Morgunblaðið - 21.03.1963, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.03.1963, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 21. marz 1963 MORCVISBLAÐIÐ 17 Breyting á lögum um tekjustofna sveitar- félaga Á FUNDI efri deildar á þriðju- dag mælti Jón Þorsteinsson al- þingismaður fyrir frumvarpi sínu um breytingar á lögum um tekju stofna sveitarfélaga. 1 fyrra horf. Kvað alþingismaðurinn ýmis nýmaeli og róttækar breytingar hafa verið gerðar með hinum nýju lögum um tekjustofna siveit- arfélaga. Og þó að löggjöf sú hafi í heild ver- ið til mikilla bóta, sé e.kki við því að búast, að öll nýmæli lag- anna fengju staðizt til lengd- ar. - Nú hefur reynslan leitt í Ijós, að reglur laganna um það, að ekki megi leggja tekju- og eignaútsvör á félcig og einstaklinga, sem at- vinnurekstur stunda, nema í einu sveitarfélagi, eru mjög öheppi- fegair og hafa leitt af sér margs konar misrétti. En samkvæmt lögunum skal leggja á einstakl- ing aðeins þar, sem hann á lög- heimili, en á félag skal einvörð- ungu leggja þar, sem aðalstarf- semi þess fer fram. Þegar ein- etaklingur eða félag rekur at- Sveinn Bjarnason Vinnu í ffleiri sveitarfélögum en einu, er nauðsynlegt að heimild sé fyrir hendi til þess, að við- komandi sveitarfélög geti lagt tekju- og eignaútsvar á atvinnu- reksturinn. Frumvarp þetta mið ar að því að bæta úr þessum annmaxka með því að taka upp í grundvallaratriðum, en þó í einfaldara formi en áður, reglur útsvarslaganna gömilu á þessu sviði. Verður að gera breytingu á lögunum. Magnús Jónsson (S) sagði m.a., að eins og mönnum væri k'unnugt, hefði risið upp vanda- máil vegna laga um tekjustofna sveitarfélaga, sem ifienn gerðu sér ekki grein fyrir, þegar lög- gjöfin var sett. Er þar fyrst og fremst um að ræða það mál, sem risið hefur á Akureyri í sambandi við útsvarsálagningu á verksmiðijurekstuir SÍS þar. Um það gekk sá úrskurður, að þessi atvinnu rekstur væri samkv. hinum nýju lögum ekki útkvarskyldur á Akureyri, hvað tekjuútsvar snerti. Þessu vildi bæjar- stjórn Akureyrar ekki una og hefur því áfrýjað málinu til ríkis skattanefndar og ríkisskattstjóra. En ljóst er, að hvernig sem sá úrskurður fer, verður að gera einhverja breytingar á útsvars- lögunum til að koma í veg fyrir, að slík vandamál' rísi. Lausn mjög vandfundin. Allt frá því í haust hefðu þing- menn Norðurlandskjördæmis eystra rætt þetta vandamál og m.a. rætt það við formann þeirr- Framh. á bls. 23 n Fæddur 30. mal 1927. Dáinn 21. janúar 1963. Kveðja frá foreldrum. Eins og hendi væri veifað varð að nóttu bjartur dagur. Dró á himin dimman skugga dó þar geisli skær og fagur. Góðan mann á morgni lífsins moldin kalda örmum vefur. Höfum varla áttað okkur enn á því, hvað valdið hefur. Þú varst okkar einkasonur, æskuvon, svo hlýr og góður. Systur þínar syrgja og gráta eannan vin og horfinn bróður. Þó mun konan þín og börnin. þyngstan söknuð fá að bera. Aumt er fyrir aldurs sakir engum neitt til styrktar vera. Kveðjum við þig, kæri sonur, klökk og beygð með þakklát hjörtu. fyrir okkar mörgu myndir minningarnar hlýju og björtu. Þær fá okkur hresst og huggað hinztu fram til lífsins stundar. Gegnum tár við bæði brosum bíðum örugg næsta fundar. Efill Jónasson. — Listasjóður Framhald af bls. 13. Matisse, og svo um Henrik Sör- ensen. Við blöðum í gegnum úrklippu bunka með umsögnum og frá- sögnum um sýninguna, sem Valtýr hefur haft heim með sér, en dönsKU og sænsku gagnrýn- endurnir áttu í erfiðleikum með að koma frá sér skrifum sínum strax veg'na verkfallax í Finn- landi. Dcmarnir eru allir mjög vinsamlegir í garð íslendinga. T.d. skrifar Preben Wilman í Aktuelt: íslenzku sýningarmyndirnar gætu veitt tilefni til að nefna nöfn, því þar er líka ýmislegt að gerast. En fyrir utan þá sem ég hef þegar nefnt (Guðmundu Andrésdóttur, Hafstein Aust- man og Guðmund Benediktsson) læt ég mér nægja að benda á hrynjanda í lit og formi í af- strakt-myndum Valtýs Péturs- sonar. Hann mynd.-r ásamt Svav- ari Guðnasyni, sem ekki er með á þessari sýningu, nýtt tímabil í íslenzkri listasögu. Sænsku blöðin skrifuðu einnig lofsamlega. T.d. Stockholms- Tidningen: Sterklegasti þráðurinn í sýn- ingarvefnum eru verk íslending- anna, — frá myndrænu sjónar- miði. í verkum Valtýs Péturssonar, Sigurðar Sigurðssonar, Steinþórs Sigurðssonar og Kristjáns Davíðs sonar er fersk og skýr hugsun og einbeittni til sjálfstæði í tján- ingu. Á fyrstu sýningum norræna listbandalagsins, bar íslenzk list merki kynslóðamóta. Þar var gamall akademískur landslags- skóli án tengsla við hina ab- ströktu og frumstæðu stefna í málaralist og höggmyndalist. — Myndhöggvararnir virtust þá snjallari og siðmenntaðri en mál- ararnir. Nú virðist þetta allt að því gagnstætt. Dagens Nyheter segir m. a.: íslenzk list er jafn mótuð af æsku sinni og hefðleysi. Höggvið hefur verið á böndm við Dan- mörku og listamennirnir sækja áhrif sín meira til meginlands- ins. Enn er ekki svo komið að um neinn listamann sé að ræða, sem er sannfærandi kennivald í verkum sínum, en leitin og hin opni hugur fyrir utanaðkomandi áhrifum er ferskur og aðlaðandi. Kristján Dagvíðsson, sem raunar hefur birzt á hverri norrænu sýn ingu í nýjum og mest megnis lánuðum fötum, er þó í þetta sinn meira sannfærandi en áður. Sama er að segja um Valtý Pét- ursson, sem hefur tileinkað sér ágæta og persónulega litameð ferð. Flestir hinna sýna talsvert litskrúðugan tachisma af óá- kveðandi tegund Fyrir opnun sýningarinnar skrifaði Valtýr kjallaragrein í Hufudstadsbladet í Helsinki um strauma í íslenzkri málaralist. Einnig talaði hann um sama efni í sænska útvarpið í Finnlandi og kom líka fram í sjónvarpinu. Svo íslenzk list var talsvert kynnt í sambandi vi ðsýninguna. Næsta sýning í Osló Aðalfundur Norræna listbanda lagsins var svo haidinn eftir opn un sýningarinnar. Þar var ákveð- ið að næsta sýning verði haldin í Osló éftir tvö ár. Áætlanir voru um að næsta sýning yrði í Gugg- enheimsafninu í New York, og höfðu Svíar haft um það samráð við Hjörvarð Árnason, en meðan fundurinn stóð yfir bárust frétt- ir um að Hjörvarður væri á för- um frá safninu og af sýningunni gæti ekki orðið. — Annað mjög athyglisvert kom fram á þessum fundi, segir Valtýr. Danirnii og Norðmenn- irnir létu í ljós mikinn áhuga á því að íslenzkir listamenn gætu fengið aðgang að dönskum og norskum sjóðum, því engir slík- ir sjóðir eru hér til. Þeir hófu máls á þvi hvort ekki væri hægt að gera eitthvað fyrir íslenzka listamenn, þar eð þeir væru út- undan hvað þetta snertir og'ættu erfitt uppdráttar. Ég held að þeir hafi kynnzt þessu máli talsvert er þeir komu á sýning hér í fyrra. Þeir urðu satt að segja hissa á að listamenn hefðu aðeins aðgang að þessum einu litlu lista mannalaunum og að útilokað er fyrir nokkurn mann að lifa á listum hér. Var á fundinum á- kveðið að athuga málið, hvað sem úr þessu verður nú. En vilj- inn til að bæta eitthvað úr, er fyrir hendi hjá listamönnum í Danmörku og Noregi. Norðurlöndin eiga öll nema ísland hús fyrir listamenn á Ítalíu og hús hvert hjá öðru, þar sem listamenn geta dvalið um stund, kynnzt og komizt inn í hringiðuna. Vonandi verður þetta haft í huga þegar Norræna húsið verður reist í Reykjavík, segir Valtýr. Norræna listbandalagið hefur líka íbúð og vinnustofu í Róm, þar sem listamenn geta bú- ið fyrir um 1000 ísl. kr. á mán- uði; Danir hafa hana þetta árið, en næsta ár eiga ísiendingar að fá hana. Að síðustu rómaði Valtýr mjög móttökur Finnanna, sagði að það hefði verið sérlega ánægjulegt að hitta fulltrúa listbandalags- ins, sem komu hingað í fyrra og finna hve hrifnir þeir höfðu orð- ið af íslandi. — En að 'koma heim úr ís, frostum, kulda og bil á Norður- löndum, var eins og að koma til Suðurlanda, sagði hann að lok- um. Páskaferð til Kanari- eyja og Mallorka FERÐASKRIFSTOFAN Sunna efnir um páskana til skemtiferð- ar til Kanarieyja og Mallorca, en hún hefur árlega efnt til páskaferða til Suðurlanda, sem samtals um 500 manns hafa tek- ið þátt í. í fyrra var farið til Kanarieyja með 80 manns, sem margir hafa þegar pantað sæti í ferðina í ár og er búið að ráð- stafa uim helming sætanna, en flugvél bíður farþeganna á báð- um stöðum. Ferðaáætlunin er skv. frétta- tilkynningu frá Sunnu sem hér segir: Að þessu sinni verður Páska- ferðin 13 dagar, eða einum degi lengri en í fyrra. Verður flogið með íslenzkri flugvél til Kanari- eyja með viðkomu á írlandi eða Lissabon og þaðan beint til Kan- arieyja. Dvalið verður á stærstu eýnni Tenerife, þar sem gróður og náttúr.ufegurð er mest. Verð- ur búið á glæsilegustu hótelun- um þar, Valle-Max og Tenerife Playa, sem hefir einkasundlaug fyrir gestina, en hefir auk þess nú látið breyta klettóttri strönd í baðstað með hvítuxn sandi, auk þess sem stórar sjólaugar eru fyrir þá, sem eki vilja synda í Atlantsihafinu. Þar er dvalið í viku. Síðan flýgur vélin til Mall- orka, þar sem dvalið verður í fjórar nætur á Hotel Bahia Place, í Palma höfuðborg Mall- orka, hótelið stendur alveg við sjóinn í miðborginni en h<?fir auk þess einkasundlaug. Þaðan er svo flogið til London, þar sem dvalið er einn sólarhring, áður en flogið er til Reykjavík- ur. Meðan dvalið er á Kanarieyj- um og Mallorka getur fólkið not- ið sólar, sjóbaða og hvíldair að vild, milli þess sem það tekur þátt í skemmtiferðum á landi, sem skrifstofan gengst fyrir, en það er alveg frjálst ferða sinna bæði þax eg eins í London, e£ það vill. Reikna má með um 30 stiga hita á Kanarieyjum og 24—28 á Mallorca. Aðeins 5 vinnudagar. Farið verður frá Reykjavík að morgni skírdags, 11. april og kom ið til Kanarieyja að kvöldi sama dags, en til Reykjavikur verður aftur komið 23. april, sem er þriðjudagur, þannig að ekki falla nema .5 vinnudagar í þessa 13 daga ferð. íslenzkir fararstjórar verða með í ferðinni, og flogið verður með millilandaflugvél frá Flug- félagi íslands sem býður eftir farþegunum. Páskaferðin öll með flug.ferðum og uppihaldi á dýr- ustu hótelum kostax 14.900 kr., en 13.200 ef búið er á ódýrari hóteluim. Sunnudaginn 17. marz verður haldið í Þjóðleikhúskjallaranum skemtikvöld, þar sem sýndar verða m.a. litkvikmyndir úr páskaferð Sunnu til Kanarieyja i fyrra og eru þangað velkomn- ir allir úr þeirri ferð og öllum páskaferðum Suirnu, og eins þeir sem áhuga hafa á að kynnast nánax þessum Paradísareyjium hinna sólheitu Suðurlanda. Afgreiðslumaður P Afgreiðslumann, helzt vanan afgreiðslu- störfum, vantar í byggingaefnaverzlun, sem fyrst. Umsóknir sendist í pósthólf 529 merkt: „Afgreiðslumaður — 6125“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.