Morgunblaðið - 18.01.1963, Síða 2

Morgunblaðið - 18.01.1963, Síða 2
2 MORCUNBLAÐIÐ Fðstudagur 18. janúar 1963 Öráðlegt að fjölga vagna- tegundum SVR Samþykkt kaup á 7 BORGARSTJÓRN Reykja- víkur samþykkti á fundi sín- um í gær, að tillögu stjórnar Innkaupastofnunar Reykja- víkurborgar, að keyptar skuli nú á næstunni 7 strætisvagna grindur af Volvo-gerð, en ár- leg vagnakaupaþörf SVR er álitin 7 vagnar. Innan stjórn- ar IR kom fram tillaga um, að 2 þeirra vagna, sem nú á að kaupa, verði af Leyland- gerð, en niðurstaða rannsókn ar, sem stjórnin lét fram- kvæma á því, hvort hag- kvæmt væri að f jölga tegund- Helzt frostið næsta mánuð? London og Washington, 17. jan. AP — NTB — Enn sjást engin merki þess, að hinum miklu og langvinnu frostum fari að linna. Veður- stofan bandaríska telur, að kuldar muni haldast allan næsta mánuð í miklum hluta Mið- og Norður-Evrópu, og hiti verði víða langt undir með allagi í ár. Telur veðurstofan að kald- ast verði í Danmörku, suður hlutum Finnlands og Svíþjóð ar, verulegum hluta Norður- I>ýzkalands, Norður-Frakk- lands og Suður-Englands. Fregnir hafa í dag borizt af snjóskriðum í Alpafjöllum og miklum erfiðleikum vegna ísa við strendur Danmerkur og í mynni Elbu. Bandaríska veðurstofan spá ir aukinni snjókomu á kulda- svæðinu. I suðurhluta Spánar, á ítölsku Rívierunni og í Júgó- slavíu spáir veðurstofan venju legu veðri og óvenjulegum hlý indum á Suður-ftalíu og Suð- ur-Grikklandi. Fregnir frá Noregi herma, að kuldamir hafi orðið alvar- leg áhrif á loðdýrarækt þar. Er reynt að auka fóðurgjöf, en þess eru dæmi, að komið hafi verið að minkum, frosn- um í hel. ★ Meðfylgjandi mynd var tekin á miðvikud. af hjólreiða mönnum úti á isnum við Askö, um það bil tvo kíló- metra frá landi. ísbrjóturinn „Lillebj öm“ kom þar að og varð skipstjórinn að kalla til mannanna að hypja sig í land. Sagði hann tiitæki þeirra stórhættulegt, því að víða væru sprungur í ísnum, eftir ferðir skipsins. Sótn kyrrir með lokuð ougu - - undir úvítum Gomúlku Berlín, 17. jan. NTB—AP — •Formaður kínversku sendinefnd arinnar á flokksþingi austur- þýzkra kommúnista sat í allan dag grafkyrr og þögull undir ræðum forystumanna annarra kommúnistaflokka, þar sem Nik- ita Krúsjeff forsætisráðherra Sov étrikjanna var hælt á hvert reipi og áköfum stuðningi lýst við sjón armið hans. Hvöttu ræðumenn kínversku kommúnistana til þess að láta af þrætum sínum um hug sjónir kommúnismans. Undir ræðu pólska kommúnistaleiðtog- ans Gomulka, sátu kinversku full trúarnir með lokuð augu og fóru fulltrúar frá N-Kóreu og N-Viet »i«m að dæmi þeirra. Þeir tóku faetdur aldrei undir lófatakið, fremur en Kínverjamir. Þetta er þriðji dagurinn, sem fram koma harðar ávítur á sjónar mið Kínverja. Wladislav Gom- ulka var fyrsti ræðumaðurinn á fundi þingsins í dag, og lýsti hann fullum stuðningi flokks síns við sjónarmið Krúsjeffs. Gomulka tal aði í 25 mínútur og var margsinn is gripið fram £ fyrir honum með lófataki og húrrahrópum, einkum þegar hann lýsti stuðningi við ýmsar athafnir Krúsjeffs í al- þjóðamálum. Hann beindi orðum sínum beint til Kínverja, en ræðumenn höfðu áður beint ásökunum sínum í garð Albana. Sagði Gomúlka, að kominn væri tími til þess, að Kínverjar og stuðningsmenn þeirra í deilunni, breyttu hinum skaðlegu sjónarmiðum sínum, þau væru gagnslaus og ábyrgðar- laus. Enn væri hægt að gera allt gott aftur. Til máls tóku einnig fulltrúar Tékkóslóvakiu og Frakklands. Sovézku dagblöðin birtu í dag alla ræðu Krúsjeffs á flokksþing inu og í „Pravda“ og Izvestija“ voru umsagnir um hana. Fregnir frá Peking herma að kínversku blöðin og útvarpið hafi ekki minnzt á ræðuna einu orði. Haft er eftir áreiðanlegum heimildum í Berlín, að vestræn- ir fréttamenn, muni aftur fá að- gang að flokksþinginu á morgun, Herlið SÞ til Kolwesi Elisábethville, 17. jan. — AP-NTB — TALSMAÐUR Sameinuðu þjóðanna í Elisabethville skýrði frá því undir mið- nætti í kvöld, að samning- ar hefðu tekizt með full- trúum samtakanna þar og Moise Tshombe, fylkis- stjóra Katanga, um að her- lið SÞ héldi til námuhæj- arins Kolwesi og tæki þar við yfirstjórn. Var ákveð- ið að herliðið héldi áleiðis tii borgarinnar eftir nokkr ar klukkustundir. Tshombe kom til Elisa- bethville í dag og hóf þeg- ar að ræða mál þetta við fulltrúa SÞ. Við komuna þangað kvaðst hann bjart- sýnn á, að nú næðist sam- komulag um Kongó-Kat- anga-málin, en ekki vildi hann ræða við miðstjórn- ina í Leopoldville fyr en hann hefði samið við full- trúa SÞ. nýjum strætisvögnum um hjá SVR, var sú, að ekk- ert benti til þess, að hægt sé að bæta rekstur SVR með kaupum á nýrri tegund vagna í dag. Við umræður á borg- arstjómarfundinum í gær kom það fram, að allir borg- arfulltrúar virðast sammála um, að ekki sé ráðlegt að fjölga tegundum vagna SVR, en hins vegar virtust sumir þeirrar skoðunar, að þær tegundir, sem nú eru í not- kun, Mercedes Benz og Volvo, væru ekki hinar hag- kvæmustu, þó að þær hafi á sínum tíma verið valdar eftir ítarlega athugun sér- fróðra manna á öllum þeim bifreiðategundum, sem til greina komu. Meirihluti borg arstjómar féllst hins vegar á þá samþykkt stjórnar IR — sem studdist við tæknilega athugun — að strætisvagna- tegundum verði ekki fjölgað að sinni. — Jafnframt sam- þykkti borgarstjóm að láta nú þegar hefja tæknilega at- hugun á reynslu og notagildi núverandi vagnakosts SVR og láta fara fram ítarlega rannsókn á öðrum tegundum almenningsvagna, er til greina gætu komið til notkun ar fyrir SVR. Óskar Hallgrímsson (A), sem í stjóm IR hafði lagt til, að keyptir yrðu 2 vagnar af Ley- land-gerð, hóf umræður um mál þetta á borgarstjórnarfundinum, og mælti mjög með því, að slík- ir vagnar yrðu keyptir. Þó kvaðst ÓH ekki vilja gerast tals- maður þess, að tegundum í notkun hjá SVR yrði fjölgað, en taldi hins vegar ekki ólíklegt — með þeirri reynslu, sem fengizt hefði af Leyland-vögnum í Kaupmannahöfn og Ósló — að þeir mundu taka fram annarri hvorri eða báðum þeim tegund- um, sem nú eru notaðar hjá SVR. Lagði ÓH á það áherzlu, að nauðsynlegt væri að skapa með þessu móti grundvöll fyrir samkeppnisútboð. Bar ÓH síðan fram tillögu um, að skipuð yrði föstudag, — en þeim var mein- aður aðgangur síðdegis í gær. 5 manna nefnd sérfróðra manna — skipuð einum manni frá 1 ^ NA 15 hnútar 1SV 50 hnútor X Snjúiamt * Úii 7 Shúrir K Þrumur W&S, KuUortH HftnM H Hmt L*Lmtl KL. 11 í gær var suðlæg átt og hlýtt hér á landi nema vestan til á Vestfjörðum. Skörpu skil lágu um Vest- firðina til suðvesturs. Á Kjör vogi var hvöss suðvestan átt og 6 stiga hiti, en samtímis var norðaustan gola og snjó- koma á Galtarvita. Svipaður munur kemur fram í Veður- athugunum frá skipum fyrir suðvestan land, eins og sjá má á kortinu. Frost er í Vestur-Evrópu suður að Pyr- enea-fjöllum. hverjum borarstjórnarflokki —. til þess að gera athttgun á kaup- um vagna fyrir SVR. Síðar á fundinum var honum bent á, að ekki ættu nema 4 flokkar full- trúa í borgarstjórn, og breytti hann þá tillögu sinni samkvæmt þvL Sigurður Magnússon (S), sem sæti á í stjórn Innkaupastofnun- ar Reykjavíkurborgar, gerði á fundinum nokkra grein fyrir þeirri tillögu IR að fjölga ekki að svo stöddu tegundum vagna hjá SVR. Forstjóri IR, Valgarð Briem, fól á sínum tima Guð- mundi Einarssyni verkfræðingi að gera athugun á tilboðum þeim, sem bárust vegna fyrir- hugaðra kaupa á vögnum fyrir SVR, og því sérstaklega, hvort ástæða væri til, að keypt yrði til reynslu ný tegund strætis- vagna. Niðurstöður þessarar rannsóknar Guðmundar Einars- sonar voru þessar: ,A) Ekkert hefur komið fram í þessari athugun, sem bendir til, Framhald á bls. 8. Gegn hag- kvæmari ávöxtun fjár Á borgarstjómarfundi i gær kom það fram í tillögu Guð- mundar Vigfússonar (K), að hann vildi banna að nota fé Húsatryggingasjóðs Reykja- víkurborgar til framkvæmda í/ þágu allra borgarbúa. Hélt hann fram þessari skoðun, enda þótt í ljós væri leitt, að hústryggingasjóður ávaxtaði fé sitt betur með þessu móti og um leið nyti borgarsjóður lánsfjár með hagkvæmari kjör um. — Frá umræðum um 7 þetta mál verður nánar skýrt 7 í blaðinu á morgun. 1 — Krúsjeff Framh. af bls. 1 • Krúsjeff kátur Krúsjeff var hinn kátasti, þar sem hann gekk rakleiðis að borgarmörkunum við Check- point Charlie í fylgd með Walt- er Ulbricht, leiðtoga austur- þýzkra kommúnista, landvarna- ráðherra A-Þýzkalands, Heinz Hoffmann, herstjóranum í A- Berlín, Helmut Poppe, og helztu mönnum sovézku sendinefndar- innar á þingi austur-þýzka komm únistaflokksins. Þeir voru um- kringdir öryggisvörðum, en Krúsjeff veifaði glaðlega til mannfjöldans, er safnazt hafði saman vestan megin markanna. Þegar hann hafði hlýtt á Helmut Poppe skýra frá ýmsu, er við hefur borið í Friedrich- strasse, sneri hann frá múrnum. Umferð hafði verið lokað um hliðið, meðan Krúsjeff var þar, og meðal þeirra, sem biðu eftir að komast vestur yfir, voru ítalsk ir blaðamenn og bandariskir her- menn í orlofi. ítalarnir þyrptust út úr áætlunarvögnum sínum og umkringdu sovézka forsætisráð- herrann, en hann hrópaði: „Vel- komnir, velkomnir". —■ Hann spurði, hvort einhver I hópnum talaði ensku og var þá náð í bandarískan liðsforingja. Krús- jeff greip í hendur liðsforingj- ans og bað hann segja, að hann óskaði öllum alls hins bezta. Brosti Krúsjeff glaðlega og sló liðsforingjanum á herðar. Hann svaraði stuttlega: „Þúsund þakk- ir, það var ánægjulegt að hitta yður“ — og fór aftur inn í bif- reiðina, er hann hafði endurtek- ið fyrir ítölunum orð Krúsjeffs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.