Morgunblaðið - 12.12.1962, Page 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 12. des. 1962
Nóbelsverðlaunahafarnir sex við hátíðahöldin í Stokkhólmi á mánudag. Talið frá vinstri: I
Maurice Wilkens, Max Perutz, H. C. Crick, John Steinbeck, J. D. Watson, John Kendrew.
Nóbelsverðlaun
Garnaveiki í 5
ám í Borgarfirði
Á MÁNTJDAG fór fram i
Stokkhólmi afhending Nobels-
verðlauna, eins og skýrt var
frá hér í blaðinu í gær. Að af-
hendingunni lokinni var hald-
in veizla í Ráðhúsinu, og sátu
hana 822 gestir.
Verðlaunaafhendingin fór
fram í Tónlistarhöllinni að
viðstöddum fjölmennum hópi
lista og vísindamanna og full-
trúum erlendra ríkja. Þegar
þessir gestir höfðu gengið til
sæta sinna voru lúðrar þeytt-
ir og Gústaf VI. Adolf Svía-
konungur gekk í salinn ásamt
fjölskyldu sinni. Þar næst
komu hinir sex nýju Nobels-
verðiaunahafar ,og var hver
þeirra í fylgd með fulltrúa
frá Sænsku akademíunni. Einn
verðlaunahafinn, rússneski
prófessorinn Lev Landau, var
fjarstaddur, en hann liggur
enn í sjúkrahúsi í Moskvu eftir
umferðaslys í janúar s.L
Verðlaunahafarnir gengu
einn og einn fyrir konung og
tók hver þeirra við gullpen-
ingi, heiðursskjali og peninga-
ávísun úr hendi Gústafs
Adolfs, en á eftir voru flutt
ávörp. Síðastur tók banda-
ríski rithöfundurinn John
Steinbeck á móti verðlaunun-
um. Sænski rithöfundurinn
Anders Österling ávarpaði
Steinbeck að afhendingu lok-
inni, og sagði m. a.: „Þér eruð
ekki framandi sænsku þjóð-
inng sem þekkir, elskar og dó-
ist að verkum yðar, eins og
aðrar þjóðir tun allan heim.
Þér eruð orðinn þekktur fyrir
þjóðfélags-skáldsögur yðar,
baráttu fyrir varðveizlu mann-
afhent
réttinda, og sem talsmaður rétt
lætisins, og allt er þetta í sam
ræmi við þann anda, sem við
úthlutum Nobelsverðlaunun-
um í“.
í veizlunni í Ráðhúsinu eftir
verðlaunaafhendinguna flutti
John Steinbeck ræðu, og skor-
aði á allar þjóðir heims að
ljúka upp augunum fyrir hætt
unni, sem stafar af kjamork-
unni. Steinbeck sagði að bók-
menntimar hefðu sprottið af
mannlegri þörf, og væru nú
orðnar algjörlega ómissandi.
Mannkynið sjálft hefði frá
upphafi falið skáldum og rit-
höfundum verkefni þeirra og
ábyrgð.
— Rithöfundurinn á að
skýra og hylla eiginleika
mannsins til andlegrar göfgi,
sagði Steinbeek; hvetja hann
til dáða á tímum ósigra, til
hugprýði, samúðar og kær-
leika.í hinni endalausu bar-
áttu við veikleika og örvænt-
ingu, eru þessir eiginleikar
hið leiftrandi tákn vonarinnar.
— Hinn almenni ótti, sem rík-
ir í dag, er afleiðing af þeirri
öru þekkingu vorri á og um-
gengni við hættuleg fyrirbæri
í þessum heimi. Mannkynið
hefur á langri sögu sinni marg
oft snúizt gegn eðlis-óvinum
sínum. í dag stöndum við and
spænis óttalegu vali.
— Við höfum sölsað undir
okkur miklum hluta þess
valds, sem við eitt sinn töld-
um að aðeins heyrði Guði til.
Skjálfandi af kvíða höfum við
náð yfirráðum yfir lífi og
dauða allra Iífvera jarðar.
Hættan, heiðurinn og valið á
úrslitastundu liggja hjá mann
inum sjálfum. Úr því við höf-
um tekið okkur guðlegt vald,
verðum við einnig að leita í
okkur sjálfum þeirrar ábyrgð
arfullu vizku, sem við eitt
sinn báðum að heyrði gtfö-
dóminum til.
— Maðurinn er í senn okk-
ar mesta hætta, og okkar ein-
asta von, sagði John Stein-
beok.
GARNAVEIKI hefur fundizt í 5 I
kindum frá bænum Skálpastöð-
um í Lundareykjadal, Borgar-
firði. Þar hefur garnaveiki ekki
fundizt áður.
Guðmundur Gíslason, læknir
að tilraunastöðinni að Keldum
skýrði Morgunblaðinu svo frá í
gær, að ekki væri enn vitað,
hvemig veikin hafi borizt að
Skálpastöðum.
Þrjár eða fjórar af kindunum
sem hafa veikina eru 3 vetra og
eru lífcur fyrir því, að þær hafi
smitast sem löimb. GarnaVeikis-
sýkillinn lifir utan á kindunum
í heilt ár í saur og óhreinindum.
Á næstunni verður unnið að
rannsófcnum á því hvernig veik-
in hefur borizt til Skálpastaða
og hvort hún hafi breiðst út. Lít-
ið ber á veikinni í byrjun.
Guðmundur Gíslason sagði, að
minni hætta væri nú á smitun
frá Skálpastöðum, en sl. tvö ár,
fyrst vitað væri um veikina og
ráðstafanir gerðar til að hindra
smitun. Hann sagði, að mifcið
áfall væri að fá veikina á svæði,
þar sem hún hefði ekki verið
áður.
TRYGGVI Helgason, sjúkraflug-
maður á Akureyri, hefur nú
stundað sjúkraflug um þriggja
ára bil. Hann hefur haft eina
flugvél af gerðinni Pi|>er patca.
Með þessari vél hefur Tryggvi
haldið uppi sjúkraflugi og flogið
á þessum þrem árum 166 sjúkra
flug með 172 sjúklinga, því stund
um hafa verið fleiri en einn í
ferð.
Auk þess hefur Tryggvi rekið
flugskóla á Akureyri og notað
til þess tvær flugvélar, en jafn-
framt önnur þeirra verið vara-
sjúkraflugvél, en hann telur það
mjög nauðsynlegt vegna sam-
gangna við sveitir á Norðurlandi
að vetri til.
Truflanir á
símasambandi
við Akureyri
Akureyri, 11. desember.
ÖRÐUGLEGA mun hafa gengið
að nó símasambandi til og fró
Akureyri laust eftir hádegi í dag.
Sumir héldu, að þetta stafaði
af línubilunum sem hefðu or-
safcazt af óveðrinu undanfarna
daga. Svo var þó ekki, heldur
stöfuðu erfiðleikarnir af raf-
magnsskorti á símstöðinni á Ak-
ureyri vegna rafmagnstruflana
frá Laxárvirkjun.
Allt símasamband komst í
eðlilegt borf, þegar fullur straum
ur kom frá orkuverinu.
St. E. Sig.
Garnaveifci hefur verið í Mýra
sýslu og barst hún þangað í fjár-
skiptum frá Eyjafi-rði.
Garnaveiki er á öllum Aust-
fjörðum, en þar hefur fé ekki
verið skorið niður. Á Norður-
landi er garnaveikisvœði á milli
Skjálfandafljóts og Héraðsvatna
og sunnanlands frá Hvalfirði að
Jöikulsá á Sólheimasandi.
Viðræður um við-
skipti við Rússa
SAMNINGAVIÐRÆÐUR standa
um þessar mundir yfir í Reykja-
vík milli fulltrúa íslands og Rúss
lands um viðskiptasamning milli
landanna.
Hófust viðræðurnar fyrir s.L
helgi og taka þátt i þeim fyrir
íslands hönd þeir Oddur Guð-
jónsson, viðskiptafulltrúi, Agnar
Kl. Jónsson, ráðuneytisstjóri,
Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri,
Bjöm Tryggvason, skrifstofu-
stjóri, Pétur Pétursson, forstjóri
og Halldór Jakobsson, fram-
kvæmdastjóri.
Hann telur einnig nau" ;ynlegt,
að fá þyrilvængju og er það mál
í athugun.
Skíðaflugvélin er væntanleg !
vetur. Hún mun vera af gerðinni
Cessna 180.
Eitt flugskýli er á Akureyrar-
flugvelli og er það þegar upp-
tekið af vélum Tryggva. Þeir
sem eiga einkaflugvélar á Akur-
eyri hafa þurft að flýja með þær
inn á Melgerðisvöllinn, sökum
rúmleysis í flugskýlinu.
„Ef ég bæti við mig fleiri
flugvélum verð ég að láta eitt-
hvað af þeim standa úti vegna
skorts á flugskýli“, sagði Tryggvi
við fréttaritarann.
St. E. Sig.
Brussel, 11. des. (NTB)
UTANBÍKISBÁÐHERRA
Belgíu, Poul Henri Spaak,
Spaak, skýrði frá því í dag, að
Belgar myndu hefja aðgerðir
gegn Katangastjóm innan
þriggja daga, ef fylkið greiddi
ekki sambandsstjórninni í Leo
poldville hluta af ágóðanum
af starfsemi námufélagsins
Union Miniére í Katanga.
Skýrt hefur verið frá því í
New York, að U Thant fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð
anna sé reiðubúinn að fara
þess á leit við Bandaríkin og
önnur ríki, sem viðskipti eiga
við Katanga, að þau beiti fylk
ið viðskiptalegum þvingunum,
ef Tshombe fylkisstjóri þrjózk
ist lengur við, að sameina fylk
ið öðrum hlutum Kongó.
Gústaf IV. Adolf afhendir John Steinbeck Nóbelsverðlaunin
Trygfffvi kmipir
skíSaiiuffvéi
Saka Indverja
um ögranir
Skiptar skoðanir
framsóknarmanna
Peking, 11. des. (NTB).
PEKTNGST J ÓRNIN sakar Ind-
verja um að hafa rofið lofthelgi
Tíbet níu sinnum í dag. Fer stjóm
In þess á leit við Indverja, að
þeir hætti slíkum ögmnum þegar
í stað, og segir, að Indverjar
verði sjálfir að taka afleiðing-
unum af þeim.
Talsmaður indverska utanrík-
Lsráðuneytisins sagði í kvöld, að
ásakanir Kínverja ættu ekki við
rök að styðjast. Sagði hann, að
þær væra aðeins einn liðurinn í
undirbúningi Kínverja undir nýj-
ar ofbeldisaðgerðir gegn Indverj-
um.
Indverska utanríkisráðuneytið
hefur skýrt frá því, að ekki sé
enn mögulegt að segja til um það
hvort liðsflutningar Kínverja á
landamærunum stafi af því, að
þeir hörfi eða af því að þeir und-
irbúi nýjar árásir á Indverja.
11 dagar eru liðnir frá því að
Kínverjar sögðust ætla að byrja
að draga heri sina til baka.
EINS og margoft hefur komið
í ljós ríkir mikill klofningur
innan Framsóknarflokksins
varðandi afstöðuna til dvalar
varnarliðsins hér á landi. Kom
það m.a. skýrt fram við um-
ræður um almannavarnafrum
varpið í gær, er Karl Krist-
jánsson lýsti því annars vegar
yfir, að hann teldi varnarliðs
málið ekki koma almanna-
vömum við. Sér virtist dag-
skrártillaga Alþýðubandalags
ins byggð á þeirri trú, að al-
gjört hlutleysi bægi öllum
hættum frá. „Ég hof
ekki þá trú,“ sagði þingmað-
urinn. „Stríðsæði, ef á stað
fer, virðir ekki hlutleysi, því
miður.“
Hins vegar kvað mjög við
annan tón hjá Sigurvin Ein-
arssyni. „Herinn á að fara,“
því að hann er menningu okk
ar hættulegur og einnig staf-
ar okkur „líkamleg hætta“ af t
honura. Það, að við skulum /
hafa sjálfsákvörðunarrétt, um, )
hvort vamarlið sé hér eða k
ekki, taldi hann sanna, að
bandalagsþjóðir okkar teldu
varnarstöðvamar hér lítils
virði. Hins vegar væri hlut-
leysi gagnlaust, en lega lands-
ins tryggði öllum samningum
betur, en Vesturveldin kæmu
okkur til vamax, ef til stór-
átaka drægi.