Morgunblaðið - 24.03.1963, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.03.1963, Blaðsíða 2
2 MORCUNBLAÐ1D SuTrnudagnr 24. marz 1963 Hjörvarður áfram við Guggenheimsafnið ÍSLENDINGURINN Hjörvarð ur Árnason er sem kunnugt er varaforseti í listastjórn Guggenheim-stofnunarinnar, sem rekur hið fræga Guggen- heim-safn í New York. Það kom fram í viðtali við Valtýr Pétursson, listmálara, í blað- inu nýlega, að honum hefði verið sagt á fundi Norræna listbandalagsins í Helsinki, sem ástæða fyrir því að ekki yrði af sýningu, að Hjörvarð- ur væri á förum frá safninu. Okkur þóttu þetta tíðindi og hringdum til Hjörvarðar í New York. Hann kvað þetta ekki hafa við neitt að styðjast, hann væri ekki að ' hætta störfum við safnið og hugsaði sér að vera þar á- fram. Hjörvarður sagði að lítið væri af sér að frétta. Hann mundi e.t.v. fara til Evrópu í sumar og koma þá við á ís- landi, en það væri óráðið enn. Hann kæmi hér ekki í erind- um safnsins, heldur aðeins í frí, ef til kæmi. — En þú hefur verið að gefa út bók, er það ekki? — Jú, ég hefi verið að skrifa bók um myndhöggvarann Lip- Hjörvarður Arnason chitz, sem er að koma út. En hann er einn þekktasti mynd- höggvari hér og þekktur víða um heim. — Hvað er um að vera á Guggenheimsafninu núna? — Það er stór sýning á verk um Kandinskys, myndir frá flestum tímabilum ævi hans, og lánaðar úr söfnum í ýms- um löndum, t.d. Frakklandi, Þýzkalandi og Rússlandi. Sýn- ingin er búin að standa yfir i nokkra mánuði"og er geysi- mikið sótt, um 60 þús. sýn- ingargestir á mánuði. — Er nokkur von á Norður- landasýningum þar í bráð? — Nei, ekki húna. En það verður mikil alþjóðleg sýning, sem byrjar í janúar 1964. Þar verða myndir frá Norðurlönd^ um, m.a. frá Svíþjóð og Dan- mörku, en ég veit ekki hvort nokkur íslenzk verk verða þar. Hjörvarður er ættaður úr Lundarreykjadal, en faðir hans, Sveinbjörn Árnason, fluttist vestur um haf á unga aldri. Á stríðsárunum kom Hjör- varður, sem vestra heitir Hai- vard, til íslands og varð kunn- ur af fyrirlestrum um listir, sem hann hélt í Háskólanum og af greinum um listir, sein birtust í Helgafelli. Hjörvarð- ur Árnason er listfræðingur að mennt og virtur maður í sinni grein. Hann var forstjóii „Walker Art Center“ og for- seti listadeildar Minnesota- skóla áður en hann kom að Guggenheimsafninu. Víötæk norræn msnningarstarf- semi hefst í Hasselbyhöll I mai f maíir.inuði næstkomandi hefst starfsemi menningarmið- stöðvar, sem Norðurlöndin standa að, í Hásselby-höil skammt frá Stokkhólmi. Á fundi sínum á föstudag staðfesti borgarráð Reykjavíkur samþykkt um rekst or hennar, en hún hafði áður fengið afgreiðslu í höfuðborgum hinna Norðurlandanna. Þessi stóra gamla höli í Hásselby hef- nr verið endurbyggð á kostnað Stokkhólmsborgar, og munu höf uðborgir Norðurlanda reka þar mistöð fyrir norræn mÆnningar- AFMÆLISFAGNAÐUR Sjálf- stæðiskvennafélagsins Hvatar verður í Sjálfstæðishúsinu n.k. mánudagskvöld og hefst með sameiginlegu borðhaldi kL 19,30 skipti í víðtækustu merkingu, eins og það er orðað í stefnuyfir- lýsingunni. Þar segir að stofnunin eigi að vera mótsstaður fyrir samkomur, námskeið oð ráðstefnur í hinum margvíslegustu greinum þjóðfé- lagsmála, lista, vísindia, tækni, íþrótta o.s.frv. og þar skuli gert ráð fyrir íbúðarherbergjum fyr- ir þátttakendum, t.d. í starfs- mannaskiptum. Fjölþætt starfse*ni Starfsemin á að miðast við fræðslufundi, ráðstefnur og nám skeið, þannig að efnt sé til fræðslufunda um norræn efni í samráði við aðrar stofnanir og samtöik svo sem ráðstefnur um borgarmálefni, kammermúsík- vikur og menningarvikur, nám- skeið og ráðstefnur á vegum fyr- irtækja o.s.frv. og halda stuttar ráðstefnur og mót. Þá eru áform aðar styrkveitingar til námsdval Kl. 8 í gærmorgun var SÁ- þíðviðri og vætu, og líklegt er, stinningskaldi og víða rigning að hvast verði með köflum. vestan lands, en hægviðri og í Vestur-Evrópu hefur kóln þurrt á N- og A-landi. Hiti var að á ný. 1 Englandi var hiti 3—7 stig. — Horfur eru á td. við frosmark, 2ja st. frost suðlægri átt næstu daga með í París og 6 í Hamboi-g. ar, svo að hægt sé að gefa vís- indamönnum, rithöfundum, blaðamönnum, kennurum o.fl. tækifæri til að dveljast lengri eða skemmri tíma í Hásselby, og einnig að rekin verði almenn gistihússtarfsemi, einkum á þekn tíma sem ekki er um skipu lögð námskeið og ráðstefnur að ræða og þá hægt að gefa ein- staklingum kost á dvöl að Háss- elby með forgangsrétti fyrir þátttakendur í starfsmanna — og kennaraskiptum höfuðborg- anna og þeim sem um lengTÍ eða skemmrí tíma ætla að kynna sér eitthvað sérstakt efni í Stokk hóltni. í stefnuskránni er einnig talað um búðaskóla, og þá átt við að skólabekkur fari kynnisferð með kennurum til „búða“ þar sem kennsla fer fram og þannig skipulagðar skólaferðir og hóp- ferðir frá nágrannalöndunum til Stokkhólms. Loks er gert ráð fyrir að Nor ræna félagið í Stokkhólmi flytji skrifstofur sínar til Hásselby og kæmist stofnunin þannig í tengsl við aðalstjórn Norræna félags- ins. En Birger Olsson, fram- kvæmdastjóri Norræna félagsins í Stakkhólmi er einnig fram- kvæmdastjóri Hásselbyhallarinn ar. Henni stjórnar sérstök 11 manna nefnd með 2 fulltrúum frá hverri höfuðborg og einum fulltrúa Norræna félagsins. TóiJistarkynning í Háskólanum TÓNLISARKYNNING verður í hátíðasal háskólans í dag kl. 5. Flutt verður af nýjum og vönd uðum stereo-tækjum, sem Sveinn Guðmundsson, verkfræðingur, hefur góðfúslega lánað 4. sinfón- ía Brahms, í e-moll, op. 98. — Dr. Páll ísólfsson flytur inngangs orð og skýringar. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. (Frá Háskóla íslands). Eiga á hættu að missa atkvæðisrétt hjá S.Þ. New York, 23. marz. — NTB-Reuter — T í U aðildarríki Sameinuðu þjóðanna eiga á hættu að missa atkvæðisrétt sinn á næsta Allsherjarþingi vegna ógreiddra framlaga til sam- takanna. Samkvæmt stofnskrá Samein- uðu þjóðanna missa atkvæðisrétt þau ríki, sem vanrækja greiðslur fjárframlaga í tvö ár samfleytt — og ríkin, sem svo er nú ástatt um, eru: Paraguay, Ungverja- land, Honduras, Haiti, Guatamala, Bolivia, Argentina, Kúba, Sam- einaða Arabalýðveldið og For- mósa. Allsherjarþingið getur gert und antékningu frá þessu ákvæði stofnskrárinnar, geti hlutaðeig- andi ríki fært sönnur á að gjöldin séu vangoldin vegna efnahags- vandræða landsins. Nokkur önnur ríki skulda meira eða minna fjárupphæðir til samtakanna, þar á meðal eru ríki þau, er neitað hafa að greiða sinn hluta kostnaðarins vegna starfsemi SÞ. í Kongó og á Gaza svæðinu. í febrúarlok námu skuldir að- ildarríkjanna við samtökin rúm- lega tvö hundruð milljónum doll ara. Castro neitar við- talinu í Le Monde Segist ekki hafa gagnrýnt Krúsjeff Havana 23. marz (NTB) f opinberri tilkynningu, sem gefin var út í Havana í gær, seg- ir Fiedel Castro, forsætisráðherra Kúbu, að ekkert sé hæft í við- tali við hann, sem birtist í Par- isarhlaðinu Le Monde, sJ. fimn.iu dag. f viðtalinu gagnrýnir Castro Krúsjéff, forsætisráðherra Sov- étríkjanna, fyrir að hafa flutt eldflaugar á brott frá Kúbu án þess að leita ráða Kúbustjórnar. Einnig gagnrýndi Castro ýmsa þætti stefnu Krúsjeffs. í hinni opinberu yfirlýsingu segir Castro, að hann hafi aldrei fallizt á, að fréttamaður Le Monde birti viðtal við hann. Hann sagðist, að vísu, hafá hitt fréttamanninn, sem ritaði viðtal- ið í Le Monde, Claude Julien, í opinberri móttöku í Havana 1. jan. s.l. Sagðist Castro hafa ræbt við fréttamanninn um ýmsa hlurti, en samtalið hefði verið ó- formlegt og í léttum dúr. Castro neitar afdráttarlaust að hafa gagnrýnt Krúsjeff og stefnu Sov étríkjanna, í samtali sinu við fréttamianninn. Stjórnarmyndun i Austurríki — eftir 4 mánaða stjórnarkreppu Vínarborg, 23. marz. — NTB-Reuter — Tveir stærstu stjórnmála- flokkarnir í Austurríki, í- haldsflokkurinn og Jafnaöar- menn hafa loks komizt að samkomulagi um stjórnar- myndun eftir meira en fjög- urra mánaða stjórnarkreppu. — í .nóvember sl. fóru fram kosningar í landinu og unnu íhaldsmenn þá 81 þingsæti og Jafnaðarmenn 76 þingsæti, af alls 165 sætum, er kosið var um. Ekki hefur verið tilkynnt, hvernig verðandi stjórn muni skipuð, en talið er, að ráðherra- listi verði lagður fyrir Adoif Scharf, forseta, í byrjun næstu viku. Haft er þó eftir góðum heimildum, að Bruno Kreisky muni halda áfram sem utanríkis ráðherra, en nokkur hluti starf- sviðs hans ganga yfir til viðskipta málaráðherra, þar á meðal mál, er varða viðræður um tengsl eða samninga við Efnahagsbandalag Evrópu. Nefndir flokkanna tveggja hafa setið nær sleitulaust á fundum síðustu mánuðina til þess að reyna að leysa stjórnarkreppuna. Samkomulag það, sem þeir kom- uzt að fyrst í morgun á enn eftir að leggja fyrir stjórnir flokkanna til samþykktar, en næsta fullvíst er að þær muni í engu breyta. Ráðherrafundi V.-Evrópu- bandalagsins frestað Haag, 23. marz — NTB KÁÐHERKAFUNDI Vestur- Evrópubandalagsins, sem halda átti í lok þessa mánað- ar, hefur verið aflýst. Fund- inum er aflýst vegna þess, að ráðherrunum tókst ekki að koma sér saman um dagskrá hans. TaLsmaður hoTIenzka utanrík- isráðuneytisxns skýrði frá því í morgun, að ráðherrar allra að- ildarlanda bandalagsins, nema Frakklands hefðu viljað ræða endalok viðræðna Breta við Efna hagsbandalag Evrópu. Franski utanríkisráðherrann, Oouve da Murville, neitaði að sækja ftund- in, ef aðild Breta að E.B.E. yrði rædd þax. Eftir að hinum ut- anríkisráðlherrunum barst neitun hans til eyrna, feomu þeir sér samain um að ekiki væri túma- bært að halda fundinn og var honuim því aflýst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.