Morgunblaðið - 12.12.1962, Side 5
Miðvikudagur 12. des. 1962
MORGVTSBLAÐIÐ
5
MENN 06
= mtEFMm
LAUST fyrir tólf kom hing-
að frá Gautaborg Loftleiða-
flugvél með sérstaka send-
ingu innanborðs. Þegar búið
var að renna stiganum að diyr
um flugvélarinnar birtist í
þeim ung stúlka með ljóm-
andi kórónu á höfði. Þar var
komin Lucia frá Svíþjóð, sem
á að koma fram á Luciu-há-
tíð Sænsk-íslenzka félagsins
í Þjóðleikhúskjallaranum.
Guðlaugur Rósinkranz, þjóð
leikhússtjóri og formaður
Sænsk-íslenzka félagsins, beið
. komu hennar úti á flugvelli á-
samt Birnu Geirsdóttur, sem
kom fram sem Lucia í fyrra.
Við náðum tali af stúlkunni,
sem heitir Eva Larsson, og er
efnafræðastúdent við háskól-
ann í Gautaborg.
— Hvernig orsakaðist það
að þér komið hingað?
— Ég var Lucia í Gautahong
1959 og svo atvikaðist þetta
bara svona.
— Eruð þér meðlimur í
Sænsk — íslenzka félaginu?
— Nei, éig var bara beðin
uim að fara hingað, og ég
hafði náttúrlaga ekkert á móti
því.
— Verið þér hérna lengi?
— Nei, ég fer aftur til baka
á föstudag, en ég vona að ég
geti notað tímann vel.
— Þér ætlið kannski að
fara að skoða borgina strax í
fyrramálið?
— Nei, ætli ég reyni ekki
að sofa út fyrsta daginn, en
ég fer á kreik strax eftir há-
degið.
Guðlaugur Rósinkranz gaf
okkur þær upplýsingar, að
þetta væri í fyrsta skipti, sem
fengin væri erlend stúlka til
að koma fram sem Lucia.
Sænsk-fslenzka félagið í
Gautaborg hefði haft milli-
göngu um að útvega stúlk-
una, og Loftleiðir hefði síðan
boðið stúlkunni far fram og
til baka.
Allt á barnið — Veljið það bezta
Austurstræti.
Odýrt! Ódýrt!
Telpukápur (alull)
Stærðir 4—12 ára. Verð kr. 445,00 — 650,00.
Smásala. — Laugavegi 81.
Frystikista og ölkælir
til sölu á hagkvæmu verði. —
Upplýsingar í síma 16680.
SPEGLAR
Speglar í teakrömmum. — 3 gerðir.
Úrval af speglum. — Framleiðum cinnig
spegla eftir máli fyrir jól.
Fallegur spegill er kærkomin jólagjöf.
Glersalan og Speglagerðin
Laufásvegi 17. — Sími 23536.
Eva Larsson, þegar hún kom úr flugvél Loftleiða. (Ljósm. Sv. Þ.)
Endurskoðun
70 ára er í dag Sigurður Eyj-
ólfsson, Fálkagötu 34. Hann dvel
ur úti á landi í dag.
Sil. laugardag voru gefin sam-
an í hjónaband í kapellu Háskól-
ans af Ásmundd Guðmundssyni
fyrrv. biskup, ungf'rú Hólmfríð-
ur Kofoed-Hansen (Agnars, flug
málastjóra) og Fróði Björnsson,
flugmaður (Franzsonar, rith.).
Heimili ungu hjónanna er að
Sunnuvegi 23, Reykjavík.
Leiðrétting
T>au mistök urðu í blaðinu í gær,
að niður féll nafnið: Happdrætti Sjálfs
bjargar í grein í Dagbók.
Fermingarbörn séra Bjarna
Jónssonar frá haustinu 1922
komu nýlega saman til að
minnast þess, að 40 ár eru lið
in frá fermingu þeirra. — Alls
voru fermingarbörnin 28, en
4 eru nú dáin. 15 þeirra gátu
komið því við að taka þátt í
samkvæminu, sem haldið var
í gamla biskupshúsinu í Tjarn
argötu 26. Nokkrir komu með
maka sína. Síra Bjarni Jóns-
son, vígslubiskup, og kona
hans, frú Áslaug Ágústsdóttir,
voru að sjálfsögðu heiðurs-
gestir. Prestsfrúinni voru færð
blóm. Ræður voru fluttar.
Sálmurinn Dagur er, dýrka
ber Drottin Guð minn, sem
síra Bjarni kenndi börnunum
lagið við á sínum tíma, var
sungmn, einnig voru önnur
ljóð sungin. Margs var minnst.
Þakkir voru færðar þeim,
sem börnin fermdi. Síra Bj arni
var hrókur fagnaðarins. í
þeirri trú, að fleiri börn yrðu
borin í kirkju til skírnar, ef
kirkjan ætti sjálf skírnarkjóla
til þess að klæða börnin í með
an á skírnarathöfninni stend-
ur, tóku 40 ára fermingarbörn
in þá ákvörðun að gefa Dóm-
kirkjunni skírnarkjóla.
Guðrún Jensen, sem hug-
myndina átti, hefir nú útveg-
að þrjá skírnarkjóla og af-
hent þá frú Áslaugu og síra
Bjarna til að koma þeim á-
leiðis til safnaðarstjórnar Dóm
kirkjunnar.
Ungur maður með prófi frá Verzlunarskóla íslands
eða Samvinnuskólanum, óskast á endurskoðunar-
skrifstofu. Eiginhandar umsókn með upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgr. Mbl.
fyrir 17. þ.m. merkt: „Framtíð — 3128“.
Knattspyrnufélagið Víkingur
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Tjarnarbæ
í kvöld (12. des.) kl. 8.15. Fundarefni: Venjuleg
aðalfundarstörf.
Stjórnin.
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
Með því að kaupa
JÓLAKORT
RAUÐA KROSSIMS
styðjið þér ALSÍRSÖFNUNINA.
Kortin eru gerð eftir myndum
frú Barböru Árnason.
Bifreiðaeftirlit ríkisins, Borgartúni 7, verður
lokað í dag
miðvikudaginn 12. des. frá kl. 12 á hádegi vegna
jarðarfarar Jóns S. Ólafssonar, fyrrverandi for-
stöðumanns.
Bifreiðaeftirlitið.
n