Morgunblaðið - 29.08.1962, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.08.1962, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 29. ágúst 1962 MORGVNBLAÐ1Ð 13 frá samgöngum á landi við aðrar byggðir. Mynd sú, sem þessu skrifi fylgir, og tekinn er af Hannesi Baldvinssyni, sýnir hverjum erfiðleikum umrædd vegagerð er háð. Myndin sýnir um 14 m. háan ruðning, norðan f>úfnavalla. en þar var verið að fylla upp gil eitt torfært, svo aka megi ú bæ reknieik- anna, Hrólfsvelli. Önnur mynd, sem hér má sjá, tekin af Ólafi Bergmanns- syni, sýnir fjögur skip við hryggju í Siglufirði, hlaðin „demantssíld", sem og má sjá sýnishorn af á myndinni. Þau rök, sem 5 mynd þessari fel- ast, og undirstrika þá þýðingu, er Siglufjörður hefur fyrir þjóðarbúið, renna stoðum und ir þá þörf og nauðsyn, að Siglufjarðarvegur ytri, eða Strókavegur, verði lagður á næstu 2—3 árum. Hin forna staka, er fyrr var getið, er enn í gildi. „Þar er fallegt fiskimið, fyrir Siglfirðingum“. Og það ei þjóðhagsleg nauð- syn, að hér sé jafnan tiltækt nægt vinnuafl, til að nýta síld arar.ann, og Siglufjarðarvegur ytri er ein helzta trygging þess, að svo verði um nána framtíð. Viðreisnarstjórnin, sem þeg ar hefur lyft grettistökum í atvinnu- og efnahagsmálum þjóðarinnar, vinnur nú að gerð 5 ára framkvæmdaáætl- unar. Það er trú og von Sigl- firðinga, sem og Austur Skag firðinga er byggja vonir sínar um vaxandi bú og greiðfæra leið á nærliggjandi markað fyrir vörur sínar, að Siglufjarð arvegur ytri verði ofarlega á blaði þeirrar áætlunar. Og þá mun innan fárra ára verða þjóðvegur um Almenninga og Ulfsdali, sem nú eru í eyði, og hver veit nema að nýbýli eða sumárbústaðir rísi á græn um tóftum býla, sem hafa verið í eyði í alidir, og íslenzk börn gangi á ný smáum fótum út í sólskinið á túngarðinum, sem horfnar hendur hlóðu á 16. eða 17. öld. — Stefán. Rutt yfir hvalbeinið Siglufirði 22. ágúst. VESTAN Úlfsdala heitir á Al- menningum. Þar voru á öldum áður þrjú býli: Hrólfsvellir, sem voru í byggð um 1700, Þúfnavellir, sem þá voru þeg- ar í eyði, og Fálkastaðir, hvers byggðarsaga er gleymd. Má enn sjé minjar tveggja fyrst nefndu bíianna, en á Fálka- stöðum kunna fáir skil. Æva- forn staka, sem Bólu-Hjálm- ar skráði á blað og barg frá gleymsku, er ein heimilda um tilvist þess. „Þar er fallegt fiskimið fyrir Siglfirðingum. Fálkastaðir vaka við verið á Almenningum“. Þar sem enn mótar fyrir grónum túngarði Þúfnavalla stóðu í sumar^ skálar vega- vinnumanna, þeirra er ruddu Siglufjarðarveg ytra, allt frá þeirri fagurnefndu Heljartröð, út Almenmng í land Hrólfs- valla. Á Hrólfsvöllum bjó síðast ekkja ein, er ekki unni öðrum jarðarinnar, gróf hvalbein í yrkta jörð sína með fyrirmæl- um, að þar skyldu ekki aðrir una eftir hana. Þótti þar löng um reimt meðan landinn trúði enn á slík fyrirbæri. Sjálfsagt hefði fornum bú- endutn Almenninga þótt tíð- indum sæta, að sjá vinnuvélar þær, sem að verki voru í land areign þeirra í sumar, og ruddu veg yfir hvalbein kerl- ingar. Og ekki síður hitt, að vegur þessi verður lagður inn í fjallið, þar sem álfar bjuggu, og í gegn um það, allt til Siglu fjarðar. En Síglfirðingum dags ins í dag finnst hinsvegar, sem forneskjan ein ráði því, að vegur sá, sem framtíð bæjar- ins byggist á, skuli þegar lagð ur, og tengja kaupstaðinn þjóð vegakerfi landisins. Fréttamaður Mbl. brá sér á Almenninga fyrir skemmstu. Á túngarði Þúfnavalla, sem hlaðinn var horfnum höndum, og tíminn grefur smám saman í jörðu, hitti hann að máli Gísla Felixson, trúnaðarmann Vegamálastjórnarinnar, og Jó hann vegaverkstjóra Lúðvíks- son, frá Kúsikerpi í Skagafirði en þeir stjórna verkum ,við vegagerðina. Er skemmst frá því að segja, að þegar er rudd ur um 4 km. vegar frá Heljar- tröð, af um 13 km. leið að fyrirhuguðum jarðgöngum. Verk þetta er hinsvegar stöðv að nú, því f járlagafé er þrotið. Hún er semsé enn í tízku sú þröngsýna jafnaðarmennska í vegagerð. að skipta fjármagni til vegagerðar milli allra veg- arspotta, sem í landinu finn- ast, svo allir fái jafn lítið og öllum miði jafn skammt. Þar af leiðandi er ein heízta ver- stöð landsins, Siglufjörður, einangruð mestan hluta árs, IJnglingsstúlku vantar til sendií'erða á skrifstofu okkar. Solusamband íslenzkra fiskframleiðenda Aðalstræti 6, III. hæð._ Bílaviðgerðarmaður Viljum ráoa, sem fyrst, faglærðan bílvirkja, til að annast um viðgerðir á bifreiðum okkar. — Góð vinnu skilyrði. Umsækjendur snúi sér til skrifstofu okkar Upplýsingar er ekki hægt að gefa í síma. 0- JohnsoB & Koober hf. Noifíð hið frábœra danska SÖNDERBORG prjónasfarm sem maiur fter ekki grandað að Sætúni 8 (neðan bílaeftirlitsins). Ódýrt og vandað prjónagarn af mörgum tegundum. og . og litum. Selt um allt land. GARN H e i 1 d s ö 1 u b i r g ð i r : ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO. HF. Sími 18700.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.