Morgunblaðið - 02.04.1963, Qupperneq 24
plar?0UttMíifoi!Si ^jmaJeruósgjafi^
77. tbl. — Þriðjudagur 2. aprfl 1963
Islendingur kom af tauga-
veikisvæðinu í Sviss
þegcr í sóttkví
1' GÆRKVÖLDI kom til
landsins íslendingur, sem
dvalizt hefur í svissneska
bænum Zermatt, þar sem
taugaveiki kom upp fyrir
skömmu. Það er Óskar Guð-
mundsson, sem var þar á skíð
um í þrjár vikur, fór þaðan
sL laugardag. Óskar kennir
Enn
finnast
B • •
kippir
Hofsósi, 1. apríl.
ENN heldur jarðskjálftinn
áfram hér nyrðra. í dag
laust eftir hádegið fannst
hér kippur. Var hann all-
snarpur og titruðu rúður og
leirtau glamraði í skápum.
Fólk er enn ótta slegið af
þessum sökum.
— Björh í Bæ.
Kippur þessi fannst víðar,
bæði á Skagaströnd og á
Akureyri, en mun ekki hafa
valdið tjóni.
sér einskis meins, en féllst
fúslega á tilmæli borgarlækn-
is, sem beið hans úti á flug-
velli, að fara beint í sóttkví
til vonar og vara, í Borgar-
sjúkrahúsið, en heilbrigðis-
yfirvöld hafa ekki lagalega
heimild til að leggja slíka
kvöð á heilbrigt fólk.
Óskar kvaðst hafa dvalizt í
Zermatt frá 10. marz og búið í
nýju hóteli, sem heitir Atlantá.
Hann varð ekki var viá nein veik
indi þar á hótelinu og vissi ekki
að alvarlegur faraldur var á ferð
inni fyrr en þremur dögum áður
en hann fór þaðan. Þá sá hann
að verið var að rifa upp holræsi
Freyr Sigurðsson
Dauðaslys í Keílavík
Keflavík, 1. apríl.
AÐFARANÓTT s.l. sunnudags,
um kl. 1.00 varð dauðaslys í
Keflavík á þann hátt að skot
hljóp úr byssu með þeim afleið-
ingum að 14 ára piltur, Freyr
Sverrisson, Túngötu 13 í Kefla-
vík beið þegar bana.
Nánari tildrög slyssins, eftir
því sem komið hefur fram í
skýrslum lögreglunnar, eru þessi:
Laust fyrir kl. 1.00 var hringt
á lögreglustöðina og var þá grát-
andi piltur í símanum, sem tjáði
lögreglunni að einn af vinum
hans hefði orðið fyrir voðaskoti.
Þegar lögreglan kom að húsinu,
þar sem þessi atburður hafði átt
sér stað, voru þar fyrir 4 piltar
og einn þeirra þegar dáinn af
völdum skots, sem hlaupið hafði
hafði úr byssu, sem einn piltanna
hafði verið að handfjatla.
Riffill þessi mun hafa verið
í herbergi þar í húsinu í eigu
annars manns.
Piltar þessir eru allir 14 til
15 ára og skóla- og leikfélagar.
Pitarnir voru einir heima, því
foreldrar piltsins, sem fyrir
óhappinu varð, voru fjarverandi,
stödd í öðru húsi skammt frá.
Frumrannsókn lögreglunnar á
þessu slysi, er þegar lokið og
hefjast réttarhöld hjá bæjarfó-
geta í dag.
Skólastjóri Gagnfræðaskólans
kallaði alla nemendur skólans
saman á mánudagsmorgun og
skýrðu skólastjóri og sóknar-
prestur frá þessum sorglega at-
burði sesm þessir nemendur skól-
ans voru viðriðnir. Var kennsla
síðan felld niður í skólanum.
— HSJ.
Alvarlegt umferð-
arslys í Keflavík
Keflavík, 1. marz.
Á laugardagskvöld laust fyrir
kl. 21.00 varð alvarlegt slys á
Hríhgbraut í Keflavík. Kolbrún
Árnadóttir, 14 ára stúlka var á
leið yfir götuna, varð hún fyrir
fólksbil og hlaut mjög slæman
höfuðáverka, beinbxx>t og önnur
meiðsli. Kolbrún var þegar flutt
á sjúkralhiúsið og var ekki kom-
in til meðvitundar á mánudags-
morgun.
Dimmt var og stúlkan dökk-
klædd og varð bílstjórinn henn-
ar ekki var fyrr en áreksturinn
varð.
Engir sjónarvottar voru að
slysinu en lögreglan vinnur að
nánari rannsókn þess.
— hsj —•
og var mikið af hermönnum og
Rauða Kross bílum í kring. Ekki
vissi hann þó hvaða sjúkdómur
þetta var, því hann kvaðst ekki
vera það góður í tungumálum að
hann hefði þekkt heitið á tauga-
veiki, enda hefði hann litið lesið
blöðin.
Drakk ekki vatn
Óskar kvaðst ekki hafa drukk-
ið heitt vatn. Það væri vani sinn
að drekka sódavatn á ferðalög-
um, þar sem vatn væri yfirleitt
vont á bragðið annars staðar en
heima. Einnig kvaðst hann lítið
hafa verið á opinberum stöðum,
nema á hótelinu sínu. Hann hafði
verið á skíðum allan daginn og
ekkert farið út á kvöldin síðustu
vikuna.
Þótt hann vissi ekki að alvarleg
farsótt væri komin upp í bænum
veitti hann því athygli síðasta
daginn að ferðamenn voru næst
um horfnir þaðan og veitinga-
staðir upp í fjöllunum lokaðir,
en enginn gaf honum neina að-
vörun.
Óskar fór frá Zermatt á laugar
dagsmorgun og dvalizt á sunnu-
dag í Genf. Er hann kom á hótel
Framhald á bls. 3.
Fulltrúaróðs-
íundur um frum-
boðslistunn
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðis
félaganna í Reykjayík heldur
fund annað kvöld 3. apríl kl.
20.30 í Sjálfstæðishúsinu.
Fundarefni: Tillaga kjör-
nefndar um framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Reykja
vík við næstu alþingiskosn-
ingar.
Óskar Guðmundsson fer með borgarlækni, Jóni Sigurðssyni
flugvellinum. (Ljósm. Sv. Þorm.)
Tilkynnt um land-
helgisbrot Hulltogara
RÉTT fyrir hádegi í dag til-
kynnti vélbáturinn ÓLAFUR
TRYGGVASON SF-60 að brezki
togarinn St. APOLLO H-592
væri að veiðum all-langt innan
fiskveiðitakmarkanna í LÓNS-
BUG. TF-SIF var send til at-
hugunar, en þegar hún kom á
vettvang var togarinn að toga
við fiskveiðitakmörkin. Hætti
hann þá strax veiðum og hélt
til hafs. Jáfnframt var varðskip
sent þangað til að taka skýrslu
um atburðinn og var væntan-
legt til vélbátsins síðari hluta
dags í dag.
Blaðið hafði tal af landhelgis
gæzlunni í gærkvöldi og spurð-
i$t nánari fregna af atburði þess-
um, en þær lágu þá enn ekki
íyrir.
Fimmtíu ára gömul leyni-
skýrsla frá Reykjavík
varpar nýju Ijósi á Titanic-slysið
NORSKA selveiðiskipið
„Samson“ kom til Reykja-
víkur vorið 1912, og þá
fyrst komst áhöfnin að
raun um það að ef til vill
hefði hún getað bjargað
hundruðum manna af stór
skipinu „Titanic“ þegar
það sökk eftir ásiglingu á
ísjaka aðfaranótt 15. apríl
það ár. Kemur þetta fram
í trúnaðarskýrslu, sem
Henrik Næss, 1. stýrimaður
á „Samson“ gaf norska ræð
imanninum í Reykjavík við
komuna hingað. En skýrsla
þessi hefur ekki fyrr en nú
nýlega komið fyrir almenn
ingssjónir, rúmum fimm-
tíu árum eftir slysið, sem
kostaði nærri 15 hunduð
mannslíf.
Næss stýrimaður 'segir í
skýrslu sinni að nóttina sem
Titanic fórst hafi skip hans verið
skammt frá slysstaðnum. Hafi
hann þá séð einhver ljós, sem
hann taldi í fyrstu vera stjörnur,
nema hvað staða þeirra var und
arleg. Varðmaður var í „tunnu“
uppi í formastri, og bað Næss
hann að athuga þessi Ijós nánar
í sjónauka. Gerði varðmaðurinn
það og skýrði Næss svo fná að
þetta væru „ljósker og mikill
fjöldi ljósa.“ Skömmu seinna sáu
þeir Næss svo flugelda, en svo
hurfu öll ljósin allt í einu.
Ekki datt Næss í hug að urn
sjóslys gæti verið að ræða. Hins
vegar óttaðist hann að þarna
væru amerísk strandgæzluskip
á ferð, sem hefðu séð til ferða
Norðmannanna. En „Samson“
mun hafa verið að veiðum ná-
lægt landhelgislínunni við Ný-
fundnaland, og stýrimaður ekkl
öruggur um að þeir væru fyrir
utan. Breytti hann því um stefnu
og sigldi á brott í norðurátt með
fullri ferð.
Seinna, þegar „Samson'* kom
til Reykjavíkur, frétti Næss um
sjóslysið. Bar hann þá saman
bækur „Samson" og upplýsingar
um ferðir „Titanic" cxg komst að
raun um að skip hans hafi verið
aðeins tíu sjómílur fró stórskip-
inu þegar það sökk.
(Sjá nánar grein á bls. 13), '