Morgunblaðið - 21.03.1963, Qupperneq 22
22
MORCVHBLAÐIÐ
Fimmtudagur 21. marz 1963
Tvö skíöahótel nyrðra bjdða
páskadvöl á skíðum
Og Flugfélag íslands flytur
fólkið á 25% lægra gjaldi
T V Ö skíðahótel úti á landi hafa
nú gert stórátak til að geta veitt
gestum hvaðanæva af landinu
þægilega og góða dvöl um pásk-
ana og Flugfélag íslands styður
þessa viðleitni með því að gefa
sérstakan afslátt, 25%, með svo-
kölluðum „skíðafargjöldum" til
Isafjarðar, Akureyrar og Egils-
staða, en landsmótið í ár verður
haldið í Neskaupstað og „skíða-
fargjöldin“ til Egilsstaða veitt til
að örva fólksstraum þangað.
Hilmar Sigurðsson, yfirmaður
iijnanlandsflugs Fí og Sveinn
Sæmundsson, ræddu við frétta-
menn um þessa nýjung í gær.
Þeir eru nýkomnir úr heimsókn
í skíðaskála ísfirðinga og skíða-
hótel Akureyringa og létu vel af
öllu, góðum aðbúnaði á ísafirði
og glæsilegu skíðahóteli Akur-
19 ára
stúdent
setti
heims-
mef
HENRY Carr, 19 ára gamali
stúdent frá Arizona setti í gær
heimsmet í 220 yarda (202 m)
hlaupi. Hljóp hann vegalengd-
ina á 20.4 sek. á meistaramóti
háskóla í Bandaríkjunum
Gamla metið var 20.5 sett fyrst
af Englendingnum Radfor og
síðar jafnað af Bandaríkja-
manninum Paul Drayton.
Henry Carr hljóp 100 yarda
á 9.6 sekúndum og stökk 7.35
m í langstökkskeppninni.
eyringa, þar sem ekkert hefur
verið til sparað að gera allt sem
bezt úr garði.
Hilmar sagði að um 600 manns
hefðu farið í skíðaíerðir með Fí
um páskana í fyrra og nú vildi
Eí greiða fyrir snjólausum Sunn
lendingum að komast í norð
lenzkan snjó. Snjór er nægur i
grennd við skíðaskála Isfirðinga
og hótel Akureyringa. Um far-
gjöldin og skíðahóteiin tvö sögðu
þeir m.a. svo frá:
Skíðafargjöldin til ísafjarðar
og Akureyrar gilda frá 1. apríl
til 1. júní. Til Egilsstaða gilda
þau frá 1.—20. apríl, og eru mið-
uð við Landsmót skíðamanna,
sem fyrirhugað er að halda í Nes
kaupstað á þessu tímabili. Skíða-
fargjöldin eru 25% lægri en
venjuleg fargjöld milli framan-
greindra staða, miðað við ein-
miðafargjöld. Ýmsar sérreglur
gilda um afsláttarmiðana.
Á skíSum í Hlíðarfjalli
Svo sem kunnugt er, hafa Ak-
ureyringar unnið að byggingu
skíðaskála í Hlíðarfjalli að und-
anförnu. Byggingu og innrétt-
ingu skálans er að mestu lokið
og er hann aUur hinn glæsileg-
asti. í kjallara eru 5 gistiher-
bergi, gufuböð og steypiböð, rúm
góð snyrtiherbergi fyrir skíða-
fólkið og geymslur. Á miðhæð
eru tveir veitingasalir, sem rúma
um 100 manns, lesstofa, eldhús,
skrifstofa og snyrting. Á milli-
hæð er skíðageymsla. Á rishæð
eiu 6 gistiherbergi 2—3 manna.
Þar eru einnig fjögur lítil her-
bergi með fjórum rúmum hvert
og svefnpokarými fyrir 40—50
manns. Þá er stór „almenn-
ingur“. Alls munu um 100 manns
geta gist í skálanum, sem er hit-
aður með rafmagni frá Laxár-
virkjun. Skíðaskálinn í Hlíðar-
fjalli er í 500 metra hæð yfir
sjávarmál. Skíðaland í fjallinu
er með eindæmum gott og mjög
fjölbreytt, þannig að þar munu
allir finna brekkur við sitt hæfi.
í páskavikuni verður efnt til
sérstakrar dagskrár í skíðaskál-
anum í Hlíðarfjalli. Skíðakennsla
verður á daginn og farið verður
í lengri og skemmr' gönguferðir
á skíðum. Á hverjn kvöldi verða
kvöldvökur í skálanum með íjöl-
breyttu skemmtiefni.
í sambandi við skíðafargjöld
Flugfélags íslands verða seldar í
einu lagi ferðir frá Reykjavík
ásamt vikudvöl í skíðaskálanum
í Hlíðarfjalli og er þá innifalið
í verðinu ferðir báðar leiðir á-
samt gistingu og fæði í eina
viku. Ennfremur ferðin frá Ak-
ureyrarflugvelli upp að skálan-
um. Þessar ferðir verða aðeins
seldar í sóluskrifsíofu Flugfélags
Framh. á bls. 23
Ársþing ÍBR hófst
í gærkvöldi
ÁRSÞING ÍBR hófst í húsakynn
um Slysavarnarfélagsins á
Grandagarði í gærkvöldi. Var þá
lögð fram og skýrð skýrsla stjórn
ar og reikningar bandalagsins. Þá
var fjallað um ýmsar tillögur og
nefndir skipaðar.
Síðari hluti ársþingsins fer
fram að 2 vikum liðnum.
Myndin er tekin í einni af Ieiftursóknum IR-inga í leik þeirra
gegn ÍS í fyrrakvöld. Aldrei þessu vant hefur þarna hlaupið
snurða á þráðinn og stúdent komzt á milli.
Körfuknattleiksmótið:
63 stiga munur í báöum leikjunum
Munurinn einn svipaður skorun
i heilum leik
t FYRRAKVÖLD voru leiknir
tveir allsögulegir leikir í körfu-
knattleiksmótinu. Þeir voru það
að því leyti, að trúlega hafa þarna
verið um að ræða mestu yfir-
burðasigrar, sem fram til þessa
hafa sézt í körfuknattleik í opin-
berum leik hér á landi, eða eins
og almennt var sagt eftir leikinn:
„Þeir voru báðir einstefnuakstur
frá byrjun til enda“.
Fyrri leikinn léku a-lið KR
gegn KFR í öðrum flokki. KR
liðið hefur sem kunnugt er á að
skipa ekki færri en 6 af 12 mönn-
um í unglingalandsliðinu en KFR
V//-V•.///**•.<•/.‘á■■■**•. /<■
Hið glæsilega skíðahótel Akureyringa
er á hinn bóginn eitt af neðstu
iiðunum í keppninni í öðrum
flokki. Það var viðbúið að KR-
ingar mundu leika sér að and-
stæðingunum, en fæstir munu
hafa átt von á 65 stiga mun.
KR miðaði að því allan leik-
inn að vinna slíkan sigur og létu
landsliðsmenn sína leika allan
leikinn nema stuttan kafla í byrj
un síðari hálfleik. Þótti þá frekar
tilvinnandi að hljóta mikinn
stigamun en þjálfa upp lítt leik-
reynda varamenn og leið ekki á
löngu fyrr en kempurnar voru
komnir í leikinn aftur.
Leiknum lauk eins og fyrr seg-
ir með 65 stiga mun, 75:10, en
staðan í hálfleik var 46:4.
í síðari leiknum endurtók sig
að miklu leyti saman sagan í þeim
hinum fyrri. Stigamunur í leiks-
lok var þar 59 stig, enda stú-
dentar sjaldan sézt leika slapp-
ari leik. Er furða til þess að vita
að þetta skuli vera fjórða mótið
síðan þeir unnu íslandsmeistara-
tign 1959.
Þótt erfitt sé að segja til um
frammistöðu leikmanna í leik
sem þessum má þó fullyrða, að
leikmenn ÍR hafi almennt átt
góðan leik.
Næst verður leikið í mótinu á
laugardagskvöld og leik þá til úr-
slita í öðrum flokki a-lið KR
og ÍR. Hafa þaU lið borið mikið
sigurorð af öðrum liðum í þeim
flokki, og hvorugt þeirra ætla að
gefa eftir meistaratignina, enda
mun erfitt að spá nokkru um
úrslit í leiknum. Gefst mönnum
þar kostur að sjá í einu leika 11
af 12 leikmönnum í unglinga-
landsliðinu, sem utan fer í sum-
ar.
Síðari leikurinn er í meistara-
flokki og leika þá ÍR-ingar gegn
Ármanni. Leikur þessi kemst
næst því að geta talizt úrslita-
leikur í sínum flokki, því þessi
lið voru efst eftir fyrri umferð-
ina og Skildi þau aðeins einn
vinningur og síðan hefur hvorugt
liðið tapað leik.
Molar
ÍTALIR unnu Búlgara í lands-
Ieik B-liða með 1 marki gegn
engu. Leikurinn fór fram í
Firenze. í hálfleik stóð 0—0. 1
ENSKA knattspyrnulandslið-
ið fer í fjögurra daga keppnis-
för eftir að úrslitaleikurinn ^
í bikarkeppninni hefur farið
fram 25. maí. Englendingar
keppa við Tékka í Bratislava
29. maí, við A-Þýzkaland í
Leipzig 2. júní og við Svlss-
lendinga í Basel 5. júni.
_____________ ,1
ÍTALSKA liðið Napoli vann I
í gær lið Belgrad með 3—1. i
Leikurinn var síðari leikur lið
anna í keppni bikarmeistara
Evrópulanda. Fyrri leikinn
unnu Belgrad-menn með 2—0,
svo aukaleikur verður fram að
fara um hvort liðanna heldur
áfram.