Morgunblaðið - 12.12.1962, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 12. des. 1962
JMwQpniiMðMfr
Otgefandi: Hf. Árvakur, Reykj avík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakið.
FRAMSÓKN LÆTUR
EKKI SEGJAST
I
Sovétstjórnin hækkar fjárframlög
til landvarncs,
vísinda og
landbúnaðar
Fjárlagafrumvarp fyrir
1963 lagf fram í dag
ví miður fór eins og Morg-
unblaðið óttaðist, að
Framsóknarforkólfarnir væru
svo djúpt sokknir í kommún-
istasamstarfinu, að þeir
treystu sér ekki til að draga í
land, þótt opinberlega sé nú
uppvíst, hver áform komm-
únista eru með „þjóðfylking-
imni“, sem þeir undirbúa
með Framsóknarflokknum.
Ritstjóri Tímans, Þórarinn
Þórarinsson, er meira að
segja sárleiður yfir því, að
Morgunblaðið skuli skýra frá
valdaránsáætlun kommún-
ista. í ritstjórnargrein talar
hann í því sambandi um
„botnlausan heilaspuna“, „al-
menna undrun og aðhlátur
landsmanna", „botnlausan
þvætting", „fáránlegan mál-
flutning“, „nazistískan hugs-
unargang“, „æsiskrif, sem eru
ferlegri en nokkuð annað“,
„foraðshlaup“, „glórulausan
„þjóðfylkingar“-vaðal“ o. s.
frv.
1 valdaránsáætlunum komm
únista segir þó umbúðalaust,
að allt starf flokksins miðist
við það, að koma kommún-
isma á á íslandi „og öll stefnu
mið hans í einstökum málum
miðast við þetta lokatak-
mark“. Síðan er það rækilega
rakið, hvernig ná eigi þessu
„lokatakmarki“, og vonimar
við það eitt bundnar, að
Framsóknarmenn haldi á-
fram því samstarfi, sem þeir
hafa tekið upp við kommún'-
ista.
1 áætluninni eru síðan
raktar aðgerðir, sem eru í
nákvæmu samræmi við bar-
áttuaðferðimar í leppríkjun-
um, þegar verið var að svíkja
þau undir heimskommún-
ismann, og Framsóknarflokk-
urinn talinn líklegur til að
gegna því hlutverki, sem
sakleysingjar í þeim löndum
gegndu.
Auðvitað ætluðu þeir lýð-
ræðisflokkar, sem ógæfu-
verkin unnu í leppríkjunum,
ekki að láta málin þróast
þannig, að þjóðir þeirra
misstu frelsi. En þeir vom
svo einfaldir að átta sig ekki
á bardagaaðferðum kommún-
ista og svo valdafíknir að
fylgja kommúnistum í stjórn-
arathöfnum. Eftir reynsluna
í leppríkjunum hefði mátt
ætla, að lýðræðislegir flokk-
ar annars staðar forðuðust
samstarf við kommúnista, en
því miður hefur sú orðið
raunin hér, að samvinna
Framsóknarflokksins við er-
indreka heimskommúnism-
ans verður nánari með hverj-
um deginum sem líður.
HVERNIG NÁ
ÖFGAMENN
VÖLDUM?
llið kommúníska uppeldi um
heim allan miðast við það
fyrst og fremst að kenna nið-
urrifsmönnum, hvemig þeir
eigi að fara að því að komast
til áhrifa og valda. Hvar-
vetna gera kommúnistar á-
lyktanir um valdatökuna. —
Fyrrum var ekki farið dult
með valdatökuáformin, en
síðar var sú bardagaaðferð
tekin upp að ræða þau mál
einungis á flokksfundum, en
dylja þau almenningi.
En ef menn vilja kýnna sér
það, hvemig öfgamenn fara
að því að ná völdum í lýð-
ræðisríkjum, þá er engin leið
heppilegri til þess en ein-
mitt sú að kynna sér valda-
tökuáætlanir kommúnista,
hvort heldur þeim hefur ver-
ið hrundið í framkvæmd eða
ekki.
Af öllum þessum áætlun-
um sést berlega, að komm-
únistar leggja megináherzlu
á nytsemi þá, sem þeir geta
haft af ístöðulitlum flokkum
og tækifærissinnuðum stjórn-
málamönnum á borð við þá,
sem nú ráða Framsóknar-
flokknum. í rauninni byggj-
ast valdadraumar kommún-
ista hvarvetna á afstöðu þess-
ara manna, enda hafa þeir
fært kommúnistum völdin í
fjölmörgum þjóðlöndum.
En það eru raunar fleiri
dæmi imi valdarán öfga-
manna en úr heimi kommún-
ismans. Þannig hagnýtti Hitl-
er sér einnig skammsýni í-
stöðulítilla manna, þegar
hann var að taka völdin í
Þýzkalandi.
En hið furðulegasta er, að
þeim mönnum, sem studdu
Hitler til valda, var fullljóst,
að hann hafði boðað einvalds-
og ógnarstjóm í ritum sín-
um, alveg á sama hátt og
kommúnistar gera. Engu að
síður freistuðust þeir til að fá
honum í hendur þau völd,
sem hann styrkti jafnt og
þétt, þar til engin rödd önn-
ur en hans fékk að heyrast.
Og var það þó sannarlega
ekki ætlun allra þeirra, sem
studdu hann til valda.
Þegar þessi dæmi em höfð
í huga, er það með ólíkindum,
að annar stærsti stjómmála-
flokkur íslands skuli ætla sér
að styðja ofbeldismenn til
æðstu trúnaðarstarfa, en því
miður virðist sú ætla að verða
raunin á með Framsóknar-
flokkinn.
TEKST
SAMKOMULAG?
resta sú, sem Bandaríkja-
menn sýndu í Kúbumál-
inu, virðist hafa sannfært
Rússa um, að stefna hótana
og þvingana sé ekki líkleg til
árangurs eins og nú horfir.
Jafnframt er þeim ljóst, að
hemaðarmáttur Bandaríkj-
anna er orðinn miklu meiri
en Ráðstjómarríkjanna.
Af þessu hvorutveggja
leiðir, að þeir eru nú viðmæl-
anlegri um eftirlit með kjam
orkutilraunum, og benda
fregnir til þess, að þess sé
skammt að bíða, að samkomu-
lag náist um eftirlitsstöðvar,
sem nægi til þess að fyrir-
byggja tilraunir á laun.
Slíku samkomulagi myndi
fagnað um heim allan og
það mundi draga mjög úr
spennunni í alþjóðamálum.
Mosfevu, 10. des. (NTB-AP)
í DAG VAR fjárlagafrumvarp
ríkisstjórnar Sovétríkjanna fyrir
árið 1963, lagt fyrir æðsta ráð-
ið, en vetrarfundir þess hófust
í dag. Krúsjeff forsætisráðherra
Sovétríkjanna og öðrum leiðtog-
um var ákaft fagnað, þegar þeir
tóku sér sæti á fundinum, en
meðal þeirra var Vorosilov,
fyrrv. forseti Sovétríkjanna.
Samkvæmt fjárlagafrumvarp-
inu verða fjárframlög til Iand-
varna, vísinda og landbúnaðar
í Sovétríkjunum árið 1963 hærri
en nokkru sinni fyrr.
Til landvarna verður veitt
13.900 milljónum rúblna og er
það 500 milljónum hærra en á
þessu ári. Til vísinda verður veitt
400 milljónum rúiblna og er það
9% hærri upphæð, en á þessu
ári.
Ff á rmá! a rá ðhe r na Sovétrífej-
anna Vasilij Garbuzof sagði i
samibandi við hið háa framlag
til landvarna, að Sovétríkin
myndu halda áfram að vinna í
þágu friðar í heiminum, en nauð
synlegt væri að halda landvörn-
unum eins öflugum og unnt væri
þar til samfeomulag um afvopn-
tui hefði náðst.
Formaður Efnahagsráðs Sovét-
ríkjanna, Venjamin Dymshits,
skýrði frá áætlun um aukna
framleiðslu neyzluvara. Sagði
’hann að meira yrði um þvotta-
vélar, kælisfeápa og vindlinga á
markaðnum 1963, en verið hefði
á þessu ári. Sagði Dymshits, að
Fr_mhald af bls. 17.