Morgunblaðið - 24.03.1963, Side 5
Sunnudagur 24. marz 1963
MORCVisnr. 4 r>in
Yoitarskarð og Bárkrgata hjá F.I,
FERÐAFÉLAGIÐ efnir til
fcvöldvöku í Sjálfstæðis'hús-
inu nk. þriðjudagskvöld 26.
þ.m. kl. 20. Þar verður lýst
einum ókunnasta afkima á ör-
sefum ísiands, sjálfu Vonar-
skarði og Bárðargötu, en það
er sú leið, sem talið er að
Gnúpa-Bárður hafi farið, er
hann flutti búferlum úr Bárð
ardal m,eð kvikfénað sinn suð
ur í Fljótshverfi fyrir fullum
1000 árum.
Dr. Haraldur Matthíasson
menntaskólakennari hefur á
undanförnum árum lagt stund
á að feta slóð Gnúpa-Bárðar
og ritað lýsingu hennar. Síð-
astliðið sumar gerði Ferðafé-
lagið út leiðangur í Vonar-
skarð og var þá lokið við að
kanna það myndir teknar og
kennileitum gefin nöfn, því að
til þessa hefur allt verið nafn-
laust í Skarðinu. Úr Vonar-
skarði liggur leiðin suður
Köldukvíslarbotna og þaðah í
Tungnaárbotna, en þar hafa
margir komið síðustu árin,
eftir að Jölklarannsöknarfé-
lagið valdi sér þar bækistöð.
Björn Gunnlaugsson fór
Vonarskarð fyrstur manna
árið 1839, og skrifaði fylgdar-
maður hans, séra Sigurður
Gunnarsson á Hallormsstað
um förina.
Björn Gunnlaugsson fór
Vonarskarð fyrstur manna
árið 1839, og skrifaði fylgdar-
maður hans, séra Sigurður
Gunnarsson á Hallormsstað
um förina.
Næsta árbók Ferðafélagsins
mun fjalla um Bárðargötu, en
á kvöldvökunni verður tæki-
færi til að kynnast leiðinni af
ágætum litmyndum, sem
Magnús Jóhánnsson og fleiri
tóku í fyrra sumar.
Á meðfylgjandi mynd sjást
tjaldbúðir á Tjaldeyri í miðju
Vonarskarði, fast við Skálf-
andafljót. Brúnaslétta fellið
í baksýn heitir Bálkafeil
(innsta), en kollurinn sem
ber við loft t.h. heitir Hnýfill,
og eru þeix að vísu tveir.
Auk erindis verður mynda
getraun að vanda og dans stig
inn til miðnættis. — J.
Hafskip. Laxá fór frá Gautaborg 22.
til Rvíkur. Rangá losar á Norður-
landshöfnum.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.:
Katla er í Hull. Askja er í Keflavík.
H.f. Jöklar: Drangjökull fór frá
Vestmannaeyjum aðfaranótt laugar-
dags 23. þm. áleiðis til Camden U.S.A.
Langjökull er í Reykjavík. Vatna-
jökull er væntanlegur til Rvíkur frá
London í kvöld.
Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell losar á
Norðurlandshöfnum. Arnarfell fer
væntanlega 27. þm. frá Hull áleiðis
til Rvíkur. Jökulfell fór 1 gær til
Norðurlandshafna. Dísarfell losar á
Vestfjörðum. Litlafell er væntanlegt
til Rvíkur 26. þm. frá Fredrikstad.
Helgafell er á Norðurlandshöfnum.
Hamrafell fór frá Baturni 22. þm. áleíð
is til Rvíkur. Stapafell fór 20. þm.
frá Raufarhöfn áleiðis til Karlshamm.
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug:
Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:10 í fyrramálið.
í dag er áætlað að fljúga til Akur
eyrar og Vestmannaeyja. Á morgun
er áætlað að fljúga til Akureyrar,
Vesitmannaeyja, ísafjarðar og Horna-
fjarðar.
( vv. s
'K'V 3 ' ' s S- ASV- <• '
PÁLL Andrésson, bílasölu-
maður hjá Agli Vilhjálmssyni
h.f., afhenti í gær Gunnari
Steinssyni, bónda að Þórsnesi
í Gnúpverjahreppi, Willys-
jeppann hans, sem fyrirtækið
hafði smíðað á stálhús ókeyp-
is. —
Það var þúsundasta stálhús-
ið, sem smíðað hafði verið hjá
fyrirtækinu.
Flestir þeir, sem kaupa nýja
Willys-jeppa láta smíða á
hann stálhús, enda er sérstak-
lega til þeirra vandað.
Sala á Willys-jeppum hefur
aukizt mjög að undanförnu og
eru að jafnaði seldir 3—4 slík-
ir jeppar á dag.
Myndin: Páll Andrésson
(t.h.) afhendir Gunnari Steins
syni jeppann.
Verksl;óri
Roskinn maður vanur verkstjórn getur fengið vel-
borgað framtíðarstarf á stórbýli í nágrenni Reykja-
víkur. Umsóknir sendist Morgunblaðinu fyrir 30.
marz merktar: „Verkstjóri — 6555“.
Ráðskonci
Ráðskonu vantar á stórt sveitaheimili í nágrenni
Reykjavíkur. Framtíðaratvinna. Ágætt kaup. Um-
sóknir sendist Morgunblaðsins fyrir 29. marz merkt-
ar: „Ráðskona — 6557“.
Nýkomið
Hutton, nælonsloppar, undirfatnaður, skrautvörur,
hárspangir, slæður, hanzkar, regnkápur og regn-
hlífar fallegt úrval. — PÓSTSENDUM.
Hatta og skermabúðin
Tilboð óskast í
Vauxhall 1956
í því ástandi sem bifreiðin nú er í eftir árekstur.
Bifreiðin verður til sýnis í „Vöku-portinu“ við
Síðumúla, Reykjavík, mánudaginn 25,- marz milli
kl. 13—19. Tilboð óskast send skrifstofu Samvinnu-
trygginga, herbergi 214, fyrir kl. 17, þriðjudaginn
26. marz.
Vélsmiðfa
Til sölu er ef um semst nofuð verkfæra samstæða
fyrir vélsmiðju þ.á.m. rennibekkur, borvél, hefill,
rafsuðuvélar o. fl. Góð verkfæri. Fullnægjandi verk-
færakostur til að starfrækja með vélsmiðju. Líkur
eru til að mjög hagstæð lán fylgdu því. Væg út-
borgun. — Þeir, sem kynnu að hafa áhuga fyrir
kaupum leggi svar inn á afgr. Mbl. merkt:
„Starfandi smiðja — 1338“.
Sængur
og koddar fyllt með A C R Y 11 ull.
100% nælonefni í verinu.
Fullorðinssæng kr.1375.—
Barnasæng kr. 400.—
Acrylic ull er 100% gerfiefni er svipar til
Orlon og Dralon og hafa sængurnar því
eftirtalda kosti. Þær eru: ÞVOTTEKTA,
RYKLAUSAR, eru FISLÉTTAR og SÉR-
STAKLEGA HLÝJAR, öruggar fyrir
MÖLÁTI.
IVIarteírfen Einarsson & Co.
Fata- & gardínudeild Laugavegi 31 - Sími 12816