Morgunblaðið - 20.11.1962, Page 2
MORCT'IVBT AÐIÐ
Þriðjudagur 20. nóvember 1962
Kosningarnar í Frakklandi stór-
sigur fyrir de Gauile
París, 19. nóv. (AP).
ÞINGKOSNINGAR fóru fram í
Frakklandi í gaer. tJrsIitin eru
enn ekki kunin, en fyrirsjáanlegt
er að flokkur de Gaulle forseta
hefur unnið mjög mikið á. Segir
Frey innaniríkisráffherra að Gaull
istar muni fá meirihluta á naesta
þingi, en það höfðu þeir ekki
áður.
ist, og að stór „dropi“ eins
og úraníumkj arninn myndi
felofna í tvennt. Boiir fór sjálf
ur með þessar fréttir til
Bandaríkjanna, og brátt voru
rannsóknarstofnanir um all-
an heim farnar að vinna að
tilraunum með klofningu
kjarnans.
Meðan á heimisstyrjöldinni
stóð kaus Niels Bohr að vera
um kyrrt í Banmörku. Hins
vegar gerðist það árið 1943,
að Þjóðverjar komust að þvá,
að móðir hans var Gyðingur,
og því var handtaka hans fyr-
irsikipuð. Bohr komst undan
til Svíiþjóðar og þaðan hélt
hann til Englands.
DANSKI eðlisfræðingurinn
og kjarnorkuvísindamaðurinn
Niels Bohr lézt í Danmörku
á sunnudag, 77 ára að aldri.
Með honum er hniginn í val-
inn einn af brautryðjendum
þeirra vísinda, sem breytt
hafa yfirbragði veraldarinnar
i pólitískum skilningi og eiga
eftir að gera það í efnahags-
legu tilliti einnig.
Niels Bohr var fæddur 7.
öfetóber 1885. 18 ára gamall
varð hann stúdent, en síðan
tók hann að leggja stund á
eðlisfræði. 1911 tók hann
doktorspróf í þeirri grein.
Þá reyndi Bohr að fá starf
i Cambridige í Englandi, en
það tókst ekki. Tveimur ár-
um síðar, 1913, tók Bohr að
vinna með Ernest Rutherford,
í Manchester, en Rutherford
hafði þá skömmu áður komið
fram með kenningu um að
atómin væru í aett við okkar
eigið sólkerfi.
Þremur árum síðar var túlk
Niels Bohr látinn
un Rutherfords og Bohr á
eðli atómsins viðurkennd. Þá
sneri Bobr heim til Danmerk-
ur og hélt þar áfram rann-
sðknuim sínum. í heimaland-
inu varð hann brátt þjóð-
hetja á borð við H.C. Ander-
sen, og frægð hans á alþjóða-
vettvangi fór vaxandi.
Það má segja, að Bohr hafi
án vilja eða vitundar átt þátt
í því, að fyrsta kjarnorku-
sprengjan var framleidd. Fyr-
ir síðari heimestyrjöldina
bafði hann komið fram með
þá kenningu, að kjarninn
kynni að hegða sér lífct og
vatnsdropi. Nokkrum árum
s-íðar sýndá Otto Frisdh, sem
vann hjá Bohr í Kaupmanna-
höfn, fram á það, að það væri
raunverulega þetta, sem. gerð-
Niels Bohr var nýorðinn 77
ára, er hann lézt, en var samt
enn talinn einn fremsti vís-
indamaður í heimi í sinni
grein. Þrátt fyrir ljóma heirns
frægðar var hann lífilláfur
og hlédrægur og alúðlegur í
viðmóti. Hins vegar var hann
harður í horn að taka, er deilt
var um stærðfræði og eðlis-
fræðL
Honum var sýndur margs
konar heiður á löngum ferli.
Nóbeisverðlaunin fékk hann
1922, auk þess, sem hann var
gerður heiðursdioktor við fjöl-
marga háskóla.
Niels Bohr kom hingað tíil
landis 1951 og flutti þá fyrir-
lestur hér á vegum Háskóla
ísilandis.
Norðmenn hefja Færeyjaflug
hvað sem Flugfélag Islands gerir
Torshavn 18. nóv.
Einkaskeyti til Mbl.
NORSKA flugfélagið Björumfly
skýrði frá því á laugardagskvöld
að þótt Flugfélag íslands hyggð-
ist taka upp flugferðir um Fær-
eyjar, þýddi það ekki það að
Björumfly hætti við áætlanir um
Færeyjaflug sitt. Talsmenn fé-
lagsins segja að ef til vill verði
það að hætta við fyrirætlanir um
að nota litlar farþegaflugvélar á
þessari leið, en þeir muni hvað
sem öðru líður halda uppi einni
ferð til Færeyja á viku hverri
allt árið.
Vegna þessara fyrirætlana
sendi Björumfly landsstjórninni
á J’æreyjum tillögur sínar um
fyrirkomulag ferðanna, og óskaði
eftir því að landsstjórnin tryggði
félaginu ákveðna upphæð fyrsta
árið, en nú hefur félagið fallið
frá tryggingarkröfunni og til-
kynnt að það muni halda uppi
ferðum þessum algjörlega á eigin
reikning.
Björumfly félagið segir að það
hafi unnið að áætluninni að
Færeyjafluginu með það fyrir
augum að nota tvær smávélar á
leiðinni, vegna þess að það fékk
upplýsingar hjá flugmálastjórn
Færeyja, sem bentu til þess að
stærri vélar kæmu ekki til
greina vegna stærðar flugvallar-
ins í Vágum. En síðan er komið
í ljós að Flugfélag íslands ætlar
að nota Douglas Dakota (DC-3)
vélar á þessari leið, svo Björum-
fly getur gert slíkt hið sama.
Stjórn Björumfly skýrði einnig
frá því að fulltrúar hennar færu
á mánudag til Kaupmannahafn-
ar til viðræðna við flugmála-
stjórnina og við fulltrúa SAS um
málið, en Færeyjaflug Björum-
fly yrði í einhverri samvinnu við
SAS. Áður hafði verið sagt að
fulltrúar Björumfly ætluðu að
fara á mánudag með m/s Dronn-
ing Alexandrine til Færeyja til
að kynna sér allar aðstæður þar.
En talsmenn félagsins hafa borið
þessa frétt til baka, og segja nú
að þeim séu allar aðstæður full-
kunnar, þeir þekki flugvöllinn og
viti hvað gera ber áður en ferðir
hefjast.
Milt og gott veður var um á annesjum, en sums staðar dá
allt land í gær, víðast úrkömu lítið frost. Lægðin við S-Græn
laust og sums staðar léttskýj- land var að þokast norðaustur.
að. Hiti var allt að 5 stigum
Eftir kosningarnar eru Gauliist
ar stærsti flokkurinn, með um
30% atkvæða, en áður voru
kommúnistar fjölmennasti flokk-
ur Frakklands. Kommúnistar
fengu nú 22% atkvæða, og er það
aukning frá kosningunum 1958,
en enn vantar þá 1,5 millj. at-
kvæða til að ná heildartölu
þeirri, sem þeir höfðu áður en
de Gaulle komst til valda.
1 kosningunum í gær hlaut
enginn frambjóðandi kosningu,
ef hann ekki hlaut 50%
atkvæða í kjördæmi sínu.
Flokkarnir eru margir Og kjör--
dæmin því mörg þar sem enginn
þingmaður náði kosnigu. Fram-
baldskosingar verða í þessum
kjördæmum næsta sunnudag, og
er þá nóg fyrir frambjóðanda að
fá fleiri atkvæði en nokkur
keppinautanna.
Þingaö í Moskvu
Moskvu, 19'. nóv. — (NTB).
Ársþing miðstjórnar rússneska
kommúnistaflokksins hófst í
Moskvu í dag, og stóð fundurinn
í dag í fimm og hálfa klukku-
stund. Eina dagskráratriðið í dag
var setningarræða Krúsjeffs for
sætisráðherra, sem sagði m.a. að
kommúnistar ættu að leggja sig
fram við að læra af Vesturveldun
um og taka upp eftir þeim það,
sem gott er og gefur góða raun.
í ræðu sinni, sem var um 30
þús. orð, ræddi Krúsjeff um áætl
anir til eflingar fjárhag Sovét-
ríkjanna, en auk þess kom hann
með nýjar árásir á Stalín, sem
hann sagði að hefði gerzt gróf-
lega brotlegur við grundvallar-
reglur Lenins. Ræðan snerist að-
allega um innanríkismál, og sagði
l'rúsjeff að milalar framfarir
hafi orðið í rússneskum iðnaði á
undanförnum árum. Sagði hann
að iðnframleiðslan hafi aukizt um
45% á árunum 1959—62, en áætl
uð hafi verið 39% aukning. Varð
andi neyzluvörur var aukningin
34%, en áætlun 35%.
Kreffa
Krúsjeff
um svar
Washington, 19. nóvember.
Bandaríkin hafa skýrt stjórn
Sovétríkjanna frá því að þau
vonist til að fá viðunandi svar
varðandi brottflutning rússneskra
sprengjuflugvéla frá Kúbu í síð
asta lagi fyrir blaðamannafund
Kennedys forseta kl. 10 á þriðju
dagskvöld.
Orðsendingu þessa afhenti
John J. McCloy, fulltrúi Banda-
ríkjanna í viðræðunum um Kúbu,
fulltrúa Sovétrikjanna, Vasily
Kuznetsov 1 New York á sunnu
dagskvöld. Að sögn bandarískra
yfirvalda eru um 30 rússneskar
sprengjuþotur af gerðinni 11-28 á
Kúbu, og hefur enn ekkert verið
endanlega ákveðið varðandi brott
flutning þeirra.
Svikin olía hjá Castro
Hamilton, Bermuda, 19. nóv.
(AP) —
Yfirvélstjórinn á kanadíska flutn
ingaskipinu „East Star“ skýrði
frá því í dag að ástæðan fyrir því
að áhöfnin varð að yfirgefa skip-
ið í stormi skammt frá Bermuda
væri sú að olía, sem tekin var á
Kúbu var blönduð með vatni.
Segir vélstjórinn að skipið hafi
tekið 20 tonn af olíu í Havana,
en 15 tonn af vatni hafi verið í
olíunni.
East Star er 540 tonn. Það fór
til Havana frá Quebec í Kanada
með starfsfólk við rússneskt
hringleikahús. Frá Havana fór
skipið hinn 3. nóvember sl. til
Turks eyju að taka saltfarm. Eft
ir að hafa tekið saltið hélt skipið
heimleiðis, en þá urðu sífelldar
vélabilanir, sem skipstjórinn og
vélstjórinn eru sammála um að
hafi stófað af því að þrír fjórðu
hlutar ,.olíunnar“, sem tekin var
í Havana, var vatn. Loks stöðvað-
ist skipið algjörlega og lá með
25 gráðu halla í stórsjó og 12 m.
háum öldum um 200 km. fyrir
austan Bermuda. Yfixgaf áhöfnin
þá skipið og var bjargað um borð
í norskt olíuflutningaskip. Tók
norska skipið East Star í drátt
og er á leið með það til hafnar.
Guömundur L. Friöfinnsson.
Baksvipur mannsins
ný bók eftir Guðm. L Friðfinnsson
GUÐMUNDUR L. Friðfinnsson,
skáld og bóndi að Egilsá í Skaga
firði hefir nú sent frá sér sjö-
undu bók sína. Eru það tíu smá-
sögur, en bókin nefnist „Bak-
svipur mannsins". Sögurnar bera
heitin: í þokunni, Baksvipur
mannsins, Á biðstofunni, Lykkju-
föll, Jarðarför eftir pöntun, Sam-
býli, Húsið, Myndin, Yðar ein-
lægur Og Saumspretta.
Þetta er sjöunda bók Guð-
mundar L. Friðfinnsonar, en
þekktastar eru bækur hans ,,Hin-
um megin við heiminn", sem út
kom 1958 og „Saga bóndans á
Hrauni“, sem kom út á síðast-
liðnu árL Er hún nú þegar að
heita má uppseld um land
ísafoldarprentsmiðja hf g(
bókina út. Hún er 108 bls.
stærð
MÁLFUNDANÁMSKEEÐIÐ held
ur áfram í kvöld kl. 8 í ValhölL
Þá kemur saman 1. hópur undir
leiðsögn Guðmundar H. Garðars
sonar.
Stjómin.