Morgunblaðið - 31.08.1962, Blaðsíða 23
Föstudagur 31. ágúst 1962
MOP CTINBT AÐIÐ
23
K
Á móti aðild
Svía að E.B.E.
Stokkhólmi, 31. ágúst (NTB)
í Svíþjóð er komið út rit, sem
nefnist „Við og V-Evrópa“. —
Höfundar þess eru þrír framá-
menn í sósíaldemókrataflokki
landsins. í ritinu er fjaliað um
Efnahagsbandalagið og hugsan-
lega aðild Svía að því og segir
m.a., að aðild Svía að bandalag-
inu sé ekki spurning um efna-
hagsmál heldur stjórnmái. Aðild
eða tengsi þjóðarinnar við banda
lagið geti ekki samrýmst hiut-
leysisstefnu hennar.
Rit þetta er álitið hafa mikla
þýðingu varðandi afstöðu Svía
til aðildar að EBE og kosningar,
sem haldnar verða í landinu inn
an skamms, en talið er að afstað
an til EBE geti haft mikil
áhrif á þær.
Það er hinn þekkti hagfræð-
ingur, prófessor Gunnar Myrdal,
Hord Ekstrom, sem einnig er hag
fræðingur og Roland Pálsson, sér
fræðingur í utarifíkismálum, sem
eru höfundar ritsins, en ekkert
er gefið upp
hvern kafla.
hver hefur ritað
Höfundarnir segja að nauðsyn
legt sé að hafa hugfast hvaða
stjórnmálalegar afleiðingar efna
hagsleg áhrif geti haft. Það sé ein
kennilegt, að í sænska frumvarp
inu um aukaaðild að EBE sé gert
ráð fyrir því, að hún fáist þannig,
að hún brjóti ekki í bága við ým-
is atriði utanríkisstefnu Svíþjóð-
ar og minna á, að það sé á þess-
um forsendum, sem ríkisstjórnin
byggi umsókn sína um aðild.
Höfundar ritsins telja óvíst, að
Noregur gerist aðili að Efnahags-
bandalaginu, þó að Bretland fái
aðild og minna á þær umræð-
ur, sem orðið hafa í Noregi um
hve mikla aðild Noregur eigi að
sækja um, ef Svíþjóð gerizt ekki
aðili að EBE. Telja þeir jafn
mikið atriði fyrir Svía hvort þeir
eigi að sækja um aðild, ef Nor-
egur standi utan við EBE.
Sigfús sýnir i
Hafnaríirði
SIGFÚS HALLDÓRSSON, tón-
skáld og listmálari, opnar á laug
ardag málverkasýningu í Hafnar
firði. Sigfús sýnir að þessu sinnl
rúmlega 60 myndir, allar frá
Hafnarfirði. Eru það bæði oliu-
myndir, vatnslitamyndir, manna-
myndir, olíupastelmyndir, rauð-
kritarmyndir og svartkrítarmynd
ir.
Allar eru myndirnar gerðar á
undanförnum tveimur árum. Sig
fús hefur oft áður efnt' til sýn—
inga, einn og með öðrum, þar á
meðal hefur hann tekið þátt í •
sýningu í Bergen í Noregi. Síð-
asta sýning Sigfúsar var fyrir
tveimur árum í Reykjavík.
Sýningin verður opnuð kl. 4 á
laugardag og verður opin daglega
frá kl. 2—10 í Iðnskólanum. —
Henni lýkur 10 september n.k.
Lýst eftir bifreiðorstj óra,
sem tiutti Þjáðveija ó Þingvöll
LÖGREGLAN sneri sér til blaðs
ins í gær og bað fyrir orðsend-
ingu til bifreiðarstjóra, sem um
hádegið sl. miðvikudag tók Þjóð
verja einn upp í bíl sinn á Þing-
vallaveginum.
Þjóðverji þessi, sem hér er á
ferðalagi snéri sér til lögregl-
unnar og sagðist hafa verið tek
inn upp í gráa Chevroletbifreið
af eldri gerð með Reykjavíkur-
númeri. Tók bifreiðin hann
skammt vestan Þingvalla og I
flutti hann niður á Þingvelli.
Svo óheppilega vildi til að
Þjóðverjinn gleymdi myndavél
sinni í bílnum. Biður lögreglan
nú bifreiðarstjórann að hafa sam
bad við sig vegna atviks þessa.
Stefán Ly..^dat
Minning
ÞAÐ vill alltaf verða svo að
þegar menn deyja, þá á maður
bágt með að trúa því, og ennþá
verra með að sætta sig við það,
að þeir séu horfnir héðan fyrir
fullt og allt, jafnvel þó maður
sé löngu áður búinn að gera sér
það ljóst að bata er ekki að
vænta, þar sé aðeins um stund-
arfrelsi að ræða.
Og þannig fór einnig fyrir mér
þegar vinur minn Stefán Lyng-
dal andaðist hér á Militærhospit-
alet þann 22. ágúst, aðeins 48
ára gamall.
Það eru nú um 25 ár síðan að
leiðir okkar Stefáns lágu fyrst
saman og hefi ég því margs að
minnast og mikið að þakka, hann
var glæsimenni í sjón og raun,
mikill selskabsmaður, og hrókur
alls' fagnaðar á gleðistundum,
músikalskur með afbrigðum, og
6vo skemmtilegur og fyndinn að
manni leið ve' í návist hans, enda
naut hann sín hvergi betur en
á beimili sínu með hóp af kunn-
ingjum í kringum sig, og að vera
veitandi, en það gat hann alltaf
verið, sem betur fer.
Mega þeir nú muna, sem hann
rétti hjálparhönd, þegar halloka
fór, og vissi ég oft til þess að
hann hjálpaði gömlum félögum,
þegar að eitthvað bjátaði á, og
var þá hvorki að vonast eftir
þakklæti eða endurgreiðslu,
þannig var hann, og þannig lifði
hann, og svona sagði hann að
þetta ætti að vera.
Hann var duglegur verzlunar-
maður, og mjög áreiðanlegur í
öllum viðskiptum, og mátti ekki
vamm sitt vita í einu né neinu,
það sem hann sagði stóð eins og
stafur á bók, enda var eins og
allt yrði að gulli í höndunum á
honum.
En enginn gengur óstuddur, og
þannig var einnig með Stefán,
hann var giftur Herdísi Sigurð-
ardóttur, ættaðri úr Straumfirði
í Mýrarsýslu hinni mestu myndar
og dugnaðarkonu, sem stóð við
hlið manns síns í öllum hans veik
indum, eins og aðeins góðar kon
ur gera, enda var hann konu
sinni og dætrum ástríkur heimil-
isfaðir, sem allt vildi fyrir þær
gera. Var mér persónulega kunn-
ugt um að hann mat konu sína
mikils og áttum við oft tal um
það saman.
Þau eignuðust 2 dætur, Svölu
20 ára og Elsu 13 ára, báðar í
heimahúsum. Heimili þeirra stóð
ávallt opið, öllum hans vinum
og kunningjum, viðmótið og gest-
risninni var viðbrugðið, og þar
leið öllum vel. Eigum við hjónin
margar ógleymanlegar ánægju-
stundir frá veru okkar á heimili
þeirra.
Því miður höfum við ekki
ástæðu til að fylgja honum síð-
asta spölinn sem hann átti þó
svo sannarlega skilið, en Stefán
verður mér ógleymanlgeur fyrir
margra hluta sakir, hann var
ekki allra, en vinátta hans var
órjúfanleg, þeim sem eignuðust
hana.
Konu hans og dætrum, syst-
kinum, og öldruðum foreldrum,
sendi ég mínar innilegustu
samúðarkveðju, á þessari stundu,
þegar Stefán er nú kallaður í
burtu í blóma lífsins.
Blessuð sé minning þessa góða
drengs.
Kaupmannahöfn, 23. ágúst 1962
H.
Aðalfundur F.U.S.
við ísaf jarðardjúp
Aðalfudur Félags ungra Sjálf-
stæðisumianna við ísafjarðardjúp
var haldinn að Reykjanesi þann
5. ágúst s.l.
Baldur Bjarnason bóndi, Vig-
ur, formaður félagsins, setti fund
inn og stjómaði honum. Fundar-
ritari var Páll Aðalsteinsson,
skólastjóri, Reykjanesi.
Axel Jónsson, fulltrúi fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks-
ins, flutti erindi um skipulags-
mál flokksins og ræddi sérstak-
Iega um flabksstarfið í Vest-
fj arðakj ördæmi.
Þá fór fram stjórnarkjör.
Stjórn félaigsins skipa: Páll
Aðalsteinsson, Skólastjóri, Reykja
nesi, formaður, frú Steinunn
Ingimundardóttir, ‘ Reykjafirði,
Reykj afj arðarhreppi, Geir Bald-
ursson, bóndi, Skálavík, Reykja-
fjarðarhreppi, Ingi Hermannsson
bóndi Skálavík, Reykjafjarðar-
hreppi, Gísli Indriðason, Þernu-
vík, Ögurhreppi. Á fundinum fór
fram kosriing fulltrúa í Kjör-
dæmisráð Sjálfstæðisflokksins í
Vestfjarðakjördæmi.
Sigurður Bjarnason, ritstjóri
ávarpaði fundinn.
— Taugaveikibróðir
Framh. af bls. 2
rannsökn hefir verið, skal þess getið,
að skoðuð voru um 650 sýnishorn af
neyzluvörum o.fl., og um 1300 sýnis-
hom af blóði og saur frá 9júklingum.
Af ráðstöfunum, sem gerðar voru
til að hefta útbreiðslu veikinnar, má
nefna það, að sjúklingum, sem tekið
höfðu veikina og fólki á sama heim-
ili, var bannað að vinna við hvers
konar neyzluvöru út á við, unz geng-
ið hafði verið úr skugga um með
rannsókn, að smitunarhætta stafaði
ekki af þeim. Og brýnt var fyrir
sjúklingum og almenningi að gæta
hreinlætis 1 hvívetna.
Eins og þegar hefir verið frá skýrt,
hefir andabúið að Minni-Vatnsleysu,
þar sem sýkillinn fanst, verið lagt
niður og sótthreinsun framkvæmd þar.
I>á hefir starfslið í fyrirtæki þvf, sem
umgetin mayonnesa var framleidd f,
og í verzlunum þess, verið rannsak-
að og gengið úr skugga um, að af þvf
stafi engin smitunarhætta. Hefir fram
leiðsla mayonnesu því verið leyfð þar
á ný.
Þar eð allt er á huldu um hina
eiginlegu uppsprettu þessa faraldurs
skal ekkert um það fullyrt, hvort
hann hafi verið kveðinn niður fyrir
fullt og allrt, eða hvort sýkillinn kann
að verða landlægur hér á landi eins
og meðal nágrannaþjóða okkar.
Um lxádegisbilið á þriðju-
dag komu ferðamenn á leið að
i norðan að þessum bil, þar
sem hann lá utan við veginn
í Vatnsdal. Farþegar höfðu
ekkert meiðst er hann valt
og voru á bak og burt.
Meistaramót
drengja og kvenna
á Akureyri
KVENNA- og drengjameistara-
mót íslands, sem háð verður á
Akureyri n.k. laugardag og sunnu
dag (1. og 2. sept.) hefst kl. 13,30
báða dagana. Keppendur eru þeg
ar skráðir 95 frá 11 félögum og
héraðssamböndum. Eru yfir 20
keppendur í sumum greinum. —
FRA biður keppendur að mæta
hálfri klst. áður en mótið hefst
til skráningar og hafa með sér
aldursvottorð undirritað af farar
stjóra eða formanni viðkomandi
flokks.
— Minning
Framihald af bls. 6.
Tvo bræður átti Guðríður:
Gustav Adolf, sem var skrifstofu
stjóri í Dómsimálaráðuneytinu,
hann lést á s.l. ári, og Karl
Sigurð læknir hér í borginni.
Alla æfi, allt fram til ársins
1961, bjó Guðríður við ágæta
heilsu, en þá tóik heilsufar henn-
ar skyndilega ðheillavænlegum
breytingum. Þegar svo veikindin
steðjuðu að fyrir alvöru þá
reyndist Karl læknir, bróðir
hennar, og hans ágæta kona, frú
Guðrún, henni sannir hollvættir
og rómaði hún mjög umhyiggju
þeirra og nængætni, enda voru
þau hjá henni öllum stunduim
uns yfir lauk.
Systkini og aðrir vandamenn
og vinir Guðríðar Jónasdóttir,
eiga á bak að sjá trygguim vild-
arvini, sem lætur eftir ljúfar og
hugstæðar mirmingar. Henni
þökkum við hjónin ágæta við-
kynningu, en þeim vottum við
samúð okkar. J. Á.
Ráðherraskipti
Washington, 30. ágúst —
(NTB) —
Tilkynnt var í dag, að Kennedy
Bandarikjaforseti hefði skipað
Willard Wirtz verkalýðsmálaráð
herra í stað Arthurs Goldberg,
sem í gær tók við embætti Felix
Frankfurter, hæstaréttardómara.
Wirtz var aðstoðar verkalýðsmála
ráðherra.
— Alsir
Framhald af bls. 1.
arastyrjöld vofði nú yfir í Alsír.
Herir, sem styddu Ben Bella og
stjórnarnefndina væru á leið til
Algeirsborgar. Sagði hann enn-
fremur, að Ben Bella hefði beð-
ið deildir úr 1., 5. og 6. svæðis-
hernum, að koma til Algeirs-
borgar og ná henni á sitt vald.
1 flugritunum var skorað á
íbúa borgarinnar, að fara kröfu-
göngur um götur hennar til að
láta í ljós andstöðu sína við
þessa ákvörðun Ben Bella.
★
Sagt er að her undir stjóm
Bou Madania, hgrráðsforingja
þjóðfrelsishersins, hafi 40 þús-
und hermönnum á að skipa og
sé vel vopnum búinn, en sá her
er aðeins hluti herstyrksins,
sem styður Ben Bella. Madania
fór í dag frá aðsetursstað sínum
um 350 km fyrir utan Algeirs-
borg, en ekki er vitað hvert för
hans var heitið.
Herina á 3. og 4. svæðinu
skipa 20 þús. menn, en þar af
eru aðeins um 2 þús. í Algeirs-
borg.
Leynilegar viðræður
Þrátt fyrir hina miklu ólgu,
sem ríkir nú í Alsír, telja sum-
ir, að von sé til þess að borgara-
styrjöld verði afstýrt og deilu-
aðilar muni gera lokatilraun til
að komast að samkomulagi áð-
ur en í odda skerst. Er haft eft-
ir áreiðanlegum heimildum, að
hafnar séu leynilegar viðræður
milli deiluaðila.
Frakkar fá fyrirskipanir
Þeim hluta franska hersins,
sem enn er í Alsír hefur verið
gefin skipun um að halda sig
utan við vopnaviðskipti, ef tii
þeirra kemur. Freignir, sem bor-
izt höfðu um liðsflutninga
Frakka innan Alsír, voru bornar
til baka og ekki sagður neinn
fótur fyrir þeim.
Starfsstúlku vanfar
í eldhús frá næstu mánaðamótum.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
Veilingas!of<m Óðinstorg
Þórsgötu 1.