Morgunblaðið - 24.03.1963, Qupperneq 6
9
MOTtaVNBT AÐIÐ
Sunnudagur 24. mare 19«s
Soraya, fyrrum drottning at
Persíu, hefur fengið mörg kvik-
myndatilboð um ævina, en alltaf
afþakkað þau, þar til fyrir
nokkrum dögum. Og leikstjóri
hennar, Dino de Laurentis, segir:
„Ég hafði rétt fyrir mér, Soraya
er fædd leikkona." Hún er 30
ára gömul.
Soraya var kvikmynduð til
reynslu að kvöldlaigi í Róm og
fór myndatakan fram með hinni
mestu leynd. Birtast hér nokkr-
ar myndir úr reynslukvikmynd-
inni. Hún stóð yfir frá 8 til 2
um nóttina og sýndi leikkonan
og fyrrverandi drottning engin
þreytumerki að henni lokinni.
Rockefeller og Joan Crawford
Fregnir herma, að hinn kunni
ríkisstjóri New York fylkis, Nel-
son Rockefeller, sé í hjóna-
bandshugleiðingum og sú út-
valda sé leikkonan Joan Craw-
ford.
Rockefeller skildi í fyrra við
konu sína eftir 30 ára hjúskap.
Álitu þá margir, að möguleikar
hans til að komast í forsetafram-
boð næst þegar kosið yrði, væru
sóralitlir. En raunin hefur örðið
önnur, og skilnaðurinn enginn
áhrif haft á pólitískt gengi hans.
Og talið er að Joan Crawford
sem eiginkona ríkisstjórans
muni fremur auka vinsældir
hans en öfugt. Hún er ekkja eft-
ir iðnaðarhöldinn Alfred Steele
og aðaleigandi Pepsi-Cola verk-
smiðjanna.
Joan Crawford er sögð 55 ára
gömul, samkvæmt áreiðanlegum
heimildum. Giftist hún Rocke-
feller verður hann fimmti eigin-
maður hennar, hinir fyrri eru:
leikararnir Douglas Fairbanks
jun., Franchot Tone og Philip
Perry, (hún skildi við þá alla)
og svo Steele, eins eins og áður
greinir.
★
Harmleikur átti sér stað í
Bernini-Bristol í Rómaborg í
síðustu viku. Ameríska óperu-
söngkonan Frances McCann
fan'nst skotin í herbergi sínu.
Umboðsmaður hennar, Ernest
Boxmann, þýzkættaður Amerík-
ani, fannst í sárum í rúmi sínu.
Hann var fluttur á sjúkrahús
þar sem gert var að sárum hans.
Það er almenn skoðun, að
Boxmann hafi skotið söngkon-
una og ætlað að stytta sjálfum
sér aldur á eftir, en enn hefur
ekki verið hægt að yfirheyra
hinn sjúka mann.
McCann var mjög þekkt
sópran-söngkona í heimalandi
sínu og víðsvegar í Evrópu. Sið-
ustu fimm árin hefur hún verið
fastráðin við óperuna í Austur-
Berlín.
EINS og áður hefur verið sagt
frá 1 fréttum eignaðist Farah.
Diba dóttur þann 12. marz sL
Hún var skírð þann 17. og gefið
heitið Masoumeh Farah-Naz.
Myndin er tekin skömmu eftir
skírnina og sést drottningin af
Persíu með börnin sín tvö, krón-
prinsinn og dótturina.
í fréttunum
heyrandi löngun til að fara út
í garðinn með krakkana, til aS
sóla þau og sjálfan sig. Þú get»
ur svo ímyndað þér sjálfor
hvernig sálarástandið verð ur.
þegar svælufýlan leggst yfir, og
hrekur sóldýrkendurna til baka
inn í húsin, þar sem fljótlega
Um gervöll Bandaríkin var
fylgzt með brúðkaupi, sem fór
fram í Búddaklaustri í Himalaja-
fjöllum fyrir nokkrum dögum.
Þar voru gefin saman krónprins-
inn af Sikkim og 22 ára gömul
amerísk skólastúlka, Hope Cook
— einn afkomandi pílagrím-
anna sem fóru með „Mayflower“
til Ameríku fyrir um 300 árum.
Þau höfðu kynnzt í Indlandi
fyrir fjórum árum, en ekki feng-
ið leyfi til að giftast fyrr en nú
vegna slæmra afstöðu stjarn-
anna, að sögn hirðstjörnufræð-
inganna.
Brúðguminn er 39 ára gamall,
ekkjumaður með 'brí1-1 börn.
Hann gaf brúði sinni gullhring
að vesturlenzkum sið, en að
öðru leyti fór brúðkaupið fram
samkvæmt siðum Búddatrúar-
manna.
Einu hlutirnir sem hin unga
brúður tók með sér frá Ameríku
voru tveir ruggustólar, annar
var ættargripur sem langafi
hennar hafði átt, en hinn er
mjög lítill í sniðum og ætlaður
fyrir börn. Þykir það benda til
þess að brúðurin líti björtum
augum til framtiðarinnar.
Hope Cooke sagði það í út-
varpsviðtali að hún hygðist ekki
hætta námi, þrátt fyrir gift-
inguna. Og hún er ákveðin í að
skrifa bók um sögu Sikkims.
Meðfylgjandi mynd var tekin
rétt fyrir brúðkaupið í skógar-
ferð.
• „West Side Story“
Ekki Todd-A-O.
Velvakandi hefur fengið
þetta bréf frá Keflavík:
„Ég las ummæli bíógests eins
í „Velvakanda" Morgunblaðsins
14. marz s.l., þar sem sá góði
gestur fer fram á að kvikmynd-
in „West Side Story“ verði
sýnd hér eingöngu í Todd-A-O.
Þar sem ég hef séð söngleik
þennan í London get ég af séðri
reynslu mælt með leiknum og
vonast eindregið, að sem flestir
geti séð kvikmyndina. En þar
sem bíóhús úti á landi eru ekki
útbúin Todd-A-O tækjum, geta
engir séð myndina nema Reyk-
víkingar. En það eru kannske
fleiri en þeir, sem hafa áhuga
á að sjá þessa margumtöluðu
mynd, svo að mér finnst, að
þessi biógestur ætti að íhuga að
ísland er ekki bara Reykjavík,
og gefa fleirum kost á að sjá
þessa ágætu kvikmynd.
Með þökk fyrir birtinguna.
Bíógestur úti á landL“
• Himnastrompurinn
enn.
„Pestahverfisbúi" sendir þessa
litriku og lyktríku lýsingu:
„Kæri Vedvakandi,
Ég þakka þér kærlega fyrir
birtinguna á tilskrifi minu til
þín fyrir nobkrum dögum, varð
andi Klettsverksmiðjupestina í
íbúðarhverfum milli Laugar-
ness og Klepps. Einnig þakka
ég þér fyrir eigin athugasemd-
ir þínar við nefnt tilsikrif.
Við íbúamir hér í nágrenni
verksmiðjunnar höfum fylgzt
vel með öllu því, sem opinber-
lega hefur verið um hana rætt,
og virðist lítil ástæða til að
ætla, að nýlegri ákvörðun um
tuttugu ára staðsetningarleyfi
hennar hér við nefið á okkur,
verði breytt, úr því sem komið
er. Þess vegna er væntanlegur
flutningur hennar úr byggðar-
laginu tæplega tímabært um-
ræðuefni, en áætlunin um
himnastrompinn mikla þeim
mun verðugri lofs og áhuga. Því
var það að undirritaður bað
þig fyrir fyrirspurnina um
framkvæmdir í því efni, og er
nú af miklu ofvæni beðið eftir
svari ráðamanna verksmiðj-
unnar.
Því er nefnilega svo varið
að nú er ballið byrjað. Mánu-
daginn 18. þ.m. lá fölblá reykjar
stybbufýlan yfir og inn í hús-
in við Kleppsveginn, þokaðist
síðan í sólskini norðangolimn-
ar hægt og sígandi áleiðis upp
Laugardalinn, meðfram og yf-
ir Laugarásinn, fyllandi vitin og
híbýlin af þessum ófögnuði.
Þriðjudaginn 19. marz var ó-
breytt ástand. í guðanna bæn-
um ítrekaðu því fyrirspurnina
um tilkomu himnastrompsins
mikla.
Ég sé það Velvakandi minn,
að þú ert mér tæplega sammála
í því efni að ástandið sé mann-
skemmandi og heilsuspillandi á
sál og líkama, og vildi ég því
leyfa mér að bæta þessu við.
Sumargóðviðri hér í Reykjavík
verða helzt í norðangolu. Þá
er oft sólskin og blíða, með til-
-------------------------------0
verður mollulegt í sólskininu,
vegna þess að ekki eru tök á
að opna glugga. Ofan á það bæt
ist svo að híbýlin eru tæplega
svo þétt, að ófögnuðurinn siist
ekki smátt og smátt inn, og er
þá fokið í flest skjóþ Mundi
nú vera hægt að krefjast þess,
að venjuleg sálarheilsa þoli
slíkt til lengdar. Varðandi
skrokkhreystina vísast í um-
mæli lækna og vísindamanna,
um áhrif spillts andrúmslofts
á heilsu manna. — Og hvað er
þá að segja um alla sjálfsgleð-
ina, þegar verið er að auglýsa
Reykjavík sem hina heilnæmu
hverahituðu, „reyklausu“ höí-
uðborg.
Velvakandi minn, upphaflcg-
ur tilgangur með þessum skrif-
um mínum til þín var að fá úr
því skorið, hvað liði fram-
kvæmdum á áætlunni um
himnastrompinn mikla. Ráða-
menn Klettsverksmiðjunnar
eiga lof skilið fyrix þessa hug-
mynd, en prísaðir verða þeir
ekki fyrr en þeir framkvæma
hana.
Með beztu kveðju,
Pestahverfisbúi.**