Morgunblaðið - 01.02.1963, Page 3
Fostudagur 1. februar 1963
MORGVNM AÐ1B
3
50 ára
afmæli
ÞRIÐJUDAGURINN 22. janú-
ar var mjög viðburðaríkur hjá
Slökkviliði Reykjavíkur. Ekki
Varðstjóramir og konur þeirra: (frá vinstri) Anton Eyvindsson, sem er elzti starfsmaður
slökkviliðsins og um leið Reykjavíkurborgar, Jóhanna Pálsdóttir, Jósefína Ólsen, Þórður
Jónsson, Ingibjörg Jónsdóttir og Kjartan Ólafsson.
Slðkkviliðs Reykjavíkur
þó vegna þess að hús hafi
brunnið til grunna, heldur
hins, að þá var efnt til hófs
í Þjóðleikhúskjallaranum í til-
efni af 50 ára afmæli slökkvi-
liðsins.
Veizlan hófst með borðhaldl
kl. 8 um kvöldið og stýrði
Bjarni Bjarnason, formaður
Brunavarðafélagsins, henni
með miklum sóma. Jón Sig-
urðsson, slökkviliðsstjóri,
flutti annál, rakti sögu slökkvi
liðsins, las upp úr dagbókum
o. fl. Borgarstjórinn í Reykja
vík, Geir Hallgrímsson, flutti
ávarp. Einnig tók til máls
Kjartan Ólafsson, varðstjón.
Mikill gleðibragur ríkti yfir
hófinu. Ómar Ragnarsson
skemmti gestum með gaman-
vísnasöng, og síðan hófst al-
mennur söngur og var ekki
staðið upp frá borðum fyrr
en á 12. tímanum, en eftir það
var stiginn dans til kl. 2 um
nóttina.
Ekki gátu þó allir bruna-
verðir skemmt sér þetta kvöld,
þar sem ein vaktin varð að
vaka yfir öryggi borgarbúa
og vera til taks, ef á þyrfti að
halda, en svo var þó ekki sem
betur fer.
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, ræðir við Kjartan Ólafsson,
varðstjóra. Á milli þeirra sjást Gísli Halldórsson, arkitekt,
og Stefán Björnsson, forstjóri Sjóvá.
Framkvæmd veizlunnar rædd. Talið frá v. Bjarni Bjarnason,
veizlustjóri, Jón Sigurðsson, slökkviliðsstjóri, og Aðalsteinn
Sigurðsson, skrifstofustjóri slökkviliðsins.
STAKSTEINAR
w Léleg vörn
Hálfur mánuður er nú liðinn
siðan Morgunblaðið skýrði frá
því, að vinstri stjórnin hefði lát
ið fulltrúa sína í Efnahagssam-
vinnustofnuninni greiða atkvæði
með ályktun um stofnun fríverzl
unarsvæðis í Evrópu, sem tengd
ist Efnahagsbandalagi Evrópu
„og i framkvæmd tæki algjör-
lega tillit til markmiða Efnahags
bandalags Evrópu og öðlist gildi
samhjjóða Rómarsamnmgnum“.
Þetta fríverzlunarsvæði átti að
ná til „allra aðildarríkja stofn-
unarinnar“ (Efnahagssamvinnu-
stofnunarinnar) og þar með til
íslands. Framsóknarm.enn hafa
engar varnir haft í þessu máli.
Þeir hafa orðið berir að því að
hafa staðið að samþykktum um
það, að íslendingar tækju þátt í
fríverzlunarsvæði við Efnahags
bandalag Evrópu, en þó leyft sér
að ráðast nú að Viðreisnarstjórn
inni með hverskyns brigzlyrð-
um vegna þess eins, að hún hef-
ur ekki talið tímabært að tal. a
afstöðu til Efnahagsbandalags-
málsins. í gær gera þeir þó til-
raun til að halda uppi vörnum,
en þær eru þó heldur barnalegar.
Þeir segja, að íslendingar hafi
haft það í hendi sér á Iokastigi
málsins, að taka afstöðu til þess
hvort þeir samþykktu fríverzl-
unarsamninginn, sem íslendingar
greiddu atkvæði með að sair.-
inn yrði eða neituðu að ganga að
honum. Vitna þeir í orð Gylfa
Þ. Gíslasonar frá 1957 þessu til
staðfestingar.
Ljóst mál
Auðvitað segir það sig sjálft,
að enginn milliríkjasamningur
öðlast gildi fyrr en hann hefur
verið staðfestur. Þetta breytir
hinsvegar engu um þá staðreynd,
að vinstri stjórnin lét fulltrúa
sína greiða atkvæði með því, að
fríverzlunarsvæði yirði stofnað
með þátttöku íslendinga og það
tengt náið Efnahagsbandalagi
Evrópu. Munurinn á þessari á-
kvörðun og stofnu Viðreisnar-
stjórnarinnar er sá, að vinstri
stjórnin ákvað að taka þátt í
fríverzlunarsvæði, sem auðvitað
hefði þó orðið að bera undir Al-
þingi til samþykktar eða synjun
ar á lokastigi málsins, en Við-
reisnarstjórnin biður hins vegar
átekta og hefur enga slíka á-
kvörðun tekið.
Stjórn V.R. sjálfkjörin
ÞEGAR frestur til að skila list-
um eða tillögum um kjör stjórn-
ar, trúnaðarmannaráðs og end-
urskoðenda í Verzlunarmanna-
félagi Reykjavíkur fyrir næsta
ár rann út, hafði aðeins einn
listi borizt, Og er hann því sjálf-
kjörinn. Stjóm og trúnaðar-
mannaráð V.R. næsta ár er því
skipuð eftirtöldum mönnum:
Formaður: Guðm. H. Garðars-
eon. Aðalstjórn: Eyjólfur Guð-
mundsson, Hannes Þ. Sigurðs-
son, Helgi Guðbrandsson. —
Varastjóm: Halldór Friðriksson,
Hreinn Halldórsson,' .Markús
Stefánsson. Trúnaðarmannaráð:
Aðálmenn: Andreas Bergmann,
Einar Ingimundarson, Einar
Birnir, Gunnl. J. Briem, Gylfi
Sigurjónsson, Haukur Jósepsson,
Oddgeir Bárðarson, Ragnar Guð-
mundsson, Richard Sigurbaldurs
son, Stella M. Jónsdóttir, Sverrir
Hermannsson. Varamenn: Björg-
úlfur Sigurðsson, Gisli Einars-
son, Helgi Eysteinsson, Hjör-
leifur Jónsson, Hörður Felixson,
Lilja Gunnarsdóttir, Sverrir
Jónsson. Elndurskoðendur. Aðal-
menn: Gunnar Zoega, Þorsteinn
Bjarnason. Varamenn: Bjarni
Felixson, Páll Stefánsson.
Fyrir í aðalstjórn sem kjörnir
voru í fyrra til tveggja ára voru
Guðm. Garðarsson
þeir: Björn Þórhallsson, Hannes
Þ. Sigurðsson og Ottó J. Ólafs-
son.
París, 31. jan. (NTB-AP)
Ákveðið hafði verið að
varnarmálaráðherra Frakk-
lands, Pierre Messmer, héldi
til Bretlands í dag til við-
ræðna við brezka ráðamenn
á sviði varnarmála. För hans
hefur nú verið frestað um ó-
ákveðinn tíma.
Um hádegi í gær var miðja
háþrýstisvæðisins um SV-land
og hafið suður undan. Var loft
vog þar um 1047 millibar. Loft
vog hefur fallið talsvert á NA-
Grænlandi og skapast af því
nokkur V-blástur úti fyrir
Norðurlandi. Hiti er nú 1—5
st. vestan lands en vægt frost
austan land6. Á Bretlandseyj-
um er nú frostlaust, en hiti í
London aðeins 0 st. í París 6
st. frost og 13 st. í Berlín. í
Khöfn 3 st., í Osló 2 og í Stokk
hólmi 5 st. frost.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi:
SV-land: NV gola og bjart.
SV-mið: SV kaldi og skýj-
að.
Faxaflói til Vestfjarða,
Faxafl.mið til Breiðafj.miða:
SV og vestan kaldi eða stinn
ingskaldi og skýjað.
Norðurland: Vestan kaldi,
skýjað vestan til.
Vestfj.mið til NA-miða: —
Vestan stinningskaldi og skýj
að.
NA-land: Vestan og NV
kaldi, léttskýjað sunnan til.
Austfirðir, SA-land og mið-
in: Norðan og NV kaldi og létt
skýjað.
Líkt við landhelgismálið
Timinn hefur margsinnis Iíkt
stefnu rikisstjórnarinnar í Efna
hagsbandalagsmálinu við afstöðu
hennar í landhelgisdeilunni.
Þessa samlíkingu ættu stjórnar-
sinnar sízt að harma. Sannleik-
urinn er sá, að í Iandhelgisdeil-
unni unnu íslendingar einhvern
stærsta stjórnmálasigur, sem
þeir hafa unnið frá upphafi.
Þeim tókst þá með skynsemi og
festu að ná heilbrigðum samning
um við Breta, sem hvorutveggja
í senn tryggðu meiri hagsmuni ís-
lendinga en nokkur hafði þorað
að vona og um leið juku skilning
á því að ísland væri réttarríki,
sem vildi taka ábyrga afstöðu í
samskiptum þjóðanna.
Það er lítið verk og löðurmann
legt að reyna að stofna til æs-
inga og landráðabrigzla, en það
er erfitt verk að stýra þannig
utanríkismá.lum. landsins, að hags
munir þess séu ætíð tryggðir. Við
reisnarstjóanin hefur sýnt, að
hún er fær um hið síðara, en
Framsóknarmenn sýna dag hvern
að þeirra iðja beinist að hinn
fyrra. Þess vegna er ekki vandi
að velja á milli hinna tveggja
meginfylkinga í íslenzkum stjóm
n-.ilum, annars vegar þeirra, sem
styðja Viðreisnarstjórnina og
hinsvegar „þjóðfylkingar** Fram
sóknarmanna og kommúnista.
\
i