Morgunblaðið - 19.04.1963, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 19.04.1963, Blaðsíða 5
Föstuðagur 19. apríl 1963 MOPCl'lSBL 4 ÐIÐ 5 Aldarafmœli íslenzks listamanns I' OPNUÐ hefur verið í sýn- ingarsalnum við Freyjugötu sýning á verkum eins elzta listmálara landsins, Einars Jónssonar frá Fossi í Mýrdal, en um þessar mundir eru 100 ár liðin frá fæðingu hans. Einar lauk nánti í húsasmíð um en hélt að því loknu til Kaupmannahafnar, þar sem hann nam teikningu og mál- araiðn í sama skóla og sam- tímis Einari Jónssyni, mynd- höggvara, árin 1894—96. Þegar hann kom heim frá Höfn settist hann að á Sauð- árkróki og langaði mikið til að helga sig málaralistinni, en treysti sér ekki til þess fjár- hagslega. Vann hann síðan mikið að húsamálun, fyrst á Sauðárkróki, en fluttist skömmu síðar til Akureyrar. Einar lagði rækt við list sína jafnframt vinnunni, en í Oddeyrarbrunanum 1906 missti hann mikið myndasafn, sem hann hafði unnið að um árabil. Fluttist Einar skömmu siðar til Reykjavíkur og byggði sér lítið en vinalegt hús við Skólavörðustíg 27, sem enn stendur, og lengi gekk undir nafninu „Hús málar- ans.“ Málaraiðn var í þá daga með nokkuð öðrum hætti en nú í dag, mikið var um við- arskreytingar og svo kallaðar „marmoreringar", og notaði Einar iðulega þessar aðferðir til veggskreytinga og felldi þá inn í þær ýmsum vegg- myndum. Til dæmis sézt enn- þá veggskreyting sem hann gerði í Húsmæðraskóla Reykjavíkur, er hann felldi margar fossamyndir inn í „marmoreringu“ í forstofunni þar. Ein myndin á pýningunni er J máluð úr íslenzkum litum, sem leitaði að í leir við Geysi, þegar hann skreytti konungs- húsið þar, og beitti hann sér mikið fyrir að athugaðir væru möguleikar á að vinna liti úr íslenzka leirnum. Er einnig- á sýningunni litaspjald, sem hann gerði úr íslenzkum leir- litum. Til sýningarinnar er sem fyrr segir stofnað vegna þess að um þessar mundir er liðin öld frá fæðingu hans, en að sýningunni standa tvö börn hans, Ragnhildur, sem gift er Bjarna verkstjóra í Hamri, og Hjalti, sem er málari hér í bænum. Annar sonur Einars er nú létinn, Gunnar, sem var vélfræðingur og kvæntur Þóru Borg. Sýningin verður opin næstu 10 daga kL 14—22. Tilkynningar, sem eiga að birtast í Dagbók á sunnudögum verða ‘ að hafa borizt fyrir kl. 7 á / föstudögum. Laugardaginn 13. apríl síðast- liðinn votu gefin saman í hjóna- banda af séra Ingólfi Ástmars- syni ungfrú Helga Ragnhildur Sverrisdóttir, bankaritari í Út- vepsbankanum, og Marínó Sveins son bankaritari í Landsbankan- um. Heimili ungu hjónanna er að Tjarnarstíg 10. Seltjarnar- nesi. Nýlega hafa opinberað trúlof- un sína Sunna Emanúelsdóttir, Borg í Ólafsvík, og Gísli Gunn- arsson, Langholtsveg 32 í Rvik. Ennfremur Sólrún Gunnarsdótt- ir, sama stað, og Þórður Pálma- son, Austurbrún 29. Á páskadag opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Sigríður.Th. Mathiesen, Hallveigarstig 8 a, og Viktor Ingi Sturlaugsson, Grundarstíg 2. Um páskana opinberuðu trú- lofun sína Hrafnhildur Ingva- dóttir, Sogaveg 172, og Sigurður Jónsson, Gnoðavog 38. Á páskadag opinberuðu trú- lofun sina ungfrú Elisabet Magn úsdóttir, Bergstaðastræti 30, og Baldvin Einarsson, Hverfisgötu Nýlega opinberuðu trúlofun sína í Danmörku Vigdís Erlends- dóttir, Barðavogi 24, og Steinar H. Geirdal, Melhaga 4. Laugardaginn 13. apríl opin- beruðu trúlofun sína ungfrú Alda Bragadóttir, Goðheimum 16, og Björn Ingi Björnsson, Breiða- bliki á Seltjarnarnesi. Þakkarávaxp OKKAR beztu þakkir viljum við færa öllum þeim, sem á einn eða annan hátt hafa veitt okk- ur hjálp í erfiðleikum okkar á síðastliðnum vetri er brann hjá okkur. Við vonum, að Guð launi ykkur allt sem þið hafið til þeirra mála gott lagt, hvort sem það hefir komið fram í vinnu, peningum, fatagjöfum eða góðri aðhlynningu okikur veittrL Guð blessi ykkur öll og veiti ykkur hjálp og styrk í öllum þrengingum lífsins. Kristinn Sveinsson og fjölskylda, Hólmavík. Á páskadag voru gefin saman í hjónaband í Kópavogskirkju íif séra Gunnari Árnasyni ung- frú Hansína Jóna Traustadóttir, hárgreiðsludama, og Hóhngeir Björnsson, nemandi í Stýrimanna skólanum. Heimili þeirra er að Urðarbraut 3 í Kópavogi. (Ljósm Studio Guðmundar, Garðastræti 8). Laugardag fyrir páska voru gefin saman í hjónaband af séra Jakob Jónssyni Rósa (Nanna) Magnúsdóttir, hjúkrunarkona frá ísafirði, og Tryggvi Jónsson, yfirverkstjóri, Brekkugötu 9 í Vestmannaeyjum. Á páskadag voru gefin saman í hjónaband af séra Þorsteini BjörnssynL Hrafnhildur S. Steph ens, og Halldór Hafsteinsson, Efstasundi 56. Opinberað hafa trúlofun sína ungfrú Hólmfríður Haraldsdótt- ir, Borgarholtsbraut 41 í Kópa- vogi, og Kristján Jónasson, frá Bolungarvík. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af séra Braga Frið- rikssyni ungfrú Helga Vilhjálms dóttir og Sigurður Gústafsson, Hörgatúni 7 í GarðahreppL Sjötug er í dag dóttir, Grænuhlíð 5. Þú ert velkominn til mín . . .— Og þú líka til min . . . lbúð til leigu Ungur flugmaður óskar eftir íbúð til leigu, strax eða 14. maí. Uppl. í síma 50943 eftir kl. 5 e. h. Herbergi Ung raglusöm stúlka óskar y eftir herbergi, helzt næst Miðbænum. Barnagæzia getur komið til greina. — Uppl. í síma 32509 eftir kl. 5. Barnlaus hjón óska eftir 2ja—3ja herb. íbúð frá 15. maí. Vinna bæði úti. Góðri umgengni heitið. Uppl. í síma 35892. Fullorðinn maður sem sjaldan er heima, ósk- ar eftir herbergi nú þegar eða 14. maí. Tilboð merkt: „Fullorðinn — 6740“. —t------------------------ Keflavík Sem nýr Pedigree barna- vagn til sölu. Uppl. í síma 1316. Tóbaks- og sælgsetis- verzlun á góðum stað í bænum til sölu. Tilboð merkt: „Söluturn — 6743“ sendist afgr. Mbl. Austin 12—16 vél óskast keypt. Uppl. í sima 23392 á kvöldin. Leiguíbúð óskast Ung hjón með tvö börn óska eftir íbúð sem fyrst. Upplýsingar í síma 20159. Til sölu hrors á öllum aldri að Fitjakoti Kjalarnesi. — Sími 22060. Til leigu í Hafnarfirði 2 herb. og eldhús frá 14. maí. Barn- laust fólk gengur fyrir. — Tilboð merkt: „íbúð — 6164“ sendist afgr. Mbl. fyrir 1. maí. 2ja herb. íbúð óskast handa tveim ungum mönnum, sem eru í sigl- ingum. Uppl. í síma 11152. 6 tonna dekkbátur með Lister vél til sölu. Lágt verð. Góðir skilmál- ar. Verður til sýnis við gömlu verbúðarbryggjurn- ar í Rvík föstud. 19. apríl. Piltur Okkur vantar pilt til að- stoðar í bakaríi nú þegar eða sem allra fyrst. — Gott kaup. Uppl. í síma 33435. Drengja armbandsúr tapaðist miðvikudaginn 10. þ. m. Vinsamlega skilist í auglýsingadeild Morgun- blaðsins. London DÖMUDEILD TIL FERMINGARGJAFA: Nylonsloppar Nylonregnkápur Leðurhanzkar Töskur London DÖMUDEILD Austurstræti 14. Sími 14260 Á Prinzinum sannast: „Margur er knár, þótt hann sé smár“. 5 manna fjölskyldubifreið. Komið. og Bm skoðið Prinzinn. Verð kr: 119.700. FÁLKIIMN HF. 'Laugavegi 24 — Reykjavík Söluumboð á Akureyri: .Lúðvík Jónsson & CO.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.