Morgunblaðið - 21.03.1963, Side 5
Fimmtudagur 21. marz 1963
MORCUNBL4Ð1Ð
y
Misjafnlega eru menn búnir í Grænlandsferffum, eins og sjá má á þessari mynd, sem Jóhannes
Bnorrason, flugstjóri á skíðaflugvél Flugfélags íslands, Gljáifaxa, tók í ferðinni til veðurathug-
nnarstöðvarinnar í Danmarkshavn, og sagt var frá í blaðinu í gær. í gærmorgun fór Jóhannes
í aðra ferðina með áhöfn sinni, Iagði af stað kl. 11 og þegar blaðið hafði samband við Flugfélagið
laust fyrir kl. 3, var Jóhannes nýlentur í Meistaravík. Annars er ferðinni heitið til Scoresby-
sund og Daneborg og áætlað að koma heim í kvöld.
Til sölu
N.S.U. skellinaðra í mjög
góðu standi, árg. ’60. Selst
á tækifærisverði. Uppl að
Hraunteigi 20. Simi 33262.
Svefnherbergissett
til sölu.
Upplýsingar í síma 36191.
Hárgreiðslumeistarar
Tvítuig stúlka óskar eftir
að komast að sem nemi á
góða hárgreiðslustofu. —
Upplýsingar í síma 33609
kl. 8—10 á kvöidin.
Trillubátur
Til sölu er 5 tonna trillu-
bátur með Listar vél. í
bátnum er dýptarmælir og
línuspil. Uppl. í síma 28094
kl. 5—7 sd.
5 herb. íbúðarhæð til leigu
um 140 ferm. með sér inng. og sér hitaveitu, rétt
við miðborgina. Leigist frá 1. apríl n.k. — Tilboð
merkt: „Hávallagata" sendist á skrifstofu
NÝJU FASTEIGNASÖLUNNAR
Laugavegi 12, fyrir 25. marz n.k.
í nýju húsi
480 ferm. á fyrstu hæð til leigu. Miklir möguleikar
fyrir byggingavöruverzlun, bifreiðaumboð, eða
hverskonar stóriðju. Tilboð sendist í pósthólf 167
9ornm
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Sköla
túm 2. opið dat ega frá kl. 2—4 9 u.
nema mánudaga.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74. er
•pið sunnudaga, þriðjudaga og finuntu
úaga kl. 1.30 til 4 e.h.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur, síml
1-23-08 — Aðalsafnið Þingholtsstræti
29A: Utlánsdeild: 2 10 alla virka daga
nema laugardaga 2-7 og sunnudaga
6-7. — L.esstofan: 10-10 alla virka
daga 2-7. — Útibúið Hólmgarði 34:
Opið 5-7 alla virka daga nema laug-
ardaga og sunnudaga. — Útibúið Hofs
vallagötu 16: Opið 5.30-7.30 alla daga
daga nema laugardaga 10-7 og sunnu-
nema laugardaga og sunnudaga.
Asgnmssafn, Bergstaðastræti 74 er
opið þriðjud., fimmtud. og sunnudaga
trá kL J .30—4 e.h.
Ameríska bókasafnið, Hagatorgi 1,
er opið mánudaga. miðvikudaga og
föstudaga, kl. 10—21. þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 10—18. Strætisvagna-
ferðir: 24,1,16,17.
Útibú við Sólheima 27 opið kl. 16-19
alla virka daga nema laugardaga.
Þjóðminjasafnið er opið þriðjudaga,
fimmtudaga, laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 1.30 til 4 e.h.
Tæknibókasafn IMSÍ. Opið alla
virka dasg frá 13-19 nema laugardaga
frá 13-15.
Listasafn Einars Jónssonar er lok-
að um óákveðinn tíma.
Listasafn íslands er opið þriðju-
daga, fimmtudaga, laugardaga og
sunnudaga frá kl. 1.30 til 4 e.h.
+ Gengið +
18. marz 1963:
Kaup Sala
1 Enskt pund ........ 120,28 120,58
1 Bandaríkjadollar .... 42.95 43,06
1 Kanadadollar ...... 39,89 40,00
100 Danskar kr. ......... 622,85 624,45
100 Norskar kr. ......... 601,35 602,89
100 Sænskar kr........... 827,43 829,58
lö* Finnsk mörk _ 1.335,72 1.339,K
100 Franskir fr. 876,40 878,64
100 Svissn. frk. ...... 992,65 995,20
100 Gyllini ........ 1.195,54 1.198,60
100 Vestur-Þýzk mörk 1.074,76 1,077,52'
100 Belgískir fr. 86,16 86,38
100 Pesetar ......... 71,60 71,80
100 Tékkn. krónur ........ 596,40 598,00
Luxemborgéar flugfreyfur Loftleiða
LOFTLEIÐIR fengu í fyrra-
kvöld hingað til lands 7 nýjar
flugfreyjur frá Luxemborg,
sem eru altalandi á að minnsta
kosti fjórum málum. Þykir það
sjaldgæfur eiginleiki meðal ís-
lenzkra stúlkna, þannig að
Loftleiðir hafa undanfarið ver
ið í vandræðum með farþega
sína frá Luxemborg, sem marg
ir hverjir tala ekkert nema
frönsku eða þýzku.
Stúlkurnar frá Luxemborg
hafa sérstaklega góða aðstöðu
hvað snertir kunnáttu í þess-
um málum, þar eð flestir íbú-
arnir í því landi eru þýzku-
mælandi en franskan hinsvo'g-
ar opinbera málið. Auk þess
er svo töluð í Luxemborg
þriðja tungan, luxeburgneska,
sem allir íbúarnir kunna og
tala yfirleitt sín á milli, nema
á mannamótum. Auk þess tala
þær svo flestar góða ensku.
Stúlkur þessar verða að starfi
á flugleiðinni frá Luxemborg
til Bandaríkjanna.
Morgunblaðið hitti stúlk-
urnar að máli í gær í bæki-
stöðvum Loftleiða í Tjarnar-
café. Voru þær þar á undir-
búningsnámskeiði ásamt nokkr
um íslenzkum stúlkum, sem
Loftleiðir eru einnig að ráða.
Ein stúlkan hefur unnið á
skrifstofu Loftleiða í Luxem-
borg um nokkurt skeið og
gegnt þar margs háttar störf-
um, en hinar vissu næsta lítið
um landið er þær réðu sig.
Sumar leituðu sér þeirra upp-
lýsinga sem þær gátu um land
ið, ein fór i bókasafn til að
fá að láni bækur um ísland,
en þar var þá engin til. önnur
gengur nú að staðaldri með
örlítið kort af íslandi í tösku
sinni, en kortið klippti hún
úr stórri landabréfabók, sem
faðir hennar átti, auk þess
sem hún las það serr. sagt er
um ísland í stóru Larousse-
alfræðiorðabókinni. Vonandi
hefur lærdómur hennar átt við
rök að styðjast.
Flestar létu þær sér þó
nægja að hlakka bara til að
koma hingað og gerðu sér eng-
ar hugmyndir um landið aðrar
en þær sem nafnið gefur í
skyn. En eins og ein stúlkan
sagði: „Þið senduð frostið og
snjóinn til okkar í vetur, en
við skilum því áreiðanlega til
baka til ykkar næsta vetur.
Flestar hafa stúlkurnar ferð
azt talsvert, mestmegnis um
Evrópu, meðal annars alla
leið -til Grikklands og Korsíku
og nokkrar þeirra höfðu ver-
ið vestan liafs. Allar eru þær
ógiftar utan ein, en hún hefur
um nokkurt skeið starfað við
Luxemborgska sjón\ arpsstöð
og séð þar um snyrtingaþátt.
En húsbóndinn er sjaifur alit
af í eilífum langferðum, „svo
þvi skyidi ég þá ekki líka
mega lyfta mér upp og skoða
heiminn"!
fyrir 26. þ.m., merkt: „Víðsýni — 6121“.
Lausar stöður
Búnaðardeild Atvinnudeildar Háskólans óskar að
ráða aðstoðarmenn til tilraunastarfa bæði í jarð-
rækt og búfjárrækt. Laun samkvæmt launalögum.
Ennfremur vantar ráðsmann að tilraunastöð stofn-
unarinnar að Korpúlfsstöðum. Umsóknarfrestur til
13. apríl n.k.
Atvinnudeild Háskólans.
Bílskúr
Óska að taka á leigu 40, 50 eða 60 ferm. bílskúr,
helzt í Vesturbænum, góð leiga í boði. Upplýsingar
í síma 12621.
Sumarbústaður
Óska að taka á leigu sumarbústað (í nágrenni
Reykjavíkur). Æskilegt að rafmagn væri í húsinu.
Upplýsingar í síma 19280 og 23920.
Stúlkur
óskast sem fyrst til frágangsvinnu. Upplýsingar
hjá verkstjóranum.
SJÓKLÆÐAGERÐ ÍSLANDS
Skúlagötu 51.
A T V IIM l\l A
Óskum eftir manni í smurverkstæði vort. — Helzt
.vönum. — Einnig óskast aðstoðarmaður á vélaverk-
stæði vort. Uppl. hjá Matthíasi Guðmundssyni.
Egill VilhjáSmsson hf.
Laugavegi 118. — Sími 22240.