Morgunblaðið - 12.12.1962, Side 24
Níræð kona
lærbrotnar
Akureyri, 11. desember.
TRYGGVI Helgason, sjúkraflug-
maður, kom í dag frá Kópaskeri,
en þangað hafði hann sótt ní-
ræða konu, sem hafði lærbrotn-
að.
Konan var flutt í sjúkrahúsið
Ihér, þar sem gert verður að meið
slum gömlu konunnar.
— St. E. Sig.
Línubátar á Akra-
nesi út í gærkvöld
Akranesi, 11. desember.
MErRIHLUTl síldveiðiflotans
var úti í gær, en þegar stormur-
inn óx lögðust bátarnir við
akkeri á Sandvík, undan Reykja
nesvita.
Bátarnir, sem lönduðu í gær,
fóru út um hádegi í dag. Land-
lega hefur verið hjá línubétun-
um s.l. sólarhring. Tóku þeir
bjóðin kl. 5,30 í kvöld og ætl-
uðu að ýta það í kvöld. — Oddur
Brezki togar-
inn með
skokko rntsjó
BREZKI togarinn Dinas frá
Fleetwood var tekinn í gær-
morgun af varðskipinu Óðni
fyrir meintar ólöglegar veið-
ar 1,1 mílu fyrir innan 6
mílna mörkin út af Langa-
nesi.
Þegar Óðinn náði togaran-
um var hann kominn 1,8 mílu
út fyrir ir.örkin og hélt varð-
skipið með hann til Seyðis-
fjarðar.
Þar hófust réttarhöldin kl.
4 síðdegis í gær. Vegna bil-
unar á símalínu var ekki hægt
að ná tali af fréttaritara blaðs-
ins á staðnum.
Brezki togarinn mun hafa
verið með skakka ratsjá og i
mun skekkjan hafa verið 0,7,
sjómílur.
Skipstfóri hrapar tii
hana á Hkureyri
Akureyri, 11. desember.
UM hádegi i dag var Jón Jó-
hannsson, skipstjóri á Særúnu
frá Siglufirði, á leið um borð
í skip sitt, þar sem það er í
slippstöðinni á Akureyri.
Jón var kiominn iftngleiðina
upp stiga að borðstokk skips-
ins. þegar hann féll skyndilega
aftur yfir sig og féll til jarðar.
Hann mui hafa komið niður á
höfuð og 'herðar á frosna jörð-
ina.
Fallið er talið 4Vz til 5 metr-
ar. Menn voru þarna nærstadd-
ir og var Jón þegar fluttur í
fjórðungssjúkralhúsið á Akur-
eyri, en er þangað kom var hann
látinn.
Talið er líklegt, að Jón hafi
látizt strax við fallið. Hann var
á sextugs aldri og á fjölskyldu
á Siglufirði — St. E. Sig.
Aðalfundur Fulltrúar. Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík
Stjórnin endurkjörin
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Birgir Kjaran, alþm., form.
Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfé-
laganna í teykjavík 1961—
1962. —
var haldinn í Sjálfstæðishúsinu
í gærkvöldi.
í upphafi fundar var Höskuld-
j ur Ólafsson, formaður Varðar,
kosinn fundarstjóri og Bjarni
Beinteinsson, formaður Heim-
dallar, fundarritari. Þá flutti
formaður stjórnar . fulltrúaráðs-
ins, Birgir Kjaran, skýrslu um
störf stjórnarinnar á starfsárinu
1961—’'62.
Að því loknu fór fram stjórn-
arkjör, en á aðalfundi fulltrúa-
ráðsins eru kosnir þrír í aðal-
stjórn og þrír í varastjórn ráðs-
ins. Voru allir endurkjörnir, sem
sæti áttu í stjórninni á siðasta
starfstímabili, en þeir eru: í að-
alstjórn: Baldvin Tryggvason,
frkvstj., Birgir ICjaran, alþm. og
Gróa Pétursdóttir, borgarfull-
trúi. í varastjórn: Guðm. Bene-
diktsson, bæjargjaldkeri, Jóhann
Hafstein, alþm. og Ragnar Lár-
usson, forstjóri. Auk þeirra eru
sjálfkjórnir í stjórnina formenn
Sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík. Það eru Bjarni Beinteins-
son, formaður Heimdallar, Hösk-
uldur ólafsson, form. Varðar,
María Maack, formaður Hvatar,
og Sveinbjörn Hannesson, form.
Óðins.
Þá flutti Jóhann Hafstein, al-
þingismaður, ræðu um stjórn-
málasamstarf NATO-ríkjanna,
og verður hún rakin í Mbl. síð-
ar. Að lokum þakkaði Birgir
Kjaran fulltrúaráðsmönnum það
traust, sem sér og öðrum stjórn-
armönnum hefði verið sýnt, og
hvatti Sjálfstæðismenn til þess
að vinna vel að framgangi flokks
síns.
Eimskip kaupir 1000
tonna danskt skip
í RÁÐI er, að Eimskipafélag fs-
lands kaupi 900—1000 tonna
danskt skip. Það heitir Ketty
Danielsen og er eign Otto Daniel
sen, skipamiðlara í Kaupmanna-
höfn.
Ketty Danielsen er 3ja ára
gamalt skip og hefur verið í sigl
ingum víða. Óttarr Möller, for-
stjóri Eimskipafélags fslands, er
staddur erlendis um þessar mund
ir, m. a. vegna samningaviðræðna
um kaupin á skipinu.
334 tonn fyrir
/66,600 mörk
TOGARINN Freyr seldi í gær-
morgun síldarfarm í Bremer-
haven.
Hann var með 334 tonn, sem
seldust fyrir 166.600 mörk.
Áður en endanlega er hægt að
ganga frá kaupunum þarf að afla
nauðsynlegra leyfa og lána.
Halda þarf aukafund hluthafa til
að samþykkja skipskaupin og
hefur fundurinn verið boðaður
milli jóla og nýárs. Þá verða
einnig rædd lög og samþykktir
félagsins og jöfnunarhlutabréf.
Stjóm Eimskipafélagsins ákvað
snemma í haust, að leita tilboða
erlendis frá um smíði tveggja
eða þriggja 1000 tonna vöruflutn
ingaskipa, sem nota skal til sigl-
inga umhverfis landið og geti
siglt beint utanlands frá til hafna
úti á landi og sparað þannig um-
hleðslukostnað og dýrmætan
tíma.
Kaupin á Ketty Danielsen er
einn liðurinn í þessum fyrirætl-
unum stjórnar Eimskipafélags ís
lands.
Matareitrun af
kœfu í Reykjavík
í LOK síðustu vifcu veiktust að
því er vitað er 13 manns með
einkenni um matareitrun. Eng-
inn veiktist þó hættulega.
Grunur féll strax á kæfu, sem
keypt var í verzluninni „Ásgeir“,
Langholtsvegi 174 hér í borg, og
búin var til þar í byrjun vik-
unnar. Var sala á henni stöðvuð
þegar á laugardag, og sýnishorn
tekin til rannsóknar. Kæfan hef-
ur ekki verið til sölu í öðrum
verzlunum.
Við rannsóknina hafa nú fund
ist í kæfunni sýklar, sem valda
matareitrun og nefndir eru staf-
gerlar (staphylococcus aureus).
Matareitrunin orsakast af sér-
stöku eiturefni, sem sýklarnir
framleiða, ef þeir komast í mat-
væli. Hins vegar er hér ekki um
smitun að ræða frá manni ti!
manns.
Ekki er vitað um neinn, sem
veikst hefur síðan salan var
stöðvuð.
Þeir, sem enn kunna að eiga
kæfu, sem keypt var í frarnan
Lítil telpa
kjálkabrotnar
ÞAÐ slys varð kl. 12.14 í gær-
dag, að lítil telpa, Ragna Briem
Baldvinsdóttir, Otrateigi 30, varð
fyrir bifreið á gatnamótum Nóa-
túns og Laugavegar.
Bifreiðinni var ekið suður Nóa
tún og fram með tveim strætis-
vögnum. Ragna mun hafa hlaup-
ið út á götuna fyrir aftan stræt-
isvagnana og í veg fyrir bifreið-
ina.
Ragna kjálkabrotnaði og hlaut
fleiri meiðsli. Hún var flutt á
Slysavarðstofuna og síðar á
Landsspítalann.
Útlenzkir læknar í slysi
austan Fjalls
Selfossi í gærkvöldi:
ÞAÐ slys varð á veginum á Skeið
ium, að ný Volkswagenbifreið
rann út af honum í beygju vegna
hálku.
Bifreiðin lenti með vinstri hlið-
ina á kletti, sem er fast við veg-
inn. Gekk hliðin inn og er bif-
reiðin talin nær ónýt.
í bifreiðinni voru tveir ungir
læknar, annar þýzkur en hinn
austurrískur. Þeir hafa verið á
skemmtiferðalagi á íslandi að
undanförnu.
Þeir höfðu tekið bílinn á leigu
í Reykjavík.
Ökumaðurinn meiddist nokkuð
á andliti og hlaut taugaáfalL
greindri verzlun frá miðviku-
degi til laugardags í síðustu
viku, eru hér með varaðir við
að neyta hennar.
Athugun leiddi í Ijós, að fram
leiðsluháttum kæfunnar var í
þetta sinn ábótavant, og verður
framleiðsla ekki leyfð á ný, fyrr
en ráðin hefur verið bót á þeiim
ágöllum.
(Frá Borgariælkni).
Jarðýta sleit
símalínuna
SÍMASAMBANDSLAUST var I
gær við Seyðisfjörð og Reyðar-
fjörð. Unnið er nú að gera við
skemimdir, sem urðu á símalin-
unni við Egilsstaði, þegar jarð-
ýta sleit hana.
Þjónn fyrir bifreið
UM sexleytið í gærkvöldi varð
það slys að maður varð fyrir
bíl á Tryggvagötu við mót Póst-
hússtrætis. Maðurinn, Jón Thor-
arensen, þjónn, Vesturg. 69, gekk
út á götuna í veg fyrir bílinn. Jón
var fluttur í slysavarðstofuna og
kvartaði um eymsli í fæti.
Setið við kerta-
Ijós ó flkureyri
Akureyri, 11. desember.
MIKILL hluti Akureyrarbæj-
ar var rafmagnslaus um 2%
klst. eftir hádegi í dag.
Rafmagnsskorturinn stafar
af bilun, sem varð í stærri
virkjuninni við Laxá. Þar
hafði laskazt lega í aðaltúr-
bínunni.
Á meðan starfaði gamla
virkjunin svo og toppstöðin
á Akureyri. Af þessum raf-
magnsskorti urðu þó nokkrar
truflanir í verzlunum, skrif-
stofum og íbúðum. Sátu marg
ir við lampa eða kertaljós síð
degis í dag. Nú er komið fuill
rafmagn vim allan bæinn.
— St. E. Sig.