Morgunblaðið - 28.08.1962, Side 3

Morgunblaðið - 28.08.1962, Side 3
Þriðjutlag'ur 28. &gúst 1962 MORCVNBLAÐIÐ 3 oMm t^'^>!Sr!^?K5?J5PIfi!S^SSfí!!9i FLUGKEPPNI Flugmála- félags íslands, önnur í röð- inni, fór fram á sunnudag. Þátttakendur voru alls 20, bæði atvinnuflugmenn og áhugamenn. 10 flugvélar voru notaðar og í hverri var, auk flugmanns, að- stoðarmaður. Sigurvegarar urðu Gunn ar Arthursson og Kristján Karl Guðjónsson, siglinga- —....... ——: Yfirlitsmynd, er sýnir hluta þeirra flugvéla, alls 10, er notaöar voru i keppninni. Flugkeppnin á sunnudag fræðingur hjá Loftlciðum. Gunnar, er flaug, hefur atvinnuflugmannspróf, en hefur þó ekki flug að aðal- atvinnu. Keppnin var fólgin í Shell bikarinn því, að flogið var austur fyrir fjall og farið yfir á- kveðna staði á ákveðnum tíma, skv. fyrirframgerðri áætlun. Síðan var haldið aftur til bæjarins og lauk keppninni með marklend- ingum. Keppt var um „Shell“- bikarinn, er Olíufélagið Skeljungur gaf til keppn- innar. Er það farandbikar, sem einu sinni hefur verið keppt um áður, 1957. Verð- ur bikarinn afhentur sig- urvegurunum á Flugmála- hátíðinni, er haldin verður í nóvember í haust. Reynir á nákvæmni Flugkeppni af þessu tagi er fyrst og fremst miðuð við það, hve nákvæmlega flug- merrn og siglingafræðingar geta fylgt fyrirframgerðri á- ætlun. Þá er einnig reynd hæfni manna til að lenda á ákveðnum stað á braut, bæði með hreyfli í lausagangi og með hreyflinum gangandi, þ. e. eins og í venjulegri lend- ingu. Hverri áhöfn var fengið lokað umslag, með upplýsing- um um flugleið, hálftíma fyr- ir flugtak. Þá var það verkefni sigl- ingafræðingsins að kortleggja leiðina. Allar flugvélarnar fóru sömu leiðina, en lögðu upp með nokkru millibili. Flugleiðin Fyrst var flogið að ölfusár- brú, síðan að stað, sem gef- inn var upp í lengdar- og breiddargráðum, og mun það hafa verið vegamót Gullfoss og Geysisvegar. Þaðan áttu keppeíídur svo að fljúga yfir þriðja staðinn, sem gefinn var upp sem fjarlægð frá tveimur öðrum stöðum. — Reyndist sá staður vera Brúsastaðir. Loks var flogið til Reykja- víkur, og lauk hringfluginu, er vélarnar komu yfir flug- turninn á Reykjavíkurflug- velli. Yfirleitt mun áætlun flug- mannanna hafa staðizt, þann- •ig að mjög litlu munaði á á- ætluðum flugtíma, oft ekki nema brot úr mínútu. Marklendingar með stöðvaðan hreyfil Þá var það einn liður keppninnar, er sjálfu hring- fluginu var lokið, að hreyflar voru stöðvaðir í 1500 feta hæð yfir vellinum, en vél- arnar látnar svífa niður og snerta jörð á ákveðnum stað. Þá var æfingin endur- tekin með hreyfilinn gang- andi. Loks var flugmönnum gert að varpa til jarðar kefli, úr 150 feta hæð, í hring, er dreg- inn hafði verið á jörðina, og var ekki nema 5 í radíus Tókst sú æfing misjafnlega, og mun enginn keppenda hafa náð að hitta í hringinn. Áhugi mestur fyrlr módelum? — Lá við umferðartruflun Þá sýndu nokkrir áhuga- menn flugmódel, og voru þau af ýmsum gerðum, sum svif- Framh. á bls. 15. Þeir sigruðu Morgunblaðið átti í gær stutt samtal við þá Gunn- ar Arthúrsson, en hann var sá flugmaðurinn, sem bezt um árangri náði í flug- keppninni á sunnudaginn, og Kristján Karl Guðjóns- son, loftsiglingafræðing, er var honum til aðstoðar á fluginu. Gunnar var hógvær um afrek sitt, en sagðist vilja þakka félaga sínum, Kristj áni Karli, 'hve vel þeim hefði gengið. „Leiðsaga hans var frá- br/r“, sagði Gunnar, „og án hans hefði ég ekki sigr að. Bg vil þakka bonum meirihlutann". Gunnar skýrði svo frá, að hann hefði hafið flug- nám snemma árs 1059, og rúmu ári síðar, eða haustið ’60 hefði hann tekið einka íiugmannspróf. Síðan hefði 'hann haldið áfram námi, og lokið at- vinnuflugmannsprófi ári síðar. Flugvélin, sem þeir fél agar notuðu, er eign „Fiug sýnar h.f.“, Cessna 140. Hún er byggð í Bandaríkjunum 1947 og getur borið tvo menn. Mesti flughraði hennar er um 125 mílur á klukku stund, en meðalflughraði toennar í keppninni mun hafa verið um 100 mílur. Er Gunnar var að því spurður, 'hve þeim félögum hefði tekizt að halda áætl un, þá sagði hann, að skv. þeim klukkum, sem þeir hefðu haft í keppninni, þá hefðu þeir verið 15 sek. á eftir áætlun til Reykjavík ur. Flugleiðin 1á austur um fjall, yfir Ölfusárbrú, vega mótin Gullfoss-Geysir og loks yfir Brúsastaði til Reykjavíkur. Þetta verður að teljast undraverð nákvæmni, og hefur vafalaust verið þungt á metunum, er dómnefnd- in felldi úrskurð sinn. Aðspurður kvaðst Gunn ar telja, að marklendingarn ar hefðu gengið allvel, og þá hefur Mbl. fregnað, að, þeir félagar, Gunnar og Kristján Karl hafi sýnt mesta nákvæmni í að varpa keflinu í 'hringinn það mun hafa lent um 9 m frá mið punkti. Gunnar hefur atvinnu- flugmannspróf, eins og áð ur segir, en hefur bó eink um starfað við útvarps- virkjun. Hann hafði um miðjan dag í gær verið í lofti 334 tíma og 30 mín, en sá tími hefur e. t. v. lengst síðan, því að hann flýgur einnig fyrir „Flug- sýn“. Kristján Karl, (t.v.) og G unnar flugvélina, Þá ræddi Mbl. stuttlega við Kristján Karl. Hann sagðist alls ekki hafa bú- izt við þessu, allra sízt þar sem hann hefði ekki ákveð ið þátttoku sína fyrr en á sunnudagsmorgun þá ver ið ný^komin til landsins, eftir næturlangt flug, og ekki sém bezt sofinn. Sama hógværðin ein- kenndi ummæli hans og Gunnars, og vildi hann lít ið gera úr flugleiðsögn sinni. Kristján hóf flugnám 1953 Nam hann fyrst hjá Flug- skólanum „Þyt“, og lauk þar um helming tilskilins flugtíma, auk bóknáms. Árið 1958 hélt hann til Kanada, þar sem hann hélt náminu áfram, og lauk þaðan atvinnuflugmanns- prófi 1959. Eftir það flaug hann m.a. flugvél, er dreifði skordýraeitri, þar vestra. Hingað heim kom hann á sl. ári. Hann réðist þá til starfa hjá Loftleiðum, sem sigl- ingafræðingur, en námi í þeirri grein hafði hann þá einnig lokið. Eftir 4 mánaða reynslu- tíma var hann fastráðinn, og hefur starfað hjá félag inu síðan. Aðspurður um það, hvort hann langaði ekki til að skipta, og fá að setjast í flugmannssætið í vélum Loftleiða sagði Kristján, eð ekki gæti hann neitað því — e.t.v. kæmi að því að þörf yrði fyrir nýja flugmenn — og þá væri aldrei að vita. Kristján hefur um 550 tíma í lofti, fyrir utan þá flugtíma, sem hann hefur sem loftsiglingafræðingur. STAKSTEIMAR Umm aeli viðskiptamálaráðherra Viðskiptamálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason, gerði í „Al- þýðublaðinu“ sl. sunnudag grein fyrir ýmsum viðhorfum sínum varðandi viðskipti tslendinga við löndin austan járntjalds. — Þyk- ir rétt að birta hér frásögn blaðs- iras af ummælum ráðherrans, svo sem rúm leyfir: „Viðskipti fslendinga við Tékkó slóvakíu, Pólland og Austur- Þýzkaland hafa orðið umfangs- mikil vegna þess að þessar þjóðir hafa sumpart greitt hærra verð fyrir vörur okkar en aðrir og sumpart tekið vörur, sem ekki hefur verið markaður fyrir ann- ars staðar. Á hinn bóginn hafa þessar þjóðir selt okkar vörur, sem sumpart hafa verið dýrari og umpart hefur skort gæði eða útlit, sem vörur annarra landa hafa. Þessi verðmunur var á báða bóga mun meiri en hann er nú. Ég er þeirrar skoðunar, að bezt væri fyrir báða aðila að þessi verðmunur hyrfi alveg; Þessar þjóðir eiga að kaupa af okkur á sama verði og aðrar við- skiptaþjóðir og selja okkur á sama verði og þær selja öðrum. Vegna þess sérstaka skipulags, sem er á utanríkisviðskiptum þeirra, er sjálfsagt að gera áfram tvihliða viðskiptasamninga við þessi lönd, og fyrst það virðist nauðsynilegt að tryggja innan- landsmarkaðinn hér fyrir vörur þeirra með sérstökum höftum tel ég rétt að gera það. En út- flytjenaur þess- ara landa verða að skilja, að það má ekki tii I e n g d a r vera neinn verulegur munur á þvi verði sem þeir setja hingað til lands og til ann- _ arra landa, né heldur á gæðum þeirrar vöru sem þeir selja okkur og sams konar vöru sem fáanleg er annars staðar.“ Munur, sem ekki verður þolaður Og i frásögn „Alþýðublaðsins" af ummælum ráðherrans segir síðan: „Ef slíkur munur er áberandl hélt viðskiptamálaráðherra á- fram, er hætt við, að stjórnar- völdum, sem hafa hug á að halda uppi viðskiptum með slíkum hætti, verði beinlínis ekki þolað það, þar eð kröfur almennings um betri og ódýrari vörur verða háværari en svo, að gegn þeim verði staðið. Og þegar þessi verð- munur er horfinn, ætti ekki held ur að vera sama þörf á höftum til verndunar viðskiptunum og nú er. Gylfi kvaðst telja rétt að halda í grundvallaratriðum því skipu- lagi, sem er á viðskiptunum, ekki aðeins við Sovétríkin, held- ur einnig við Tékkóslóvakíu, Austur-Þýzkaland og Pólland, enda væru þessi viðskipti mikil- vægur þáttur í þjóðarbúskap ís- lendiriga. Þótt við séum eina þjóð in í Vestur-Evrópu, að Finnum og Austurrikismönnum frátöld- um, sem vernda viðskipti sín við Austur-Evrópu með höftum, þá eigum við ekki að breyta þessu viðskiptakerfi. í öllum viðræð- um, sem fram hafa farið við for- ystumenn Efnahagsbandalagsins og sex-veldanna, hefur jafnan verið lögð áherzla á, að fslend- ingar teldu nauðsynlegt að geta haldið viðskiptum sínum við Austur-Evrópulöndin. En við- semjendur okkar í Austur- Evrópu verða að gera sér full- komlega ljóst, að þessi höft má ekki nota til þess að selja hér á landi dýrari eða lakari vörur en þeir selja á öðrum mörkuð- um.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.