Morgunblaðið - 12.12.1962, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 12. des. 1962
MÖRGUNBLAÐIÐ
3
LEIKFÉLAG Kópavogs bauð
um daginn vistfólki í Dvalar-
heimili aldraðra sjómanna til
sín á leiksýningu. Leikurinn,
sem sýndur var, var Saklausi
svallarinn eftir Arnold og
Bach.
í tilefni af þessu þótti okk-
ur ástæða til að skreppa suð-
ur í Félagsheimili Kópavogs,
hitta aðeins gamla fólkið og
nota um leið tækifærið að
kynna örlítið þetta unga leik-
félag.
Við komum suður eftir
rétt fyrir hlé, og settumst þá
fremst hjá nokkrum af boðs-
gestunum og spurðum hvernig
þeim líkaði.
— f>að er gaman af þessu.
Þetta er náttúrlega hvergi
nærri alvarlegt, en það er vel
á vitleysunni haldið.
— Farið þið mikið í leik-
húsin?
var anzi gaman og alveg Vistmennirnir á DAS virðast skemmta sér konunglega, og víst
furða hvað þau gátu. virðast þeir hafa til þess ástæðu eftir sviðsmyndinni hér fyrir
Nú verða sjómennirnir okk- neðan að ðæma.
ur slyngari og fara að spyrja
Vistmenn D.A.S. á leiksýningu
— Okkur er boðið bæði I
Þjóðleikhúsið og í Iðnó. Til
dæmis sáum við Skugga-
Svein. Svo var okkur boðið á
leiksýningu hjá krökkunum
inni í Langholtsskóla. Það
okkur spjörunum úr, svo hlé-
ið verður ekki að meira
gagni. Brátt byrjar leiksýn-
ingin á ný og fyrr en varir
dynja hlátrarsköllin yfir hin-
um klassíska misskilningi,
sem flest gamanleikrit byggj-
ast á.
Eftir að hafa horft á leik-
inn um stund ránkuðum við
við okkur og mundum að við
áttum starf að vinna, og fór-
Sviðsmynd úr leikritinu „Sáklausi svallarinn“
Um sementsveröið
STJ6RNARFORMAÐUR og for-
stjóri Sementsverfksmiðju ríkis-
ins birtu í Morgunblaðiniu 29.
nóvember atlhugasemd við grein
mína um semenfcsverð verksmiðj-
unnar og telja sig væntanlega
hafa gert hreint fyrir sínum dyr-
uim. Engin tilraun er þó gerð í
afchugasemdinni, tdi að skýra það
hversvegna sementsnotendur á
íslandi þurfa að greiða nærri
helmingi hærra verð fyrir ís-
lenzkt sement, en sementsnot-
endur á Norðurlöndum þurfa að
greiða fyrir sement þar, fram-
leitt í heimadandi þeirra.
Eins og réttilega er bent á
1 afchiugasemid sementsveriksmiðj-
unnar, hefur litai eða enginn
innflutningur á sementi átt sér
•tað síðan verksmiðjan tók til
starfa. enda var þá beinlínis, að
beiðni verksmiðjustjórnarinnar,
tekið fyrir innflutning á sem-
enti, sem olii þá miklum vand-
ræðum, þar sem afgreiðsla verk-
smiðjunnar hófst ekki á tilsett-
um tíma og varð hér sements-
laust. Verðútreikningur minn er
byggður á fob verði sements, sem
keypt hafði verið árin áður en
verksmiðjan tók til starfa og adlt
þar tid sementsinnflutningur
stöðvaðist, og er mér ekki kunn-
ugt um að nokkur breyting hafi
orðið á því síðan. Sementsverk-
smiðjan ákvað sitt verð í upp-
hafi það sama og innflutt sem-
ent var selt úr vörugeymslum
innflytjenda þá. Rétt er að geta
þess að sement frá Rússlandi er
nokkru ódýrara fob, en frá Dan-
mörku. Á hærri fragt frá Rúss-
landi en frá Danmörku mestan
þátt í því að lægra fob verð
fékkst frá Rússland'i.
Verksmiðjustjórnin leggur sér
staka áherzlu á það, að sement
þeirra sé 30 krónum ódýrara frá
skipshlið, en úr húsi og telur það
sérstök hlunnindi. í áðurnefnd-
um útreikningi mínum, er akst-
urinn einn frá skipi í hús, reikn-
aður kr. 46.38 pr tonn, sem að
sjádfsögðu dregst frá verðinu á-
samt kostnaði við stöflun á sem-
entinu í hús. Meðan sement var
flutt inn, var það ávalt venja
þegar sement var selt frá skips-
hlið, að það var selt þeim mun
ódýrara sem kostnaði við heim-
keyrslu og stöflun þess nam. Er
því hér ekki um neina nýbreytni
að ræða, nema síður sé hvað
verðmismun ræðir.
Hlvað því viðvíkur, að Inn
kaupastofnun Reykjavíkur hafi
leitað tiliboða um sement til
hitaveituframkvæmda, þá er því
tid að svara, að það magn sem
um var beðið, var 1100 til 1600
um að leita okkur frétta af
leikfélaginu.
Leikritið, sem núna er
sýnt var frumsýnt 17. júní í
fyrra, og var þriðja verkefn-
ið á því ári. Nú er verið að
æfa tvö leikrit, Höfuð ann-
arra og Mann og konu. Seinna
í vetur stendur til að æfa
barnaleikrit, Börnin í skóg-
inum, sem er norskt, eins og
öll góð barnaleikrit virðast
vera.
Höfundur leikritsins, Börn-
in í skóginum, er kona, sem
hefur með höndum stjórn
barnatímans í norska útvarp-
inu. Hún er gift arkitekt, sem
hefur sent hingað nákvæmar
vinnuteikningar af sviði, sér-
staklega teiknaðar fyrir sviðið
í félagsheimilinw. Ennfremur
fylgdu með teikningar af öll-
um persónuunum og allar
sviðsetningar.
Leikfélag Kópavogs fer í
hverri viku leikferð út á
land, líka að vetrar lagi. Þeir
hafa farið um hávetur austur
fyrir fjall, suður á Reykjanes
og upp í Borgarfjörð. Þetta
hefur nú um nokkurt skeið
verið fastur liður á dagskrá
þeirra. Er þeim þá vanlega
tekið með miklum kostum,
þar sem þeir koma til að lífga
upp í fásinninu.
tonn á ári í fjögur ár, og skyldi
afgreiðala þess fara fraim í
þrennu lagi árlega. Flutnings-
dsostnaður sem er verudegur hluti
verðs á innfluttu sementi, fer
mjög eftir því magni sem flutt
er hverju sinni. Munar því talts-
verðu á flutningsgjaldi hvort
leigt er sikip fyrir 500 tonn eða
2000 til 3000 tonn, eins og al-
gengt var að sementsinnflytjend
ur gerðu. Engir þeir, sem um
áratugi önnuðust innflutning
sements tid landsins, gerðu til-
boð í ofangreint sement, enda
vart við því að búast, þar sem
samkeppnisaðstaða innflutts sem
ents við sement framleitt liér,
ætti varla að vera diugsanlegt,
ef sementsverð hér væri í nokkru
samræomi við semenfcsverð annars
staðar, og er þá komið að kjarna
máilsins.
í athugasemd verksm.stjórnar-
innar segir, að lægsta tiliboð er
Innkaupastofnuninni barst, hafi
Frarnh. á bls. 22.
mKSTEINAR
Harðari flokkur?
Fyrr á árum fóru kommúnistar
eins og kunnugt er ekkert dult
með áætlanir sínar um valdarán.
Síðan tóku þeir upp þá stefnu
að ræða þau mál einungis á
fundum sinum, en dylja fyrir-
ætlanir fyrir almenningi. f gær
segir Moskvumálgagnið, að allt
af hafi verið hugmyndin að birta
leyniáætlun þá, sem Morgun-
blaðið skýrði frá sl. sunnudag.
Það hafi bara átt að athuga hana
svolítið nánar í nokkra mánuði!
Orðrétt segir:
„Umræðum í flokksdeildum
verði lokið fyrir febrúarlok 1963
og fái þá 9 manna ttefndin frum
varpið á ný tii meðferðar og hafi
hliðsjón af þeim athugasemd-
um, sem fram hafa komið í Sósia
listafélögunum og leggi það síð-
an fyrir miðstjórn til afgreiðslu.
Hafi miðstjórn vald til end-
anlegrar afgreiðslu frumvarps-
ins á grundvelli þess sem fram
kemur í upphafi þessarar álykt-
unar.“
Ályktunin, sem um getur,
segja kommúnistar, að samþykkt
hafi verið á flokksþinginu. Þar
segir raunaj? hvergi ,að birta
eigi leyniáætlunina, og meira að
segja er Ijóst, að það hefur bein
línis verið samþykkt, að hún
skyldi ekki birt á næstunni, enda
kosningar framundan.
Breytt stefna
En kommúnistablaðið bætir nú
við: „Samkvæmt þessu verður
ályktunin nú prentuð sem hand-
rit, þannig að allir sósíalistar
geti fengið hana í hendur, og
þegar formlega hefur verið frá
henni gengið, verður hún gefin
út í stóru upplagi."
Eftir þessu að dæma hafa
kommúnistar komizt að þeirri
niðurstöðu, að úr því að Morg-
unblaðið hefur fengið ályktun-
ina og skýrt frá meginefni henn-
ar, skipti ekki öllu máli, þótt
hún verði gefin út, en ólíklegt er
þó, að það verði gert fyrir kosn-
ingar. Ánægjulegt er aftur á
móti, að kommúnistar skuli gera
bandamönnum sínum í Fram-
sóknarflokknum þann grikk að
meðganga ályktunina, en Tíminn
talar í ritstjórnargrein í gær um
það, að Morgunblaðið „þykist
hafa komizt yfir“, samþykktina
og gefur það í skyn, að blaðið
hafi falsað ummæli sín.
SÍA-menn ráða
Niðurstaðan af átökunum á
kommúnistaþinginu varð sú, að
menn sannfærðust um það, að
meiri hörku þyrfti í flokknum.
Síðan þinginu lauk hefur Einar
Olgeirsson leitað samstarfs við
SÍA-mennina, sem stóðu með
Lúðvíki Jósefssyni á flokksþing-
inu. Hefur Einar náð algjörum
undirtökum í flokksdeildunum
í Reykjavík og augsýnilega tek-
izt að ná samningum við deild
SÍA-manna. Af því má marka
að ákveðið sé að taka upp harð-
ari stefnu en áður og reyna að
flýta fyrir því að sú þróun verði
hér, sem leitt geti til valdaráns
En SÍA-mennirnir eru eins og
kunnugt er áfjáðir í að full-
komna það ætlunarverk, sem
þeir bjuggu sig undir við „nám“
sitt fyrir austan jámtjald. Þeir
fögnuðu átkaft „valdaránsáætlun
inni“ á flokksþinginu, og ekki
er ólíklegt, að þeir telji rétt að
birta hana eftir kosningar, þó
væntanlega rækUega endurskoð-
aða. Þeir munu álíta að óhætt
sé að bjóða Framsóknarflokkn-
um ýmislegt, jafn náið og sam-
starfið við hann er orðið. Og
þeir virðast í þessu efni hafa
rétt fyrir sér, því að Tíminn í
gær ber þess Ijós merki að
Framsókna rmenn ætla síður esn
svo að láta af samstarfi við
kommúnista, þótt ljóst sé nú
hvert stefnt er.