Morgunblaðið - 20.01.1963, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 20.01.1963, Qupperneq 12
12 MORGVNBL1fílÐ Sunmi'dagur 20. Januar 1963 ’ íírmtíílM&Mfo Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson, Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Ámi Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 4.00 eintakiö. RÓSTUSAMT KOMMÚNISTAÞING 17 ommúnistar hvaðanæva að úr heiminum þinga nú í Austur-Berlín og væri synd að segja, að þing þeirra hefði verið sérstaklega friðsamlegt. Þvert á móti hafa þar verið hatrammar deilur, og ásak- anir um hverskyns ávirðing- ar gengið á víxl. Eins og kunnugt er hefur kommúnisminn í framkvæmd einkennzt af heimsvalda- stefnu Sovétríkjanna og meg inhlutverk kommúnista ann- ars staðar hefur verið að svíkja þjóðir sínar undir yfir- ráð Rússa. Þetta gekk allt bærilega þar til að því kom, að kommúnistar í Kína fóru að láta málin til sín taka. . Kínverskum kommúnista- leiðtogum finnst að vonum illt að una þvi, að „hugsjón- in“ sé notuð til þess að styrkja heimsveldi Rússa, og eru síður en svo á því að beygja sig undir algjör yfir- ráð þeirra. Kínverskir komm únistar eru sjálfir heims- valdasinnar og vilja sem slíkir auka áhrif Kína og ieggja undir sig lönd og þjóðir. Lenin lýsti því á sínum tíma, að ætíð mundu verða átök milli heimsvaldasinna. Þau átök ætti heimskomm- únisminn að hagnýta sér, því að þau mundu að lokum verða heimsvaldasinnunum sjálfum að aldurtila. Kaldhæðni örlaganna er sú, að kenningar Lenins virðast ætla að sannast Munurinn er bara sá, að heimsvaldasinn amir í dag eru ekki gömlu ný lenduveldin, sem þegar hafa látið af nýlendustefmmni, heldur kommúnistaríkin sjálf, Rússland og Kína. Það er heimsvaldastefna þessara tveggja ríkja hvors um sig, sem er að liða hið kommún- íska veldi í stmdur, og er ósýnt hvaða afleiðingar það getur haft, þótt líklegast sé að til fullkomins fjandskapar dragi milli Kína og Rúss- lands. BAULAÐI EINAR? 17mar Olgeirsson er fulltrúi „íslenzkra" kommúnista á þinginu í Austur-Berlín. Honum finnst sjálfsagt sér- staklega ánægjulegt að vera gestur Ulbrichts, enda þekkir hann nákvæmlega „mann- kosti' hans og það dýrðarinn- ar stjómskipulag, sem hann hefur komið á, svo rækilega sem SÍA-menn hafa í leyni- skýrslunum til Einars lýst þessum stjórnarháttum. Fregnir frá þinginu herma, að kínverski fulltrúinn Wu hafi verið baulaður niður af meirihluta þingfulltrúa, þeg- ar hann flutti ræðu sína og réðst að Krúsjeff, Júgóslöv- um og fleirum. Ólætin voru svo mikil í fundarsalnum að ekki heyrðist mannsins mál. íslendinga fýsir að vonum að vita, hver hafi verið af- staða Einars Olgeirssonar á þinginu. Morgunblaðið efast að vísu ekki um að hann hafi nú sem fyrr staðið við hlið Krúsjeffs og Ulbrichts, þó hann kunni að hafa haft á- kveðna samúð með kínverska sjónarmiðinu. En blaðið leyfir sér að skora á kommúnistamálgagn ið hér á landi að upplýsa það, hvort Einar hafi verið í hópi þeirra, sem öskruðu, stöpp- uðu og fussuðu. Spurningin er: baulaði Einar? VANDAMAL ÆSKUNNAR Að undanfömu hefur mikið verið rætt um skemmt- anir æskulýðsins og aðstöðu hans til hollrar tómstunda- iðju, og er ánægjulegt að skilningur á þessu vanda- máli fer vaxandi með hverju árinu sem líður. Borgaryfirvöld Reykjavík- ur hafa haft frumkvæðið að víðtæku samstarfi við æsku- lýðinn og hin ýmsu félög hans til þess að bæta skil- yrði til skemmtana og tóm- stundaverkefna, og æskulýðs ráð hefur unnið mikið og merkilegt starf. En æskan lætur sér ekki nægja það sem gert hefur verið. Hún vill fá betri að- stöðu til skemmtána en þá sem skólar og æskulýðsfélög veita og hefur þar af leiðandi sótt á almenna veitingastaði. Veitingahúsið Lídó hefur gert tilraun til að halda æsku lýðsskemmtanir, þar sem þess væri rækilega gætt að allt færi fram með sæmd og vín væri ekki haft um hönd. Þessi rekstur hefur gengið erfiðlega, m.a. vegna skemmt anaskatts, sem lögum sam- kvæmt ber að heimta af þess um skemmtunum eins og öðrum. Vonir standa til að úrbæt- ur fáist í þessu efni og að því víkur Gylfi Þ. Gíslason í grein, sem hann skrifar í Al- þýðublaðið í gær. Þar segir hann m.a.: „Forráðamenn staðarins háfa óskað þess, að skemmt- UTAN ÚR HEIMI J Snjór á Miðjarðarh afsströnd EINS og skýrt hefur verið frá í fréttum er ekki gert ráð fyrir að frosthörkunum í Evrópu linni í bráð. Mynd- irnar, sem við birtum hér á síðunni gætú verið teknar hér á íslandi nema hvað kaktus- ar og aðrar suðrænar jurtir gægjast upp úr snjónum á annarri þeirra. Ef satt skal segja, eru myndir þessar tekn ar á Miðjarðarhafsströnd Fra.kklands. íslendingum, sem þangað hafa komið bregður sennilega í brún, þegar þeir sjá þessa sólríku paradís snævi þakta. í byrjun vikunnar snjóaði í fyrsta skipti í 20 ár í dverg- ríkinu Monaoo og í San Remo á Miðjarðarfhafsströnd Ítalíu féll snjór í fyrsta skipti í 30 áir. Borgimar Nissa og Cannes í Frakklandi voru einnig snævi þaktar og ítalir renndu sér á skíðum á Markúsartorg- inu í Feneyjum. í Nissa anaskattur sé ekki innheimt- ur af aðgangseyri að skemmti staðnum. í gildandi löggjöf er því miður ekki heimild til þess að fella niður skemmt- anaskatt af slíkum danssam- komum, hvort sem þær eru haldnar fyrir ungt fólk eða fullorðið. Hins vegar eru lög- in um skemmtanaskatt ein- mitt nú í endurskoðun og verður frumvarpið um breyt- ingar á gildandi lögum vænt- anlega lagt fyrir Alþingi, er það kemur saman að nýju síðast í mánuðinum. Væri óskandi að samkomulag verði um það á Alþingi að undan- þiggja heilbrigðar skemmtan ir, sem eingöngu eru ætlað- ar ungu fólki, skemmtana- skatti.“ Undir þessi orð vill Morg- unblaðið taka. Evrópuráðið styrk ir íslenzk menn- ingarmál BIRGIR Thorlacius ráðuneýtis- stjóri er nýkominn frá Strass- bourg, þar sem hann sat fund í Samstarfsráði Evrópuráðsins um menningarmál (CCC). Á fundi þessum var samþykkt fjárhags- áætlun fyrir menningarmála- starf Evrópuráðsins á árinu 1963. Er þar m. a. gert ráð fyrir fé til að gefa út á ensku bók frá íslandi, en Evrópuráðið hefur að undanförnu veitt fé til að gefa út á einhverju heimsmáli bækur, sem ritaðar eru á tungumálum, sem fáir lesa. Hefur einu sinni áður verið gefin út bók frá ís- landi í þessum bókaflokki. Þá var veitt fé til þess að gera tveim ur starfsmönnum Sinfóníuhljóm- sveitar íslands kost á að fara ut- an til að kynna sér rekstur hljómsveita. Rætt var um end- urskoðun á kennslubókum í landafræði, sem unnið hefur ver ið að um skeið á vegum Evrópu- ráðsins. Er í undirbúningi, að sérfræðingar á þessu svlði koml saman á ráðstefnu hér á landi árið 1964. — Á fundinum i Strassbourg fóru fram umræður um stofnun evrópskrar menning armiístöðvar í Delfi á Grikk- landi. Evrópuráðið hefur þegar heitið framlagi til þessarar stöðv ar, og á fundinum kom fram, að Danmörk, ísland, Noregur og Svíþjóð munu sameiginlega leggja fram nokkurt fé til henn- ar. — Önæðissamt hjá slökkviliðinu AKUREYRI, 19. jan. — í gær var slökkviliðið á Akureyri kvatt út 4 sinnum. Tvívegis var það vegna sinuelds, og í eitt skipti hafði kviknað rusli ná- lægt húsi. Á miðnætti var eldur laus í bíl í Helgamagrastræti, og brann hann nokkuð innan. Síð- an um áramót hefur slökkvilið- ið verið kvatt út tíu sinnum, en í ékkert skiptið hefur verið um alvarlegan eld að ræða. — St.E.Sig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.