Morgunblaðið - 02.11.1962, Síða 23
Föstudagur 2. nóvember 1962
MORCVNBLAÐIÐ
23
Lágu fargjöldin eru jbeim
fyyrnir í augum
E N D A þótt vitað sé, að
L starfsemi Loftleiða sé
mörgum erlendum flugfé-
lögum þyrnir í augum, eru
það einkum tvö flugfélög,
sem nú beita sér fyrir því
að frekari vöxtur Loft-
leiða verði stöðvaður:
Skandinaviska flugsam-
steypan SAS ogbandaríska
flugfélagið Pan American.
Á undanförnum árum hef-
ur gætt sívaxandi andstöðu
erlendis gegn starfsemi Loft-
leiða og hafa talsmenn margra
erlendra flugfélaga lýst undr-
im sinni yfir því að Banda-
ríkjastjórn skuli fella sig við
mun lægra fargjald hjá Loft-
leiðum á leiðinni ísland-
Bandaríkin en það fargjald,
sem bandarísk flugfélög og
önnur eru skuldbundin til að
hafa á sömu leið vegna aðild-
ar sinnar að IATA, alþjóða-
. sambandi flugfélaga.
Vaxandi flutningar
Og íslendingum hefur sótzt
róðurinn æ verr í viðræðum
um loftferðasamninga við út-
lönd, einmitt vegna þess, að
flugfélög viðkomandi ríkja
hafa ekki talið Loftleiðir
keppa á sanngjörnum grund-
velli. Þannig hefur það t. d.
gengið við endurnýjun loft-
ferðasamninga við Norður-
löndin. SAS hefur gert ítrek-
aðar tilraunir til að fá stjórn-
ir Norðurlandanna tií að setja
íslendingum stólinn fyrir
dyrnar — og brezk stjórnar-
völd hafa, vegna hagsmuna
brezka flugfélagsins BOAC,
verið treg í viðræðum um
endurnýjun loftferðasamn-
inga við ísland. Loftleiðir
fengu ekki jafn víðtæk lend-
ingarréttindi og þeir óskuðu.
Á síðasta ári fluttu Loft-
leiðir um 52 þúsund farþega
og langmestur hlutinn voru
farþegar á leið milli Evrópu
og Ameríku. Þetta var stór
vöxtur miðað við árið þar áð-
ur, en á þessu ári hefur far-
þegafjöldinn sennilega vaxið
meira en nokkru sinni áður
— og má gera ráð fyrir að
hann nái 70 þúsundum.
Vilja lækka fargjöldin
Innan IATA eru háværar
raddir um að lækka beri far-
gjöldin til muna. Það eru
stóru félögin, sem bera fram
þessar kröfur, en þau minni
eru andsnúin af ótta við að
mikil lækkun riði þeim að
fullu. Flutningageta stóru
flugfélaganna óx gífurlega
með tilkomu þotanna, en þess
ir farkostir hafa ekki notazt
sem skyldi, því farþegastraum
urinn hefur ekki vaxið jafn
mikið og almennt var búizt
við.
Pan American hefur eina
viðkomu á íslandi vikulega
á leiðinni yfir hafið, innan
ramma loftferðasamninganna
milli fslands og Bandaríkj-
anna, en slíkir samningar eru
jafnan gagnkvæmir og byggð
ir á jafnréttisrgundvelli. En
þrátt fyrir að Bandaríkja-
menn hafi hér varnarlið og
að samskipti milli íslands og
Bandaríkjanna séu þar að
‘auki mikil, flutti Pan Americ
an ekki nema liðlega 300 far-
þega milli íslands og Bandá-
ríkjanna á sl. ári, samkvæmt
frétt Mbl. í gær. Reyndin er
því sú, að fjölmargir Banda-
ríkjamenn, sem ferðast milli
íslands og Bandaríkjanna,
fara ekki með hinu banda-
ríska flugfélagi, heldur Loft-
leiðum, vegna þess að þar er
fargjaldið lægra.
Einmitt þessi staðreynd
hefur sjálfsagt valdið miklu
um það, að Pan American
hefur nú gerzt bandamaður
SAS um að reyna að hefta
frekari vöxt Loftleiða; fund-
ið sameiginlegan málstað með
SAS til þess að reyna að
þvinga fram samþykki innan
IATA um lækkun fargjalda
á Norður-Atlantshafsleiðum
með skrúfuvélunum, sem
þessi stóru flugfélög liggja nú
með, annað hvort í lítilli
notkun eða engri.
Með hálftómar vélar
Það er kunnara en frá þurfi
að segja, að Norðmenn eru ó-
ánægðir með þá þjónustu, sem
SAS veitir þar í landi. SAS
heldur t. d. ekki uppi nein-
um beinum flugferðum milli
Noregs og New York, SAS-
farþegar, sem fara frá Noregi
vestur um haf verða að fara
frá Kaupmannahöfn, eða
þannig var það a.m.k. til
skamms tíma. Þetta ásamt
ýmsu öðru varð til þess, að
Loftleiðir, sem halda uppi
beinum ferðum milli Noregs
og Bandaríkjanna, náðu betri
fótfestu í Noregi en SAS-
mönnum þótti æskilegt. Með
öflugri auglýsingastarfsemi
hafa Loftleiðir svo náð góðri
fótfestu í Danmörku, þeir
hafa einnig viðkomu í Sví-
þjóð — og fyrir nokkru færðu
þeir enn út kvíarnar, er þeir
hófu ferðir til Finnlands.
Þess hefur oft verið getið í
dönskum blöðum, að ekki sé
fátítt, að Loftleiðavélar haldi
fullhlaðnar frá Kaupmanna-
höfn samtímis því að þotur
SAS leggi upp, einnig á leið
til New Y'ork, með hálftóma
vél. Og þar í landi greinir
menn víst ekki á um að á-
stæðan sé lágu fargjöldin,
a.m.k. er svo að sjá á dönsku
blöðunum.
Gullnáman — Luxemhurg
En ástæðan til hinna stór-
auknu flutninga félagsins á
þessu ári liggur ekki fyrst og
fremst í auknum flutningum
frá Norðurlöndum, eins og
ætla mætti ef dæma á eftir
ákafa SAS. Loftleiðum hefur
nefnilega verið skorinn æði
þröngur stakkur á Norður-
löndum og þangað flugu vél-
ar félagsins aðeins fimm ferð
ir vikulega af 11 til Evrópu
— og af þessum fimm voru
þrjár farnar til Hamborgar,
aðeins með viðkomu á Norð-
urlöndum.
Gullnáma Loftléiða hefur
hins vegar orðið Luxemburg
og flutningarnir þangað og
þaðan hafa verið þvílíkir, að
ótal aukaferðir til viðbótar
föstum áætlunarferðum full-
nægðu ekki eftirspurninni. —
Fargjöldin milli New York og
Luxemburg voru það hag-
stæð hjá Loftleiðum, að
Bandaríkjamenn, sem ætluðu
lengra suður í Evrópu, völdu
gjarnan þessa leið. Samvinna
Loftleiða við stjórnarvöld í
Luxemburg hefur líka verið
með ágætum. Þeir í Luxem-
burg eiga að vísu flugfélag,
en það annast aðeins sam-
göngur við næstu nágranna-
lönd. Þess vegna eru Loftleið-
ir velkomnir þangað með jafn
mikið af ferðamönnum og
þeir geta flutt, því ekki er
um að ræða neina samkeppni
við þarlent flugfélag.
Undanfari allsherja,
lækkunar?
Ef úr verður, að SAS taki
gömlu skrúfuvélarnar aftur í
notkun á Norður-Atlantshafs-
leiðum og lækki fargjöld til
jafns við Loftleiðir, steðjar
vissulega mikill vandi að hinu
íslenzka flugfélagi. Jafnaf-
drifaríkgr verða samningavið
ræðurnar í Washington — og
bandarísk flugfélög munu
vafalaust gera sitt til þess að
hefta frekari vöxt Loftleiða,
á meðan þau geta ekki sjálf
boðið sömu fargjöld og ís-
lenzka flugfélagið.
En fari svo, að SAS láti
verða af því að hefja sam-
keppni við Loftleiðir á lágu
fargjöldunum: Getur þá ekki
farið svo, að stóru og dýru
SAS þoturnar þeytist tómar
eða hálftómar yfir Atlants-
hafið? — Hin skandinavíska
flugsamsteypa, með allt sitt
sölukerfi, nær vitanlega til
langtum fleira fólks en Loft-
leiðir um umboðsmenn þeirra.
Og þegair ferðamaðurinn
gengur inn í næstu SAS-
skrifstofu til að kaupa sér
farmiða yfir hafið, hvorn far-
seðilinn kaupir hann, þann
dýra, eða þann ódýrari? Eða
verður það undanfari þess, að
öll fargjöld á Norður-Atlants-
hafi lækki verulega, líka
þotufargjöldin? Þá gæti
margur ferðalangur sent Loft
leiðum þakkarbréf.
Verður New York
blaðalaus ?
PEKINGSTJÓRNIN STYÐ
UR KRÖFUR CASTROS
VERKFAIX blaðamanna og
prentara dagblaðanna í New
York er nú yfirvofandi. Þegar
hafa starfsmenn eins New York-
blaðs „New York Daily News“,
Betm er stærsta dagblað
Bandaríkjanna, lagt niður vinnu.
Fulltrúar útgefenda, blaða-
manna og prentara hinna sex
dagblaða í borginni sitja nú að
samningum, en takist þeir ekki
verður New York blaðalaus eft-
ir nokkra daga.
Slitnað 'hafði upp úr samninga
viðræðum, en í dag hófust þær
aftur fyrir milligöngu borgar-
stjóra New Yorlk, Rdberts F.
Wagner.
Starfsmenn blaðanna krefjast
allir 10 prósent launahækkun-
ar og einnig þess, að byrjunar-
laun verði hækkuð úr 168 doll-
urum í 200 dollara (8.600 ísl. kr.)
á viku. Útgefendur hafa boðið
laiunalhæklkiun, sem svaratr frá
5 til 7,25 dollurum á viku á
Sigurður
Bjarna-
son til
New York
SIGURiÐUR BJARNASON, rit-
stjóri Morgunblaðsins, fór í gær-
kvöldi með Loftleiðaflugvél til
New York. Mun hann sitja þar
síðari hluta þings Sameinuðu
þjóðanna sem einn af fulltrúum
íslands.
J næstu tveim árum.
1958 igerðu star.Vmenn daig-
| blaðanna í New York verkfall,
sem stóð í 19 daga. Talið er að
verkfallið hafi kostað útgefend-
ur 50 millj. dollara (2.160 millj-
arða ísL króna.).
ER tollverðir voru að leita í
ms. Reykjafoss í Hafnarfirði
fundu þeir 23 pakka af varningi,
sem grunur leikur á að sé smygl
aður, svo og milli 180—190 flösk
ur af áfengi, sem falið var í vél
arrúmi skipsins. Tollverðir leit-
uðu áfram í skipinu í allan gær
dag og í gærkvöldi en er Mbl.
vissi síðast til hafði ekki fundizt
meira smygl.
Áfengið sem fannst var Gene-
ver og Vodka og var sumt á
hálfflöskum. Var áfengið falið
fyrir framian aðalvél skipsins,
í litlu húsi, sem tengingar og
leiðslur að vélinni eru í. Á húsi
þessu eru göt en lokað hafði ver-
ið fyrir þau oig lögð fölsk rör út
úr húsiriu, og leit út sem þau
hefðu þar einhverja þýðingu. En
við athugun kom í Ijós að þau
enduðu niður í kjalsogi og voru
til einskis gagns. Hús þetta er
undir gólfi vélarrúmsins og urðu
tolverðir að skríða langa vegu
undir þvi yfir olíu og óhreinindi
til þess að komast að flösfcunum.
Um vörurnar er það að segja
að hér var um að ræða 23 pakka,
sem fundust í lítiili lest, sem
venjulega er notuð sem geymsla
fyrir skipið sjálft. Ekki var að
fullu kannað í gær hvort eitbhvað
Peking 1. nó’V. (NTB).
FEKINGSTJÓRNIN lýsti í Jag
stuðnmgi sínum við kröfu Cas-
tros, forsætisráðherra Kúbu, um
(að Bandaríkin leggi niður her-
af- pökkunum væri á farmiskrá.
Hér er um að ræða leikföng og
nælonsokka.
— Hjörð kúrekanna
Framhald af bls. 3.
að spyrja að því að gómsætir
verða þeir á matborðinu. —
Þeim fannst hart aðgöngu að
ekki skyldi mega rækta meira
af þessum gripum hér á landi
og vildu skamma yfirdýra-
lækni fyrir afstöðu hans til
innflutnings holdasæðis. Við
gerum ráð fyrir að yfirdýra-
læknir hafi tækifæri til að
skýra sína afstöðu þegar þar
að kemur og látum því allar
skammir bíða þangað til.
Næstu þrjár vikur getum
við víst ekki vænzt þess að
fá -þetta gómsæta kjöt, því
það þarf að hanga við visst
kuldastig í alllangan tíma áð-
ur hægt er að taka það til
matargerðar. Við vonum hins
Vegar að eftir þann tíma
gefist okkur kostur að fá eitt-
hvað af þvi gómsætt úr grill-
inu hjá meistarakokknun
Mánsa í Hótel Sögu.
ktöð sína í Guantanamo á Kúbu.
'Segir hún, að aðgerðum Banda-
’ríkjanna gegn Kúbu sé einnig
beint gegis Kína.
Pekingstjómin segir að loforð
©andaríkjamanna um að gera
tekki innrás í Kúbu séu gagns-
'laus á meðan að herstöðvarnar
teéu á eyjunni.
Þetta kom fram í orðsendingu,
sem utanríkisráðherra Peking-
stjórnarinnar Chen Yi, afhenti
sendifulltrúa Kúbu í Peking í
dag.
I orðsendingunni er ekki
minnst á ákvörðun Krúsjeffs
forsætisráðlherra Sovétríkjanna
um að sovéskar eldflaugar verði
fluttar frá Kúbu Og ekki er hald-
ur minnst á Sameinuðu þjóðix*n-
ar og tilraunir U Thants til að
miðla málum.
í orðsendingunni er látið að
því ligigja, að Krúsjeff hafi farið
á bak við Kúbustjórn, er hann
varð við kröfum Bandaríkja-
imanna. Segir þar, að fredsi Kúbu
megi ekki ganga kaupum og söl-
um í samningaviðræðum. Kúh-
•anska þjóðin eigi sjálf að ákveða
örlög sín og aðrar þjóðir eigi
•ekki að hlptast til um þau. Segir,
öð Kúbanska þjóðin geti verið
örugg um að Kínverjar styðji
'hana hversu alvarlegt, sem
ástandið kunni að verða.
Skýrt var frá því í Kína i
dag, að boðað hefði verið tii
fjöldafunda víðsvegar um landið
Ög ætbu þeir að sýna stuðning
’kinversku þjóðarinnar við Kúbu.
1 ritstjórnargrein blaðsins Ta
Kung Pao í Peking, segir, að
fyrir loforð Kennedys forseta um
(Bandaríkin haldi áfram undir-
'búningi innrásar í Kúlbu, þrátt
að Kúbubúar þurfi ekki að ótt-
ast innrás. Blaðið segir að krafa
Castros um að herstöð Banda-
ríkjamanna í Guantanamo verði
lögð niður, sé sanngjörn og
'nauðsynileg til að tryggja sjálf-
'stæði Kúbu. Blaðið leggur á-
herzlu á það að lokum, að ekk-
ert land og engin samtök hafi
rétt til að blanda sér í innan-
ríkismál Kúbu. Hvorki Bandarík
in né Sameinuðu þjóðirnar hafa
islíkan rétt, segir blaðið.
— Loftleiðir
Framhald af bls. L
Bandaríkin óski eftir að af-
nema sérréttindi íslendinga
yfir Norður- Atlantshafið á
lágum fargjöldum.
Thor Thors — Eig mundi
heldur vilja orða það svo að
talsmenn flugfélaganna vildu
það. Því það eru, eins og ég
sagði, flugfélögin, sem eru að
amast við Loftleiðum. Ríkis-
stjórn Bandarikjanna hefir
litið með skilningi á þetta
mál, en hún er ásótt af flug-
félögunum, sagði ambassador-
irm að lokurn.
Nokkru eftir að blaðið tal-
aði við Thor Thors barst því
skeyti frá A.P. fréttastofunni
og er þar vitnað í samtal við
ambassadorinn sem formanns
íslenzku viðræðunefndarinn-
ar. Hann segist vonast til að
samræðurnar leiði til annað
'hvort bráðabirgðalausnar eða
varanlegs samnings. - Hann
kveðst ekki vita hve leng)
samninga'hðræðurnar murV
standa.
Smygl finnst
í Reykjafossi