00.
Lækkun á hinum lögboðna út-
svarsstiga er talsvert meiri
Keflavík en frétzt hefur til frá
öðrum sambærilegum bæjum.
— hsj —
Umsóknir um
húsbyggingalán
NÆSTK. mánudag 20. ágúst kl.
5 e. h. lýkur endurnýjun allra
þeirra lánsumsókna sem borizt
höfðu fyrir 10. júlí sl. hjá Hús-
næðismálastofnun rí>^ins. Eftir
þann tíma verða þ ' taldar
meðal lánshæfra u.. a.
Að gefnu tilefni vill blaðið þó
benda þeim umsækjendum sem
nú eða á næstunni hyggjast
leggja þar inn nýjar lánsum-
sóknir ,að þeir eru ekki bundnir
við framangreind tímamörk. —
Móti slíkum umsóknum verður
daglega tekið, eins og að undan-
förnu.
Rétt er þó að ítreka það sem
fyrr hefur um þessi mál verið
sagt að hyggilegast er að leggja
lánsumsókn inn strax og búið er
að teikna viðkomandi hús eða
íbúð og áður en byggingafram-
kvæmdir hefjast.
Nokkrir brezku unglinganna í Hveragerði, sem ætluðu að hjóla til Heklu. (Ljósm.: Mbl. G.M.).
Unglingar frá Lundúnum
fara hjólandi til Heklu
ÞEGAR Hvergerðingar vöknuðu
sl. laugardagsmorgun, sáu þeir,
að allstór tjald'búð var risin upp
í nágrenni þeirra, og er verzl-
anir opnuðu í Hveragerði þenn-
an morgun, bar þar mikið á
ungu fólki, jafnvel börnum.
Auðséð var, að hér var erlent
ungviði á ferð.
Þetta fólk vakti forvitni mína
eins og fleiri, svo ég brá mér
út að tjaldborginni, til þess að
ná tali af ungmennunutn. I ljós
kom, að þau voru 24 talsins og
á aldrinum 11 — 18 ára. Þetta
voru allt Lundúnabúar, sem
með í förinni, og er fararstjóri
höfðu komið hingað til lands
með Gullfossi. Unglingarnir
voru öll félagar í sama félag-
inu, sem hefur það eitt á stefnu
skrá sinni að stunda útilíf.
Ekki var verið að velja stytztu
leiðina til Hveragerðis, því að
þau létu sig hafa það að hjóla
Krýsuvíkurleiðina. Aðspurð,
íhvort vegurinn væri vondur,
sögðu þau svo vera, en bað hefðu
þau reyndar vitað fyrirfram.
Ætlunin væri að hjóla til Heklu,
og hefðu þau 16 daga alis til
ferðalagsins. Tvennt fullorðið er
kennari að nafni Eric Gander. '
Þetta verður að teljast hraust-
lega gert af svona ungu fóiki,
sem getur átt von á vondum
veðrum og slæmum vegum.
Höfðu margir orð á því, að þeir
myndu ekki senda sín börn til
fjarlægra landa við þessar að-
stæður. Aðrir sögðu, að Bretar
myndu sennilega þekkja mál-
tækið: Enginn verður óbarinn
biskup. — Georg.
lífííir 1®
:::::::::::: :::::::::
• Svifbrautir á íslandi
Smáinnlegg um tæknimál
frá framfarasinna:
„f Lesbók þessa blaðs (22.
júlí) birtist mög athyglisverð
grein um svifbrautir eftir Harry
Vilhelsson.
Greinin er vissulea merkt og
svo sem greinarhöfundur, átti
ég einnig von á að hún vekti
verðskuldaða athygli. En ekk-
ert hefur borið á því ennþá.
Tómlæti þar!
Einhverjir íslendingar hljóta
að fyrirfinnast sem hafa ein-
hverja vitneskju eða þekkingu
á farartæki þessu. Og ekki get-
ur hjá því farið að allstór hóp-
ur íslendinga hafi ferðazt með
þessum farkosti. Mér virðist
málið mjög merkilegt og á-
reiðanlega rannsóknarefni. Vill
nú ekki einhver taka sig til og
koma hreyfingu á þetta um-
ferðarmál, sem eitthvað þekkir
til þess? Lítið hef ég um þetta
að segja umfram það sem um
getur í ofannefndri grein.
Sennilega eigum við engan
mann, sem hefur sérþekkingu
á þesskonar farartæki.
Bjóða mætti því erlendum
manni til landsins, með þekk-
ingu á þessum efnum. Og jafn-
framt og um leið, í mat í
Naustið og í ferðalag til Þing-
valla, svo sem öðrum erlend-
um ferðamönnum. Það munar
engu að bjóða einum í viðbót,
til að fá úr því skorið, hvort
slík ferða- og flutningatæki
henti okkur hér á landi. Það
mál væri þá algerlega úr sög-
unni í eitt skipti fyrir öll, ef
slíkt ætti ekki framtíð fyrir
sér. Þó held ég svona „by
instinct", að þetta sé framtíðin
landleiðis.
4
• Ófróðir um tækni
Varðandi sérþekkingu á
tæknimálum, mætti segja mér
að við íslendingar værum
helzt til ófróðir almennt, nema
hvað iðnaðarmenn læri í iðn-
skóla og svo má telja þá prakt-
ísku þekkingu sem menn nema
í iðn sinni. Utan þess held ég
að tækniþekking manna sé
mjög takmörkuð. Og hvernig á
annað að vera? Hér er enginn
tækniskóli. Og annað: Mér er
kunnugt um það, að iðnaðar-
menn láta sjaldan sjá sig í
bókasafni sínu, Tæknibókasafni
Iðnaðarmálastofnunarinnar. En
þar er um margt að fræðast af
úrvalsbókum um tæknimál og
ýmiskonar efni, og þjónusta
þar látin í té af lipurð og vel-
vilja. Hver er ástæðan?
Jú, ástæðan er einfaldlega
sú, að iðnaðarmenn njóta ekki
kennslu í ensku máli í Iðn-
skólanum. Þar er aðeins kennd
danska af erlendum málum og
hún mjög takmörkuð.
Mest allan fróðleik um tækni
mál er að finna í enskum bók-
um, og þann bezta. Sárafátt er
um slíkt í dönskum bókum.
Væri ekki ráðlegt að leggja
höfuðáherzlu á ensku í Iðnskól-
anum af erlendum mólum, en
hafa dönskuna sem aukagrein.
Það held ég.
Á þessari atóm- og tækni-
öld, hlýtur það að verða nauð-
syn að geta kynnt sér bækur
um þessi efni. Einkanlega þar
sem búast má við að hér á ís-
landi rísi upp stóriðja á næstu
árum og áratugum.
• Oflitlir idealistar
á sviði athafna
Hvað vitum við íslending-
ar t.d. um framleiðslu á alumín-
ium, alumíniumiðju og iðnað,
sem óumflýjanlega hlýtur að
skapast, ef reist verður hér
alumíniumver? (örfáir menn
eru nú t.d. leiknir í að sjóða
saman alumínium). Eða um
léttmálmaframleiðslu yfirleitt?
Eða um efnaiðnað? Við þurf-
um allt að læra í þessu sam-
bandi. Auðvitað fáum við okk-
ur kunnáttumenn erlendis frá
með reynslu í þessum efnum.
Enda munum við ekki hafa
tíma né fjármagn til að gera
tilraunir á þessum sviðum
frekar en öðrum sviðum. Held-
ur verðum við að taka þarna
stökk fram á við — enda um
enga tradisjón að ræða í stór-
iðju hér. Engum dytti heldur
t.d. í hug að læra frá grunni
efnaiðnað eða annan tækni-
•iðnað, þótt hann hæfi verk-
smiðjurekstur.
Ekki er ótrúlegt að hér á
landi verði glæsilegt að lifa að
nokkrum áratugum liðum, því
ekki óttast ég að við getum
ekki lært framleiðslu ýmiskon-
ar varnings, léttmálma, efna-
iðnað o. fl., því við erum
greindar náungar. Aðeins helzt
til of litlir idealistar á sviði
athafna. Og meiri virðingu
mættum við sína verknáminu.
Idealista bókmenntanna dá-
um við, og jafnvel kaffihúsa-
fugla. En kjáni er hinn hug-
myndaríki framfarasinni og loft
kastelasmiður á sviði athafna.
nema hann hafi þegar og á
stundinni startað milljónafyr-
irtæki og grætt offjár — á tap-
inu eða gróðanum. Þetta breyt-
ist vonandi!
Páll Hannesson",