Morgunblaðið - 19.04.1963, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.04.1963, Blaðsíða 3
Tostudagur 19. aprft 1963 MORCVwnr 4 ntfí 3 MEÐAN flestir Reykvík- ing-ax nutu páskaleyfisins og hvíldu sig frá daglegri önn heima fyrir eða úti í náttúr- unni, vann hópur áhugasamra leikara baki brotnu niðri í Tjarnarbæ við æfingar á þremur einþáttungum eftir Odd Björnsson, sem Gríma mun frumsýna á næstunni. Er þetta í fyrsta sinn, sem leikrit eftir Odd Björnsson eru. sýnd á sviði, en í vetur var leikið eftir hann verk í Ríkisútvarp inu, og fyrir tveimur árum var hann einii fjögurra höf- unda, sem verðlaun hlutu í leikritasamkeppni Menningar sjóðs. Þegar blaðamaður Mbl. leit inn á æfingu í Tjarnarbæ, laugardaginn fyrir páska, var uppi fótur og fit. Hópur leik- Valdimar Lárusson og Sveinbjörn Matthíasson i hlutverkum kyndaranna. Gríma frumsýnlr 3 ísl. elnþáttunga enda og aðstoðarmanna sat niðri í salnum, meðan tveir leikarar áttu einkennilegar samræður uppi á sviðinu. Þeir voru kyndarar og röbbuðu saman á kúnstugu hrognamáli milli þess sem annar las upp- hátt kafla úr gamalli fram- haldssögu Morgunblaðsins. Þetta var sérkennileg smá- mynd úr lífi tveggja félaga, einföld en þó m.eð einhverjum hætti mögnuð. Höfundurinn var viðstadd- ur, en vildi ekki láta neitt uppi um „boðskap" eða „til- gang'í einþáttunganna. „Þeir eru bara tjáning á vissu sálar- ástandi,“ sagði hann, og meira var ekki hægt að toga upp úr honum. Kannski fer líka bezt á því, að áhorfendur túlki þessi verk hver fyrir sig. Helgi Skúlason setur þátt- inn um kyndarana á svið, og sömuleiðis einþáttung frá endurreisnartímanum á Ítalíu þar sem Alexander páfi 6. og þrjú börn hans koma fram. Helgi var hrifinn af verkefnunum, kvað hér vera' um að ræða algera nýjung í íslenzkum leikbókmenntum. Þættirnir váeru í senn djarfir og mjög skemmtilegir viður- eignar. Þegar kyndararnir höfðu lokið sér af, fór hópur leikara upp á sviðið, og Gísli Alfreðs- son tók við stjórninni. Ein- þáttungurinn sem hann setur á svið nefnist „Partí“, og er paródía af nútímasamkvæmis háttum íslendinga, í senn smellin og hárbeitt. Leikar- arnir eru flestir ungir. og lítt reyndir, en fullir af áhuga og leika hlutverk sín af hjartans lyst. í partíinu koma m.a. við sögu hross og sveitabóndi, ráðherra og starfsmaður hins opinbera, súperboj og svítí pæ, gæi og pæja, allt skopleg- ir persónugervingar ýmissa fyrirbæra í borgarlífinu, en bak við grínið er einhver á- ■ leitinn sviði og tómleikatil- finning. Gisli Alfreðsson tók undir þau ummæli Helga Skúlason- ar, að einþáttungar Odds Björnssonar væru nýstárleg og skemmtileg verkefni. Þeir væru þannig skrifaðir, að leik stjórinn hefði mun meira frjálsræði og miklu meiri möguleika en í hefðbundnum leikritum. Þð^sir þættir köll- uðu fram alls konar hugmynd ir og örvuðu leikstjórann til sjálfstæðra vinnubragða. Blaðamanninum gafst því miður ekki kostur á að sjá „Kóngulóna" á æfingunni á laugardaginn, þar eð Harald- ur Björnsson, sem leikur Alex ander páfa, var úti á landi, en í þessu verki fara reyndir leikarar með aðalhlutverkin; Erlingur Gíslason leikur Sesar Borgía, og Helga Bachmann fer með hlutverk Lúkreziu. Ekki er enn fullráðið hve- nær Gríma frumsýnir þessa þrjá einþáttunga, en senni- lega verður það einhverntíma i næstu viku. Haraldur Björnsson í hlutverki Alexanders páfa. Hjónabandið og fjölskyidumól rædd í Gullbringu- og Kjós Á FUNDI í Kvenfélagasanr.bandi Gullbringu- og Kjósarsýslu, sem nýlega var haldinn, voru tekn- *r ýmsar ákvarðanir um starf- semi sambandsins framvegis. Var ákveðið að leggja enn aukna rækt við ýmsa fræðslustarfsemi, til dæmis í garðrækt og handa- vinnu, svo eitthvað sé nefnt. Þá var ákveðið að koma á fyrirlestrarstarfsemi urn ýmis málefni, sem ofarlega eru á baugi hverju sinni. Munu þeir prófessor Þórir Kr. Þórðarson og Hannes Jónsson, félagsfræð- ingur, flytja erindi, sem þeir nefna „Hjónabandið og kristileg siðfræði" og „Fjölskyldu- og hjúskaparmálefni“, á vegum sambandsins nú í aprilmánuði. Fyrirlestrar þessir verða flutt- ir i samkiomu'húsinu á Garða- holti, að Hlégarði í Mosfellssveit og í samkomuihúsinu í Njarðvík. Ætlunin er að þeir séu ekki eingöngu fyrir kvenfélagskonur, heldur jafnt fyrir karla og kon- ur. j , HA /5 hnúiar SV Súhnú/ar Jí Sn/Moma * ÚSi \7 Skúrir E Þrumur 'Wmz Kutíathi/ ^ Hi/athH H Hmi L Lmai GÆR á hádegi var A-átt austantil á landinu, en storm- hér á landi, vægt frost fyrir hvassviðri á hafinu « , „ . , ... , fyrir S og SA land. Trollafoss norðan en 1—6 st. hiti fyrir sunnan. Allhvast var suð- er t. d. á kortinu með 9 vind- stig út af Suðausturlandi. STAK8TEIMAR • VINSTKI STJÓRNIN *OG HENGlF'LtJGIÐ. Þegar vinstri stjórnin hrökklað ist frá völdum í desember 1958, lýsti bæði forsætisráðherra henn ar og aðalefnahagsráðgjafi því yfir, að ný verðbólgualda væri skollin yfir og við værum að ganga fram af brún hengiflugs- ins. Hermann Jónasson, þáver- andi forsætisráðherra, skýrði líka frá því, að engin samstaða væri í stjórninni um nein úr- ræði til bjargar og þess vegna yrði hún að fara frá. Það er eðli legt, að menn rifji þessi umimæli upp í sambandi við þá kokhreysti Eysteins Jóns- sonar, að halda þvi fram, að ekkert hafi verið athugavert við efnahagsástandið og þá þróun, sem varð á tímum vinstri stjórn- arinnar og fylgdi í kjölfar starfa hennar. En í tilefni af orðum Eysteins Jónssonar skal þetta lítillega rifjað upp. • SKEEDAAIKNING 1243 MILLJÓNIB Miðað við núverandi gengi voru erlendar skuldir íslendinga umfram innstæður í ársbyrjun 1956 751.1 millj. kr. í árslok 1958 voru þessar skuldir orðnar 1994.7 millj. kr. eða höfðu auk- ist um 1243,6 millj. En afleiðing- arnar af því efnahagskerfi, sem tildrast hafði upp á tímum vinstri stjórnarinnar, bjargráðunum, yf- irfærzlugjöldunum og alls sukks ins, var þó aðeins að takmörkuðu leyti komin í ljós. Minnihluta- stjórn Alþýðuflokksins hafði ekki bolmagn tii að gera rót- tækar ráðastafanir, enda þurfti mikla vinnu til að undirbúa var- anlegar efnahagsráðstafanir og gera þá gagngerðu breytingu á efnahagslífi landsins, sem óhjá- kvæmileg var eftir tímabil upp- bótanna og spillingarinnar. Þess vegna hélt óhjákvæmilega á- fram að síga á ógæfuhlið- ina, þar til róttækar efnahags- ráðstafanir voru gerðar y og þess vegna jukust skuldir ís- lendinga enn á árinu 1959 og nokkuð á árinu 1960, enda fóru efnahagsráðstafanirnar ekki að | bera árangur fyrr en á miðju því ári og þar að auki var skipainn- flutningur 1960 nær 600 millj. kr. í árslok 1959 voru erlendar skuldir umfram innstæður 2635,3 millj. kr. og í árslok 1960 2986,8 millj. kr. # KÓTTÆK STEFNU- BREYTING. En á síðari hluta árs 1960 fóru viðreisnarráðstafanirnar að bera verulegan árangur og þó fyrst og fremst á árunum 1961 og ’62. í árslok 1962 var svo komið, að er- lendar skuldir umfram innstæð- ur höfðu lækkað niður í 2038,1 millj. kr., eða um hvprki meira né minna en 948,7 millj. kr. frá árslokum 1960. Þetta er sú upp- þæð, sem sýnir þróunina á við- reisnartímanum og á að bera saman við þróunina á tímum vinstri stjórnarinnar, en þá juk- ust skuldir eins og áður segir, um 1170,8 millj. Þó var aðeins nokkur hluti afleiðinga óstjórn- arinnar kominn í ljós og hélt á- fram að dengjast yfir landslýð- inn þar til hægt var að gera rót- tækar ráðstafanir fyrri hluta árs 1960.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.