Morgunblaðið - 21.03.1963, Side 20
20
MORCVISBLAÐIÐ
Fimmtudagur 21. marz 1963
— Svo þú ert aff skrifa endurminningar þínar. I»ú ert kannski
kominn að því þegar ég lánaði þér fimm krónur.
Vagninn ók nú gegnum
skemmtilega þorpið, Riddings.
Fram undan þeim, til hægri
handar mátti grilla byggingar
Beckwith-skólans gegnum hita-
móðuna, umkringdar fallegum
'beykitrjám. Hr. Phyfe, sem var
orðinn talsvert vanur /ið gildr-
urnar, sem sir Daniel iagði
stundum fyrir viðmælendur
sína, gerðist svo djarfur að segja:
— Ég er nú ekki viss um, að það
sé neitt sérstakt afrek að giftast
konu til fjár.
Sir Daniel svaraði: — t>að
sagði ég aldrei, að hann hefði
gert. Hann kann að hafa gert
'það — það veit ég ekkert um.
En við lifum í frjálsum heimi,
Izzy. í>ú ert eins fátækur og
Chriystal var þá, og álíka óþekkt-
ur. Ef þú heldur, að þegar svo
er í pottinn búið, sé það ekkert
afrek að giftast rikri konu af
aðalsætt, skora ég á þig að
reyna það sjálfur. Með öðrum
orðum sagt: Talaðu ekki eins
og bjáni. Til þess að ná í konu
eins og Adela Pinson var, verð-
ur maðurinn að hafa eitthvað við
sig. Ég veit, hvað ég er að tala
um, því að ég þekkti hana. Það
voru að mestu leyti hennar pen-
ingar, sem stofnuðu skólann, og
ég varð nógu snemma skóla-
nefndarmaður til þess að kynn-
ast henni vel. Hún var fín kona.
Vagninn beygði nú inn á milli
steinstólpanna, en hliðið var
opið. Á boga milli. stólpanna var
málmskjöldur, sem á var letrað
með götum gegnum skjöldinn,
einkunnarorð skólans: „Possi-
bile est si ardenter desideratus“.
Sir Daniel vakti athygli Phyfes
á áletruninni, og varð hissa, þeg
ar hinn lagði það út um leið og
þeir óku inn: „Það er mögulegt,
ef þú óskar þess nógu heitt“.
Sir Daniel tók fram í fyrir
honum, glottandi: —• Já, þetta
er einkunnarorðið hans pabba
gamla, útlagt af hr. Chrystal. Þú
skilur, Izzy, að þegar þeir voru
að koma þessu af stað, gat ég
spýtt svolitlum aurum í fyrir-
tækið, en með því skilyrði, að
þeir notuðu einkunnarorðið. Mér
datt í hug, að karlinn hefði gam-
an af því.
— En svo finnst yður það
ekki vera sannleikur.
— Það er nógu nærri sann-
leikanum fyrir ungu kynslóðina,
sagði sir Daniel, ánægður. —
Getur kannske ýtt á eftir þeim.
Hvar hefur þú lært latínu, Izzy?
— O, það var ungur prestur,
sem kenndi okkur nokkrum í
safnaðarheimilinu í Shoreditch.
En mér er nú aldrei Ijóst, hvaða
gagn maður getur haft af henni.
— Þú skalt halda henni við.
Ég verð að segja Carmichael, að
þ>ú sért mesti latínuhestur. Hann
verður hrifinn af því!
Sir Daniel stöðvaði vagninn
og sagði, að þeir ætluðu að ganga
upp að skólanum. Sannleikurinn
var sá, að hann langaði að horfa
á cricketleik strákanna. Frá vell-
inum til vinstri við þá, heyrðist
öðru hvoru dynkur, þegar kött-
urinn var sleginn, oig óp ungra
radda. Þeir horfðu báðir með
ánægju á leikina. Hann minnti
þá á eigin æsku í fátækrahverf-
unum sínum. Þetta var eitt af
mörgu sem þeir höfðu misst af
og mundu aldrei ná aftur, en
það minnti þá með söknuði á
það, hve skammvinn æskan er.
— Ojæja, sagði Phyfe allt í einu,
óvænt. — Bg öfunda þá ekki.
Þeir hafa ekki mikið af mæðrum
sínum að segja.
Sir Daniel leit hvasst á hann,
eins og hann hefði freistazt til
að segja ofmikið. En svo bætti
hann við, ögrandi: — Mín móðir
var allra mæðra bezt. Ég hefði
ekki viljað hafa haft skipti á
henni og þessu.
3.
Isambard Fhyfe neyddist til
að skoða og kynna sér Beckwith
og allt, sem skólanum tilheýrði.
Sir Daniel gekk einn inn í hús
skólastjórans. Theódór Chrystal
tók á móti honum í lesstofu sinni,
og Dunkerley endurtók með
sjálfum sér í hundraðasta sinn,
að aldrei hefði hann séð fallegri
mann. Þessi maður reis upp frá
skrifborðinu sínu, sex fet á hæð
og karlmanrxlega vaxinn, með
Ijósa hárið yfir gríska andlit-
inu, hefði hann getað skotið við-
mælanda sínum skelk í bringu.
Dunkerley mundi vel eftir þessu
andliti, þegar það var ungt og
ósjálfbjarga. Og síðan voru ekki
nema tíu ár. Honum fannst það
lítt skiljanlegt, að ekki lengri
tími skyldi hafa getað komið
svona breytingu í kring. Chrystal
var líkastur því, sem leirmynd
hefði verið sett í ofn oig komið
út úr honum aftur með hörku-
skel. En Dunkerley vissi líka, að
þær stundir voru til, þegar
þetta andlit, sem öllum fannst
svo strangt, gat bráðnað af við-
kvæmni og andlisdrættirnár
breytzt í rómantiskan svip. En
þetta gerðist ef Chrystal var
með konu, sem hann vildi hafa
áhrif á eða leizt vel á. Mörg
móðirin, sem heimsótti Beckwith
vegna sonar síns, hafði farið
þaðan í þeirrl fullvissu, að hún
hefði skilið soninn eftir hjá
engli.
Mennirnir heilsuðust með
handabandi yfir borðið og sett-
ust síðan í leðurstóla sitt hvor-
um megin við það. Chrystal, sem
hafði verið að reykja, ýtti tó-
baksdollu yfir borðið til Dunk-
erleys og sir Daniel, sagði, um
leið og hann tróð í pípu sína:
— Jæja Chrystal.. mínar inni-
legustu háminigjuóskir.
Rétt sem snöggvast setti Theó
upp undrunarsvip, en tók síðan
upp bók af borðinu. — Nú,
þetta? sagði hann. — Já, nú er
ég búinn með hana.. loksins. En
sannast að segja, er lítið í hana
varið. Hún er ekki annað en
minnisvarði yfir dálitla þraut-
seigju.
Sir Daniel brosti, en tók bók-
ina og leit á titilinn: „Nokkrar
athuganir um, hver verið hafi
höfundur Hebreabréfsins". —
Þetta er ófær titill, sagði hann.
— Þú hefðir heldur átt að kalla
hana „Hver skrifaði Hebrea-
'bréfið?“ Og ef þér finnst þetta
minnisvarði yfir þrautseigju
þína, þá vil ég segja þér, að
hefðirðu verið í minni þjónustu,
hefði ég farið fram á, að þraut-
seigjan þín hefði verið dálítið
fljótvirkari. Þú hefur verið að
hengslast yfir þessu í næstum
tíu ár. En annars átti ég ekki
við það, heldur er ég forvitinn
um prófastsembættið.
Chrystal leit á hann kulda-
lega. — Ég veit ekki, hvað þú
kannt að hafa heyrt um það,
sagði hann. — Ekkert hefur ver-
ið gefið upp opinberleiga, og ég
verð að biðja þig að halda hug-
leiðingum þínum fyrir sjálfaa
þig-
sflútvarpiö
Fimmtudagrur 21. man
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 „Á frívaktinni": sjómanna-
þáttur (Sigríður Hagalín).
14.40 „Við, sem heima sitjum" (Sig-
ríður Thorlacius).
15.00 Sxðdegisútvarp.
17.40 Framburðarkennsla 1 frönsktt
og þýzku.
18.00 Fyrir yngstu hlustendurna
Margrét Gunnarsdóttir og Val
borg Böðvarsdóttir).
18.20 Veðurfregnir. — 18.30 Þing-
fréttir. — 19.00 Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20.00 Af vettvangi dómsmálanna
(Hákon Guðmundsson hæsta-
réttarritari).
20.20 Tónleikar: Fantasía í c-dúr
op. 131 eftir Schumann-Kreisl
er.
20.35 Erindi: Skólakerfi á atómöld
(Magni Guðmundsson).
21.00 Tónleikar Sinfóníuhljómsv.
ísl, í Háskólabíói; fyrri hluti.
Stj.: William Strickland.
21.45 Erindi: íslenzka sauðkindin,
íslenzka ullin eftir Halldóru
Bjarnadóttur (Óskar Ingi-
marsson flytur).
22.00 Fréttir og veðurfregnir .
22.10 Passíusálmar (34).
22.20 Kvöldsagan: „Svarta skýið"
eftir Fred Hoyle; X. (Örn-
ólfur Thorlacius).
22.40 Djassþáttur (Jón Múli Árna-
son).
23.10 Dagskrárlok.
Föstudagur 22. marz.
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.15 Lesin dagskrá næstu viku.
13.25 „Við vinnuna”: Tónleikar .
14.40 „Við, sem heima sitjum": Sig-
urlaug Bjarnadóttir les skáld-
söguna „Gesti" eftir Kristínu
Sigfúsdóttur (9).
15.00 Síðdegisútvarp.
17.40 Framburðarkennsla 1 esper-
anto og spænsku.
18.00 „Þeir gerðu garðinn frægan";
Guðmundur M. Þorláksson
talar um Benedikt GröndaL
18.20 Veðurfregnir. — 18.30 Þing-
fréttir. — 18.50 Tilkynningar.
18.30 Fréttir.
20.00 Úr sögu siðabótarinnar; IL
erindi: Um séra Jón Einars-
son (Séra Jónas Gíslason),
20.25 „Fórnin", söngur Brynhildar
úr óperunni Ragnarök eftir
Wagner .
20.45 í ljóði: Lesið úr kvæðabók-
um Þórodds Guðmundssonar,
Heiðreks Guðmundssonar og
Braga Sigurjónssonar. Lesar-
ar: Ragnheiður Heiðreksdótt-
ir, Egill Jónsson og Baldur
Pálmason, sem sér xim þáttinn
21.10 Frá Menton tónlistarhátíðinni
1 Frakklandi: Strengjakvai't*
ett i G-dúr op. 76 nr. 1 eftir
Haydn.
21.30 Útvarpssagaan: „íslenzkur að«
all“ eftir Þórberg Þórðarsonj
XV. (Höfundur les).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Passíusálmar (35).
22.20 Efst á baugi (Björgvin Guð-
mundsson og Tómas Karlsson)
22.50 Á síðkvöldi: Létt-klassxk tón-
list.
23.30 Dagskrárlok.
ALLTAF FJÖLGAR YOLKSWAGEN
mnnna bálli
Hann er ódýr í rekstri og
með loftkældri vél. Hann
hefur sjálfstæða fjöðrun á
hverju hjóli og lætur vel að
stjórn við erfið skilyrði.
Hann er með nýtt, endur-
bætt hitunarkerfi.
Volkswagen-útlitið er alltaf
eins og því eru endursölu-
möguleikar betri. — VERÐ
FRÁ KR. 121.525.—
PANTIÐ TÍMANLEGA SVO AÐ VIÐ GETUM
AFGREITT EINN TIL VÐAR F.YRIR VORIÐ.
HEILDYERZLUNIN HEKLA H F
Laugavegi 170—172 — Reykjavík — Sími 11275.
KALLI KUREKI
X
X -
Teiknarú Fred Harman
>— Hvað er þetta? Vertu rólegur.
<— Hættu þessu, ófétið þitt.
Á meðan skömmu á eftir Bjarna: — Nei, það er létt. Hann skálmar
— Er ekki erfitt að rekja slóðina? eins og sauðnaut á flótta.