Morgunblaðið - 19.04.1963, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.04.1963, Blaðsíða 8
8 UORCVNBL 4 RtB Föstudagur 19. aprfl 1903 — Alþingi Framhald af bls. 1. hvar sem er og innflutningurinn Orðinji frjáls að mestu leyti. Síðan veik hann nokkuð að 'því að verðlag vöru og þjónustu liefur hækkað um 36% frá 1958 til 1962, en meðaltekjur sjó- manna, verkamanna og iðnaðar- manna hins vegar aukizt um 48%. Afkoman hefur því með öðrum orðum batnað um 10% í heild hjá þessum þremur launa- stéttum. í kjölfar aukinnar kaup getu almennings hefur vöruúr- val síðan aukizt. Allir kannast við, að erfitt er að láta tekjurnar hrökkva fyrir útgjöldunum. Sem sannar að sjálfsögðu ekkert annað en það, að okkur langar til að kaupa meira en við getum. Það er þess vegna ekki óeðlilegt, þegar fjöl- breytnin eykst og löngunin til að kaupa hina ýmsu hluti styrk- ist, þótt mönnum gangi erfiðlega að láta tekjurnar hrökkva, þótt þær hafi raunverulega batnað. >á kom hann nokkuð að al- mannatryggingunum, en þær hafa vaxið úr 1148 kr. 1958 í 9.231 kr. nú á hjón með þrjú böm. Til þess verður einnig að taka tillit, þegar «fkoma er met- in. Bætur almannatrygginga eru mikil tekjubót, sem skapar aukið réttlæti með því að lenda í höndum þeirra, sem mest þarfn- ast þess. HH) VONDA, SEM VIÐ VILJT7M, GERUM VH) EKKI Bjarni Benediktsson dómsmála ráffherra hóf ræðu sína með því, að enginn vefengdi, að íslenzku þjóðinni hefði gengið flest í hag- inn hin síðustu misseri. Auðvit- að er þetta ekki eingöngu ríkis- stjórninni að þakka, enda halda stjórnarandstæðingar því fram, að það hafi orðið þrátt fyrir vondan vilja stjórnarinnar. Mál- flutningur þeirra verður ekki. skilinn á annan veg en þann, að hið vonda, sem við viljum, ger- um við ekki. Um okkur snúa stjórnarandstæðingar því alveg við lýsingunni, sem postulinn Páll gaf á sjálfum sér: „Hið góða, sem ég vil, gjöri ég ekki, !hið vOnda, sem ég ekki vil, það gjöri ég.“. Eitt af hinu vonda, sem stjórn- arandstæðingar segja, að við 'höfum viljað en ekki gert, er að sækja um aðild að Efnahags- bandalaginu og þar með ofur- selja frelsi og lífshagsmuni þjóð- arinnar. í veg fyrir þetta eiga tvö eða þrjú stórmenni að hafa komið, þar á meðal Adenauer kanslari, en hins vegar þegja framsóknarmenn um fjórða stór- mennið, de Gaulle Frakklands- forseta, sem þó hefur óneitan- lega töluvert komið við sögu um fjölgun bandalagsþjóða, þótt á annan veg sé en Framsóknar- menn telja henta kosningahags- munum sínum. Kvað ráðherr- ann fáa atburði eftir stríðslok 1946 hafa komið meira róti á hiugi manna meðal lýðræðisþjóða en þegar dé Gaúlle synjaði í janúar sl. Bretum um aðild að EBE. y Að sjálfsögðu reyni talsmenn aðildar Breta að gera sem minnst úr þessu og leggja kapp á að koma í veg fyrir að verra hljótist af. Talsmenn fimmveld- anna keppast við að fullyrða, að allt muni þetta lagast, áður en varir, og sjálfur tekur de Gaulle undir það öðru hvoru. Hann segir, að vandinn sé sá einn að Bretar fallist skilyrðislaust á Rómarsamninginn. 2. apríLfluttl utanríkisráðherrann enn hinn sama boðskap í Briissel og varð þá skarpur skoðananvunur milli hans Og talsmanna Þjóðverja. Vitnaði BB til ýmissa ummæla, sem öll voru á sama veg, en niðurstaðan varð sú, að de Gaulle segir, að. Bretar geti hve- nær sem er fengið aðild að bandalaginu, ef þeir falli frá þeim skilyrðum, sem núverandi ríkisstjórn í Bretlandi hefur sett. Hún telur sig hins vegar hafa teygt sig svo langt sem frekast er unnt og hefur ekki sízt ’fyrir þá undanlátssemi gold- ið afhroð meðal kjósenda. Það afhroð er hins vegar svo mikið, að form. andstöðuflokksins er þegar farinn að ferðast um til að sýna sig sem væntanlegan for- sætisráðherra Stóra-Bretlands. Hann segir eins og de Gaulle, að víst komi aðild Breta að EBE til greina, og þá kemur það sem skilur á milli: Ef Frakkar fallist á ný viðbótarskilyrði af hálfu Breta umfram þau, sem íhalds- stjórnin hefur sett ogule Gaulle þverneitað. Framhjá þessum staðreyndum verður ekki komizt. Nauðugir viljugir verðum við að bíða og -sjá hvað setur. Flest sýnist þarf- ara en að eyða orku og tíma í að þræta um það, sem liðið er, hvað þá nú eftir á að vera að ■búa til ágreining um það, sem aldrei var ágreiningur um að efni til milli lýðræðisflokkanna. Því að þegar menn tala um ann- aðhvort aukaaðild að EBE eða viðskipta- og tollasamning við það, ef til hefði komið, þá er það einungis ágreiningur um form en ekki éfni. MEGINSTEFNAN LJÓS Veik ráðherrann síðan að því, að aðild annarra Vestur-Evrópu- ríkja að EBE mundi óhjákvæmi- lega hafa skapað okkur mikinn vanda. Frá þröngu eiginhags- munasjónarmiði íslendinga get- um við því grátið þurrum tárum yfir því, að úr þessari stækkun EBE virðist lítt ætla að verða í bráð. Sagðist hann ekki segja þetta vegna þess, að Sjálfstæðis- menn hefðu skotið þessum vanda fram af sér, ef hann hefði borið af höndum. Slíkt væri ekki þeirra háttur. Hins vegar geri þeir sér fullljóst, að aukið sam- starf þjóða í milli, einnig í efna- hagsmálum, er fyrr eða síðar mögulegt i einhverri mynd. Á meðan með öllu er óvíst til hverra það nær og hversu víð- tækt það kann að verða er þýð- ingarlaust að tala um einstök efnisatriði, hvað þá form. En meginstefnan er íjós. Það er sama stefna og fylgt hefur verið gagnvart EBE. Vitnaði ráðherrann síðan til ummæla sinna haustið 1961, sem hann viðhafði sem forsætisráð- herra og áður en þær umræður •urðu í Bonn 28. sept. sama ár sem stjórnarandstæðingar hafa sagt að orðið hefðu til að breyta stefnu ríkisstjórnarinnar í efna- hagsmálinu. En allþ sem ráð- herrann hefur síðan sagt I mál- inu kvað hann í fullu samræmi við þessar fyrstu yfirlýsingar. Sýndu þessar tilvitnanir, að rík- isstjómin hefur frá upphafi fylgt í þessu vandasama máli stefnu fyrirhyggju og varúðar. Um lausn vandans verður ekki dæmt, fyrr en sést, hvort hann skapast og þá hvers eðlis hann verður. Ef víðtæk efnahagsbanda lög myndast, má svo fara, að ákvarðanir þeirra ráði úrslitum um okkar hag, svo smáir sem Reynt að hraða samþykkt um afgreiðslutíma verzí. I GÆR voru lagðar fram á borgarstjórnarfundi t il 1 ö g u r þeirra Páls Líndal og Sigurðar Magnússonar að samþykkt um afgreiðslutíma verzlana í Reykja vik og fleira ásamt umsögnum, er borgarráði hafa borizt lun til- lögurnar. Geir Hallgrímsson borgarstjóri sagði við það tækifæri að höf- undum tillaganna hefði verið falið að ræða við fulltrúa verzl- unarfólks um breytingar þaer, sem það óskar að fram/komi, og er þannig komið til móts við óskir launþega. Borgarstjóri sagði að reynt yrði að hraða þessum viðræðum svo sem föng væru á og málið tekið til afgreiðslu eins fljótt og unnt va.._ Eins og skýrt hefur verið frá, hefur sir Winston Churchill verið gerður að heiðursborgara Bandaríkjanna. Hann er fyrsti maðurinn, sem hlýtur þann heiður. Á myndinni, sem tekin er fyrir nokkrum dögum, heldur Churchill á skjalinu, sem staðfestir útnefninguna. við erum, jafnt, hvort sem við verðum aðili eða ekki. Kynni þá að vera eina ráðið til þess að hagsmunir okkar verði ekki þverbrotnir að við tengjumst þessum samtökum með þeim hætti, en þá má aldrei láta af þeirri varúð, sem við Sjálfstæðis menn höfum viljað gæta EBE. Þ J ÓÐ V ARNARSTÁLF J ÖÐUB KOMMÚNISTA Næstur tók til máls Hannibal Valdimarsson og talaði af hálfu Alþýðubandalagsins. Deildi hann á núverandi stjórn fyrir slælega framgöngu í efnahagsmálum og líkti því við athæfi göt.ustráka að kenna vinstri stjórninni um ástandið í þeim málum. Taldi hann það fjarstæðu að flokkar 'í stjórnarandstöðu gætu haft ‘áhrif á ástand efnahagsmála. Þó 'kvað hann það áhrifum Alþýðu- bandalagsins að þakka, að fjár- framlög almannatrygginga hefðu aukizt eins mikið og raun ber vitni um. Varaði Hannibal og við því, að láta blekkjast af „vinstri áróðri'* Alþýðuflokks- ins. Hannibal beindi þeirri spurn- ingu til Framsóknarmanna, hvort útilokað væri að þeir færu 'í stjórn með Sjálfstæðismönnum ef þeir ættu þess kost. Hann kvað það eina möguleikann til að „vinstri sjónarmið" ríktu eftir kosningar einnig i Fram- sókn, að Alþýðubandalagið ynni sem glæsilegastan sigur í þeim. Næst réðist Hannibal harðlega gegn ríkisstjórninni fyrir af- stöðu hennar í Efnahagsbanda- lagsmálinu Og sagði ekki koma til greina annað en að full aðild vekti fyrir henni, — eða að minnsta kosti meira en auka- aðild. Hannibal kvaðst fagna mjög innlimun Þjóðvarnar í Alþýðu- 'bandalagið og mundi það sækja fram til sigurs og „spretta upp eins og stálfjöður'* eftir næstu kosningar. „VIÐREISN FORSJÓNARINNAR" Þá tók til máls Hermann Jón- asson. Kvað hann það hið mesta stagl að vera ennþá að minnast í vinstri stjórnina. Afkoman hefði verið góð 1958, en Einar Olgeirs- son hafi tekið höndum saman við hægri öflin um að bjóða kaup- hækkun, en óframkvæmanlegt hafi verið að hækka launin og því hafi farið sem fór. Ekki taldi Hermann „neinn geta ábyrgzt“ að ríkisstjórnin mundi ekki framlengja samning- inn um veiðar Breta innan 12 mílnia markanna og þá mundi stjórnin afsala niðjum lands- manna mögueikunum til að iifa í landinu, þegar fólksfjöldinn yxi. Einnig upplýsti Hermann kjós- endur um að þeir mættu ekki vera bundnir flokksböndum né vana, heldur vera úhxæddir að skipta um skoðun. Síðari ræðumaður Framsókn- arflokksins í 1. umferð, Gísli Guð mundsson, kvað það ósennilegt að stuðningur Þjóðvarnarmanna yrði kommúnistum að liði. Framsóknarflokknum og í sam vinnu við hann sagði Gísli, að heillavænlegast væri að vera til að stuðla að „öruggum úrlausn- um á örlagatímum'*. Kvað hann það rangt að erfa „óhappaverk liðins tíma“. Viðreisnina taldi Gísli mis- heppnaða, en forsjónin hefði sent okkur mikinn fiskafla undanfar- in 2 ár og sú bót á högum þjóð- arinnar, sem átt hefði sér stað, væri „viðreisn forsjónarinnar'*. AUKNAR ALM ANNATR Y GGING AR Benedikt Gröndal (A) veik í upphafi máls síns að því, að þjóð hags- og framkvæmdaáætlunln væri hið merkasta plagg. Sæist bezt af viðbrögðum stjórnarand- stöðunnar, að hún væri samin af fyllstu ábyrgð og gætni, þar sem Eysteinn gripi til þess að kalla hana kosningaplagg, meðan Lúð- vík kvartaði yfir of litlum fram- kvæmdum, en það tvennt gæti ekkii ferið saman. Þá minnti hann á, að engin ríkisstjórn hef- ur hækkað framlög til húsnæðis- lána sem núverandi ríkisstjóirn, sem m.a. hefði vakið verka- mannabústaðakerfið frá dauðum. Þá hafa almannatryggingar aukizt meir en nokkru sinni. Framsóknarmenn kölluðu þær styrk frá ríkinu, en með því kæmu þeir fram eins og svairt- asta íhald og skildu ekki eðli almannatrygginganna. En þær eru raimverulega ekkert annað en skipulögð tekjuskipting milli þegnanna og viðleitni þjóðfélags ins til að sjá svo um, að enginn þurfi að líða skort. Þær hjálpa þeim, sem standa höllum fæti, og koma í veg fyrir þann ótta manna að þeir eigi ekki fyrir nauðþurftum, ef eitthvað bjátaði á. HAGUR BÆNDA OG LANDS- MANNA ALLRA BÆTTUR Ingólfur Jónsson, landbúnaðar- ráðherra, gerði landbúnaðarmál- in almennt nokkuð að umtals- efni. Veik hann m.a. að því, að samikvæmt nýju tollskránni verð ur tollur á landbúnaðarvörum 10%, en það er xniklu lægra en áður hefur verið. Allt frá 1948 hefur tollur á þeim verið 20,7%, en 1957—1958 var tollurinn hækk aður upp í 23,2% auk 55% yfir- færslugjaldisins. Þá sá Framsóikn- armenn ekki ástæðu til að lækka tolla á landbúnaðarvélum eða öðrum nauðsynjum. Þeir fóru ekki að ræða um það, fyrr en núverandi ríkisstjórn kom til valda. Enginn vafi er á, að með slíkum breytingum á tollum og nýja tollskráin ber með sér er hagur bænda og reyndar allra landsmanna mjög mikið bættur. Veik hann síðan að því, að einn af þingmönnum Framsókn- arflokksins hefði fullyrt í út- varpsumræðum að sauðfjáraf- urðir hefðu aðeins hækkað um 4% frá 1958—1962. Sami þíng- maður hefur einnig fullyrt, að ^ölutrygging sú, sem bændur nú hafa á allri framleiðslunni, sé ekkert betri en þær útflutnings- uppbætur, sem bændur fengu þegar Útflutningssjóður starfaði. Námu þær þó oft ekki nema litl— um hluta af því. sem vahtaði á fullt verð. Nú fá bændur hins vegar örugglega umsamið verð sex manna nefndarinnar, en það gerðist ekki fyrr en núv. ríkis- stjórn breytti Framleiðsluráðs- lögunum í árslok 1959. Þá var tekin sölutrygging á útfluttum landbúnaðarvörum ug þannig tryggt, að bændur þyrftu ekki lengur að bera hallann eins og þegar Framsóknarmenn stjórn- uðu þessum málum. Annað mál er. svo, að afurða- verðið þyrfti að vera hærra, en um það verður ríkisstjórnin ekki ’borin sökum með réttu. Framsóknarmenn hafa mikið rætt um afurðarlán landbúnaðar ins og haldið því fram, að sjáv- ar útvegurinn fái mun betri fyrirgreiðslu í bönkunum heldur en landbúnaðurinn. Þessi met- ingur, sem Framsóknarmenn eru stöðugt með milli þessara höfuð- atvinnuvega, er hvimleiður og ástæðulaus. Landbúnaðurinn fær ekki lakari fyrirgreiðslu i bönkum landsins en verið hefur. Bændur fá afurðaverðið ekki seinna útborgað en áður. Þeir fá heldur ekki greiddan lægri hundraðshluta en meðan Fram- sóknarmenn voru við völd. Víða mun útborgun koma fyrr nú en áður hefur verið og víðs vegar um land er einnig greiddur ’hærri hundraðshluti út heldr.r en verið hefur. Þetta vita bænd- ur og er því áróður Framsóknar- manna um afurðarlánin út í hött og algjörlega skotið hjá marki. Þá benti hann á, að þótt ekki sé nema ár síðan Stofnlánadeild landbúnaðarins tók til starfr því formi, sem hún er núna, 1 ur eigi að síður orðið góður árang ur af starfsemi hennar. Útlán hafa verið aukin mjög, svo sem áður hefur komið fram. Loks veik hann að því, að minnzt hefði verið á, að vega- málin væru i miklum ólestri. Ekki hefur þó verið leitazt við að færa rök fyrir þeirri fullyrð- ingu. í tíð núverandi ríkisstjórn- ar hefur vegafé verið aukið hlut fallslega mikið meira en nokkru sinni fyrr. Þannig hefur við- haldsféð verið hækkað um 90% síðan 1958, fé til nýbygginga um 70%, til brúargerða um 62% og til flugvalla um 99%. Talið er að viðhaldskostnaður og vega- gerðarkostnaður hafi aukizt á þessu tímabili um 45%. I FRAMSÓKN TVÍSTÍGUR Ræðumaður Alþýðubandalags ins í 2. umferð var Lúðvík Jós- Framh. á bls. 17. ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.