Morgunblaðið - 21.08.1962, Page 17

Morgunblaðið - 21.08.1962, Page 17
r Þriðjudagur 21. ágfist 1962 MORCVWTtr 4fílÐ %%%%%%%%%%%% SKÁKÞÆTTINUM hefur ekki enniþá borizt fregnin af gangin- um í einvígi þeirra Keresar og Gellers, sem hófst þann 10. ágúst í Moskvu. Ekki liggur Ijóst fyrir ‘hvort Botvinnik hefur tekið áskorun Petrosjans um ein- vígi um heimsmeistaratitilinn. Marientbad: Heimsmeistarar stúdenta urðu Sovétríkin með 24%, 2. Júgó- slavía 20 3. Tékkar 19, 4. Austur- Þjóðverjar 17. Svíþjóð: Skákmeistarí Svía 1962 varð B. Ekenberg 8y2. 2. Aake Olsson 7. v. St. Gallen: Skákmeistari Sviss varð Dr. J. Kupper 7%. 2. D Ke11er 7. Varna: Olympíu skákmótið fer fram dagana 16 sept. til 10. okt. — Nokkrar þjóðir hafa þegar til- kynnt þátttöku. Fyrir Sovétríkin tefla 1. Botvinnik; 2. Petrosjan; 5. Spassky; 4. Keres; 5. Geller; 6. Kortsnoj. — Fyrir V-Þýzka- land: 1. Unzicker; 2. L. Schmid; 3. Darga; 4. Dr. Fröker; 5. Mo- arlok; 6. Hecht. Skákmótið í Mar del Plata 1962: Hvítt: V. Smyslov Svart: A. Letelier Sikileyjar-vörn J. e4, c5. 2, Rf3, d6. 3. d4, cxd4. 4. Rxd4, Rf6. 5. Rc3, a6. 6. Be2, e5. 7. Rb3, Be7. 8. 0-0, Be6. 9. f4, Dc7. 10. Dd3 Ef 10. f5, Bc4. 10. — exf4 Tæ-past er 10. — bð, eins öruggt áframhald. 11. Bxf4 Rc6 12. Dg3 0-0 13. Hadl Had8 14. Khl Mörgum kann að virðast sem þessi leikur sé leiktap, en í stöð- um sem þessari er því ekki til að dreifa. 14. _ Kh8 15. Rd5 Dálítið óvæntur leikur, þar sem búast mátti við að Smyslov reyndi að auka þrýstinginn á svörtu stöðuna með 16. Hd2. — Eftir textaleikinn skýrast línurn- ar. Hvítur hefur biskupaparið, en svartur á sterka varnarstöðu. 15. — Bxd5 16. exd5 Re5 17. Rd4 Rg6 Vitaskuld ekki 17. — Rxd5 vegna 18. Rfð. 18. Rf5 Hfe8 * 19. Be3! Bf8? ABCDEFGH Staðan eftir 19. — Bf8(?) Mjög varasamt var fyrir svartan að reyna Í9. —■ Dxc2 vegna 20. Bd3, Dc7. 21. Bd4 og- svartur er í algjörri leiklþröng* Og litlu betra er 20___Dxb2. 21. Bd4, Db4 22. H)bl, Da4. 23. Hxib7 óg hvítur hefur greinilega betri stöðu. Aftur á móti kom sterklega til greina að reyna 19. — Re4 ásamt Bf6. 20. c4 Hd7 21. Bd3 Re4 22. Dh3 Kg8 23. Bd4 Rc5 24. Bbl Hd7-d8 25. Dh5! Svartur getur nú tæpast andæft hótuninni Hf3-h3. 25. — Rd7 26. Bxg7! Bxg7 27. Rxg7 He5 Ef 27. — Kxg7. 28. Hxf7f, Kxf7. 29. Dxh7f og mátar í nokkrum leikjum. 28. Rf5 Rf6 29. Dg5 gefið imgi R. Jóh. ABCDEFGH Hvítur mátar í 5 leikjum. SKÁKÞRAUX Höf. M. Hawl. — Hvítur mátar í 5 leikjum. Lausn í næsta þætti. Varð af Færeyjaförinni DRENGURINN Bent Bjarnason, sem í fyrrdag varð á Vespu fyrir bifreið í Kópavogi, og sagt var frá í blaðinu 1 gær, reyndist við- beinsbrotinn og liggur nú á sjúkrahúsi. Bcnt ætlaði með fim leikaflokki Ármanns með Hekl unni til Færeyja þá um kvöldið, en komst ekki. í fréttinni í blaðinu rugluðust skrásetningarnúmerin á Vespu- hjólinu og bifreiðinni, sem það varð fyrir. Var bíllinn með G númerinu og hjólið R-númeri. Samkomur Fíladelfia, Hátúni 2. Biblíulestur kl. 8.30. Allir vel- komnir. Graflistarsnillingurinn próf. Hans Itlúller látinn Vopnahléi lýst yfir HAAG, 18 ágúst (NTB). — í dag var í Hollandia á Nýju-Guíneu opinberlega iýst fyrir vopnahléi milli hollenzkra og indóneskra herja á Vestur Nýju-Guíneu. Skýrði hollenzka fréttastofan frá því að fulltrúar Sameinuðu þjóðanna mundu fylgjast með því að vopnahléið yrði haldið, og eru þeir væntanlegir til Hollandia eftir helgina FYRIR fáum dögum barst mér andlátsfregn þýzk-bandaríska graflistarmannsins próf. Hans Alexanders Miillers, sem mörg- um mun hér minnisstæður frá dvöl hans hérlendis og kennslu hans í tréristu og tréstungu á námskeiði í Handíða- og mynd- listaskólanum árið 1952. Flutti hann þá einnig erindi í háskól- anum um graflist að fornu og nýju. Var þá og haldin fjölsótt sýning á allmörgum verka hans hér í bæ. Prófessor Múller, sem var Þjóðverji að ætt og uppruna, lézt' í byrjun júlí sl., rúmlega 74 ára að aldri. Skömmu eftir lok fyiTÍ heimsstyrjaldarinnar gerðist hann kennari við graf- listarháskóla þýzka ríkisins í Leipzig. Fram til ársins 1937 n/óji/ji Jón Sfeingrímsson og Þuríður Cuðjónsdóttir Dáinn 14. júlí 1962. Fædd 26. október 1906. Dáin 13. ágúst 1962. FYRIR réttum mánuði var Jón Steingrímsson til.moldar borinn. Hafði hann kvatt mjög skyndi- lega, er hann var á ferðalagi í starfsmannahópi. Hann hafði kennt sjúkd.óms síi)s síðasta tímabils ævi sinnar, en starfs- kraftur hans og hugur var svo mikill, að ekki mátti minnast á við hann að hvíla sig frá störf- um, nei hann mætti til vinnu sinnar fram á síðasta dag. — Fyrsta hluta starfsævi sinnar var Jón sjómaður, og þótti dug- andi formaður, en vegna veiki er hann fékk þurfti hann að hætta sjómannsstörfum. En allt- af hneigðist hugur hans til hafs- ins. Jón var starfsmaður hjá Völundi hf. í Reykjavík um 40 ára skeið. Ég var oft vitni að því, að hringt var í Jón utan starfstíma og hann beðinn að hjálpa einhverjum bygginga- manninum, er var stopp vegna vöntunar á efni, og alltaf brá Jón skjótt við og bjargaði mál- unum. Þetta er aðeins eitt dæmi um hjálpfýsi hans og Minning samvizkusemi. Jón fæddist á Sölvhóli í Reykjavík árið 1889, er því einn af þeim fáu, sem sá með eigin augum Reykjavík stækka frá litlu þorpi í borg. Jón var tví- kvæntur. Fyrri kona hans var Steinunn Sigríður Guðjónsdóttir frá Bakkagerði. Hann missti hana eftir mjög stutta sambúð og einnig ungbarn þeirra. Seinni kona hans var Þuríður Kristín Guðjónsdóttir frá Bakka gerði, Stokkseyri. 1 dag, sléttum mánuði seinna er kona Jóns jarðsett. Dúa eins og við öll kölluðum hana. Dúa var búin að líða af mjög erfiðum sjúk- dómi áratugi, en þrekið var ó- trúlega mikið. Alltaf stóð hún upp aftur eftir erfiðari og erfið- ari sjúkdómslegur. Þrátt fyrir sjúkdóm hennar var heimili þeirra Jóns og Dúu með glæsi- legustu heimilum hvað myndar- skap snerti. Þar fór saman starfsorka og útsjónarsemi, sem mér finnst okkur unga fólkinu ganga svo erfiðlega að læra. — Heimili þeirra var mjög gest- kvæmt, og mér fannst það allt- af vera miðstöð fjölskyldnanna. Dúa fæddist árið 1906 á Bakka- gerði, Stokkseyri, og ólst þar upp í stórum systkinahópi. Stór skörð eru komin í þann hóp. Er Sigríður heitin, systir Dúu, og fyrri kona Jóns, lagðist sína banalegu, fór Dúa til þeirra og var þeirra stoð þann erfiða tíma, þó ung væri. Þremur árum seinna, eða 17. ágúst 1928, giftust Jón og Dúa. Þau hafa eignast þrjú börn, en eitt þeirra misstu þau eins árs gamalt, Svövu litlu. Börn þeirra tvö er eftir lifa eru Einar, Eskihlíð 10 A og Steinunn Sigríður, Hverfisgötu 100. Eins og sjá má af framantöldu þá hefur lífs- braut þeirra hjóna ekki alltaf verið rósum stráð. Oft hefur mér fundist tilveran ögra þreki einum of, en alltaf stóðust þau storminn. Síðasta stóra högg Dúu af mörgum, var er hún missti mann sinn. Dáðist ég þá mjög og undraðist þrek hennar, en eftir jarðarför hans lagðist hún sína banalegu. Mikil og erfið er sorg og söknuður syst- kinanna frá Hverfisgötu 100. Strax er þau voru búin að sjá eftir föður sínum í gröfina, kom baráttan við sjúkdóm móðurinn- ar, sem oft hafði verið erfið en aldrei eins og nú. Jón og Dúa, ég þakka ykkur fyrir alla þá aðstoð og hlýju, sem þið hafið veitt okkur syst- kinunum frá Sólheimatungu, bæði í blíðu og stríðu. Þið eigið stóran hluta í því veganesti er ég hef fengið á lífsleiðinni. Móð- ur okkar studduð þið alltaf, bæði lífs og liðna. Við kveðjum ykkur, allir ástvinir ykkar með þakklæti fyrir allt. Sissa, Einar, Dísa og barna- börn, ég votta ykkur mína ein- lægu samúð og veit að það gera allir ástvinir ykkar. Selma Júliusdóttir. starfaði hann við þessa merku stofnun, lengst af sem forstöðu- maður og aðalkennari tréristu- og tréstungudeildar skólans. Nemendur hans á þessum árum skiptu hundruðum og sóttu til hans hvaðanæfa að, enda var graflistarháskólinn þýzki þá í fararbroddi á sínu sviði og pró- fessor Muller hinn óumdeildi meistari. Mun það vart ofmælt þótt sagt sé, að á þessari öld hafi fáir stuðlað meira en hann að tæknilegri fullkomnun og mótun og þróun listrænnar tré- ristu og tréstungu. Eftir að nazistar höfðu lagt dauða, lamandi hönd sína á frjálsa listsköpun í Þýzkalandi fór um próf. Múller eins og svo margra aðra listamenn og and- ans menn þýzku þjóðarinnar, að hann sá sig til þess knúinn að yfirgefa föðurland sitt (1937). Leitaði hann þá athvarfs í Bandaríkjunum fyrir sig og konu sína og tvo unga sonu þairra hjóna. Skömmu eftir að vestur kom gerðist hann kenn- ari í graflist við myndlistadeild Columbia-háskólans (School of Painting and Sculpture) í New York. Flest árin kenndi hann einnig á námskeiðum við fleiri ameríska listaskóla. Um sjötugt ■lét hann af kennslustörfúm fyrir aldurs sakir. Síðustu tvö árin var hann þrotinn að heilsu. Einum af gömlum nemendum hans, Lynd Ward, sem af flest- um.er talinn í fremstu röð am- erískra tréstungumanna, fórust fyrir nokkrum árum svo orð um próf. Múller og list hans: „Um sex aldir hafa myndræn tré- rista og tréstunga verið iðkað- ar. Listamenn hafa komið og farið, en aðeins örfáum útvöld- um var gefin sú náðargáfa og sá listræni næmleiki hugar og handar og það vald yfir efni- viðnum, að fá skapað úr honum og með honum frábær listaverk. Prófessor Alexander Múller er einn þessara fáu útvöldu." Mikið og frábært dagsverk liggur að baki próf. Múllers. — Auk lýjandi kennslustarfa um meira en fjóra áratugi gafst honum tóm til að semja og mýndskreyta sjö bækur sínar, ennfremur skóp hann og skar myndir í fleiri en 50 vandað- ar útgáfur víðkunnra rita eftir aðra, m. a. Knut Hamsun. — Frægastar munu þó vera tré- ristu- og tréstungumyndir hans í „Don Quixote" eftir Cervant- es, sem gefin var út af Book-Of- The-Month Club. Enn er ótalinn aragrúi af ristu- og stungumynd um frá hendi hans. Ekkja próf. Múllers, frú María Riethof-Múller, er systir frú Annie Leifs píanókennara hér í bæ. Unnendum grafiskrar mynd- listar og okkur, vinum próf. Múllers, er fráfall þessa merka lista- og mannkostamanns til mikils sjónarsviptis. Lúðv. Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.