Morgunblaðið - 12.12.1962, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 12. des. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
17
Upp á líf og dauða
Dr. Sigurður Þórarinsson segir í Mbl. 9. des.:
„En hann skrifar þessa sjálfsævisögu sína eins og sá einn getur,
sem ekki aðeins er gættur góðum gáfum og skarpskyggni, held-
ur hefur einnig ósvikna skáldæð . . . Þessi fágaði heimsmaður,
glæsilegri en nokkur kvikmyndahetja í Hollyvúdd og kunnáttu-
maður um heimsins lystisemdir hefur lifað árum saman frum-
stæðu lífi fátækra Eskimóa á austurströnd Grænlands. Þessi
fullhugi, sem hvað eftir annað hefur horfzt í augu við dauð-
ann, án þess að æðrast og alla ævi virðist hafa lifað eftir eink-
unarorðum fyrirrennara síns og fyrirmyndar: Pourquoi pas?
Hvers vegna ekki? hann skrifar nú bók, sem réttilega gæti
heitið Pourquoi? Hvers vegna . . .“
FROÐI
— Jólakort
Framlh. af bis. 6.
nú sem fyrr þessi kort, því allur
ógóði af sölunni rennur óskertur
íil Barnahjálpar S.Þ.
Máltækið segir, „Það er sárt að
eiga barn en ekki brauð“. Þetta
hefur okkur íslendingum verið
manna ljósast frá okkar eigin
fátæktar- og þrengingartímum.
Minnist þess nú, góðir bæjar-
Ibúar, þegar þið kaupið kort
Barnahjálpar S.Þ., >á eruð þið að
létta böli hungurs og sjúkdóma
af þurfandi börnum víðsvegar
ium heiminn, sem ekki geta náð
(þroska nema utanaðkomandi
hjálp komi til.
(Frétt frá Kvenstúdenta-
félagi íslands)
- Utan úr heimi
Framh. af bls. 12.
iðnaðarframleiðslan hefði auk-
izt um 45% frá 1959, en áætlað
hefði verið að hún yikist um 39%
Báðgert væri, að kjötframleiðsl-
an ykist um 10% á árinu 1963.
Auk þess kom fram á fundinum,
að 20% af iðnaðarfyrirtækjum
Sovétríkjanna væru rekin með
tapi og margir fulltrúar, sem
tóku til máls gagnrýndu það hve
margar iðnaðarvörur væru lé-
legar.
- Bréf frá New York
Framhald af bls. 13.
land en að Hekla væri þar og
stæði upp úr henni eldstólpi nótt
sem nýtan dag. Munndu þar vera
dyr sjálfs Vítis!
Síðan tæknin sigraði fjarlægð-
irnar hafa þjóðir heimsins feng-
ið tækifæri til þess að kynnast
með allt öðrum hætti en áður.
Nú er það orðið flestum ljóst, að
þekking þjóðanna og skilningur
á högum hver annarra er frum-
skilyrði þess að friðsamleg þró-
un og uppbygging geti haldið á-
pram á jörðinni.
S. Bj.
Cj:favörur
Króm, stál, plast og
keramik gjafavörur
* í miklu úrvali.
ÞORSTEINN BERGMANN
Gjafavörubúðin
Laufásvegi 14, sími 17-7-71.
JÓLAG JAFIR
NIVADA — ROAMER — PIERPONT
kven- karlmannsúr, þekkt svissnesk merki.
— Gott úrval.
STÁLVÖRUR — TEAKVÖRUR — KOPARVÖRUR
nýkomnar í miklu úrvali.
Mikið úrval af perlufestum, einnig armönd,
manchetthnappar, bindisnælur og margt
fleira hentugt til jólagjafa.
Magnús E. Baldvinsson
Laugavegi.12. — Sími 22804.
Hafnargötu 35. — Keflavík.
HÁLSFESTAR
OG SKART-
GRIPASKRÍN
SMEKKLEGAR
JÓLAGJAFIR
Hanna Bjarnadóttir og Jórunn Viðar æfa sönglög eftir
Fjölni Stefánsson, sem verða flutt í fyrsta sinn hér á landi
á tónleikum Musica Nova i kvöld.
Musica Nova í kvöld
FYRSTU tónleikar Musica Nova
á þessu starfsári verða að Hótel
Borg í kvöld kl. 21.00. Þetta er
fjórða starfsár félagsins.
Á tónleikunum í kvöld verður
flutt Serenade fyrir fiðlu, cello
og píanó eftir Jan Maegaard,
sem er 32 ára danskt tónskáld,
en verkið er somið árið 1960.
Flytjendur eru Einar G. Svein-
björnsson, Einar Vigfússon og
Atli Heimir Sveinsson. Á nor-
rænu tónlistarhátíðinni hér í
Reyikjavík 1954 var flutt eftir
þennan sama höfund sónata fyr-
ir violu.
Síðan verður flutt Duo fyrir
klarinett og fiðlu eftir Gunnar
Berg, sem einnig er danskur, 53
ára og ókunnur 'hérlendis. Þriðja
verkefnið er sónata fyrir hörpu,
eftir Paul Hindemith, og leikur
Jude Mollenhauer Webster hana.
Hún er bandarísk en hefur leik-
ið með Sinifóníuhljómsveit ís-
lands. Er þetta í fyrsta sinn, sem
flutt er hörpusóló á vegum fél-
agsins.
Að lokum verða flutt verk
tveggja íslenzkra tónskálda. Hið
fyrra er Áfstæður I og H eftir
Leif Þórarinsson, sem ekki hef-
ur verið áður flutt hérlendis, en
var frumflutt í New York og
hefur einnig verið leikið í Dan-
mörku. Þetta er vehk fyrir fiðlu,
cello og píanó og flytjendur eru
Björn Ólafsson, Einar Vigfússon
og Þorkell Sigurbjörnsson. Hið
síðara er Þrjú sönglög, eftir
Fjölni Stefánsson, samið við
kvæði Steins Steinars, Tíminn
og vatnið. Það var frumflutt í
Vín 1961 og var aftur flutt í
Kaupmannalhöfn í september í
haust. Flytendur verða Hanrfa
Bjarnadóttir og Jórunn Viðar.
Á annan í jólum mun Musica
Nova síðan flytja óperuna Amal
og næturgestirnir, eftir Gian-
Garlo Menotti í Tjarnarbæ. Áð-
ur hefur verið flutt óperan Mið-
illinn eftir þennan sama höfund,
sem er Bandaríkjamaður, fæddur
á Ítalíu.
Musica Nova ráðgerir að halda
aðra tónleika sína í lok febrúar
og þá þriðju í apríl. Á síðustu
tónleikunum verður meðal ann-
ars kynnt nýtt verk eftir Atla
Heimi Sveinsson, og einnig verð-
ur endúrflutt verkið Haustlitir,
eftir Þorkel Sigurbjörnsson, en
það var frumflutt á vegum fél-
agsins 1959. Annars má meðal
höfunda á þessum hljómleikum
nefna Matysis Seiber, Anton We-
bern, Béla Bartok og Alban Berg.
Stjórn Musica Nova skipa nú:
Jón Norðdal, formaður, Fjölnir
Stefánsson, Sigurður Markússon
og Þorkell Sigurbjörnsson.
Þjónn á
hverjum fingri...
NILFISK
heimsins bezta ryksuga.
Góð/r greiðsluskilmálar.
Sendum um allt land.
O. KORNERUP-HANSEN
Simi 12606. Suðurgötu 10.
Orðsending frá
Radíóverkstæðinu Hljómur
Getum ekki tekið fleiri tæki til viðgerðar fyrir jól.