Morgunblaðið - 31.08.1962, Qupperneq 1
24 siður
49 árgangur
198. tbl. — Föstudagur 31. ágúst 1962
PrentsmiSja Morgunblaðsins
Borgarastyrjold yfirvofaudi í Alsír
Herir hliðhollir Ben Bella
á leið til Algeirsborgar
4. svæðisherinn ætlar að verja borgina
Alsír, 30. ágúst — (NTB-AP)
STJÓRNABNEFND Ben Bella £ór þess á leit í dag við her-
Btyrk þann, sem henni er hliðhollur, að hann kæmi til Al-
geirsborgar, til að koma á ró í borginni, eins og sagði í yfir-
lýsingu frá stjómamefndinni. Hluti þessa herstyrks er nú á
leið til borgarinnar. 3. og 4. svæðisherirnir, sem andsnúnir
eru stjórnarnefndinni lýstu því yfir, að þeir mundu verja
Algeirsborg með öllum ráðum. Sá hluti hersins, sem hlið-
hollur er stjórnarnefndinni er miklu fjölmennari og betur
hiiinn, en 3. og 4. svæðisherinn. Yfirmaður 4. svæðishers-
ins lét í gærkvöldi dreifa flugritum þar sem hann lýsti því
yfir, að mikil hætta væri nú á því að borgarastyrjöld bryt-
ist út í Alsír.
• Stjórnarnefndin vísaði
dag á bug miðlunartillögu, sem
Ben Khedda, forsætisráðherra
útlagastjórnar Serkja, bar fram
í gær. — Belkacem Krim, sem
er einn af helztu andstæðingum
Ben Bella, kom til Algeirsborg-
ar í dag frá Tizi Ouzou í Kabyla-
héraði.
★
Myndin sýnir Atlas-Agenta
eldflaugina, sem flutti geiim-
farið Mariner 2 á braut til
Venusar, er henni var skotið
á loft frá Canaveral-höfða.
Eldfiauigin er 10 þrepa oig af
stærstu gerð, sem Bandaríkin
eiga. Mariner 2 er nú á leið ti'l
Venusar og menki, sem berast
frá geimfarinu gefa visinda-
mönnuim til kynna, að allt
gangi samikvæmlt áætlun.
Geimfarið fór, sem kunnugf
er lítillega út af fyriiihugaðri
braut og kemst þar af leið-
andi ekiki eins nálæigt Ven-
usi og áœtlað var í upphafi.
Vísindamenn telja þó, að mik
i'll árangur muni verða af
geimskoti þessu.
Samkvæmt fregnum frá áreið-
anlegum heimildum í Alsír kom
hluti herliðsins, sem styður Ben
Bella og stjórnarnefnd hans, 1
morgun inn á svæðið umhverfis
Algeirsborg án þess að mæta
mótspyrnu og í kvöld skýrði
franska fréttastofan AFP frá
því, að miklir liðsflutningar
ættu sér stað í áttina til borgar-
innar. Væru herir þeir, sem
næst væi*u komnir borginni, að-
eins 300 km frá henni
í flugritum þeim, sem yfir-
maður fjórða svæðishersins,
sem hefur völdin í Algeirsborg
í sínum höndum, lét dreifa í
gærkvöldi, sagði hann, að borg-
Framh. á bls 23
Krúsjeff og U Thant. Myndin var tekin er þeir hittust nálægt
Yalta á Krímskaga, en þar dvelst Krúsjeff nú í sumarleyfi.
Krúsjeff ekki vidsfaddur
setningu allsherjarþingsins,
sagði U Thant, að loknum viðræðum
við forsætisráðherran
Moskvu, 30. ágúst —
(NTB — AP) —
Heimsókn U Thants fram-
kvæmdastjóra SÞ til Sovét-
ríkjanna lauk í dag, en þá
flaug hann til Varsjár, þar sem
hann mun dveljast í tvo daga
og ræða við pólska stjórnmála
menn.
Áður en U Thant fór frá
Moskvu hélt hann fund með
fréttamönnum og sagði m.a.,
að Krúsjeff, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, hyggðist ekki
vera viðstaddur setningu alls-
herjarþings SÞ í september
n.k. Ennfremur sagði hann, að
Krúsjeff hefði lýst áhuga sín
um á því að deilurnar um
Þýzkaland leystust sem fyrst,
en ekki sagðist hann hafa
fundið neinn hljómgrunn, er
hann ræddi Kongómálið við
forsætisráðherrann og hann
teldi stefnu Sovétríkjanna í
málinu toyggða á ótta og tor-
tryggni.
U Thant sagði á fundinum
með fréttamönnum, að hann
teldi ekki útilokað, að Krú-
sjeff kæmi til New York á
meðan að allsherjarþing SÞ
starfaði þó að hann yrði ekki
við opnun þess. Sagði U Thant
að Krúsjeff hefði mikinn á-
huga á að ræða við Kennedy
Bandaríkjaforseta og látið í
ljós þá skoðun, að slíkur fund
ur gæti orðið þýðingarmikill.
Er Krúsjeff og U Thant
ræddu Þýzkalandsmálin, sagði
U Thant, að forsætisráðherr-
ann virtist hafa mikinn áhuga
á því að leysa þetta vandamál,
sem væri síðustu leyfar síðari
heimsstyrjaldarinnar. Bætti U
Thant við, að hann teldi ekk
ert benda til þess, að Krúsjeff
myndi leggja Berlínardeiluna
fyrir allsherjarþing SÞ, en sú
skoðun 'ar látin í ljós í Wash
ington í gær.
U Thant sagði, að stefna
hans í Kongómálinu hefði ekki
fallið í góðan jarðveg, er hann
ræddi hana við Krúsjeff.
U Thant minntist ekki á það
við Krúsjeff hvort hann
myndi styðja endurkjör hans
til / embættis framkvæmda-
stjóra SÞ. Ekki ræddu þeir
heldur tillögu Sovétríkjanna
um alþjóðlega ráðstefnu um
verzlunarmál eða landamæra
deilur Indverja og Kínverja.
Krúsjeff hefði rætt um að-
ild Kína að SÞ og afstöðu A-
og V-Þýzkalands til samtak-
anna.
Framþ. á bls 2
V-þýzk blöð gagnrýna
ummœli Adenauers
— um Stóra-Bretland, Efnahagsbandalagið
og stjórnmálasamband Evrópu
BONN, 30. ágúst — (NTB-
Reuter) — „Flest blöð . í V-
Þýzikalandi gagnrýndu í dag,
fimmtudag, ummæli Adenau-
ers, kanzlara, um Stóra-
Bretland, Efnahagsbandalag-
ið og stjórnmálasamband
Evrópu. Eitt blaðið segir, að
nú sé tími til kominn, að
kanzlarinn segi af sér“.
Þannig segir í skeytd NTB-
Reuter í gær.
„Frankfurter Rundschau" seg-
ir, að mikill meirihluti stjórn-
arinnar og þingsins óski eftir
þátttöku Stóra-Bretlands í stjórn
málasambandi Evrópu. Aden-
auer valdi orð sín þannig, að
þau brytu í bága við meirihluta
á þingi. Auk þess virðist líta út
fyrir, að hann vildi vinna gegn
(torpedere) aðild Breta að efna-
hagsbandalaginu.
Hamborgar-blaðið „Die Welt“
segir, að þeir hlutar bréfs Mac-
millans, sem birtir voru á mið-
vikudag, sýni greinilega, að
ummæli brezka forsætisráðherr-
ans í neðri málstofunni brjóti
ekki í bága við það, sem hann
sagði í bréfi sínu til Adenauers.
„Deutsche Zeitung“ í Köln,
sem styður stjórnina, segir
kanzlarann halda, að það verði
hindrun í áætlaðri stjórnmála-
sameinihgu Evrópu, ef Stóra-
Bretland og e.t.v. Norðurlöndin
fái atkvæðisrétt í Brússel. Þá
muni einnig gæta í auknum
mæli áhrifa evrópskra sósíalista,
sem gætt hefur undanfarin 10
ár, og komið hafi í ljós í píla-
grímsferðum til Moskvu eða til-
lögum, sem séu í anda ráða-
manna þar“.
Framihald á bls 2