Morgunblaðið - 21.03.1963, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 21. marz 1963
MORCVISBL 4ÐIÐ
33
Kvikmyndaframleiðendur heiðr
uðu hinn kunna sönglagasmið,
Irving Berlin, á dögunum og
veittu honum heiðursverðlaun
þau, sem þeir veita árlega. Er
Berlin sá 11. sem þessi verðlaun
hlýtur.
Irving Berlin er 74 ára að aldri
og er þetta í annað sinn sem hann
hefur orðið aðnjótandi slíks heið
urs, að hans eigin sögn, síðan
19,13, eftir að hann hafði samið
„Alexander’s Ragtimeband“.
Meðal þeirra, sem sendu Berlin
skeyti í tilefni verðlaunana, voru
forsetamir Truman, Eisenhower
og Kennedy.
Á meðfylgjandi mynd sézt Berl
in með fjórum söngelskum kon-
um, þeim Ginger Rogers, Rosa-
lind Russel, Dinah Shore og Yv-
etty Mimieux.
— íþróttir
Framh. af bls. 22
íslands í Lækjargötu 2, og kosta
kr. 2.500.00 sé dvaiið í gistiher-
bergjum, kr. 2.300.00 dvelji við-
komandi í litlu fjögurra manna
herbergi og kr. 2.100.00 sé dvalið
í svefnpokarýminu.
Skiðefargjöld Reykjavík-Ak-
ureyri-Reykjavík kosta fyrir þá
sem ekki kaupa um leið gistingu
í skíðaskálanum, kr. 828.00.
í skíðaskálanum í Hlíðarfjalli
munu almenningi verða seldar
veitingar eftir að dvalargestir
hafa verið afgreiddir og kostar
málsverður kr. 50.00—80.00 og
kaffi kr. 30.00—35.00.
Á skíðum í Seljalanðsdal
ísfirðingar eiga því láni að
fagna að eiga eitt bezta skíða-
land hér á landi aðeins steinsnar
frá bænum, í Seljalandsdal.
1 Seljalandsdal er mjög góður
skíðaskáli, sem að undanförnu
hefir tekið gesti til dvalar og
skíðaiðkana. Skálinn, sem er
hinn vistlegasti, vel hitaður og
rúmgóður, er í 300 m. hæð yfir
sjávarmál og fjóra km. írá ísa-
firði. Þarna eru rúm fyrir 28
dvalargesti í herbergjum og þar
að auki svefnpokarými fyrir all-
margt fólk. Dýnur eru í rúmum
og þurfa gestir að hafa með sér
svefnpoka eða sængur. í skálan-
um er matsalur, böð, rúmgóð
snyrtiherbergi og skíðageymsla.
Haukur Sigurðsson skíðakennari
annast skíðakennsiu.
Matur og aðrar veitingar eru
framreiddar í skálanum, fyrir
dvalargesti og aðra. Dvöl í skíða-
skálanum í Seljalandsdal kostar
kr. 160.00 á sólarhring. Skíðafar-
gjald Flugfélags fslands Reykja-
vík-ísafjörður-Reykjavík kostar
kr. 825.00.
Þar sem skíðalandið er svo ná-
lægt bænum, mun margt skíða-
fólk gista á heimiium á ísafirði,
en þaðan er aðeins 10 mín. akst-
ur að skálanum í Seljalandsdal.
— Kjarnorkuher
Framfh. af bls. 1.
sína fyrir milligöngu fram-
kvæmdastjórnar NATO og
fastaráðs bandalagsins í París
í meiri mæli en hingað til
hefur tíðkazt.
2) Komið verði á nónara
eambandi milli stjórnmálar-
legrar skipunar bandalagsins
og herstjórnar þess.
S) Ráðherrafundur NATO í
Ottawa taki nauðsynlegar
ékvarðanir um að koma á fót
kjarnorkuher innan NATO og
bygigi hann á þeim hernaðar
sem einstök ríki hafa
yfir að ráða nú þegar.
Ræða lávarðarins tók um það
bil þrjá stundarfjórðunga. Hann
lagði áherzlu á aukna einingu og
samvinnu Vesturveldanna og
sagði, að Evrópuríkin ættu að
hafa stærra og virkara hlutverki
að gegna innan NATO en nú.
Hann lagði til, að kjarnorkuher
bandalagsins yrði byggður upp
af einstökum herdeildum hvers
aðildarríkis fyrir sig og tók sem
dæmi, að Bretar hefðu boðizt til
að leggja hinum fyrirhugaða her
til heila deild flugvéla, sem búa
má kjarnorkusprengjum. Þó
kvaðst Home ekki andvígur til-
lögu Bandaríkj anna um „bland-
aðan“ kjarnorkuher, sem skipað
ur væri hermönnum hinna ýmsu
aðildarríkja og væri undir
sameiginlegri stjórn bandalags-
ríkjanna. Hinsvegar taldi hann
torveldara að koma þeirri hug-
mynd í framkvæmd. Hann lagði
á það áherzlu, að hvernig svo
sem skipan kjarnorkuhersins
yrði, þegar til kæmi, yrði borg-
araleg yfirstjórn að fara þar
með úrslita vald.
★ ★ ★ r
Haft er eftir góðum heimild-
um að tillögu Breta hafi verið
vel tekið. Eftir ræðu lávarðar-
ins urðu ýtarlegar umræður og
lýstu utanríkisráðherrar Hol-
lands og Belgíu því þá yfir, að
stjórnir þeirra væru reiðubúnar
að leggja her þessum til tvær
herdeildir, búnum þotum af
gerðinni F—104 en þær má búa
kjarnorkusprengjum. Fulltrúi V-
Þjóðverja, Carsten, ráðuneytis-
stjóri utanríkisráðuneytisins gaf
í skyn, að stjórn sín.myndi einnig
leggja hernum til slíkar flug-
vélar. Ekki lagði hann þó fram
formlegt tilboð þess_ efnis. Full
trúar Kanada og íslands létu
ekki uppi álit sitt.
★ ★ ★
Haft er eftir Luns, utanríkis-
ráðherra Hollands, að umræðurn
ar í dag hafi verið mjög ýtar-
legar og jafnframt snúizt um
önnur vandamál evrópsk. Hafi
allir ræðumenn verið sammála
um að halda bæri óskertu stjórn
málasambandi Bretlands og að-
ildarríkja Efnahagsbandalags-
ins þrátt fyrir úrslit viðræðn-
anna um aðild Bretlands að
bandalaginu. Taldi Luns líklegt,
að ráðherrafundur Vestuf-
Evrópu sambandsins yrði hald-
inn í Bonn í lok þessa mánaðar
til að fjalla um það mál.
Haft er eftir talsmanni frönsku
stjórnarinnar, að vestur-þýzka
stjórnin hafi lagt til, að sá ráð-
herrafundur yrði haldinn og hafi
franska. stjórnin í athugun
hvernig snúast beri við þeirri
málaleitan, en hún hafi ýmis
vanökvæði í för með sér fyrir
Frakka-
Fregnir frá London herma, að
á fundi neðri málstofu brezka
þingsins hafi í dag komið fram
gagnrýni á afstöðu brezku stjórn
arinnar til stofnunar kjarnorku-
hers Nato, bæði af hálfu þing-
manna stjórnarandstöðunnar og
íhaldsmanna. Var því haldið
fram, að þingmenn hefðu fengið
allt of litlar upplýsingar um
þetta mál, sem skipti varnir
Bretlands miklu máli. Talsmað-
ur stjórnarinnar var Edward
Heath, sem sagði, að sjálfsagt
væri að hafa almennar umræð-
ur á þinginu um málið, ef þess
væri óskað. Sagði hann viðræð-
ur standa yfir milli bandalags-
ríkjanna og yrði þinginu skýrt
frá gangi þeirra innan skamrns.
Heath vísaði því á bug, að ósam-
komulag væri milli Breta óg
Bandaríkjamanna vegna máls
þess, en sagði skoðun Breta þá,
að auðveldara væri að koma upp
kj arnorkuher, byggðum á hug-
myndum Breta heldur en þeim
áætlunum, sem Bandaríkjamenn
hefðu lagt fram. Þó væri ekkert
því til fyrirstöðu að samræma
tillögumar, hafa í fyrstu skipan
þá er Bretar teldu hentuga, en
beina þróun hersins síðan inn á
brautir hinna bandrísku tillagna.
Sýiiing úr lífi
Cowells
AMERÍSKA upplýsingaþjónust-
an hefur sett upp sýningu úr
l'ífi og starfi bandaríska tón-
skáldsins Henrys Dixons Cowells
en í kvöld frumflytur Sinfóníu-
hljómsveit Islands 16. symfóníu
hans, Íslandssymfóníuna, sem
hann hefur tileinkað Vilhjálmi
Stefánssyni. Sýningin er til húsa
í bókasafni upplýsingaþjónust-
unnar í Bændahöllinni við Haga
torg (gengið inn sunnan megin).
Síldveiði í
Hraunsvík
Reykjavík, 19. marz.
VB PÉTUR Sigurðsson kom til
Reykjavíkur í gær með 200 tunn
ur af síld, sem hann fékk á Sel-
vogsgrunni. Seinni hluta dags
komu vb Hafrún með 350 tunnur
og vb Guðimundur Þórðarson
með 400 tunnur af síld, sem þeir
höfðu fengið á Hraunsvíik Höfr
ungur II. var væntanlegur til
Akraness seint í gærkvöldi með
200—250 tunnur af síld, sem hann
fék á Hraunsvík, og Bára var
væntanleg til Reykjavíkur með
100 tunnur, einnig frá Hrauns-
víkinni. Síldin veiðist þarma
helzt rétt fyrir ljósaskiptin
kvölds og morgna. 1
ömmæli Rússa um
ísi. myndlistarsýningu
f DAGBLAÐINU „Sovétskaja
Kúltúra" birtist hinn 19. f.m.
eftirfarandi grein um íslenzku
myndlistarsýninguna í Moskvu
eftir listagagnrýnandann A. Bai-
gusjev:
„Bláir klettar íslands“
Barátta fyrir sjálfstæði, þjóð-
leg vitund — þessar hugsjóRir
mörkuðu blómatíma hinna fram
sæknu bókmennta íslands. Hinir
sömu hugsjónir hafa lyft íslenzkri
málaralist. Hún er þrungin ætt-
jarðarást og þjóðrækni.
Að bíða þess, sem boðið er
hvort blítt er eða strangt,
og hvað sem helzt að höndum
ber,
að hopa aldrei langt,
standa eins og foldgnátt fjall
í frerum alla stund.
hve mörg sem á því skruggan
skall —
sú skyldi karlmanns lund.
í þessu erindi íslenzka skálds
ins Gísla Brynjúlfssonar birtist
sú meginhugsun, er einkennir
málverk þriggja frægra íslenzkra
málara, Jóhannesar Kjarvals, Ás-
gríms Jónssonar og Jóns Stefáns
sonar.
Myndir þeirra eru hreinar og
strangar. „Hraun“, „Mosi á Vífils
felli“, „Eiríksjökull“, Heiðarlands
lag“ — það er eins og norræn
náttúra hafi storknað í þunga
sínum í hinum föstu litum og
kuldalegu byggingu þessa lands
lags.
Þesir þrír listamenn hófu allir
nám í Danmörku héldu síðan
áfram í París eða Berlín. En leit
evrópskra listamanna á önd-
verðri öldinni að nýjum aðferð-
um vakti einungis áhuga þess-
ara hjartahreinu fslendinga en
hreif þá ekiki „Engin af bók-
menntastefnum þeim, sem upp
komu í Evrópu um og eiftir
heimsstyrjöldina (fyrri) skaut
nokkrum rótum á fslandi. Vér
kynntumst súrrealisma, expres-
sjónisma, „neue Saohlichkeit" o.
s.frv. af erlendum bókum“, segir
Kristinn Andrésson, fremsti könn
uður ísl. bókmennta og mikill
kunnáttumaður í listsögu. Hið
sama gæti hann hafa sagt um
hina framsæknu málaralist ís-
lendinga. Og enda þótt segja
megi að Ásgrímur hafi sætt á-
hrifum frá Césanne og Jón frá
Matisse, þá er hér einungis átt
við æskuáhrif en ekki að fylgt
sé þeirra stíl.
Íslendingarnir hafa reynzt trú-
ir sjálfum sér. Jóhannes Kjar-
val hefur næmt auga fyrir árs-
tíðum íslands — sýnir sumar-
grænt land í einu verki en haust
liti í öðru. Hrífandi er auðlegð
hans í litum og samspil þeirra
á tveim steinum, sem í fljótu
bragði kunna að virðast eins.
Ásgrímur Jónsson sýnir hið
— 750 farast
Framhald af bls. 1.
bil eitt þúsund. Ekki er Ijóst
hve margir hafa flúið hættu-
svæðið, en þeir munu skipta
þúsundum. Lyf og matvæli
hafa verið send til Bali frá
borgum á Jövu.
Eldgos þetta mun hafa haf-
izt 16. febrúar sl. og fórust
þann dag 17 manns. Frá því
hefur gosinu haldið áfram og
öskufall orðið mikið. Er ljóst
að það hefur valdið miklu
tjóni á uppskeru.
fornfræga Heklufjall gnæfandi
eins og táknmynd yfir umhverf-
ið, blátt yfir bláum snjó. Hann
sýnir ryðrauða haustliti og djúp
bláa kletta.
Jón Stefánsson leitar hins ríkj
andi litar. Hann er áhrifamikilP
kóloristi. Heiðalandslag hans er
þrungið litaauðlegð, en í næstu
mynd er eins og hann vilji rétt-
læta þennan óraunveruleika,
sanna í reynd hina voldugu lita-
auðgi hins norræna morguns.
Nektarmynd hans er hörkuleg
og naumast líkleg til þess að
falla okkar sýningargestum í
geð. En samtímis er sjálfsm.ynd
hans sérkennileg fyrir sa'kir
sterks svipmóts og norræns yfir
bragðs.
Svo virðist sem þetta steika
svipmót sé aðaleinkenni þessarar
litlu sýningar, sem um daginn
var'opnuð í Pusjkin-listasafninu.
A. Baigusjev."
— A/þingi
Framh. af bls. 17.
ar nefndar, sem undirbjó lög-
in um tekjustofna sveitarfélaga,
einmitt með hliðsjón af því, að
fundin yrði lausn á þessu vanda-
máli. En sú lausn er mjög vand-
fundin, þar sem hún breytir
veigamiklu grundvallaratriði í
þessum umræddu lögum, þ.e. að
meginstefnan verður sú, að ait-
vinnurekstur sé skattlagður á
einum stað. Vitanlega má færa
margvisleg rök fyrir þeirri stefruu
og hefur kamið í ljós á undan-
förnum árum, að mjög miklum
annmörkum hefur verið háð að
skattleggja atvinnurekstur á
fleiri stöðum.
Mun það hafa verið skoðun
þeirrar nefndar, sem undirbjó
lögin um tekjustofna sveitarfél-
aga, að víðast hvar mundi hafa
verið hægt að ná til þessa rekstr-
ar í gegnum aðstöðugjöldin.
Hins vegar sýnir dæmið frá Akur
eyri ljóslega, að þar hefur mál-
ið ekki verið skoðað niður í kjöl-
inn sem skyldi og því óumflý-
anlegt að taka málið upp til
nýrrar abhugunar. En einmiitt
með hliðsjón af því, að þetta
miál beið úrskurðar og einnig
vegna þess, að erfitt er að forma
ákveðna tillögu, án þess að til
komi sérþekking þeirra manna,
sem um málið hafa fjallað, hef-
ur ekki úr því orðið, að við
þingmenn þess kjördæmis, sem
sérstaklega þetta vandamál hef-
ur risið, höfurn flutt um það sér-
stakt frumvarp á yfirstandandi
þingi.
Tók alþingismaðurinn undir
það með JÞ, að nauðsynlegt
væri, að málið verði skoðað frá
öllum hliðnm og krufið til mergj-
ar, vegna þess að þesi breyting
á lögunum hefur ýmsar víðtæk-
ar verkanir, sem erfitt er að átta
sig á.
Loks kvað alþingismaðurinn
ástæðu þess, að hanti stóð upp,
sérstaklega verið þá, að hann
vildi leggja ríka áherzlu á, að
þessu máli mætti efcki skjóta
óhæfilega á frest, og hefði hann
því talið eðlilegast, ef ekki yrði
hægt að finna endanlega niður-
stöðu á þessu þingi, yrði málið
a.m.k. afgreitt á þann veg, að
rikisstjórninni yrði faiið að und
ihbúa málið fyirir haustþingið
með það í huga að finna lausn
á þessu vandamáli.
Afgreiðslumaður
Ungur maður óskast til afgreiðslustarfa nú þegar.
SÍLD&FISKUR
Bræðraborgarstíg 5. — Sími 18240.