Morgunblaðið - 23.10.1962, Qupperneq 24
FRÉTTASÍMAR MBL.
— eftir lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
Alþingi
Sjá bls. 8.
236. tbl. — Þriðjudagur 23. október 1962
Stórrigning á Vestfjöröum
veidur vegaskemmdum
Hitar á Norðar- og Aastnrlandi
S í Ð A RI hluta síðustu viku
gengu miklar rigningar á Vest-
fjörðum. Rigndi upp undir 100
mm á nokkrum stöðum. Þess má
geta að í Kvigindisdal rigndi frá
því kl. 18 á föstudagskvöld til
jafnlengdar á laugardagskvöldi
94 mm. Er þetta, að sögn Veður-
stofunnar, sérlega mikil úrkoma
á jafn skömmum tíma. 1 sumar
var t. d. á Suðurlandi rigninga-
samt, einkum austan Fjalls, en
þó var mánaðarúrkoma aldrei
yfir 60—70 mm. Á mörgum stöð-
um á landinu kemur aldrei jafn
mikil úrkoma og þetta. Þessi sól-
arhringsútkoma jafngildir einum
sjöunda hluta úrsúrkomu hér í
Reykjavík og þykir þetta dágóð
mánaðarúrkoma í úrkomumestu
sveitum landsins.
Á sama tíma og þessi mikla
úrkoma var á Vestfjörðum voru
hitar óvenju miklir á Norður-
og Austurlandi. Á föstudag var
19 stiga hiti á Dalatanga og á
laugardag 18 stig á Akureyri. Er
þetta kennt hinum svonefndu
fönvindum, sem ganga yfir há-
lendið. Á uppleið losna vindarn-
ir við mikla úrkomu en tapa
ekki hita að sama skapi og á
niðurleið.
Haustmót á
Austurlandi
HAUSTMÓT Sjálfstæðismanna í
Austurlandskjördæmi verður
haldið í Ásbíói, Egilsstöðum n.k.
laugardagskvöld, fyrsta vetrar-
dag og hefst með borðhaldi kl.
19,30.
2 togarar seldu í
Þýzkalandi í gær
TVEIR íslenzkir togarar seldu
afla sinn erlendis í gærmorgun.
Hvalfell seldi í Cuxhaven 157,7
lestir fyrir 110 þúsund mörk.
Apríl seldi afla sinn í Bremer
haven, 105 tonn fyrir 72 þús.
mörk.
Fimm íslenzkir togarar seldu
til viðbótar þessum tveim í þess
ari viku.
Kvikmynd um
fiskirækt
1 DAG verður sýnd kvikmynd
um fiskibúr og fiskirækt fyrir
æskufólk í tómstundaheimilinu
að Lindargötu 50 og hefst hún
kl. 6 e.h. Þá hefst einnig nám-
skeið um þessi mál
Trúnaðaráð Óðins
FUNDUR í Valhöll fimmtudag-
inn 25. okt. kl. 8,30 síðdegis.
—, — AÐEINS ÞRÍR DAGAR EFTIR
Lokaö til Vestfjarða
Útkoman á Vestfjörðum hafði
í för með sér miklar vega-
skemmdir, svo nú er vegurinn
til ísafjarðar algerlega lokaður
og á nokkrum öðrum stöðum
hafa orðið vegaskemmdir. Unn-
ið var í gær að lagfæringu veg-
anna, sem víða verða þó aðeins
til bráðabirgða, einkum þar sem
ræsi hafa skolazt í burtu eða
fallið úr sambandi. Er unnið að
því að gera fært með ruðningi
nývega utan við skemmdirnar
eða jöfnun i farvegum ánna,
sem farið hafa framhjá brúm.
Einnig hafa skriður fallið og
hefur þeim verið rutt af Vegun-
um.
Sem fyrr segir hafa vegirnir
é Vestfjarðaleið víða teppzt, en
ekki hafði Vegagerðin frétt af
því að Þorskafjarðarheiði væri
ófær í gærkvöldi. Víðast var far-
ið að gera við skemmdir með
þeim tækjum öl’um er Vegagerð
in hefur yfir að ráða á þessum
slóðum. Verið var þó enn í gær
að kanna skemmdirnar.
Norðurlandsvegur skemmdur
Hvorki var í gær fært til Pat-
reksfjarðar né ísafjarðar. Norð-
urlandsvegur tepptist vegna
vatnsflaums í Norðurárdal í
Borgarfirði en var lagfærður
mjög hráðlega og var fær í gær.
í Öxnadal reif öxnadalsá sund-
ur veginn við hina nýju brú, en
það sakaði ekki umferðina, þar
sem gamla brúin stendur enn
og var þvi hægt að beina um-
ferðinni um hana.
Skemmdirnar á Vestfjörðum
Á Vestfjarðaveginum urðu
skemmdir sem sér segir:
Á Hjallahálsi og Klettshálsi
urðu rof í veginn og í Dýra-
firði skemmdist vegurinn á
mörgum stöðum. í Kollafirði
rifu árnar Galtará og Eyrará sig
niður á vöðum sínum svo ófært
varð, en þær eru báðar óbrúað-
ar. í Fjarðarhornsá, í bótni
Kollafjarðar, hafði áin hlaupið
framhjá brúnni og rifið þar
stórt skarð. Hjá Illugastöðum í
Skálmarfirði urðu miklar
skemmdir og Skáimardalsá hljóp
fram hjá brúnni, svo og sökk
ræsi í veginum, og er sýnilegt
að gera verður bráðabirgðarveg
niður undir sjó á þessum slóð-
um.
f Vattarfirði eru mörg og stór
skörð í veginn, t. d. hjá Þverá
30 m skarð í geisiháan veg, og
því ekki unnt að byggja hann
upp fyrr en að vori:
Á sjálfri Barðaströnd tók ræsi
af hjá Litlu-Hlíð og skarð mynd-
aðist hjá Hvammi og skriða lok-
aði veginum hjá Arnarstöðum og
miklar skemmdir urðu hjá
Brjánslæk. Þá er Suðurfjarðar-
vegur í Arnarfirði skemmdur,
svo og Ketildalavegur. Þá munu
dagar
SKYNDIHAPPDRÆTTTI
SJALFSTÆÐISFLOKKSINS
þar sem
vinningarnir
eru
---þrír VOLKSWAGEN-----
i
hí'ar
1 vegir á Þingmannaheiði eitthvað
úr lagi færðir.
í ísafjarðarsýslu urðu mestar
skemmdir 1 Dýrafirði. Þar
skemmdist vegur hjá Hyammi,
Ketilseyri og Drangahlíð. Skriðu
föll urðu í Valþjófsdal, Brekku-
dal og Keldudal.
Skemmdir á Snæfellsnesi
Skemmdir urðu á vegi á Skóg-
arströnd á Snæfellsnesi hjá
Kálfastaðaá í Álftafirði, þar sem
áin hljóp úr farvegi sínum og
framhjá brúnni.
Skemmdir munu og hafa orð-
ið á vegum í Borgarfirði og var
vitað að Grjótá í Svinadal var
að brjóta niður veginn þar í
dalnum.
Siglt inn til Eyja með Sjöstjörnuna.
Lóðsinn dælir sjó á eldinn í Sjöstjörnunni.
Ljósm.: Sigg.
Eyjabátur stdrskemmist
í eldsvoða í gærmorgun
VESTMANNAEYJUM, 22. okt.
ELDUR kom upp í vélbátnum
Sjöstjarnan VE 92, um 9 leytið
í morgun, þar sem hann var að
veiðum við Súlnasker.
Báturinn, sem er 55 smálestir
að stærð, hafði lagt línu sína
suður við Súlnasker og voru
skipverjar búnir að taka inn
10—20 bjóð af línunni, þegar
þeir urðu varir við, að eldur var
kominn í vélarhúsið, svo mikill,
að þeir fengu ekki við neitt ráð-
ið. —
Skipverjar tóku það ráð, að
byrgja eldinn eins og hægt var,
en hann var svo maghaður, að
Slökkviliðið gabbað
47 sinnum á þessu ári
SLOKKVILIÐIÐ í Reykjavík
var gabbað 5 sinnum út á laugar
dag og aðfararnótt sunnudags.
Það hefur alls verið gabbað 47
sinnum, það sem af er árinu.
Fjögur útkallanna voru með
brunaboðum, kl. 15,14 að Lind
argötu 38, kí. 18.48 að Laugavegi
78, kl. 23.29 að Vesturgötu 27 og
kl. 2,42 aðfararnótt sunnudags.
Fimmta útkallið kom frá lögregl
unni, en þangað var hringt og
beðið um slökkviliðið að Kirkju
teig 20. Það númer er ekki til.
Mest bar á gabbinu á kvöldin
og um helgar. Það eru eindreg
in tilmæli til fólks að gera við-
vart, sjái það vafasama notkun
brunaboðanna. Mikið er í húfi.
Þess má geta til undirstrikunar
á því hversu alvarlegt málið er,
að brunaboðinn að Laugavegi 78
hefur 10 sinnum á árinu verið
notaður til að gera gabb með.
Haldi svo áfram er ekki annað
ráð en að taka hann úr sambandi.
Hvartor fundur
ó Hótel Borg
annað kvöld
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt
heldur fund annað kvöld, mið-
vikudag, í Gyllta salnum á Hótel
Borg (gengið inn um suðurdyr)
kl. 8,30.
Á fundinum flytur Bjarni
Benediktsson, dómsmálaráðherra
ræðu. Rætt verður um félags-
mál, en síðan verða skemmtiat-
riði og kaffidrykkja.
Sjálfstæðiskonur eru hvattar
til að mæta vel og stundvíslega.
þeir þorðu ekki annað en yfir-
gefa bátinn og fara í gúmbjörg-
unarbát.
Sigurfari VE 138, kom fljót-
lega á staðinn og tók mennina
um borð. Þrír aðrir línubátar
hjuggu af sér og héldu á stað-
inn svo og Drangajökull, sem
var skammt frá Eyjum.
Gert var viðvart um eldinn I
gegn um talstöð til lands. Hafn-
sögubáturinn Lóðsinn hélt þegar
út og var kominn á staðinn kl.
rúmlega 11 f. h.
Ekki var talið fært að reyna
að slökkva elc’inn þarna, því
slæmt var í sjó og erfiðar að-
stæður. óttuðust menn, að
sprenging kynni að verða í oliu-
tönkum eða loftkút, sem var í
vélarrúminu.
Sjöstjarnan var dregin til
Eyja og var ráðizt til uppgöngu
þegar báturinn kom inn á Vík-
ina og þar var eldurinn slökkt-
ur eftir nokkra viðureign.
Báturinn er mjög mikiS
skemmdur. öll siglingatæki eru
ónýt, mikið brunnið í káetu,
vélarrúmi og stýrishúsi. Miklar
viðgerðir þurfa að fara fram og
óvíst að það geti orðið hér i
Eyjum.
Sjöstjarnan var keypt hingað
frá Akureyri fyrir stríð, en hún
var byggð 1916 og umbyggð
1951.
Eigandi er dánarbú Tómasar
M. Guðjónssonar. — Fjögurra
manna áhöfn var á bátnum, for-
maður Sveinn Valdimarsson.