Morgunblaðið - 28.08.1962, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 28.08.1962, Qupperneq 20
•20 MORGVFBLAÐ1Ð Þriðjudagur 28. ágúst 1962 HOWARD SPRING: 24 RAKEL ROSING Jæja, frú Bright, hann hefur víst þurft að segja sitt af hverju þegar ég kom ekki í gærkvöldi? Nei, alls ekki, svaraði gamla konan, og skar sundur legginn á túlípana, áður en hún kom blóm- inu fyrir í vasa. Ég held hann hafi bara alls ekki tekið eftir því, að þér komuð ekki. Að minnsta kosti veik hann ekki að því einu orði. Það var eins og Mike væri ekkert hrifinn af þessum upptys- ingum. Gretturnar á andlitinu færðust heldur í aukana. Hann hefur vist ofmikið að gera að hiugsa um hana, sagði hann. Hvað finnst yður um hana, frú Bright? Gamla konan með hrukkótta, kringluleita andlitið, sendi hon- um augnatillit, eins og henni væri skemmt, en var þó ásakandi um leið. Mike langaði augsýni- lega til að heyra einhver niðr- andi orð. Ja, hr. Hartigan, sagði hún hægt. Ég vildi "bara, að ég væri svona ung og falleg. Þá skyldi ég ekki taka mér nærri það sem gömul og hrukkótt kerl- ing hugsaði um mig. Æ, æ, sagði Mike með viðbjóði. Þér talið eins og kurrandi dúfa í húsagarði. Ung og falleg, þó, þó! Er Maurice ungur og falleg- ur? Ný var ásökunin ein eftir í augum frú Bright. Hún sópaði saman stúfunum af blómastöngl- unum, fleygði þeim í eldinn og gekk svö út án þess að segja orð. Þarna sér maður! sagði Mike og þeytti hattinum á gólfið, en lyfti honum svo fimlega upp í stól með fætinum. En þá varð honum litið út um gluggann og sá leigubíl stanza fyrir utan, og hann var ekki lengi að koma auga á, að í honum var Maurice einn saman. Hann þaut út um dyrnar og yfir gangstéttina. Jæja, Maurice! æpti hann og reif upp hurðina. Það var gaman að sjá þig aftur. Komdu inn fyrir. Andlitið á Maurice Ijómaði af ánægju. Hjálpaðu mér út, Mike, sagði hann. Gleymdu því ekki, að síðan við sáumst seinast hef ég eignazt konu en misst afnotin af þessari löpp minni. Það gerir andskotann ekkert, aagði Mike. Áður en þú getur litið við verðið þið frú Banner- mann farin að leika eltingaleik, ycfir torgið hérna. Komdu. Láttu mig sjá, hvernig þú staulast. Og Maurice gekk furðanlega að 6taulast. Hann lagði frá sér frakka, staf og hatt í forsalnum og hélt áfram inn í lestrarstofuna sína. Seztu nú niður, sagði hann, og Mike lét fallast í græna leður stólinn andspænis húsbónda sín- um. Hver skrattinn varð af þér í gærkvöldi? Það var naumast að þú bauðst okkur Rakel velkom- in, eða hitt þó heldur. Mike Hartigan roðnaði og ið- aði með fæturna á gólfteppinu. Ja, þú skilur, Maurice .... það var áriðandi mál .... Og þakka þér fyrir brúðkaups gjöfina, tók Maurice fram í. Það er allt í lagi, svaraði Mike, en þú hefur nú ekki hendiur í hári mínu á því. Hann dró upp vindlahylki úr silfri með fanga- marki Maurices á. Þakka þér fyrir, sagði Maurice. Og þetta er handa okkur báðum skilst mér. Hendurnar á Mike, sem héngu niður á fhilli hnjánna á honum, krepptust vandræðalega. Jæja, hafðu það eins og þú vilt, Mike, sagði Maurice. Þú stakkst af vegna afbrýðissemi við Ra-kel. Þú hagaðir þér eins og stór krakkabjáni. Og það ertu lika og mér líkar vel við þig. En hvort sem konan mín fellur þér í geð eða ekki, þá skaltu að minnsta kosti láta eins og hún ceri það. Ertu með á nótunum? Mike kinkaði kolli án þess að svara neinu. Gott og vel. Það er ágætt. — Sjáðu nú til: ég ætla að tala við þig um þessa skáldsögu mína. Maurice fór að tala og Mike hallaði sér aftur og tottaði píp- una sína. Og þeim leið vel, öll- um þremur, því að Ómar, köttur- inn, hafði komið inn og stokkið upp á öxlina á Mike og hringaði sig þar eins og skrautlegur loð kragi, og virtist hlusta með at- hygli á það sem Maurice vildi sagt hafa. 4. Rakel hafði ekki gengið langt fram hjá Selfridges í áttina að Oxfordtorginu, þegar Akbar fór að toga æ fastar í tauminn eins og hann hefði eitthvað sérstakt í huga. Það var greinilegt að hann ætlaði sér eitthvað ákveðið og gæti orðið erfiður. ef hann fengi ekki að fara þangað. Þegar hún hugsaði til þess, að hún hefði alla Lundúnaiborg til umráða, var henni nokkurnveg- inn sama hvert hún færi, og leyfði því hundinum að ráða ferðinni og elti hann. Hann fór yfir götuna, hélt svo áfram nokkur hundruð skref, en sneri þá þvert til hægri. Þetta varð hálfgerð vonbrigði. Rakel hafði fljótt komizt að raun um, að Oxförstræti var svo sem ekkert sérstakt. Samt var það nú verzlunargata, sem út af fyrir sig gerði götuna eftirsóknar- verða, en nú var Akhar að teyma hana inn í fátæklegar bakgötur þar sem óhreinindin tóku við, bak við glæsilega framhlið, eins gengur og gerist í flestum borg- um. Hún varð vonsvikin og hneyksl uð. Hér átti bún alls ekki heima. Hvað sem Löndon kynni að vera, ætti hún að minnsta kosti ekki að vera svona — klunnalegir klettar úr óhreinum múrsteini, með þúsundum glugga, svo að þeir litu út eins og aflagaðir býkúpur. Hún sá óþrifaleg börn vera að leika sér í húsagörðun- um, og yfirleitt varð allt þetta umhverfi til að minna hana á hennar eigin uppvöxt í fátækt og örbirgð. Ekki orkaði þetta þó neitt sér- lega á hana, sálrænt — hún fann ekki til neinnar sérstakrar reiði yfir því, að Portmantorgið skyldi vera öðrumegin Oxfordstrætis og þessi óþverri hinumegin. Aðeins fann hún, að hún hataði þetta, en að þeir . sem vildu gera sér það að góðu, mættu þá gera sér það að góðu, en hvað hana sjálfa snerti þá ætlaði hún að flýta sér í allt lífið of fjörið, sem ríkti i aðalgötunni. En Akbar var bara ekki á sama máli. Hún reyndi að toga hann með sér, en hann sat fastur sem klettur. Hann spyrnti fram- löppunum í gangstéttina, svo að hún komst ekkert áfram, nema því aðeins að hún vildi draga hann eins og hvern annan dauðan hlut. Hún stanzaði, steinhissa. En undir eins og slakað var á taumnum, færðist aftur líf í Ak- — Haltu þér saman. Það spurði enginn hvað þér fyndist. bar, hann flaðraði upp um hana, slengdi út úr sér spannarlangri slefugri tungunni og brosti um leið og hann gekk upp og niður af mæði. En svo kom hann til jarðar aftur og togaði í áttina, sem hann hafði áður sótt í. Hún varð að elta hann. Hann slagaði til hægri og vinstri gegn um stuttu göturnar og smugurn- ar, með auknum hraða. Loðna skottið dinglaði til og frá er hann dró hana með sér á harða brokki. Snögglega beygði hann til vinstri. Hún tók eftir áletrun, sem stóð þar á húsvegg: „Andagarðurinn", og er sú gata var hálfnuð stað- næmdist Akbar, sló skottinu á síðurnar á víxl, og gelti glaðlega. Gluggi opnaðist og höfuðið á Julian Heatih kom út. Ja, nú er ég fyrst hissa! æpti hann. Já, steinhissa. Og svo söng hann, glaðlega: Reyndu að halda stöð- unni þangað til ég kem, og sneri frá glugganum. Hún heyrði fima fætur hans koma skröltandi niður stigann.. Svo opnuðust dyrnar og Akbar tók viðbragð og reif taum inn úr hendi Rakelar, hljóp upp um Julian og sleikti hann í fram- an. Velkomin í Andagarðinn sagði Julian. Líttu kring um þig og skoðaðu lávarðahöllina, sem við búum L Andagarðurinn ’var fyrrver- andi hesthúsaþyrping. öðrumeg- in var hátt múrhús, sem sneri bak inu með fyrirlitningu að húsa- garðinum. Annars var þarna litið að sjá, annað en gamalt tré, sem hafði verið klippt hvað eftir ann- að. svo að lítið var orðið eftir af því, og stofninn allur skellóttur, þar sem greinar höfðu verið sag- aðar af því. Það var næstum blaðlaust og virtist að falli kom- ið. Marilyn Monroe eflir Maurice Zolotov 131 Eins og við var að búast og vera ber í slíkum stofnunum, var lífið þarna í hælinu mjög reglu- bundið og tilbreytingarlaust. — Með uppreisn sinni gegn stund- visi og hlýðni hefur Marilyn lík- lega verið að bæta sér upp þessi ár. Börnin voru vakin klukkan sex á morgnana með glymjandi hringingu. Síðan bjuggu þau um rúmin sín. Þá var þeim safnað saman og síðan var gengið í röð- um inn í borðsalinn á neðri hæðinni. Borðsalurinn var stór °g veggirnir skreyttir í bláum lit. Bæði borðsalurinn og eldhús- ið var tandurhreint. Börnin sátu við smáborð, fjögur við hvert. Maturinn var eins" og gerist í fyrsta flokks sjúkrahúsum — en engu að síður hefur Marilyn sí- fellt verið að gefa í skyn, að börnin hafi verið neydd til að eta viðbjóðslegan mat, af sömu tegund og þann, sem kemur af stað fangauppreisnum í kvik- myndum hjá Warner Brothers. Eftir máltíðina voru eldri börn in — og þá einnig Norma Jean — stundum látin hjálpa til að þvo upp. Nú segir hún, að hún hafi orðið að þvo upp 100 bolla og 100 hnífapör og skeiðar þrisvar á dag„ alla sjö daga vikunnar. Ennfremur segist hún hafa ver- ið látin skúra salerni og hreinsa baðker. Yfirleitt hefur hún gefið út heldur ósamhljóða skýrslur um þetta skeið ævi sinnar. Hin „opinbera“ ævisaga hennar segir, að hún hafi fengið tíu sent^ á mánuði fyrir að vinna í eldhús- inu. Við einn blaðamanninn sagði hún: „Ég sá aldrei einn eyri. Það var allt látið í jólasjóðinn. Það var venja, að litlu stúlkurnar tóku svo út aurana sína fyrir jól- in og keyptu fyrir þá jólagjafir í búðinni á horninu. Einhverjar nytsamar gjafir, eins og stíla- kompur og blýanta". öðrum blaðamanni sagði hún, að hún hefði fengið fimm sent á viku fyrir vinnu sina í eldbúsinu — 20 sent á mánuði — og svo tíu sent aukalega á mánuði fyrir vinnu í búrinu. „Og af þessari auðlegð" bætti hún við,“ varð ég að láta tvö sent í kirkjusöfn- unina á hverjum sunnudegi. Ég gat aldrei skilið, hversvegna fólk ið var að taka svona aurana frá munaðarleysingja." En í viðtali við TIME, 1956, hafði hún leiðrétt kaupið sitt og lækkað það niður í fimm sent á mánuði. Af þessu fór helmingur- inn í söfnunina, en hinn helm- ingurinn var eyðslueyrir sem hún notaði til að kaupa sér nýtt hárband á hverjum mánuði. Eng- ar skýringar fylgdu á því, hvern- ig stílakompurnar og blýantarnir komust að í þessari fjárhags- áætlun. Það er enginn vafi á því, að henni hefur sjálfri fundizt hún illa með farin. en þó man Clarice Evans, sem seirina leigði með Marilyn Monroe, eftir því, alveg greinilega, að Marilyn sagði henni sjálf, að mikið hefði það verið spennandi, þogar hún vann í fyrsta sinn fyrir „alvöru- peningum“ með því að hjálpa til að leggja á borð og þvo diska í munaðarleysingjahælinu". Hvort er nú sannleikur? Áreið- anlega hvorttveggja í augum hennar sjálfrar. Allar leikkonur eru gefnar fyrir að gera sjálfar sig sögulegar, koma sjálfum sér í hlutverk og leika það svo á sannfærandi hátt. Aldrei ljúga þær! Og ekki geta þær komizt í mótsögn við sjálfar sig, því að þær trúa alltaf því, sem þær eru að segja, þá stundina. I hælinu voru bæði leikir og íþróttir, sem Marilyn nefnir ekki einu orði. Að húsabaki voru fimm ekrur lands, þar sem börn- in léku sér á hverjum degi, síð- degis. Þar voru rólur,- sölt, klif- urslár Og sandkassar, ennfremur sundlaug. Og innanhúss var stór leiktofa með útvarpi, grammó- fóni, leikföngum og áhöldum. Þar var líka salur með leiksviði, og þar léku börnin í leikritum og söngleikum. En ekki kemur neinsstaðar fram, að Norma Jean hafi nokkru sinni tekið þátt í slíku. Hún lá á kunnáttu sinni í fingrafimi, hnífakasti Og húla- dansi. Eitthvað fjórum eða fimm mán uðum eftir að Norrna kom þarna, fékk hún þunglyndiskast. Það kom yfir hana einn rigningar- dag. Regnið minnti hana jafnan á föður hennar og þá langaði hana alltaf að fara á flakk. Og einn daginn, þegar hún var á leið heim úr skólanum, læddist hún út úr röðinni og flýði. Efck- ert vissi hún, hvert halda skyldi, heldur flæktist hún um, stefnu- laust, í bullandi slagveðrinu. Lög regluiþjónn nokkur fann hana og fór með hana í lögreglustöðina, og þaðan var farið með hana í skrifstofu frú Dewey. Þar var hún færð í þurrt. Hún bjóet við barsmið, en í þess stað tók frú Dewey hana í faðm sér, og sagði, að hún væri falleg. Svo púðraði hún nefið Og kinnarnar á Normu. Árið 1950 sagði Norma frá þessu atviki Sonju Wolfson, sem var eins konar blaðafultrúi hjá 20th Century Éox, og bætti þá við í trúnaði: „Þetta var í fyrsta sinn, sem ég varð þess vör, að nokkrum {>ætti vænt um mig — og enginn hafði þangað til tekið eftir andlitinu eða hárinu á mér“. Ungfrú Wolfson skrifaði þessi ummæli niður á staðnum. Á jóladag var farið með börnin á samkomu hjá RKO, þar sem sýndar voru myndirnar af Mjall- hvít og dvergunum sjö. Á eftir var þeim gætt á rjómaís og ávaxtadrykk, og sóðu fyrir því nokkrir leikarar, sem vildu gjarna fá einhverja auglýsingu um góðgjörðasemi sina. Börnin söfnuðust saman kring um helj- arstórt jólatré, ljósmyndarar voru önnum kafnir að smella á þau og leikarana, sem reyndu að sýna sig frá sem glæsilegustum hliðum, og útbýttu síðan jólagjöf um til barnanna. Norma Jean hlaut hálsfesti úr glerperlum. Eg spurði einusinni frú Ingra- ham, hvers vegna munaðarleys- ingjahælið hefði látið Marilyn þvo upp, borgað henni svon smánarlega og loks látið börnin leggja aurana í samskotabauk- inn. Frú Ingraham andvarpaði: „Já, eg veit svei mér ekki, hvers vegna ungfrú Monroe er að segja þessar reyfarasögur um okkur. Og þær eru svo prentaðar, hvern ig sem þær eru. Við þurfum ekki að fyrirskipa börnunum neina vinnu, þar sem við höf- um fullt starfslið, þar í talið hús- móður fyrir hver tíu börn. Og í eldlhúsinu höfum við líka nægi- legan vinnukraft til að sjá um allan uppþvott. En þar fyrir gef- um við börnunum smá-verkefni og borgum þeim fyrir þau. Við gerum þetta af ásettu ráði, tii þess að börnum finnist sjálfum þau vera til einhvers gagns, og svo til þess að þau eignist smá- aura, sem þau geti keypt sér eitthvað fyrir, eftir eigin geð- þótta. Þessi saga hjá Marilyh, að við höfum látið hana þvo upp þrisvar á daig, er ekkert annað en heiber vitleysa. Það mundi taka krakka fjórar klukkustund- ir að þvo upp þetta marga diska. Hvernig gæti Marilyn hafa kom- izt yfir skólann og heimalestur- jnn og samt verið komin í rúmiS klukkan níu, en þá er slökkt, — ef hún átti líka að þvo upp svona marga diska þrisvar á dag?“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.